Skessuhorn


Skessuhorn - 25.08.2004, Side 22

Skessuhorn - 25.08.2004, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2004 jntaaunu.^ Grunnskólinn í Borgamesi Nýr gervigras- völlur á skólalóð Nemendum í Grunnskólan- um í Borgarnesi fækkar á milli ára. Samkvæmt skráningu verða þeir 315 en voru 329 síð- asta vetur. „Eg hef reyndar grun um að það hafi ekki allir lokið skráningu þannig að það á væntanlega eftir að þölga eitt- hvað,“ segir Kristján Gíslason skólastjóri. „Helsta skýringin er sú að það er mjög fámennur ár- gangur sem kemur inn en við vitum að næstu árgangar eru stórir þannig að það á eftir að íjölga aftur hjá okkur.“ Kristján segir að hlutfall rétt- indakennara sé þokkalegt en um tveir þriðju hafa kennslu- réttindi en nokkrir til viðbótar eru við það að ljúka réttinda- námi. „Skólahaldið verður með hefðbundnu sniði en það eru alltaf einhver sérverkefni í gangi. Við höldum áfram að vinna í því að fá grænfánann og náum vonandi að flagga honum í vor. Aðstaðan utanhúss fer stöðugt batnandi hjá okkur og það er verið að vinna í sparkvelli á skólalóðinni sem breytir mikið aðstöðunni fyrir þá sem vilja djöflast í fótbolta. Þetta verður upphitaður gervi- grasvöllur sem hægt verður að skipta í þrennt þannig að mun fleiri komast að í vetur. Þá er komið nýtt gólf í Iþróttahúsið þannig að aðstaða til íþrótta- iðkunar verður ekki mikið betri,“ segir Kristján. GE Grunnskólinn í Stykkishólmi Kennaraflakk á milli skóla Grunnskólinn í Stykkishólmi. Skólastarf Grunnskólans í Stykkishólmi hófst í gær (þriðju- dag) en þar stunda 215 nemend- ur nám í vetur, eða jafn margir og á síðasta skólaári. Kennarar eru 25 og aðeins hefur orðið ein breyting á kennarliðinu en allir hafa þeir kennsluréttindi að sögn Gunnars Svanlaugssonar skólastjóra. „Þetta verður ofsalega gaman hjá okkur í vetur, það er enginn vafi, „ segir Gunnar. Við erum að endurvinna skólanámskrána og vinnum í því í vetur. Síðan erum við með mjög spennandi verkefhi í gangi sem er samstarf grunnskóla, leikskóla og tónlist- arskóla og við höfum fengið styrk til að halda því áfram. Verkefhið gengur þannig fyrir sig að skólarnir þrír skiptast á starfsfólki og fá þannig nýjar hugmyndir og reynslu hver frá öðrum. Við höfum til dæmis átt- að okkur á því hvað músíkin gef- ur skólastarfinu mikið gildi. Þetta er mjög spennandi verk- efni og gefandi fyrir þá sem að því koma.“ Gunnar nefnir einnig þá breytingu að nú verður ekki boð- ið upp á framhaldsskólanám í Stykkishólmi frá FVA eins og verið hefur undanfarin ár. „Við komum vissulega til með að sakna þeirra nemenda enda gerðu þeir skólalífið fjölskrúðugra en við væntum þess hinsvegar að í staðinn séum við að fá góðan framhaldsskóla í Grundarfirði fyrir okkur Snæfellinga.“ GE Nemendur í Grundaskóia Grundaskóli: Leiðarljósið er jákvæðni, hrós og hvatning Grundaskóli verður settur fimmtudaginn 26. ágúst og munu á bilinu 480 - 490 nem- endur hefja nám í 24 bekkjar- deildum, þar af um 50 í 1. bekk. Guðbjartur Hannesson, skóla- stjóri, segir skólastarfið fyrst og fremst miða að því að veita nemendum sem besta þjónustu og eins og undafarin ár verður skólastarfið grundvallað á hug- myndinni um góða líðan sem nauðsynlega forsendu náms. Ný námsskrá skólans er í vinnslu um þessar mundir, en hún er endurskoðuð á hverju hausti, og er væntanleg inn á vef skólans í næstu viku. I upphafi skólaárs sóttu kenn- arar námskeið hjá Inga Gunnari Jóhannssyni sálfræðingi um lífsleikni og hvernig unnt er að vinna með hana í öllum náms- greinum. I vetur verður unnið að því að hrinda þeim hug- myndum í framkvæmd. „Við í Grundaskóla höfum sett okkur það