Skessuhorn


Skessuhorn - 08.09.2004, Qupperneq 6

Skessuhorn - 08.09.2004, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 Fjölskyldur og íjármögnun Verkalýðsfélag Borgarness fagnar viðbrögðum í]ármagns- markaðarins sem felst í verulegri lækkun vaxta nú á síðustu dög- um. Það er von félagsins að þessar breytingar séu ekki að- eins bóla heldur að þetta sé fyr- irboði enn frekari lækkunar vaxta. Jaínframt telur félagið að nú þegar sé tímabært að afnema verðtryggingu fjárskuldbind- inga. Yfir hafa dunið auglýsinga- herferðir fjármálastofnana á höfuðborgarsvæðinu þar sem þær keppast við að að bjóða sína „vöru“ og að „verðið“ sé lang- hagstæðast hjá sérhverjum aug- lýsanda. Oft er í þessum auglýs- ingum mjög smátt og varla læsi- legt letur þar sem skilyrðin fyrir hugsanlegu láni koma fram. Þessum skilyrðum er lítt eða ekki hampað af viðkomandi lánastofhunum. Þegar það jafnframt kom ffam, að t.d. sumir fasteignasal- ar hafi af því beinan hag að fast- eignakaupandinn beini sínum lánaviðskiptum til ákveðins banka, fannst félaginu full á- stæða til að kynna almenningi þessi mál á hlutlausan hátt. Verkalýðsfélag Borgarness leitaði því til Viðskiptaháskólans Bifröst og Símenntunarmið- stöðvarinnar á Vesturlandi, sem tóku strax undir það að full þörf væri á slíkri kjmningu. Viðskiptaháskólinn bauðst til að annast gerð námskeiðs fyrir almenning um fjármál og lána- möguleika heimilanna, sem Bernhard Þór Bernhardsson, lektor í Bifröst semur og fiytur. Niðurstaðan er sem sagt sú að Verkalýðsfélag Borgarness, Við- skiptaháskólinn Bifröst og Sí- menntunarmiðstöðin á Vestur- landi bjóða almenningi upp á námskeið um þessi mál. Námskeiðið verður haldið í Alþýðuhúsinu, Sæunnargötu 2 a, Borgarnesi, fimmtudaginn 16. september 2004, kl. 18,30- 22,30. Aðgangur er ókeypis. Þátttöku þarf að tilkynna Sí- menntunarmiðstöðinni fyrir þriðjudaginn 14. september. - Sjá nánar auglýsingu í þessu blaði. Fréttatilkynning. Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi Merkigerði 9 • 300 Akranes Deildarstjóri afgreiðsludeildar SHA Laus er staða deildarstjóra afgreiðsludeildar SHA. Deildarstjóri er yfirmaður afgreiðsludeildar SHA og skipuleggur og stjórnar starfi deildarinnar svo hún þjóni hagsmunum þjónustuþega og stofnuninni á sem bestan og hagkvæmastan hátt. Gerð er krafa um hæfni og reynslu af starfsmannastjómun, staðgóða tölvuþekkingu og lipurð og góða hæfni í mannlegum samskiptum. Um er að ræða 100% starf. Laun eru skv. kjarasamningum STAK. Starfsemi afgreiðsludeildar skiptist í megin atriðum í afgreiðslu símtala, afgreiðslu sjúklingagjalds og tímaskriftir fyrir lækna stofnunarinnar. Afgreiðslan er opin frá kl. 8:00 til 20:00 mánudaga til föstudaga og frá kl. 9:00 til 12:00 á laugardögum. Umsóknir sem greini frá menntun, reynslu og fyrri störfum sendist SHA, b.t. Asgeir Asgeirsson, skrifstofustjóri, Merkigerði 9, 300 Akranes sem jafnframt veitir nánari upplýsingar um starfið í vs. 430 6000. Gert er ráð fyrir að deildarstjóri hefji störf | sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 1. október n.k. Öllum 1 umsóknum verður svarað. 