Skessuhorn


Skessuhorn - 04.08.2004, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 04.08.2004, Blaðsíða 15
joJiaaunu... MIÐVIKUDAGUR 4. AGUST 2004 15 Enskur sóknar- maður til ÍA Skagamenn hættu við að semja við júgósiavneska fram- herjann Dragan Simovic sem var til reynsiu hjá liðinu. Þess í stað hafa þeir fengið til liðs til sín enskan framherja, Richard Michael Barnwell að nafni. Hann hefur undanfarið leikið með Eistneska liðinu FC Levadia og skorað drjúgt en Barnwell er sagður markhepp- inn með afbrigðum og Ijóst að sá eiginleiki á að geta nýst Skagamönnum vel á loka- sprettinum en þeim hefur ekki gengið vel upp við markið í sumar þrátt fyrir að skapa sér urmul af færum. Að öllum líkindum mun hinn nýi framherji leika næsta leik Skagamana í Landsbanka- deildinni en hann verður gegn KA á Akureyrarvelli næstkom- andi sunnudag. GE Marka- hrókar Stelpurnar í ÍA hafa skorað 68 mörk í tíu leikjum eða 6,8 mörk að meðaltali í leik. Markahæst skagastúlkna er Helga Sjöfn Jóhannesdóttir sem skorað hefur 16 mörk. Magnea Guðlaugsdóttir er með 12, Áslaug Ragna Áka- dóttir, 10, Jónina Halla Víg- laundsdóttir 10 og Hallbera Guðný Gísladóttir 8. GE Staðan í B riðli 1. deildar kvenna í knattspyrnu Félag L U J T Mörk Stig 1 ÍA 10 10 0 0 68:9 30 2 Þróttur R. 9 7 0 2 46:13 21 3 ÍR 10 4 0 6 28:34 12 4 Fylkir 10 3 0 7 27:43 9 5 Hv./Tind.st.9 0 0 9 4:74 0 Staðan í 2. deild karla í knattspyrnu Félag L U J T Mörk Stig 1 Leiknir R. 13 9 3 134:11 30 2KS 13 9 2 2 41:22 29 3 Vík. Ó. 13 8 2 324:10 26 4 Aftureld. 13 5 3 5 24:20 18 5 Leift./Dal. 13 5 2 6 23:27 17 6 Selfoss 13 4 4 5 28:29 16 7 ÍR 13 3 5 5 15:21 14 8 Víðir 13 3 3 7 16:34 12 9 Tindast. 13 2 5 6 21:32 11 10KFS 13 1 3 9 17:37 6 Skagamenn í aðra umferð UEFA bikarsins Mæta Pétri Marteinssyni og félögum í Hammarby í Svíþjóð Ellert Jón Björnsson skaut Skagamönnum í aðra umferð UEFA bikarsins síðastliðinn fimmtudag en hann skoraði bæði mörk liðsins í seinni leiknum gegn TVMK Tallin í Tallin í Eistlandi. Fyrri leikurinn endaði sem kunnugt er 4 - 2 fyrir ÍA og unnu Skagamenn því samtals 6-3. Fleimamenn í Tallin byrjuðu af miklum krafti og sóttu stíft fyrsta stundarfjórðung leiksins. Skagavörnin stóð hinsvegar fyrir sínu og þegar leið á fyrri háflleikinn sóttu Akurnesingar í sig veðrið. Ellert Jón átti gott færi um miðjan hálfleikinn en hann var mjög ógnandi allan tímann og lék sinn besta leik í langan tíma. Fyrsta mark leiks- ins kom rétt undir lok fyrri hálf- leiks en þá var dæmd auka- spyrna á Tallin eftir að Fljörtur föstu skoti. Þrem- ur mínútum síðar skoraði Hjörtur Hjartarson annað mark ÍA en það var dæmt af vegna rangstöðu. í síðari hálfleik freistuðu Eistarnir þess að jafna en Skagamenn gáfu sig ekki og á 51 mínútu skoraði Jón annað mark ÍA með góðu skoti af löngu færi. Heimamenn gáfust þó ekki upp og það sem eftir lifði leiks reyndi mikið á Hjartarson hafði verið felldur vörn Skagaliðsins og ekki síst rétt utan vítateigs. Ellert Jón Þórð markvörð sem stóð að tók spyrnuna og skoraði með vanda fyrir sínu. Það kom þó ekki í veg fyrir að heimamenn næðu að minnka muninn undir lok leiksins en það kom ekki að sök því öruggur sigur Skaga- manna var staðreynd og liðið er komið í 2. umferð. Mótherjar Skagamanna í 2. umferðinni verður sænska liðið Hammarby sem íslenski Landsliðsmaðurinn Pétur Marteinsson er á mála hjá. Fyrri leikurinn verður í Svíþjóð þann 12. ágúst en sá síðari á Skaganum þann 26. ágúst. Leikurinn í Eistlandi vartíma- mótaleikur fyrir Pálma Haralds- son sem lék þar sinn 400. leik fyrir hönd ÍA. Þá má einnig segja að þetta hafi verið merk- ur áfangi