Skessuhorn


Skessuhorn - 08.09.2004, Side 7

Skessuhorn - 08.09.2004, Side 7
^&£ssunuw: MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 7 Háll sem áll Álar eru einhverjir sérkenni- legustu fiskar sem hér við land finnast m.a. vegna þess hve sér- stæður lífsferill þeirra er. Margt er jafnvel talið óljóst um lífshætti þeirra en vitað er að állinn hrygnir suður í Þanghafinu, berst á þremur árum með golfstraumnum norður til Evr- ópu og gengur þar í ár og breyt- ist úr glerál. Eftir 6-10 ár í ferskvatni sem sk. guláll gengur hann í sjó aftur, þá nefndur bjartáll, heldur til Þanghafsins og drepst þar að lokinni hrygn- ingu, að talið er. All er beinfisk- ur af álaætt, mósvartur, langur og mjór með langan bak- og raufarugga sem sameinast á stirluenda en kviðugga vantar. Oftast verða þessir fiskar um 40 cm. langir í ferskvatni hér en fullvaxnir geta þeir orðið um meter á lengd hér við land. All- inn hreyfir sig líkt og slöngur á landi með bylgjuhreyfingu alls líkamans. Hreistrið er ófúllkom- ið, annaðhvort afar smátt, hálf- sokkið í húðina eða með öllu horfið. I stað þess kemur mikil slímmyndun til varnar roðinu. Af þessu leiðir að það er langt frá því auðvelt að taka ál upp og handfjatla hann yfirleitt. Hann er „háll sem áll,“ er því orðatil- tæki að sönnu. Unnsteinn Jóhannsson er kúabóndi í Laxárholti í Hraun- hreppi. Hann hefúr undanfarnar vikur verið að gera tilraunir með álaveiðar í Vogslæk á Mýrum. Vogslækur gengur úr Steina- tjörn en í læknum reynist vera ágæt álaveiði og hefur Unn- steinn fangað fiskinn í tilrauna- skyni nú í sumar. „Eg var upp- haflega beðinn að veiða nokkra ála fyrir íslenska kvikmynd sem verið er að gera og lagði því út gildrur og hef veitt ágætlega í þær,“ sagði Unnsteinn í samtali við Skessuhorn. Aðspurður seg- ist hann hafa prófað að borða ál og segir hann góðan. „Sökum þess hve þetta er feitur fiskur vildi ég samt ekki borða hann nema svona einu sinni á ári, en þetta er vissulega herramanns- matur“. Aðferðin við að farga fiskinum er ekkert sérlega spennandi; állinn er settur í salt og þannig drepinn. Um mat- reiðsluna segir hann að eftir að búið sé að taka innan úr fiskin- um sé hann kryddaður og hon- um velt uppúr hveiti og þvínæst steyktur á pönnu við háan hita að sið nágranna okkar í Dan- mörku, en Danir eru talsvert meiri álaætur en við Islendingar. Kílóið af verkuðum og reyktum ál er selt á um 3000 krónur en sjálfur segist Unnsteinn fá þetta um 500 krónur fyrir kílóið af honum ferskum. En Unnsteinn hefur veitt fleiri fisktegundir en ála í gildr- urnar. „Eg hef verið að fá svo- kallaða ósaflúru í gildrurnar í sumar, en það mun vera í fyrsta skipti sem vitað sé til að sú gerð flatfiskjar veiðist í ferskvatni hér á landi,“ sagði Unnsteinn að lok- um. MM Unnsteinn bóndi í Laxárholti með stóran ál. Bægslagangurinn í fiskin- um er mikill og nær ómögulegt að handsama hann með berum hönd- um. ATVINNA ÓSKAST! Karlmaður, búsettur í Borgarnesi, óskar eftir vel launaðri vinnu. Á auðvelt með að starfa sjálfstætt, er með fjölbreytta starfsreynslu, hefur öll ökuréttindi ásamt lyftaraprófi. Hafið samband í síma 616 7913. BORGARBYGGÐ Laus störf víb leikskólann Hraunborg á Bifröst Á leikskólann Hraunborg á Bifröst vantar leikskólakennara eba annab uppeldis- menntað starfsfólk. Ef ekki fást leikskólakennaror til starfa veröa ráönir starfsmenn meö aöra uppeldismenntun eöa leiöbeinendur. Karlar jafnt sem konur eru hvött til aö sœkja um starfiö. Nánari upplýsingar veitir Þórdís C. Magnúsdóttir leikskólastjóri ísíma 435-0077. Netfang indis@simnet.is. Forstöbumabur frœöslu- og menningarsviös Aðalfundur Sjálfstæöisfélags Mýrasýslu 2004 A&alfundur Sjálfstæðisfélags Mýrasýslu verður haldinn mánudaginn 20. september nk. í Sjálfstæðishúsinu í Borgarnesi. Fundurinn hefst kl. 20.30 Dagskrá fundarins: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning stjórnar. Önnur mál. Gestur fundarins er Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Borgarbyggðar kynna málefni sveitarfélagsins Félagar fjölmennib Heitt á könnunni Stjómin DuraSafe System • Öll flekasamskeyti eru þannig samsett að engin hætta er á því að klemma sig. WeatherGuard ™ • Mjög sterkt stál minnkar hættur á beyglum og eykur endingu. • Galvanisering, sterkur grunnur og sérstök polyester málning í efsta lagi minnka viðhald til muna. Fáanlegar í nokkrum stærðum og gerðum, með eða án glugga. VIRNETÍ Borgarbraut 74, 310 Borgarnesi Vesturhraun 3, 210 Garðabæ sími 437 1000 • fax 4371819 sími 530 3400 • fax 530 3401 Vírnet Garðastái flytur inn fallegar, öruggar og traustar bílskúrshurðir frá Amarr. Hurðirnar frá Amarr eru hanna með öryggi og endingu í huc

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.