Skessuhorn - 25.08.2004, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 25. AGUST 2004
23
ÚUUSUIIUL
LANDSBANKA
DEILDIN
AKRANESVÖLLUR
#
ÍA - Keflavík
■ Knattspyrnufélag IA ■
fær 5 kr. af hverjum
seldum lítra af COKE á Akranesi
sunnudaginn 29. ágúst kl. 18:00
ALLIFt Á 1/ÖLLIIMIM
VISA
KB BANKI
Bílás
Kaupir þú bíl frá B&L
hjá Bílás - nýjan eða nolaðan -
styrkir þú Knattspyrnufélag ÍA
Viðar Gylfason úr Golfklúbbn-
um Jökli við holuna góðu.
Ljósm.: Sverrir
Tveir með
holu í höggi!
Sá fáheyrði en skemmtilegi at-
burður gerðist á afmælis golf-
móti á Báran/elli í Grundarfirði
um síðustu helgi að tveir spilar-
ar fóru holu í höggi á sömu
braut vallarins, braut 2. Ekki
nóg með það, því þeir sem
voru svona „heppnir“ eru nafn-
ar, þ.e. Runólfur Viðar Guð-
mundsson úr Golfklúbbnum
Vestarr í Grundarfirði og Viðar
Gylfason úr Golfklúbbnum
Jökli í Ólafsvík.
Mótið var opið afmælismót Ás-
geirs Ragnarssonar formanns
Vestarrs en hann hélt upp á 40
ára afmæli sitt með þvf að
halda þetta mót. Alls voru 48
keppendur sem þátt tóku í mót-
inu og leikinn var höggleikur.
Þetta er í fyrsta skipti i 9 ára
sögu Bárarvaitar að einhver
spilari fer holu í höggi. Því er til-
viljunin enn meiri að tveir nafn-
ar skyldu gera það á sömu
braut vallarins á sama mótinu.
MM
Klúður í Kaplakrika
Það leit ekki illa út fyrir
Skagamenn þegar þeir mættu
toppliði FH á Kaplakrikavelli í
Hafnarfirði á sunnudag.
Skagamenn byrjuðu leikinn af
miklum krafti og sóttu stíft.
Ekki var annað að sjá en leik-
menn ætluðu að sína og sanna
að þeir ættu fullt erindi í topp-
baráttuna enda var þetta eigin-
lega síðsta tækifærið til að
blanda sér í þá baráttu.
Á 26. mínútu bar erfiði þeirra
árangur þegar Haraldur Ing-
ólfsson kom þeim gulklæddu
yfir og það reyndist eina mark
hálfleiksins.
í síðari hálfleik létu Skaga-
menn kné fylgja kviði þegar
bretinn Richard Barnwell skor-
aði fyrsta mark sitt fyrir (A og
dæmið leit orðið býsna vel út.
Tíu mínútum síðar tóks Alan
Borgvardt hinsvegar að
minnka muninn fyrir FH þegar
Skagavörnin sofnaði á verðin-
um og á 72. mínútu jafnaði
Jónas Grani Garðarson og
niðurstaðan varð jafntefli 2-2.
Aðeins eitt stig fyrir ÍA í stað
þeirra þriggja sem virtust í
hendi á tímabili. Til að bæta
gráu ofan á svart var Stefán
Þórðarson rekinn af leikvelli
fyrir meint kjafbrúk en hann
fékk fyrst gult spjald fyrir brot
og síðan annað fyrir orðaskipti
við dómarann sem reyndar
virtist í einhverjum öðrum
heimi í þessum leik. Stefán
vildi reyndar meina að dómar-
inn hefði nánast tilkynnt það
fyrirfram að hann yrði rekinn af
velli og ef rétt reynist þá þarf
KSÍ eitthvað að fara að taka til
í dómarageymslunni hjá sér.
GE
Skallagrímur áfram
Skallagrímur er kominn í undan-
úrslit í 3. deildinni en þeir unnu ÍH
í átta liða úrslitum samtals, 9:3.
Fyrri leikur liðanna var í Hafnar-
firði á laugardag og þar sigruðu
Skallarnir örugglega, 4 - 0. Síð-
ari leikurinn var svo í Borgarnesi
í gærkvöldi og úrslitin urðu 5:3
Sköllum í vil.
Skallagrímur mætir Huginn,
Seyðisfirði í undanúrslitum og fer
fyrri leikurinn fram í Borgarnesi á
laugardag. Það lið sem ber sigur
úr bítum i þeirri viðureign hefur
unnið sér rétt til að leika í 2. deild
að ári. GE
Víkingar
misstu flugið
Miklar líkur eru á að Víkingar
séu búnir að missa af lestinni í
baráttunni um sæti í 1. deild en
þeir töpuðu tveimur dýrmætum
stigum er þeir sóttu Víði heim í
Garðinn á laugardag.
Ragnar Smári Guðmundsson
kom Víkingum yfir með marki
úr vítaspyrnu á 13. mfnútu og
staðan var 1 - 0 fyrir Ólsara þar
til tíu mínútur voru eftir af leikn-
um en þá náðu heimamenn að
jafna. Leiknir og KS unnu bæði
sína leiki og nú verða Vikingar
að treysta á að annað liðanna
tapi stigum. GE
Skagastúlkur unnu fyrri
undanúrslitaleikinn gegn
Sindra á Hornafirði örugglega
á laugardag. Eftir aðeins sjö
mínútna leik höfðu ÍA stelp-
urnar skorað þrjú mörk og alls
urðu mörkin átta, þar af sex í
fyrri hálfleik. 8 - 0 og þar með
þurfti ekki að hafa miklar á-
hyggjur af síðari leiknum sem
leikinn var í gær og unnu
Skagastúlkurnar hann 7:0
Úrslitaleikurinn verður spil-
aður nk. laugardag gegn sig-
urvegurum úr leik Keflavíkur
og Þróttar.
Glannavöllur
Unnið er af kappi við gerð
nýs golfvallar við Bifröst, í landi
Hreðavatns í Norðurárdal.
Völlurinn er skammt norðan
við Paradísarlaut og Glanna,
en það er einmitt golfklúbbur-
inn Glanni sem stendur fyrir
framkvæmdinni. Að honum
standa ýmis félög sem eiga og
reka sumarhús á svæðinu auk
sveitarfélagsins, Bifrestinga og
fleiri aðila. Það er verktakafyr-
irtækið Þróttur sem annast
framkvæmdina en Helgi Þor-
steinsson framkvæmdastjóri
sagði í samtali við Skessuhorn
að fyrirtækið hafi áður komið
að golfvallargerð, m.a. stækk-
un Garðavallar á Akranesi úr 9
holum í 18. Helgi segir að nú
sé verið að sá í holuflatir á
Glanna-velli og teigagerð sé í
fullum gangi. Hann segir jafn-
framt að allri jarðvinnu og sán-
ingu í völlinn Ijúki fyrir haustið
og almennt sé stefnt að þvl að
hægt verði að byrja að spila
golf á honum sumarið 2006,
jafnvel síðla næsta sumar.
Helgi segir að við gerð vallar-
ins sé lögð áhersla á að láta
fallegt umhverfi njóta sín og
raska umhverfi hans sem
minnst. Hönnuður vallarins er
Hannes Þorsteinsson golf-
vallahönnuðuráAkranesi. MM
V.