Skessuhorn


Skessuhorn - 11.08.2004, Page 4

Skessuhorn - 11.08.2004, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 11. AGUST 2004 SKESSUHO WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubrout 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501 SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf 433 5500 Framkv.stj. og blm. Magnús Magnússon 894 8998 Ritstjóri og úbm: Gisli Einarsson 899 4098 Augl. og dreifing: íris Arthúrsdóttir 696 7139 Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir 437 1677 Prentun: Prentmet ehf. skessuhorn@skessuhorn.is mognus@skessuhorn.is ritstjori@skessuhorn.is iris@skessuhorn.is gudrun@skessuhorn.is Skessuhorn kemur út olla miðvikudoga. Skilofrestur auglýsinga er kl. 14:00 ó þrigjudögum. Auglýsendum er bent a oð panto auglýsingaplass tímonlega. Skilofrestur smóouglýsinga er til 12:00 ú priðjudögum. Ber gefið út i 4.000 eintökum og selt til úskrifendo oqí lausosölu. arverð er 85Q krónur með vsk. ó múnuði en krónur 750 sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausosölu er 300 kr. 433 5500 Hýrir ogdýr Síðastliðinn laugardag bar svo við líkt og samskonar daga síðustu ár að samkynhneigðir landar mínir komu út úr skápn- um og tóku út úr skápnum hin margvíslegustu skrautklæði sem þeir íklæddust og skreyttu sig ennfrekar með ýmis konar glingri og gersemum. Að því loknu örkuðu þeir alsælir um stræti og torg Reykjavíkurborgar undir yfirskriftinni gay - pride sem í lauslegri þýðingu gæti staðið fyrir hýr og borgin- mannlegur og allt gott og blessað með það. Sem eins manns minnihlutahópur hef ég alltaf stutt heils- hugar þá sem þurfa að berjast gegn straumnum og þora að stíga á stokk og andmæla fjöldanum í krafti réttlætisins. Að vísu má gera því skóna að samkynhneigðir Islendingar séu orðnir meirihlutahópur ef marka má þátttöku í umræddri göngu þennan umrædda laugardag og allt gott og blessað með það. Þrátt fyrir samstöðu mína með minnihlutanum hýrum, jafnt sem óhýrum þá kaus ég í þetta sinn að vera fjarri ys og þys borgarlífsins og eyddi helginni hinsvegar meðal Vestfirðinga sem voru bærilega hýrir að því er mér sýndist að undanskild- um meintum hjólbarðaviðgerðarmanni sem ég leitaði til með vindlítið dekk. Hann reyndist þá ekki með hýrri há og vildi lít- ið fyrir mig gera og lét konu sína segja mér að hann væri ekki við. Það vildi hinsvegar þannig til að hann misreiknaði radd- styrk sinn í þetta sinnið, eða ekki gert sér grein fyrir hversu hljóðbært var á Vestfjörðum umrætt skipti þannig að mér fyrir vikið duldist ekki að fjarvera hans var stórlega orðum aukin. Það kemur málinu svosem ekki við en svo vikið sé aftur að hýrum göngumönnum þá komst það í hámæli í aðdraganda göngunnar að samkynhneigðir eiga það til að vera leður- hneigðir og allt gott og blessað með það. Það fór hinsvegar eitthvað í taugarnar á öðrum minnihlutahópi, einhverjum hús- dýravinum sem ég kann ekki að nefna. Var því mótmælt kröft- uglega að rífa þyrfti eitt dýr úr hamnum til að annað gæti kom- ið út úr skápnum. Umræddir dýraverndarar lögðu til að hýrir göngugarpar íklæddust gervileðri til að hýsdýrum heimsins yrði ekki fórnað fyrir einn laugardag á ári. En hver skildi svo sem vilja vera gervihýr í gervileðri á gervigöngu. Að vísu er ég ekki hýr, samt bærilega skýr og ær og kýr og önnur dýr eru mínar ær og kýr. Samt sem áður sé ég ekki ástæðu til að amast við einni kýrhúð í einar leðurbrækur ef það það gerir einn hýr- ann mann hýrann og kátann á góðum degi. Gísli Einarsson, minnihlutahópur. Böm á ný í Laugaskóla Ungmenna- og tómstundabúðir UMFI og Dalabyggðar Laugar í Sælingsdal Allt údit er fyrir að skólahús- næðið að Laugum í Sælingsdal fyllist af börnum að nýju en fyr- irhugað er að þar verði ung- menna- og tómstundabúðir í 30 vikur á vetri eða þann tíma sem Laugar eru ekki nýttir sem sum- arhótel. Fjögur ár eru síðan Dalabyggð hætti skólarekstri á Laugum og síðan hefur verið leitað að hlutverki fyrir staðinn yfir vetrartímann. Það eru UMFÍ og Dalabyggð sem munu reka ungmenna- og