Skessuhorn - 11.08.2004, Side 14
14
MIÐVIKUDAGUR 11. AGUST 2004
L>iiiissinu>^
Úrslit úr Opna
Grolsch mótinu
Opna Grolsch mótið fór
fram á Garðavelli 8. ágúst.
Alls tóku 88 keppendur þátt í
mótinu sem fram fór í blíðu
veðri á „besta“ golfvelli lands-
ins! Keppt var í flokkum með
og án forgjöf og urðu úrslit eft-
irfarandi:
1. án forgj. Þórður Emil Ólafsson,
73 högg
2. án forgj. Stefán Orri Ólafsson,
74 högg
3. án forgj. Kristvin Bjarnason, 76
högg
1. sæti með forgj. Hörður Svav-
arsson, 69 högg
2. sæti með forgj. Snorri Þóris-
son, 69 högg
3. sæti með forgj. Hjörtur Júlíus-
son, 69 högg
Nándarverðlaun unnu Ár-
mann Vilhjálmsson, Heimir
Bergmann, Júlíus Ingólfsson,
Daníel Viðarsson.
Góður árangur í skákinni
UMSB á Unglinga-
landsmóti UMFÍ
Fimm skákmenn kepptu í
skák á Unglingalandsmóti
UMFÍ á Sauðárkróki og stóðu
þau sig mjög vel - komu heim
með gull, tvö silfur og brons.
Þrír kepptu í flokki 11-12 ára
stráka en það var jafnframt
fjölmennasti flokkurinn. Fjölnir
Jónsson lenti í öðru sæti og
hlaut 5 vinninga af 7 möguleg-
um, Jóhann Óli Eiðsson varð í
3.-4. sæti með 4 1/2 vinning
og Haraldur Andri Stefánsson í
5.-6. sæti með 4 vinninga.
Tinna Kristín Finnbogadóttir
sigraði í flokki 13-14 ára
stúlkna og Leifur Finnbogason
varð í öðru sæti í flokki 15-16
ára. G.S.
Keppendur UMSB í skák á Unglingalandsmóti UMFI á Sauðárkróki.
F.v. Leifur Finnbogason, Tinna Kristín Finnbogadóttir, Fjölnir Jónsson
og Jóhann Óli Eiðsson. Á myndina vantar Harald Andra Stefánsson.
Borgfirðingar í boltagreinum
á unglingalandsmóti
Körfuknattleikslið UMSB í flokki 15-16 ára stúlkna
Knattspyrnulið UMSB í flokki 11-12 ára drengja
Ungmennasamband
Borgarfjarðar safnaði
liði fyrir körfubolta og
knattspyrnu og var að-
aldriffjöðurin í því Rósa
Marinósdóttir á Hvann-
eyri. Þátttaka á lands-
móti er alltaf dálítið
púsluspil, því margir
krakkar keppa í ýmsum
greinum og vilja aðrar
greinar stundum falla á
sama tíma og hóp-
greinarnar eins og fót-
bolti og karfa. Því er
nauðsynlegt að vera
með stóran hóp skráð-
an í hvert lið svo öruggt
sé að takist að manna
alla leiki. UMSB átti tvö
knattspyrnulið á mót-
inu, í flokki 15-16 ára
stúlkna og 11-12 ára
drengja, Sverrir Heiðar
stjórnaði liðunum á
mótinu og náðu þau
bæði bronsverðlaun-
um. í körfubolta áttum
við tvö stúlknalið sem Á-
mundi Sigurðsson stjórnaði, í
flokki 15-16 ára og svo var
UMSB með sameiginlegt lið
með USVS í flokki 13-14 ára
og náði það lið þriðja sæti.
Einnig átti UMSB lið í körfu
17-18 ára pilta. Þá var nokk-
uð af UMSB krökkum skráðir
til leiks sem einstaklingar í
boltagreinar og voru þeir sett-
ir í blönduð lið á mótinu og
höfðu gaman af.
Unglingalandsmót er verð-
ugt verkefni fyrir sambönd
eins og UMSB og um leið og
við þökkum Skagfirðingum
fyrir gott mót, foreldrum og
krökkum fyrir góða helgi þá
leggjum við til að stefnt verði
að enn meiri þátttöku UMSB
á næsta unglingalandsmóti
sem verður í Vík í Mýrdal
næsta sumar, með íþrótta-
kveðju Rósa og Sverrir,
Hvanneyri.
