Skessuhorn


Skessuhorn - 25.08.2004, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 25.08.2004, Blaðsíða 19
aik£S3Unu^ MIÐVIKUDAGUR 25. AGUST 2004 19 , Andakílsskóli Utiskóli í allan vetur Þrír kennarar verða við Andakílsskóla í vetur, allt rétt- indakennarar að sögn skóla- stjórans, Elísabetar Haralds- dóttur. Nemendur verða 30 í 1. - 5. bekk en það er heldur fækk- un frá í fyrra. „Við höldum á- fram með útiskólann en við byrjuðum á því í fyrra að fara út einn dag í viku og hafa kennsl- una þar. Við ætlum ekki að negla það niður á ákveðinn dag í ár heldur fara eftir veður- spánni. Þá höldum við líka á- fram með verkefnið „lesið í skóginn“ en það er mjög skemmtilegt og passar vel fyrir okkur. Vð erum í svo góðu umhverfi hér við hliðina á Landbúnaðarháskólanum þar sem við höfum góðan aðgang að fjölfróðum kennurum og svo höfum við þessa grænu sveit hér allt í kring. Þá má ekki gleyma að við erum grænfána- skóli og erum einn af þremur skólum sem hafa fengið fánann aftur. Við höfum mikil tengsl við umhverfið og náttúruna og það hefur skilað góðum árangri viljum við meina,“ segir Elísa- bet. GE Varmalandsskóli Fimmtugur grunnskóli Frá skólasetningu Varmalandsskóla. Varmalandsskóli í Borgarbyggð hefur skor- ið sig úr öðrum sveita- skólum landsins á síðustu árum fyrir það að þar hefur nemendum íjölgað allverulega á meðan þeim fækkar í flestum öðrum skólum í dreif- býli. Þar vegur þyngst mikil íjölgun í háskóla- þorpinu Bifröst en börn þeirra sem þar búa, hvort sem er í lengri eða skemmri tíma, stunda grunn- skólanám á Varmalandi. I vetur ber hinsvegar þannig við að nemendum fækkar nokkuð í Varmalandsskóla. „Það fækkar um fimmtán krakka á milli ára. Nemendur voru 169 í fyrra en verða 154 í vetur,“ segir Flemming Jessen skólastjóri. „Tíundi bekkurinn í fyrra var mjög stór og síðan koma færri nemendur frá Bifröst en við reiknuðum með.“ Flemming segir að það hafi gengið ágætlega að manna kennarastöður fyrir veturinn en ráða þurfti fjóra nýja kennara. Hlutfall réttindakennara hefur hinsvegar lækkað úr 95% í 80%. „Okkar kennarar eru samt allir með mjög góða menntun en það má geta þess að leiðbein- andi og leiðbeinandi er ekki endilega það sama. Ef ég væri með prest til að sjá um Kristin- ffæðikennslu þá væri hann leið- beinandi svo dæmi sé tekið og það má spyrja hversu eðlilegt það er,“ segir Flemming. Aðspurður um áherslur í skólastarfi segir Flemming að þær verði svipaðar og undanfar- in ár. „Við höldum áfram með verkefnið Lesið í skóginn og síðan má geta þess að nýbyrjað skólaár verður það fimmtugasta ffá stofnun skólans. Við ætlum að fagna því með að vera svolít- ið sýnilegri úti á akrinum. Við höldum ekki formlega upp á at- mælið með tertum og tilheyr- andi en þess í stað ætlum við að láta sjá okkur í sveitarfélaginu. Meðal annars ædum við að fara á dvalarheimilið í Borgarnesi og lesa upp fyrir fólkið og dansa í Kaupfélaginu og hugsanlega eitthvað fleira skemmtilegt.“ GE Lýsuhólsskóli Gróðurhús í byggingii Lýsuhólsskóli í Snæfellsbæ var settur síðasdiðinn mánu- dag. Nemendur í vetur verða 22 en það er svipaður fjöldi og í fyrra. Þar fyrir utan eru reynd- ar nokkur fimm ára börn en í vetur fá þau í fyrsta sinn að koma í skólann tvo daga í viku. I Lýsuhólsskóla hefur lengi verið lögð áhersla á umhverfis- fræðslu í ýmsum myndum og náin tengsl við náttúruna. Þar er í gangi þróunarverkefni þar sem nemendur eru að byggja lítíð gróðurhús sem tengt er eigin orkuveitu nemenda en þeir stífluðu síðasta vetur læk- inn á Lýsuhóli. „Það er mikill áhugi fyrir þessu verkefni jafnt hjá nemendum og kennurum og allir eru tilbúnir að leggja sig fram,“ segir Guðmundur Sigurmonsson skólastjóri. Engar breytingar verða á starfsmannahaldi en allir kenn- ar Lýsuhólsskóla eru réttinda- kennarar. r 5IM6NNTUNARMIÐST0ÐIN Á VGSTURLANDI Öflug fullorðinsfræð sla í heimabyggð Námsvísir haustannar er kominn á netið. www.simenntun.is m Fjaustlínqn Meo oryggið að leiðartjosi - tryggðu þig gegn óhöppum Kynntu þér kosti VÍS fartölvutryggingar og tölvukaupaláns á www.vis.is w Ég hugsa, þess vegna er ég HP Compaq nx9105 Aukabúnaður á mynd: Tengikví, mús og lyklaborð + Aukið öryggi! Fartölvur eru verðmætar og algengt er að fólk hafi þær með sér í vinnu, skóla eða á aðra staði. Því er nauðsynlegt að tryggja sig eins vel og kostur er gagnvart tjóni sem fartölvan getur orðið fyrir. VIS býður fartölvutryggingu þar sem tölvan er tryggð fyrir utanaðkomandi óvæntum og skyndilegum óhöppum, hvort sem er í skóla, á vinnustað eða á heimili. Einnig bjóðast viðskiptavinum sem kaupa HP fartölvur hagstæð tölvukaupalán í samstarfi við VÍS. Það er einfalt og þægilegt að taka tölvukaupalán VÍS þar sem söluaðilar HP fartölva ganga frá lánsbeiðni á staðnum og því getur viðskiptavinur fengið fartölvuna afhenta fljótt og örugglega. • 9,7% óverðtryggðir vextir. • Lánað allt að 400.000 kr. ' Lánstími 1 -4 ár. Rene Descartes 1596-1650 HP Compaq nx9105 Örgjörvi: AMD Athlon XP-Mobile A2800+ Skjár: 15,0" XGA, (1024x740) Minni: 256MB DDR Harður diskur: 40GB Drif: DVD/CD-RW Fimm minniskortaraufar í einni Þráðlaust netkort: 802.11 b/g WLAN Stýrikerfi: Microsoft Windows XP Pro Abyrgð: 2ja ára neytendaábyrgð Vörunúmer: DU352A Verð kr. 149.900 meðalafborgun á mán. með láni frá VÍS 4.219* Nánari upplýsingar á www.tolva.is HP Compaq - þegar gæði, hugvit og gott verð fara saman Þegar kemur að því velja tölvu skipta gæðin höfuðmáli. HP er eini framleiðandinn í heiminum sem býður upp ó heildarlínu í tölvubúnaði og eru HP Compaq margverðlaunaðar enda mest seldu tölvur í heimi. Gott verð, lipur og traust þjónusta Opinna kerfa gera því HP Compaq fartölvur að frábærum kosti. TÖLVUÞJÓNUSTAN • Vesturgötu 48 • Sími 430 7000 • www.tolva.is • tolva@tolva.is GE

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.