tómstundabúðirnar á Laugum en Dalabyggð og Saurbæjar- hreppur leggja til mannvirkin fyrir starfsemina. Búðirnar verða ætlaðar unglingum á aldrinum 14 - 15 ára og er miðað við að þeir dvelji þar frá mánudegi til fösmdags. Miðað við fulla nýt- ingu munu um 80 ungmenni geta dvalið að Laugum í senn eða um 2400 ungmenni ffá sept- ember og fram í maí. Ungmenna- og tómstunda- búðirnar verða reknar í anda hugmyndafræði UMFI. Þar verður lögð áhersla á tómstund- ir sem lífsstíl og sem mikilvægan þátt í forvarnarstarfi. Helstu markmið búðanna verða eftirfarandi: Að efla jálfstraust, samvinnu og tillitssemi. Að hvetja ung- I síðustu viku buðu stjórn- endur Verkalýðsfélags Akraness 16 ára ungmennum til veislu í félagsmiðstöðinni Arnardal. Tilefni heimboðsins var að fræða ungu kynslóðina, sem á næsta ári fer á hinn almenna vinnumarkað, um hlutverk og skyldur verkalýðsfélaga, laun- þega og vinnuveitenda. Að sögn Vilhjálms Birgissonar, for- manns VLFA, er um nýbreytni að ræða í starfsemi félagsins. „Við viljum efla tengsl okkar við félagsmenn og ekki síst þá yngstu sem eru við það að fara út á hinn almenna vinnumark- menni til sjálf- stæðra vinnu- bragða. Að kynna heimavistarlíf. Að fræða um sögu- slóðir. Að kynna landið og nánasta umhverfi. Að hvetja ungmenni til að taka þátt í félagsstörfum. Að fræða ungmenni um mikilvægi for- varna. Að vinna markvisst gegn einelti. Að kynna ábyrg fjármál. Að fræða um mikilvægi hollra lifnaðarhátta. Að kynna jaðarí- þróttir. I tilkynningu frá UMFI og Dalabyggð segir m.a. að: Rann- sóknir hafa sýnt að þátttaka barna í íþrótta- og tómstunda- starfi hefur mikið fon'arnargildi. Með tilkomu Ungmenna- og tómstundabúðanna er kominn vettvangur sem er kjörinn til að þjálfa ungt fólk í félags- og tóm- stundastörfum og gera það virkt í félagsstarfi í víðasta skilningi þess orðs. Eftir dvöl í búðunum eiga ungmenni að vera fær um að stofna og taka þátt í félagi sem vonandi verður til þess að blása enn ffekara lífi í félags- starfsemi grunnskólanna." Rekstur tómstundabúðanna á að. Það er nauðsynlegt fyrir þau sem einstaklinga og verð- andi launþega að fræðast vel um réttindi sín og ekki síður skyldur á vinnumarkaði. Hlut- verk verkalýðsfélaga er ekki síst minna í dag en það hefur verið undanfarna áratugi og því fannst okkur tilvalið að bjóða þessum hópi í heimsókn og ræða þessi mál við þau,“ sagði Vilhjálmur í samtali við Skessu- horn. Eftir stutta kynningu var öllum boðið í grill í félagsmið- stöðinni Arnardal og var ljóst á unga fólkinu að það kunni vel að meta framtakið. MM Laugum verður styrktur af ís- lenska ríkinu og auk þess munu búðirnar njóta faglegs samstarfs við Kennaraháskóla Islands. GE Framkvæmdir við nýja skóla- húsiö eru nánast á áætlun. www.fsn.is opnar Síðastliðinn mánudag opnaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttír, menntamála- ráðherra vef Fjölbrautaskóla Snæfellinga á slóðinni www.fsn.is. Við opnun nýja vefjarins var stuðst við nýj- ustu tækni þar sem ráðherra opnaði vefinn ffá skrifstofu sinni í Reykjavík en í anddyri skólans í Grundarfirði fylgd- ust með opnuninni þau Guð- björg Aðalbergsdóttir, skóla- meistari, ásamt starfsmönn- um, skólanefnd og fulltrúa menntamálaráðuneytisins. A FSn-vefnum eru birt drög að skólanámskrá skólans og hvers kyns upplýsingar um skólastarfið. Vefurinn er unninn sem samstarfsverk- efni Hugsmiðjunnar og Hex og er hann hannaður með það fyrir augum að vera bæði aðgengilegur og notenda- værm. I samtali við Skessuhom sagði Guðbjörg að fram- kvæmdir við skólann væru nánast á áætiun en iðnaðar- menn vinna baki brotnu við framkvæmdir. Einnig er starfsfólk og kennarar farnir að undirbúa skólastarfið en ráðgert er að fyrsti skóladag- ur verði 30. ágúst. Eins og Skessuhorn hefur áður greint ffá hafa yfir 100 nemendur staðfest skólavist á þessum fyrsta skólavetri nýja skólans. MM Hópurinn ásamt starfsfólki Verkalýðsfélagsins og Einari Skúiasyni í Arnardal. Frætt um réttindi og skyldur

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.