Knattspyrnulið UMSB í flokki 15-16 ára stúlkna.
Körfuknattleikslið UMSB og USVS í flokki 13-14 ára stúlkna
Sjöunda Unglingalandsmót
UMFI fór fram á Sauðárkróki
um verslunarmannahelgina.
Umgjörð og framkvæmd
mótsins var einstök og verður
erfitt fyrir aðra að slá því við
enda íþróttaaðstaðan á heims-
mælikvarða. Er frjálsíþrótta-
völlurinn t.d. lagður sama efni
og ólympíuleikvangurinn í Aþ-
enu. Um sjötíu keppendur frá
UMSB tóku þátt í mótinu. Ríkti
mikil fjölskyldustemning í tjald-
búðunum enda komu margir
foreldrar til að styðja börn sín.
Helsti árangur Borgfirðinga
var þessi:
Frjálsíþróttafólkið stóð sig
vel. Björgvin Hafþór Ríkharðs-
son,11 ára, vann kúluvarp.
Arnar Hrafn Snorrason, 12 ára,
varð annar í hástökki. Orri
Jónsson, 12 ára, varð þriðji í
langstökki.
Sveit 12 ára stelpna varð í
öðru sæti í 5 x 80 m boð-
hlaupi. í sveitinni voru Guð-
finna Kristinsdóttir,
Gunnhildur Björnsdóttir,
Sara Dögg Davíðsdóttir, Rósa
Stella Guðmundsdóttir og
Lára Lárusdóttir.
Bergþór Jóhannesson, 12
ára, náði mjög góðum árangri.
Hann vann kúluvarp og varð
annar í 100 m og 800 m
hlaupum. Sigurður Sigurðs-
son, 12 ára, varð annar í spjót-
kasti og Valdís Hrönn Sig-
marsdóttir, 13 ára, vann 800 m
hlaup
Sundfólkið stóð einnig vel
fyrir sínu. Sveinn Flóki Guð-
mundsson, 15 ára, keppti í
fimm greinum. Hann vann 50
m bringusund á 36,82 sek og
Bergþór Jóhannesson varð f 1.
sæti í kúluvarpi pilta.
varð annað í 100 m bringu-
sundi. Þá var hann í sveit f
4x50 m skriðsundi 14-16 ára
ásamt Sigurði Þórarinssyni og
tveimur ÍA mönnum sem varð í
öðru sæti á eftir sterkum Kefl-
víkingum. Sigurður Þórarins-
son, 13 ára, keppti í fimm
greinum og varð í 4.-5. sæti í
þeim öllum. Hann hefur æft
best allra sundmanna UMSB
og sýnir góðar framfarir. Hann
myndaði sveit í 4x50 m skrið-
sundi 11-13 ára ásamt Kristni
Erni Sigurjónssyni,
Tálknfirðingi og Fjölnis-
manni. Varð sveitin í öðru
sæti. Lilja Rún Jónsdóttir,
13 ára, keppti í fjórum
greinum. Hún varð önnur
í 50 m og 100 m bringu-
sundi. Björg Guðlaugs-
dóttir, 13 ára, varð
fimmta í 50 m bringu-
sundi. UMSB sveit
telpna 11-13 ára varð í
þriðja sæti í 4x50 m
skriðsundi. Sveitina skip-
uðu Lilja Rún, Bjarnfríður
Magnúsdóttir, Björg Guð-
laugsdóttir og Þórkatla Dagný
Þórarinsdóttir. Helgi Axel Dav-
íðsson, 12 ára, varð þriðji í 50
m bringusundi og Kristinn Örn
Sigurjónsson fjórði. Guðfinna
Kristinsdóttir, 12 ára, varð
fjórða í 50 m skriðsundi. Yngsti
keppandi UMSB í sundinu,
Þórkatla Dagný Þórarinsdóttir
11 ára, kom heim með flest
verðlaun. Hún varð önnur í 100
m skriðsundi, 50 m bringu-
sundi og 200 m fjórsundi.
Hlaut þriðja sætið í 50 m skrið-
sundi og var einu handtaki frá
bronsverðlaunum í 100 m
bringusundi. //
Sveit UMSB lennti í 2. sæti í 5 x 80 m
boðhlaupi 12 ára stelpna.