Skessuhorn


Skessuhorn - 25.08.2004, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 25.08.2004, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2004 Friends, Mínus og Halldór Asgrímsson Grunnskólar landsins eru hver af öðrum að hefja starf- semi. Samhliða fer félagsstarf nemenda af stað. Skráargatið að þessu sinni er tileinkað nemendum á Vesturlandi en í því er rætt við formann nem- endafélags Grundaskóla á Akranesi. Hann er staddur í Frakklandi um þessar mundri, en mun hafa í nógu að snúast næstu misserin. Fullt nafn: Isleifur Om Guðmundsson. Starf: Námsmaður ogformaður nemendaráðs. Fæðingardagur og ár: 13. febrúar 1989. Fjölskylduhagir: Ókvæntur og bamlaus! Hvemig híl áttu? Engan. Uppáhalds matur? Hamborgarhryggur Uppáhalds drykkur? Appelsínusafi Uppáhalds sjónvarpsejhi? Friends Uppáhalds sjónvarpsmaður? Enginn sérstakur Uppáhalds innlendur leikari? Stefán Karl. Uppáhalds erlendur leikari? Pass. Besta híómyndin? Lord ofthe rings, allar þ?jár myndimar. Uppáhalds íþróttamaður? Eiður Smári Guðjónsson. Uppáhalds íþróttafélag? IA. Uppáhalds stjómmálamaður? Halldór Asgrímsson. Uppáhalds innlendur tónlistarmaður? Meðlimir Mínuss. Uppáhalds erlendur tónlistarmaður? Meðlimir U2. Uppáhalds rithöfundur? Enginn sérstakur Ertu fylgjandi eða andvíg ríkisstjóminni? Bæði og. Hvað meturðu mest ífari annarra? Góðan persónuleika. Hvaðfer mest í taugamar áfér ífari annarra? Snobb. Hver erþinn helsti kostur? Eg er svo skemmtilegur. Hver er þinn helsti ókostur? Hvað ég er klikkaður. Hvemig leggst það í þig að hyrja í skólanum? Mjög vel. Hvað œtlarþú að leggja áherslu á semformaður nemenda- félagsins? Skemmtilegt og fjölbreytt félagslíf. Eitthvað að lokum? Skemmtiðykkur vel! Nýtt hverfi á Hvanneyri Þeir Haukur Júlíusson og Þorsteinn Magnússon hjá Jörva ehf. við tengibrunna í Sóltúni, nýjustu götunni á Hvanneyri. Þessa dagana er unnið að jarð- vegsskiptum, gatnagerð og lagnavinnu í fyrsta áfanga nýs í- búðahverfis á Hvanneyri. Gatan sem um ræðir heitir Sóltún og verður fyrsta byggðin á hægri hönd þegar komið er að Hvann- eyri . Framkvæmdir þessar eru í samræmi við nýtt deiliskipulag sem sveitarstjórn Borgarfjarðar- sveitar samþykkd nú í lok júlí. Að sögn Lindu Bjarkar Pálsdótt- ur, sveitarstjóra er nú þegar búið að úthluta 12 lóðum til verk- takafyrirtækisins ESK ehf. Fyr- irtækið hyggst byggja 24 íbúðir í 12 parhúsum og er ráðgert að byggingaframkvæmdir hefjist von bráðar. Gatnagerð, jarð- vegsskipti og lagnavinna sem snýr að sveitarfélaginu er í höndum Jörfa ehf. PJ byggingar ehf á Hvanneyri hafa einnig fengið úthlutað tveimur lóðum í þessu nýja hverfi og hefur fyrirtækið for- leigurétt að þremur Ióðum til viðbótar á sama stað. „Þá eru eftir 7 lóðir skv. skipulaginu og verður á þeim hægt að byggja annað tveggja; einbýlishús eða parhús. Þær lóðir verða auglýst- ar innan skamms, eða þegar lóðaúthlutunarreglur hafa verið staðfestar hjá sveitarfélaginu," sagði Linda Björk í samtali við Skessuhom. „Við vonum að all- ar lóðirnar fari í byggingu fljót- lega en það er sérlega