Skessuhorn - 25.08.2004, Qupperneq 18
18
MIÐVIKUDAGUR 25. AGUST 2004
ún£S3UnuU
Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi
Fjölbrautaskóli Vesturlands var settur mánudaginn 23. ágúst við hátíðiega athöfn. Aðsókn að skóianum er
góð, en rúmiega 600 nemendur munu stunda þar nám í vetur, sem er nokkru meira en fjárveitingar gerðu
ráð fyrir.
EKAe/eRT VgTT!
VEGA^
FARTOLVUR
Vega+755111 kr. 109.900,-
Örgjörvi: Intel Celeron 2,4 GHz • Minni std/max : 256MB DDR/1GB
Harður diskur: 30GB HDD • CD-rom : 8x DVD / 24x10x24x CD-RW Combo
Skjákort: á móðurborði, 3D AGP 2.0 samhæft • Skjáminni 4-64 MB RAM
(shared DDR RAM) • Faxmódem: 56Kbps/V90 • Netkort: 10/100Mbps
Tengi: 4x USB2.0,1xTV-út • 1xlEEE1394(firewire) • PCMCIA Tipe II
Stýrikerfi: Windows XP home
Vega+755IIC2600 kr. 129.900,-
Örgjörvi: Intel Celeron 2,6 GHz • Minni std/max : 512MB DDR/1GB
Harður diskur: 60GB HDD • CD-rom : DVD RW
Skjákort: á móðurborði, 3D AGP 2.0 samhæft • Skjáminni 4-64 MB RAM
(shared DDR RAM) • Faxmódem: 56Kbps/V90 • Netkort: 10/100Mbps
Tengi: 4x USB2.0,1xTV-út • 1xlEEE1394(firewire) • PCMCIATipe II
Stýrikerfi: Windows XP home
Fjölbrautaskóli Vesturlands á
Akranesi var settur í 27. skipti sl.
mánudag. Rúmlega 600 nem-
endur stunda nám í dagskóla,
þar af um 170 nýnemar. Nem-
endafjöldinn er svipaður og var á
síðasta skólaári þrátt fyrir að nýr
framhaldsskóli á Grundarfirði
taki til starfa nú í haust.
1 íjárveitingum til skólans fyr-
ir árið 2004 var gert ráð fyrir
umtalsverðri fækkun nemenda
og hefur nú verið óskað efrir
aukafjárveitingu svo sinna megi
þessari miklu eftirspurn sem
Hörður Helgason skólameistari
segir að rekja megi til aukinnar
aðsóknar fólks á framhaldsskóla-
aldri í nám og þess hversu stór
árgangurinn er sem lauk grunn-
skólagöngu á liðnum vetri. „Það
er mjög ánægjulegt hversu að-
sókn að skólanum er góð, það
sýnir okkur að fólk vill koma
hingað til að stunda nám.“ segir
Hörður.
Undanfarna mánuði hefur
verið unnið af krafti við stækkun
skólans og stefht er að því að ný-
byggingin verði fokheld um
miðjan september og þá hafist
handa við ffamkvæmdir innan
húss. Neðri hæð hússins verður
tekin í notkun í upphafi vorann-
ar, en áætlað er að endurbótum
og framkvæmdum við stækkun
skólans ljúki í janúar 2006.
I sumar vann Steinunn Eva
Þórðardóttir kennari við skólann
könnun á þörfum og áhuga
Vestlendinga fyrir menntun á
framahaldsskólastigi. Niður-
stöður þeirrar könnunar, sem
unnin var með styrk úr Þróunar-
sjóði framhaldsskóla, verða not-
aðar til þess að sníða skólastarf
og námsffamboð betur að þörf-
um íbúa á svæðinu, en áætlað er
að niðurstöðurnar liggi fyrir í
september. Strax í upphafi annar
verður þó bryddað upp á ýmsum
nýjungum í skólastarfinu.
Þannig hefur skipulagi fornáms
verið breytt nokkuð með það að
leiðarljósi að bæta þjónustu við
þá nemendur sem þurfa sérstaka
aðstoð og upprifjun á námsefni
grunnskólans. Sjö manna kenn-
aralið hefur umsjón með for-
námshópnum. I haust verður
farið af stað með nýja námsbraut
í bygginga- og mannvirkjagerð,
sem kemur í staðinn fyrir grunn-
deild tréiðna. Töluverð breytíng
verður á kennslu í þessum grein-
um í kjölfarið. Þá hefur nýtt
námsumhverfi á vefhum verið
tekið í notkun, en það var Anna
Margrét Sveinsdóttir kerfisstjóri
FVA sem sá um forritun. Vefur-
inn er hannaður sérstaklega með
þarfir FVA í huga og stóreykur
möguleikann á dreifkennslu auk
þess sem hann auðveldar þjón-
ustu við nemendur með mis-
munandi þarfir.
FVA er í töluverðum sam-
skiptum við erlenda skóla og í
haust fer hópur nemenda Hann-
esar Þorsteinssonar í grasa- og
dýrafræði í námsferð til
Gotlands í Svíþjóð. Þar með
endurgeldur FVA heimsókn
sænskra nemenda á síðasta
skólaári.
Fjölmargt fleira er í deiglunni
við Fjölbrautaskóla Vesturlands
sem of langt mál yrði að telja
upp hér enda er skólinn sífellt í
sókn og í stöðugri þróun.
ALS
Laugagerðisskóli
A leið tíl Færeyja
í Laugagerðisskóla verða
nemendur í vetur 37, að sögn
Sivjar Bjarnadóttur kennara.
Þar af eru fimm ára nemendur-
fjórir en þeir mæta í skólann
tvo daga í viku. „Þá verður rek-
inn leikskóli hér í tengslum við
grunnskólann í vetur en það er
tilraun sem hrundið var af stað
síðasta vor og hefur gengið vel.
Það sem stendur hinsvegar upp
úr af nýjungum er að við erum
með í þróunarverkefni í gangi í
sambandi við gerð einstaklings-
námskrár. Nemendur fá sér-
stakar verkmöppur sem þau
safna í og reynt er að sníða
námið svolítið að þörfum hvers
og eins. Síðan má nefna að ní-
undi og tíundi bekkur eru á leið
til Færeyja eftir viku og ætla að
vera þar í rúma viku. Krakkarn-
ir taka þátt í íþróttabúðum og
skoða sig um Þórshöfn og víðar
en þau verða þar með krökkum
frá hinum Norðurlöndunum.
Það er því óhætta að segja að
það sé ýmislegt spennandi
framundan," segir Siv.
GE
MODSL
STILLHOLT116-18 • AKRANESI
SÍMI431 3333 * model.ak@simnet.is
Örgjörvi: Intel Centrino Dothan 1,5GHz • 2Mb Cache
Minni std/max : 512MB DDR/2GB Harður diskur: 60GB HDD
Rafhlaða: Li-ion • Þyngd 2,6 kg • CD-rom : DVD RW DUAL +/-
Skjákort ATI Mobility Radeon 9600 PRO 64MB • Skjár 15,4” WXGA TFT
Modem: 56K AC97 • Netkort: 10/100/1000 Mbit + Þráðlaust Intel PRO 2200
Tengi: 4 x USB 2, 1 IR port, 1 TV Út, 1 IEEE 1394, PCMCIA, Parallel
Stýrikerfi Windows XP Pro
Model er í samstarfi við íslandsbanka sem býður námsmönnum upp á Verndarann
Ókeypis fartölvutrygging
Hagstætt tölvukaupalán
og margt fleira
’medalgreiðsla á mánuði miðað við 35 mán.
Vega Pro Z7 kr. 189.900,