Skessuhorn


Skessuhorn - 08.09.2004, Síða 8

Skessuhorn - 08.09.2004, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 úotssaunu^ X / Ottós A Amasonar minnst í Olafsvík Framfarafélagið afhenti einnig ný upplýsingaskilti við bæjarmörkin Það er óhætt að segja að félag- ar í Framfarafélagi Olafsvíkur hafi haft í nógu að snúast síðast- liðinn laugardag. Félagið sam- einaði tvo viðburði sama daginn þar sem annarsvégar sveitarfé- laginu var afhent ný upplýsinga- skilti við báðar innkeyrslur bæj- arins og hinsvegar var bæjarbú- um afhentur minnisvarði um Ottó A Árnason við Gilið auk söguskiltis um gamla félags- heimilið í Olafvík sem þar stóð. Upplýsingaskilti Dagskráin sl. laugardag hófst með því að Framfarafélag Olafs- víkur afhenti fulltrúa bæjar- stórnar formlega upplýsinga- skilti sem standa við báðar inn- keyrslurnar í bæinn. A skiltunum er m.a. götukort, loftmynd af Olafsvík og yfirlitsmynd af Fróðárvelli Golfklúbbsinsjökuls Börn Ottós A Arnasonar ásamt listamanninum Páti á Húsafelli. Bæjarféiaginu afhent nýju upplýsingaskiltin frá Framfarafélaginu. ásamt nöfnum styrktaraðila. Fyrir hönd Framfarafélagsins voru það þær Ester Gunnars- dóttir, formaður og Jenný Guð- mundsdóttir sem afhentu full- trúa bæjarstjórnar; Jóni Þór Lúðvíkssyni hin nýju og veglegu skilti. Félagið hafði forgöngu um að láta vinna skiltin en þau voru fjármögnuð af ýmsum styrktaraðilum. Að sögn Esterar gekk fjármögnunin vel og fann félagið fyrir miklum velvilja hjá öllum sem hlut áttu að máli. Það var Merking ehf. sem vann verk- ið en Vegagerðin sá um uppsetn- ingu og ffágang lóða en því verki er nú að mestu lokið. Minnisvarða um Ottó A. Amason Efrir að Fram- farafélagið hafði afhent upplýs- ingaskiltin færði hópurinn sig um set og hélt að Gil- inu, þar sem gamla félagsheimili bæjarins stóð til langs tíma. Þar var af- hjúpaður og afhentur minnis- varði um Ottó A. Amason sem þar starfaði m.a. í áratugi. Minn- isvarðinn er gerður af Páli Guð- mundssyni listamanni á Húsa- felli en efhiviðurinn er steinn Borgarfjaröars veit il leigu Árberg 4 og 4a á Kleppjárnsreykjum, Borgarfjaröarsveit íbúðirnar eru í nýju parhúsi, 11 6 fm. hvor með 3 svefnherbergjum. Báðar íbúðir eru lausar 1. október nk. og leigist önnur ótímabundið en hin frá 1. október - 31. júlí 2005. Umsóknarfrestur er til 15. september nk. Nánari upplýsingar á skrifstofu Borgarfjarðarsveitar, Litla - Hvammi, 320 Reykholt, sími 435 1 1 40 en þangað skal umsóknum skilað. Sveitarstjóri sem fenginn er á Jökulhálsinum. Minnisvarðann afhenti Fram- farafélagið bæjarbúum í Olafsvík og Snæfellsbæ til varðveislu með óskum um að íbúar njóti gæfu til þess að hafa hvatningu Ottós að leiðarljósi. Kom víða við I ávarpi Esterar Gunnarsdótt- ur sagði hún m.a. annars um Ottó A Arnason: „Ottó var fæddur í Nýjabæ hér í Olafsvík 4. nóvember árið 1908 en hann lést 6. september árið 1977. Hann var einn af merkustu samtíðarmönnum sín- um í Olafsvík og varð mjög snemma virkur í félagsmálum og gekk ungur í stúkuna. Tvítugur stofnaði hann Ungmennafélagið Víking ásamt hópi af ungu fólki. Þar hvatti hann menn til dáða í hefðbundnum íþróttum auk þess sem hann lagði ríka áherslu á bindindi á áfengi og tóbak. Ottó var hvatamaður að byggingu sundaðstöðu neðst í Hvalsá og fékk m.a. ríkisstyrk til þess og í kjölfarið varð hann fyrsti sund- kennarinn í Olafsvík. Ungur fékk hann