ánægju- legt hve mikill hugur er í verk- tökum gagnvart ffamkvæmdum á Hvanneyri um þessar mundir, enda er staðurinn í miklum vexti,“ sagði Linda Björk að lok- um. MM Bætt löndunaraðstaða Nýi löndunarkraninn við Akraneshöfn. Ljósm: MM Á síðustu misserum hefur verið unnið að endurbótum og breikkun á viðlegukanti hafnar- innar á Akranesi. I framhaldi af því var löndunarbúnaður fiski- mjölsverksmiðju HB Granda á Akranesi endunýjaður og nýj- um löndunarkrana komið upp. Með þessari framkvæmd lýkur mikilli endurnýjun á löndunar- og útskipunaraðstöðu verk- smiðjunnar, en fyrr á árinu var tekinn í notkun sjálfvirkur út- skipunarbúnaður á mjöli þannig að mjölið fer beint úr afurðatönkum verksmiðjunnar um borð í skipið án þess að mannshöndin komi þar nærri. Lengdin frá afurðatönkum að skipi eru 160 metrar. Búnaður- inn er samansettur úr fjórum drögurum sem flytja mjölið frá tölvustýrðri mjölvog að útskip- unarkrananum. Smíði og upp- setning á þessum nýja búnaði hefur veirð í höndum Héðins hf. og eru afköst hans 100-110 tonn af mjöli á klukkustund. ALS rfW/sy /'/Zuf/mar Umsjón: Iris Arthúrsdóttir. Pasta að hætti hússins Þessi uppskrift kemwr frd Önnu Björgvinsdóttir Akranesi Þetta er fljótlegur og þægi- legur réttur og á mínu heimili er þetta í miklu uppáhaldi. Tveir pokar tortelini fyllt með osti Einfema gratínsósa frd Knorr Niðurskorið beikon, skinka eða pylsur eftir smekk. Rifinn ostur Pastað er soðið eftir leiðbein- ingum á pakkanum og sett í eldfast mót og gratínsósunni hellt yfir. Beikonið eða það sem fólk kýs að hafa út í, er skorið í bita og sett ofaná eða hrært út í sósuna. Síðan er sett- ur rifinn osmr yfir allt og bakað í ofni þar til osturinn er bráðn- aður. Frábært að bera ffam með þessu heitt hvítlauksbrauð og ferskt salat. Fyrir c.a. 4. HÚSRAÐ Tannkrem er til margra hluta nytsamlegt t.d. mú hreinsa fíngerðar rispur of gleri með því að nudda þær upp úr tannkremi með mjúkum klút, og svo mú líka bjarga sér ú tannkremi ef silfurfiegilögurinn er búinn. Þeir sem hafa áhuga á að láta birta uppáhalds uppskriftina sína geta sent hana inn ásamt ljósmynd af sjálfum sér eða réttinum (500 kb eða stærri), fullu nafhi, heimilisfangi og síma á netfangið iris@skessuhorn.is Vinningur til Auðar Dregið hefur verið í áskrift- arleik Skessuhorns fyrir ágúst- mánuð. Þátttökurétt öðlast sjálfkrafa skuldlausir áskrifend- ur Skessuhorns á útdráttardegi. Að þessu sinni er vinningurinn 20.000 króna vöruúttekt í versl- uninni Nínu á Akranesi. Sú heppna að þessu sinni er Auður Pétursdóttir, Ausu í Borgar- firði. Fær hún sent gjafabréfið. Skessuhorn óskar Auði til ham- ingju með vinninginn. I september verður vinning- urinn í áskriftarleiknum einnig 20.000 króna gjafabréf, en að þessu sinni vöruúttekt í versl- uninni Ozone, við Kirkjubraut á Akranesi. MM Tombóla Þessar ungu stúlkur, Margrét Dögg Vigfúsardóttir, Steinunn Vala og Kolbrún Tara Arnarsdætur héldu tombólu til styrktar Torfa Lárusi Karlssyni í júlí sl. og söfnuðust 3.100 krónur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.