1 Sjúkrahúsið og heilsugœslnstöðin áAkranesi (SHA) skiptist ísjúkrasvið l og heilsugœslusvið. A sjúkrasviði er starfrœkt fjölgreinasjúkrahús " með örugga vaktþjónustu allan sólarhringinn árið um kring. Sjúkrahúsið veitir almenna og ú vissum sviðum sérhœfða sjiíkrahússþjónustu á lyflækningadeild, handlœkningadeild, fœðinga- og kvensjiíkdómadeild, hjúkrunar- og endurhœfingadeild og á vel búnum stoðdeildum þar sem höfuð áhersla er lögð áþjónustu við íbúa Vestur- og Suðvesturlands. Jafnframt er vaxandi áhersía lögð á þjónustu við íbúa höfuðborgarsvœðisins. A heilsugœslusviði er veitt almenn heilsugœsluþjónusta fyrir íbúa í heilsugœsluumdœmi Akraness með forystuhlutverk varðandi almenna heilsuvernd ogforvarnarstarf. SHA tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla Islands og aðrar menntastofnanir. Starfsmenn stofnunarinnar eru um 240 talsins. SHA er reyklaus stofnun. A líklega inni dagsfrí! Það fer ekki mikið fyrir hús- inu að Kirkjubraut 30 á Akra- nesi. Þetta er eitt af þessum vinalegu og gömlu húsum í miðbæ Akraness sem setja snotran svip á bæjarmyndina. í kjallara hússins hefur rakara- stofan Hárskerinn bækistöðvar sínar og innandyra ræður ríkj- um Jón Hjartarson. Jón stendur nú á tímamótum í tvennum skilningi. A morgun, fimmtu- daginn 9. september, verður hann sjötugur karlinn en jafn- framt eru 55 ár liðin frá því hann fór fyrst að hafa hendur í hári fólks. „Eg lærði hjá honum Geirlaugi Arnasyni rakara á Vesturgötunni en daginn sem ég byrjaði hjá honum átti ég eftir viku í að verða 15 ára,“ sagði Jón í samtali við Skessu- horn. Hjá Geirlaugi vann hann í sjö ár og lauk m.a. réttinda- námi en starfaði eftir það nokk- ur ár í Reykjavík. „Eg byrjaði með eigin rakarastofu árið 1959 við Kirkjubraut 2 en hef verið á flakki um Skagabraut, Skóla- braut en núna síðustu áratugina hér á Kirkjubraut 30.“ Það verður að teljast frekar sjaldgæft að menn starfi svo lengi við sömu iðngreinina, en ætlar rakarinn ekki að fara að Jón rakari hér að klippa nafna sinn Hjálmarsson sl. föstudag. Þar áður hafði hann klippt Ijósmyndarann, sem glittir f f speglinum bakvið myndavélina, en það verk tekur sífellt skemmri tíma! setjast í helgan stein hvað úr hverju? „Eg hef aldrei haft það að markmiði að hætta að vinna og því ætti ég að fara að taka upp þann ósið núna?“ spyr hann á móti, og þar með er svarið fengið. „Eg reikna reyndar með að taka mér frí á afmælisdaginn og skreppa með frúnni í silung einhversstaðar, ég fer hvort sem er aldrei langt án hennar! Verð svo vonandi mættur aftur til vinnu á föstu- dagsmorgun. Ætli ég eigi ekki inni þennan frídag og vona að mér verði fyrirgefið,“ bætir hann við sposkur. Jón segist vonast til að eiga eftir að klippa kolla Skagamanna og annarra fastakúnna í mörg ár til viðbót- ar, enda heilsan ágæt og vinnu- gleðin næg. ,f\Aér leiðist ekki meðan menn vilja koma innfyr- ir, spjalla og fá klippingu í leið- inni,“ segir hinn síungi Jón rak- ari að lokum. MM Tíkó í Borgamesi I síðustu viku var opnuð í Borgarnesi ný hárgreiðslustofa og nefnist hún Tíkó. Tíkó er til húsa að Borgarbraut 55 í sama húsi og Efnalaugin Múla- kot. Að sögn þeirra Svanhildar og Júlíu sem munda skæri og greiður í nýju hárgreiðslustof- unni bjóða þær upp á alla hefð- bundna hárgreiðsluþjónustu auk þess sem þær selja Indol hárvörur en í tilefhi af opnun- inni verður ráðgjafi frá Indolt á staðnum þann 6. október n.k. milli 11.00 og 15.00. GE Júlia og Svanhildur á hárgreiðslustofunni Tíkó í Borgarnesi. Suðureyjaferðir Sæferða f Stykkishólmi hafa notið mikilla vinsælda í sumar líkt og síðustu sumur. Þessi mynd er tekin í einni slfkri á dögunum í aftaka blfðu. Mynd: GE

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.