Skessuhorn - 08.09.2004, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004
11
úntssunui..
Bragi Þórðarson hlaut borgfirsk menningarverðlaun
Um síðustu helgi var þess
minnst í Borgarfirði að 100 ár
eru liðin frá fæðingu Guð-
mundar Böðvarssonar skálds
frá Kirkjubóli í Hvítársíðu. A
föstudag var opnuð sýning í
Safnahúsi Borgarfjarðar á
munum úr búi Guðmundar og
konu hans Ingibjargar Sigurð-
ardóttur hans og á laugardag
var hátíðarsamkoma í Snorra-
stofu í Reykholti helguð minn-
ingu Guðmundar og verkum
hans. Meðal annars fluttu Silja
Aðalsteinsdóttir og Magnús
Sigurðsson á Gilsbakka erindi
og Kammerkór Vesturlands lét
sönginn hljóma. Þá voru af-
hent verðlaun úr Minningar-
sjóði Guðmundar og Ingi-
bjargar, annars vegar borgfirsk
menningarverðlaun sem Bragi
Þórðarson bóka-
útgefandi á Akranesi hlaut að
þessu sinni og Ljóðaverðlaun
Guðmundar Böðvarssonar sem
að þessu sinni komu
í hlut Þorsteins frá
Hamri. GE
Helgi og Þóra Kristín í Hraunsmúla í Staðarsveit.
Það eru snör handtök þegar upptakan er á fullu. Fjórir eru að henda
frá grösum og grjóti sem upp kemur, einn ekur dráttarvélinni og sá
sjötti tekur pokana frá og raðar þeim frá færibandinu.
Allt að tuttuguföld
uppskera
Kartöfluupptaka stendur nú
sem hæst hjá bændum á
Hraunsmúla í Staðarsveit.
Hjónin Helgi Sigurmonsson og
Þóra Kristín Magnúsdóttir búa
á Hraunsmúla og hafa þau um
allnokkurt skeið ræktað kartöfl-
ur til sölu og eru nú með þrjá
og hálfan hektara undir. Auk
kartöfluræktunarinnar gera þau
út litla trillu frá Arnarstapa.
Þóra Kristín sagði í samtali
við Skessuhorn að kartöfluupp-
skeran í haust væri með allra
besta móti. „I sumum tilfellum
erum við að fá allt að tuttugu
faldri uppskeru, en algengt
þetta tólf og uppí tuttuguföld,
en það er með besta móti hjá
okkur“. Uppskeran er þó eitt-
hvað misjöfn eftir tegundum en
þau rækta jöfnum höndum;
gullauga, rauðar íslenskar og
bintjé. Þau felldu kartöflugrös-
in um miðjan ágúst, en það er
jafnan gert tímanlega áður en
tekið er upp til að kartöfluhýð-
ið styrkist. Aðspurð segjast þau
vera einu aðilarnir á Snæfells-
nesi sem rækta kartöflur til
sölu. „Við seljum alla okkar
uppskeru í skóla, hótel og versl-
anir hér á Vesturlandi. Mikið
fer t.d. í Kaupfélagið í Borgar-
nesi“. Þau segja verð á kartöfl-
um vera þokkalegt um þessar
mundir og gera ráð fýrir að fá
um 120 krónur fyrir kílóið nú í
haust.
MM
Busavígsla og ball í FVA
Síðastliðinn föstudag fór ár-
leg busavígsla nýnema fram við
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi. Það var nemendafé-
lag skólans sem hafði veg og
vanda að vígsluathöfhinni sem
þótti fara vel fram, miðað við
aðstæður. Af þessu tilefni féll
kennsla niður frá hádegi og síð-
ustu kennslustund fýrir hádegi
einnig. Nýnemar sem vildu taka
þátt í leiknum mættu í skólann
á hádegi en öðrum gafst kostur
á að koma sér heim í tæka tíð.
Busavígsla fór frarn með nokk-
uð öðru sniði nú en undanfarin
ár þar sem skólinn gaf frí í
tveimur kennslustundum. Á
móti fríinu gekkst stjóm nem-
endafélagsins inná að beita sér
fýrir því að nýnemar væra laus-
ir við áreitni og hrekki fram til
hádegis. Þetta tókst vel og
tryggði að þeir sem ekki kærðu
sig um að láta hrekkja sig gátu
forðað sér áður en hamagang-
urinn byrjaði. Að venju voru
nýnemar sem kusu að gangast
undir busavígslu baðaðir upp úr
köldu vatni en voru auk þess
smánaðir lítillega eins og gerist
og gengur við slíkar innvígslu-
athafnir. Um kvöldið stóð nem-
endafélagið svo fýrir dansleik á
sal skólans.
MM/Ljósm.: Hilmar