markmið nú í skólabyrjun að vinna sérstaklega með já- kvæðni, hrós og hvatningu og að kenna krökkunum að sam- gleðjast öðrum. Svo höldum við auðvitað áfram á þeirri braut sem við höfum markað síðustu ár þar sem áhersla er lögð á góða líðan barnanna, gott sam- starf milli allra þeirra sem koma að skólastarfinu og gagnkvæma tillitsemi auk þeirrar þema- vinnu sem hefur fest sig í sessi. Það er margt spennandi framundan í vetur, en af nýj- ungum í starfinu má nefna að stefnt er að því að auka úti- kennslu með það fyrir augum að gera kennsluna rneira lifandi og auka hreyfingu. Áfram verð- ur unnið í þróunarverkefnum sem fóru af stað síðastliðinn vetur, en þar er um að ræða verkefni í uppbyggingu um- ferðarfræðslu sem unnið er með styrk frá RANNUM og verk- efni sem lýtur að foreldra- fræðslu og auknu samstarfi við foreldra. Undanfarin ár hefur foreldrum barna sem hefja nám í 1. bekk verið boðið upp á námskeið þar sem fjallað er um skólastarfið en í vetur verður foreldrum barna í 6. og 8. bekk einnig boðið upp á slík nám- skeið svo þau geti glöggvað sig á þeim breytinum sem verða á skólastarfi barnanna þegar þau færast á milli deilda. Það hefur vakið nokkra eftir- tekt á síðustu árum hversu nemendur Grundaskóla hafa ráðist í stór og metnaðarfull verkefni sem þau hafa skilað af sér með miklum sóma. I vetur verður áfram unnið á þessum nótum. Skipað hefur verið í fé- lagsmálateymi sem hefur það hlutverk að endurskoða félags- starfið og efla nemendalýðræði svo nýta megi betur þá auðlind sem í nemendum býr. Þá hefur og verið skipað teymi sem vinn- ur að því að móta stefnu fyrir breytta kennsluhætti á öllum stigum, enda hafa ráðamenn í Grundaskóla ekki verið ragir við að reyna nýjar leiðir í kennslunni. Lítil hreyfing er á starfsfólki í Grundaskóla og aðeins einn kennari kemur nýr inn í vetur. Allir kennarar skólans hafa kennsluréttindi utan einn, sem er er með háskólapróf í faginu sem hann kennir. ALS Grunnskólinn í Búðardal Víkingar og skólavinir Grunnskólinn í Búðardal var settur síðstliðinn mánudag og hófst hefðbundið skólastarf dag- inn eftir. Nemendur skólans verða 82 í vetur eða námkvæm- lega jafnmargir og í fyrra. Tveir nýir kennarar voru ráðnir fyrir veturinn en allir kennarar skól- ans eru með fullgild réttindi og þannig hefur það verið lengi að sögn Bergþóru Jónsdóttur að- stoðarskólastjóra. „Við sjáum fram á skemmti- legan vetur og það er mikill hug- ur í krökkunum," segir Berg- þóra. „Skólalóðin var gerð fín í sumar þannig að umhverfið er orðið nijög huggulegt. Starfið verður hinsvegar með svipuðu sniði og síðasta vetur. Við höld- uin áfram með skógræktina. Við erum að vísu ekki alveg eins flott á því og sumir af hinum skólun- um en við erum ekki með í skóg- arverkefninu heldur höfum okk- ar eigin skólaskóg í jaðri þorps- ins þar sem nemendur planta trjám á haustin enda hentar það okkur betur því nemendurnir fara beint í sauðburðinn á vorin. Síðan erum við að vonast til að vera með í víkingaverkefninu á Eiríksstöðum í tengslum við ný- stofnaðar skólabúðir á Laugum og einnig stefnum við að því að verða móðurskóli í væntanlegu víkingaþema þannig að það eru spennandi tímar framundan." Einnig segir Bergþóra að svo- kallað skólavinaverkefni sem hófst á síðasta vetri haldi áfram. „Unglingarnir tóku að sér að vera svokallaðir skólavinir og skiptast á að vera í merktum úlp- um frá Regnbogabörnum og að- stoða yngri börnin í ffímínútum. Þetta gekk mjög vel í fyrra og það skemmtilega er að ungling- arnir höfðu sjálfir ffumkvæði að því að halda þessu áffam,“ segir Bergþóra. GE

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.