Skessuhorn


Skessuhorn - 11.08.2004, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 11.08.2004, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 11. AGUST 2004 A slóðir Eirfks rauða Nú í dag leggur hópur fólks af Vesturlandi af stað í fimm daga ferð til Græn- lands til þess m.a. að kynn- ast menningu og sögu Grænlendinga. Ferðin er liður í Evrópuverkefninu Destination Viking og verður í henni haldinn sam- starfsfundur fulltrúa þátt- tökuþjóðanna sem eru m.a. Norðurlandaþjóðirnar, Mön, Orkneyjar og Ný- fundnaland. Af Vesturlandi fara þær Þrúður Kristjáns- dóttir og Helga Agústs- dóttir úr Dalabyggð og Asthildur Magnúsdóttir úr Borgarbyggð. Hópurinn mun ferðast vítt og breitt unr Grænland og m.a. fara til Nuuk, Qaqortoq og Igaliku auk þess sem bær Eiríks rauða í Brattahlíð verður skoðaður. Ráðgert er að ferðasaga hópsins verði birt í Skessuhorni innan tíðar. MM Dalalamb slátrar Dala- lömbum Ákvörðun hefur verið tekin um að slátrað verði í sláturhúsinu í Búðardal í haust á vegum Dalalambs, en það er fyrirtæki sem Dalabyggð stofnaði síðasta haust. Að sögn Haraldar Líndal sveitarstjóra er búist við að 20 - 25.000 lömbum verði slátrað í Búðardal í haust en í fyrra voru þau 12.500. Hann segir eftir að ganga frá samningum varð- andi útflutningskjöt en slát- urhúsið í Búðardal hefur ekki útflutningsleyfi. Hins- vegar hefur verið samþykkt að vinna að því að svo verði innan fárra missera og á næstunni verður lögð fram áætlun um nauðsynlegar endurbætur. Slátrun hjá Dalalambi hefst um næstu mánaðamót. GE Stefiiir í metuppskeru koms Magnús Eggertsson á þreskivélinni. Mjög hagstæð skilyrði hafa verið til kornræktar á Vestur- landi í vor og sumar og stutt í að hægt verði að þreskja korn af íyrstu ökrunum. Magnús Egg- ertsson, bóndi í Ásgarði í Reyk- holtsdal hefur um árabil gert út kornþreskivél fyrir sjálfan sig og aðra bændur í héraðinu. I sam- tali við Skessuhorn í gær sagði Magnús að allt stefndi í metupp- skeru þetta árið. „Mér sýnist þetta líta rosalega vel út. Ein- hverjir blettir eru þegar farnir að gulna og við það að verða til- búnir til þreskingar. Venjulega hefst þresking um eða fýrir miðjan september en núna mun- um við byrja uppúr miðjum á- gúst, eða mánuði fýrr en venju- lega,“ segir Magnús. Hann kveðst vera nýlega kominn úr hringferð um landið og segir á- stand á kornökrum á Vesturlandi vera síst verra en annarsstaðar á landinu, en Eyfirð- ingar eru þegar byrjaðir að þreskja kom, eins og fram hefur komið í ff étt- um. Magnús segir kornverð vera um 25 krónur kílóið í dag en hafi verið um 17 krónur í fyrra. „Verðið lækkar hugsanlega eitthvað í haust, en engu að síður er þetta verð nær því að teljast eðlilegt miðað við framleiðslukostnað. Hinsvegar er það ljóst að það stefnir í metuppskeru hér á svæðinu.“ Sjálfur ræktar Magnús korn á 38 ha lands þetta árið og notaði hann eingöngu eigin sáðkorn frá því síðasta sumar. Segir hann nokkra bændur í nágrenni við sig gera slíkt hið sama, m.a. bændur á Hurðarbaki, Geirshlíð og Hæl. Hann þreskir korn fýrir þá og fleiri bændur í uppsveitum Borgarfjarðar. Á fýrstu korn- ræktarárunum í héraðinu ferð- aðist Magnús með þreskivélina vítt og breitt um Vesturland, en hann segir að nú séu sífellt að bætast við fleiri þreskivélar sem jafni álagið hjá sér og öðram sem fýrir era. Ekki veiti af því mikil aukning sé í kornrækt á Vesturlandi. MM Besta sjávarsíðuhótelið? Breska blaðið The Independent segir á vef sínum að Hótel Búðir sé eitt af fimm bestu sjávarsíðuhótelum í heimi. I umsögn blaðsins segir m.a. að þar sé raunar meiri jöklasýn en útsýni til sjávar en það sé á staðnum þar sem Jules Verne lét söguna Leyndardóma Snæfellsjökuls gerast. Hótelið hafi verið byggt eftir að eldra hótel á sama stað brann og þar sé að finna ljósmyndir frá 19. öld og glerlampa sem bjargað var úr eldinum í bland við nú- Hótel Búðir tímaleg húsgögn. „Og freisti það ekki, hvað þá um tækifæri til að brokka yfir hraunið með fýrirtæki sem heitir Gobbedi Gob?