fyrir Hjálm Dór Hjálmsson sem lék sinn fyrsta Evrópuleik frá árinu 2000 en þá fór hann í fjögurra leikja bann. GE Góður sigur á Aftureldingu Víkingar úr Ólafsvík berjast áfram harðri baráttu um sæti í 1. deild íslandsmótsins í knatt- spyrnu en þeir eru sem kunn- ugt er nýliðar í 2. deildinni í sumar. Víkingar tóku á móti Aftureldingu úr Mosfellsbæ á miðvikudag á Ólafsvíkurvelli í 13. umferð deildarinnar. Vík- ingar léku á alls oddi og höfðu mikla yfirburði. Fyrsta mark leiksins kom þó ekki fyrr en á 36. mínútu og þar var að verki Helgi Reynir Guðmundsson með sitt fyrsta deildarmark í sumar. Kjartan Jóhannes Ein- arsson skoraði annað mark Víkinga á 58. mínútu og undir lok leiksins innsiglaði Her- mann Geir Þórsson sigur Vík- ings með góðu marki. Her- mann er markahæstur Víkinga í sumar og hefur skorað sjö mörk í deildinni. Þess má geta að markahæstur í deildinni er Þórður Birgisson, leikmaður KS en hann fór á Siglufjörð í vor frá ÍA. Víkingar eru sem fyrr í 3. sæti deildarinnar og hafa nú 26 stig en KS er í öðru sæti með 29 stig og Leiknir úr Reykjavík á toppnum með 30 stig. Það er því Ijóst að barátt- an verður hörð í þeim fimm umferðum sem eftir eru. Næsti leikur Víkinga er gegn ÍR á úti- velli á föstudag en 14. ágúst fá þeir Siglfirðinga í heimsókn og gæti það orðið úrslitaleikur um sæti í 1. deildinni. Það er því spennandi sprettur framundan hjá Ólsurum. GE Ragnar formaður Ragnar Gunnarsson hefur tekið við sem formaður körfuknattleiksdeildar Skalla- gríms af Ólafi Helgasyni en þeir ákváðu að hafa sætaskipti í stjórninni og verður Ólafur rit- ari í stað Ragnars. Að sögn nýs formanns er út- lit fyrir að vel gangi að manna lið Skallagríms fyrir átökin í úr- valsdeildinni í vetur en sem kunnugt er tókst Sköllunum að vinna sæti sitt meðal hinna bestu á ný eftir eins árs dvöl í 1. deild. Einn íslenskur leik- maður hefur gengið til liðs við Skallana, Ragnar Steinarsson úr Val en eini leikmaðurinn sem yfirgefur herbúðir Borg- nessinga er nafni hans Steins- sen. Þá eru tveir Bandaríkja- menn á leið í Borgarnes og einn makedónískur leikmaður, Ragnar Gunnarsson Jovan Zdravevski, að nafni. Hann er 23 ára gamall og 197 centímetrar á hæð. Ragnar vildi hinsvegar ekki gefa upp á þessu stigi hvaða Bandaríkja- menn væri um að ræða en samkvæmt heimildum Skessuhorns mun annar þeirra vera leikmaður sem er íslensk- um körfuboltaáhugamönnum er að góðu kunnur. GE Ostöðvandi IA konur ÍA konur unnu sinn tíunda leik í B riðli 1. deildar kvenna í síðustu viku þegar þær unnu Fylki 4 - 0. ÍA er enn ósigrað í deildinni og eru stelpurnar nánast búnar að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni þar sem fjögur lið munu bítast um eitt laust sæti í úrvalsdeild. Nú þegar hefur Sindri á Hornafirði tryggt sér sæti í úrslitum og nokkuð Ijóst er að Keflavík verði þar einnig. Hinsvegar er ekki útséð um hvort HK eða Þróttur verði fjórða liðið í úr- slitakeppninni. Hallbera Guðný Gísladóttir skoraði tvö mörk gegn Fylki og þær Helga Ingibjörg Guðjóns- dóttir og Helga Sjöfn Jóhann- esdóttir sitt markið hvor. Næsti leikur ÍA er gegn Þrótti Reykja- vík á Akranesvelli næstkom- andi fimmtudagskvöld. GE ^jKunð ninsætu gjafiakoztin Margar gerðir af gallabuxum á bæði kynin í öllum stærðum TAKTU ÞATT I ASKRIFTARLEIK Skessuhorns, ÞAÐ KOSTAR EKKERT ANNAÐ EN AÐ STANDA í SKILUM í þessum mánuði er vinningurinn frá versluninni Nínu, Kirkjubraut 4, Akranesi. Vöruúttekt að verðmæti 20.000 kr. og verður dregið 20. ágúst rnllf af flnffi■ m knlnm Fullt af flottum bolum fyrir hann MMIeikur

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.