Skessuhorn


Skessuhorn - 11.08.2004, Qupperneq 6

Skessuhorn - 11.08.2004, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 11. AGUST 2004 Koppel, Andersson og Magnússon Hin frábæri danski saxófón- leikari Benjamin Koppel er væntanlegur til landsins 12. - 14. ágúst nk., ásamt félaga sín- um, sænska bassaleikaranum Tommy Andersson. Að þessu sinni munu þeir leika með Agn- ari Má Magnússyni píanóleik- ara. Þeir félagar Benjamin og Tommy koma hingað til lands fyrir ári og léku þá og hljóðrit- uðu disk með Eyþóri Gunnars- syni píanóleikara. Diskurinn hefur þegar komið út á norður- löndum og hlotið góða dóma. Nú verður leikurinn endurtek- inn með Agnari Má. Tríóið, Koppel - Andersson Magnússon mun halda tvenna tónleika. Þá fyrri í Stykkishólmskirkju fimmtu- daginn 12. ágúst. kl. 21:00 í til- efni Danskra daga í Stykkis- hólmi og síðari tónleikar tríós- ins verða í Félagsheimilinu Borg Grímsnesi föstudaginn 13. ágúst. (f'éttatilkynning) Orgel og selló í Reykholti Þriðju og síðustu tónleikar sumarsins til styrktar orgeli Reykholtskirkju verða þriðju- dagskvöldið 17. ágúst kl. 20:30. Þá munu Inga Rós Ingólfsdótt- ir, sellóleikari og Hörður Ás- kelsson, organisti Hallgríms- kirkju í Reykjavík leika verk eft- ir Jón Leifs, César Franck, Camille Saint-Saéns og Kjell Mork Karlsen ásamt íslensku þjóðlagi. Inga Rós Ingólfsdóttir lauk einleikaraprófi frá Tónlistar- skólanum í Reykjavík 1976 og stundaði framhaldsnám í Dusseldorf hjá Johannes Goritzki frá 1976. Hún lauk einleikaraprófi árið 1981 og frá árinu 1982 hefur Inga Rós ver- ið fastráðinn sellóleikari við Sinfóníuhljómsveit Islands. Arið 1998 naut Inga Rós starfs- launa Islenska ríkisins. Eftir að hafa verið í fram- haldsnámi í orgelleik í Þýska- landi þar sem hann lauk próf- um með láði var Hörður As- kelsson ráðinn organisti og kantor Hallgrímskirkju árið 1982 þar sem hann hefur starf- að síðan. Hann stjórnar Mótettukór Hallgrímskirkju og kammerkórnum Schola cantor- um og er listrænn stjórnandi Kirkjulistahátíðar og Sumar- kvölds við orgelið. Hörður var Borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2002, hefur hlotið Islensku tónlistarverðlaunin og tvisvar verið valinn tónlistarmaður árs- ins af DV (fréttatilky?ming) Lagið tekið við Tjarnariund. Kvennareið á fermingaraldri Gestgjafar heiðra frumkvöðlana: F.v. Sigurður Þóróifsson, Kristján Finnur Sæmundsson, Erling Kristinsson, Inga Þorkelsdóttir, Sæmund- ur Kristjánsson, María Eyþórsdóttir og Arnar Eysteinsson. Auk þeirra sem á myndinni eru voru í veitingahópnum þeir Ásmundur bóndi í Miklagarði, Gunnar Bender í Litla-Holti og Ingimar Sigurðsson f Fagradal. Hinn árlega kvennareið Dala- kvenna og gesta þeirra fór fram sl. laugardag í blíðskaparveðri. Þátttaka var að venju góð, en um 120 konur voru í hópnum. Þetta er í fjórtánda skipti sem konur í Dölum safnast saman í þeim til- gangi að ríða þægilega dagleið, eiga skemmtilega stund saman og láta karlpeninginn þjóna sér. Að þessu sinni voru gestgjafarn- ir Saurbæingar og voru konur þar í forystuhlutverki en bændur þeirra sáu um veitingar og við- eigandi veigar fyrir konurnar. Slíkir menn eru jafnan nefndir Lautinantar með skírskotun í áningarstaðina. Lagt var af stað frá Bessatungu í Saurbæ, inn Brekkudal