“ spyr blaðið. MM Tilboð opnuð í byggingar Norðuráls á Grundartanga: Istak milljarði undir kostnaðaráætlun I lok júlí voru opnuð tilboð í byggingu nýs kerskála og aðrar byggingar vegna þriðja áfanga Norðuráls á Grundartanga, þ.e. stækkunar álversins úr 90.000 tonnum í 180.000 tonn. Útboð- ið tók til byggingar kerskála (um 31.000 m2), spennistöðva og aðstöðu fýrir loftpressur og blásara (samtals um 900 m2). Verkið felur í sér aðstöðusköpun á vinnusvæðinu, jarðvinnu, upp- steypu, forsteypt- ar einingar, stál- virki, klæðningar, veitukerfi og bún- að, almennar lág- spennulagnir og frágang innanhúss fýrir nýju byggingarnar. Alls bárust fjögur tilboð í verkið en þau voru frá Istaki hfi, ÞG verk- tökum ehfi, Sveinbirni Sigurðssyni hf. og Islenskum aðalverktökum hfi Samkvæmt þessum tilboðum er Istak lægst, með 3,239 milljarða kr. í verkið en ÞG verktakar eru mjögnærri með 3,286 milljarða króna. I fréttatilkynningu frá Norðuráli kemur fram að verið sé að fara yfir tilboðin. Verkið er áfangaskipt og skal því að fullu lokið eigi síðar en 1. des- ember 2005. MM Tilboðin voni sem hér segir: Isle?iskir aðalverktakar hf:.3.630.820.691 kr. Sveinbjöm Sigurðsson hf:....3.484.111.290 kr. ÞG verktakar ehf:...........3.286.827.137 kr. ístak hf....................3.239.005.771 kr. Kostnaðaráætlun verksins var 4.300.000.000 kr. Sæmundur kærir Sæmundur Sigmundsson sérleyfishafi í Borgarnesi hef- ur kært Borgarbyggð til kærunefndar útboðsmála í kjölfar samninga um skóla- akstur í sveitarfélaginu. Eins og komið hefur fram í Skessuhorni var samið við Sæmund um skólaakstur á öllum leiðum fýrir Varma- landsskóla þar sem hann var lægstbjóðandi. Sænrundur átti einnig lægsta boð í akst- urinn í Borgarnesi en þar var samið við Þorstein Guð- laugsson. Þessu unir Sæ- mundur ekki og hefur lagt ffam kæru eins og fýrr segir. Borgarbyggð hefur frest fram yfir rniðjan ágúst til að rökstyðja ákvörðun sína fýrir kærunefndinni. Úrskurður varðandi kæru Sindra Sigur- geirssonar vegna sama út- boðs liggur ekki fyrir en ffestur til andsvara rann út 19. júlí. GE Þróttur gerir sparkvöll Akraneskaupstaður opnaði í liðinni viku tilboð í jarð- vinnu við sparkvöll Brekku- bæjarskóla. Aðeins eitt tilboð barst í verkið, en sjö aðilum var gefinn kostur á að bjóða í það. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 5. ágúst að taka tilboði Þróttar ehf. í verkið en það hljóðar uppá um 5,5 milljónir króna. Áætl- uð verklok samkvæmt út- boðslýsingu eru 15. ágúst n.k. ' " MM Útaf í þoku Nokkrir bílar höfnuðu utan vegar á Holtavörðu- heiði á tímabilinu eitt til þrjú aðfaramótt mánudags í mjög þéttri og dimmri þoku. Eng- inn slasaðist í þessum óhöpp- um og ekki nrunu hafa orðið skemmdir á ökutækjum en aðstoð þurfti við að koma bíl- unum upp á veg aftur. Engar vegstikur eru á þeinr kafla sem óhöppin urðu en vega- framkvæmdir standa yfir á heiðinni. MM Verð frá: (Önnur söluhæsta fartölvan í Evrópu 99.900,- ( 2 ára ábyrg<T) svan) tækni SIÐUMULA 37 - SIMI 510 6000 WWW.SVAR.IS

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.