berkla og lá þá lengi rúmfastur. Hann notaði tímann í sjúkdómslegu sinni og lærði bókfærslu sem hann vann við upp ffá því. Hann veitti sjúkra- samlaginu forstöðu og annaðist rekstur Félagsheimilisins gamla í Olafsvík um langt árabil. Hann stofnaði Taflfélag Olafsvíkur og var formaður þess til fjölda ára. Hann var fyrsti formaður Verka- lýðsfélagsins Jökuls í Olafsvík auk þess að hann tók virkan þátt í stjórnmálum. Hann var þekkt- ur fyrir málsnilld og þekkingu á fundarsköpum. Tækifærisræður hans voru oft hreinustu perlur og ljóðagerð hans hnittin og skemmtileg. Hann var orðhagur og drengilegur í málflutningi sínum, en beitti ekki skjallyrðum né skrumi. Er mér það minnis- stætt hvað hann hvatti okkur börnin, við hvert tækifæri, til þess að meta fegurð umhverfis okkar, láta gott af okkur leiða og að standa með okkur sjálfum. Stór hópur fótks kom saman við afhjúpun minnisvarðans. Hér taka viðstaddir lagið við undirleik harmonikkuspilara. Ottó var virkur félagi til dauða- dags í öllum þeim félögum sem hann kom að og setti mikinn svip á bæjarfélagið. Hann stapp- aði í okkur stáfinu og gaf okkur kjark og þor til þess að vinna saman að góðum framfaramál- um fýrir byggðarlagið og að varðveita kraft okkar og baráttu- eld til góðra málefna. Efrir Ottó Iiggja greinar, smásögur og ljóð, þar sem allsstaðar er að finna gleði, ást, umhyggju, von og hvatningu.“ Hugmynd Eyglóar Ester Gunnarsdóttir gat þess að hugmyndina að þessu verk- efni hafi átt Eygló Egilsdóttir, sem þá rak Hótel Höfða í Olafs- vík, en hún kom ferlinu af stað með því að ráða til verksins lista- manninn Pál á Húsafelli. „Þegar Eygló flutti burt frá Olafsvík tók Framfarafélag Olafsvíkur við umsjón verksins. Eygló var mjög áhugasöm um að halda á lofri sögu og menningu Olafsvíkur og vann ötullega að ýmsum góðum málum fyrir byggðarlagið, eins og að láta leggja gangstíga og merkja sögufræga staði í ná- grenni bæjarins. En einstakt var það framtak hennar að láta leikgera Fróðár- undrin og koma þeim á svið sem er þakkarvert,“ sagði Ester. Eftir afhjúpun minn- isvarðans bauð Fram- farafélagið öllum við- stöddum í Pakkhúsið en mikill fjöldi bæjarbúa safnaðist saman í blíð- skaparveðri við Gilið í Olafsvík sl. laugardag. I Pakkhúsinu voru veit- ingar í boði en auk þess afhenti Stefán Jóhann Sigurðs- son, Elínu Unu Jónsdóttir for- stöðumanni í Pakkhúsinu til varðveislu ýmis gögn og upplýs- ingar um Ottó sem Framfarafé- lagið aflaði í aðdraganda gerð minnisvarðans. MM Vann Línu Langsokks yerðlaun Borgarleikhússins um ævintýri Línu og félaga hennar og get- ur hún því boðið vinum sínum í leikhús um helgina. Hluti myndanna, og þar á meðal verðlaunamyndin, eru nú til sýnis í Kringlunni. Skessuhorn óskar Oldu Lísu til hamingju með þennan glæsilega árangur. ALS Alda Lísa ásamt Línu Langsokki við verðiaunaafhendinguna. Nýverið lauk teiknimynda- samkeppni Línu Langsokks sem haldin var á vegum Kringlunnar og Borgarleik- hússins, en börn allsstaðar að af landinu hafa í sumar sent inn teikningar af Línu í sumar- fríi. Mörg hundruð glæsilegar myndir bárust í keppnina en tilkynnt var á Línuhátíð í Kringlunni laugardaginn 28. ágúst að Alda Lísa Aðalsteins- dóttir, 5 ára Skagastúlka, væri höfundur sigurmyndarinnar. I verðlaun fékk Alda Lísa meðal annars 10 iniða á sýningu Verðlaunamyndin

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.