og niður aftur og meðfram Hvolsá og í Tjarnar- lund þar sem áð var. Þar grilluðu Saurbæjarbændur og þjónuðu konunum, gítarinn var dreginn fram og sungið svo undir kvað í sveitinni. Þegar kvöldaði færði hópurinn sig í gömlu Jónsbúð á Skriðulandi, eða Dórubúð eins og hún er nefhd nú en þar var dansað ffam á nótt. Að þessu sinni voru frum- kvöðlar að kvennareið heiðraðar sérstaklega en það voru þær Inga Þorkelsdóttir og María Eyþórs- dóttir sem áttu frumkvæði að kvennareiðinni ásamt Astu Em- ilsdóttur, en Ásta var fjarverandi að þessu sinni. Þær stöllur fengu sérstakar gjafir frá gestgjöfunum í tilefhi þess að kvennareið er nú komin á fermingaraldur. MM/ Ljósmyndir: SJök og GBender Valdís Þóra tvöfaldur Islands- meistari stelpna Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur í Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, vann sinn annan Islandsmeistaratitil á þessu sumri þegar hún varð Islandsmeistari í höggleik í flokki stelpna 14-15 ára á Leiruvelli í Keflavík í lok júlí. Hún hafði áður orðið Islandsmeistari í holukeppni sem fram fór á Strandavelli á Hellu í júní. Búist við fjölmenni á Danska daga Undirbúningur að stórhátíð- inni Dönskum dögum í Stykk- ishólmi gengur vel að sögn Andrésar Más Heiðarssonar framkvæmdastjóra. „Við erum á áætlun með allt og í raun erum við þegar farin að bíða. Að þessu sinni búumst við við enn meiri fjölda en venjulega í bæinn þar sem þetta er í fyrsta skipti sem Danskir dagar stang- ast ekki á við Menningarnótt í Reykjavík og því gætum við átt von á fleiri gestum af þeim sök- um,“ segir Andrés. Undanfarin ár hafa gestir á hátíðinni verið 4-6 þúsund talsins en sam- kvæmt áreiðanlegum heimild- um Skessuhorns er mikill fjöldi fólks sem hyggst sækja Stykkis- hólm heim að þessu sinni víða af Vesturlandi og því margt sem bendir til að hátíðin verði fjölmennari en undanfarin ár. Aðspurður um nýjungar á hátíðinni þetta árið vildi Andr- és helst nefna að í stað eins stórs sölutjalds verða mörg smærri og verður þeim tjaldað niður Aðalgötuna sem um Frá hverfagrilli í Silfurgötunni á sl. ári. þessa helgi verður kölluð Strik- ið. Þar verða hátt í 20 tjöld þar sem hægt verður að kaupa allt frá gæsareggjum til danskra partýljósa. Dagskrá hátíðarinnar hefst fimmtudagskvöldið 12. ágúst með jazztónleikum í kirkjunni þar sem danski saxófónleikar- inn Benjamín Koppel spilar á- samt fleirum. A föstudeginum verða m.a. hverfagrill og verður götum bæjarins gefin dönsk nöfn og þær skreyttar í tilefni dagsins. Hefðbundin dagskrá verður á laugardeginum sem endar á bryggjuballi með flug- eldasýningu um kvöldið. Einnig verður dönsk-íslensk þjóð- búningamessa á sunnudeginum og golfmót verður haldið á golfvelli bæjarins. Stórtón- leikar verða um nónbil á sunnudeg- inum í Stykkis- hólmskirkju þar sem Elísa Vilbergs- dóttir og Hjördís Elín Lárusdóttir, sópransöngkonur, sem eru báðar við framhaldsnám í söng í Bandaríkjun- um, koma ferskar af námskeiði á Italíu og syngja í lok Danskra daga við undirleik Iwona Jagla, píanó- leikari. Veðurspá fyrir næstu helgi er ágæt og enn eitt hitasvæðið er væntanlegt yfir landið og er gert ráð fyrir að það staðnæm- ist yfir Stykkishólmi fram yfir helgi. MM

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.