Skessuhorn - 08.09.2004, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004
15
Skagamenn íslandsmeistarar í 2. flokki
Islandsmeistarar i 2. flokki karla. A
innfelldu myndinni er Heimir fyrirliði
með bikarinn.
Skagamenn gerðu sér lítið
fyrir og kræktu sér í íslands-
meistaratitil í 2. flokki karla á
íslandsmótinu í knattspyrnu á
æsispennandi lokaspretti.
Liðið byrjaði mótið mjög vel
og hafði forystu lengi framan
af en tapaði síðan stigum með
því að gera þrjú jafntefli og
þegar liðið tapaði fyrir Breiða-
bliki í þriðju síðustu umferð-
inni virtist draumurinn úti því
með því tóku Blikarnir forystu.
Fyrir lokaumferðina var stað-
an þannig að ÍA dugði ekki að
sigra sinn leik heldur þurftu
Skagamenn einnig að treysta
á að Breiðablik tapaði stigum.
Það gekk eftir því Breiðablik
gerði jafntefli við HK 2- 2 á
sama tíma og ÍA sigraði FH á
útivelli 4-3. Leikur ÍA og FH
var æsispennandi en Skaga-
menn höfðu frumkvæðið og
voru fyrri til að skora en FH
ingar svöruðu fyrir sig jafn
harðan þar til í lokin þegar
Skagamenn skoruðu sigur-
markið. Leikmenn og þjálfarar
voru að vonum kátir með sig-
urinn enda kom hann mörgum
á óvart. „Ég átti svosem ekki
von á þessu fyrir síðustu um-
ferðina þótt maður vonaði það
besta,“ segir Alexander
Högnason þjálfari íslands-
meistaranna. „Við þurftum
náttúrulega að treysta á að lið
í fallsæti myndi ná stigum af
því efsta en hinsvegar var
þetta lið úr sama bæjarfélagi
þannig að maður vonaði að
þar væri smá hatur á milli sem
myndi skila sér okkur í hag.“
Alexander segir það gera
sigurinn enn sætari að flestir
leikmenn (slandsmeistaranna
séu á yngsta eða miðári í 2.
flokki en ekki nema tveir af
þeim sem hafa verið að spila
reglulega eru á elsta ári. „Það
gefur okkur góða von fyrir
næsta sumar ef þessir strákar
verða ekki notaðir í meistara-
flokkinn sem er
náttúrlega ósk-
andi útaf fyrir
sig. Það eru 5
- 6 strákar
sem hafa
hæfileika til
að spila með
meistara-
flokki í fram-
tíðinni en
síðan er spurning
hvernig þeir spila úr því,“ seg-
ir Alexander sem kveðst
reikna með að þjálfa 2. flokk-
inn áfram á næsta ári. Sumar-
ið er hinsvegar ekki búið því
næstkomandi þriðjudag leika
Skagamenn um bikarmeist-
aratit-
ilinn í 2. flokki gegn
Breiðabliki á Fjölnisvelli. Alex-
ander segir þá staðráðna í að
enda sumarið með stæl og
landa þeim titli líka.
GE/ Myndir: Hilmar
Skagstúlkur
á uppleið?
Þótt ÍA hafi misst af efsta sæt-
inu í 1. deild kvenna þegar
þær töpuðu úrslitaleiknum fyr-
ir Keflavfkurmeyjum þá eiga
þær annan möguleika á að
krækja f úrvalsdeildarsæti að
ári. Þær leika nefnilega f
svokölluðu umspili gegn
næstneðsta liði úrvalsdeildar-
innar Þór/KA/KS f vikunni og
ef ÍA sigrar fær liðið sæti norð-
anstúlkna að ári. Fyrri leikur-
inn er á Akureyri á laugardag
en sá sfðari miðvikudaginn 15.
september kl. 17.30 á Akra-
nesvelli.
GE
Skráningardagur íþrótta- og
tómstundafélaga á Akranesi
Skallar í þriðja sæti
Skallagrímur endaði í þriðja
sæti þriðju deildar eftir úrslita-
leik um bronsverðlaunin móti
Reyni Sandgerði í Keflavík á
laugardag. Ekki leit út fyrir að
Skallarnir gerðu miklar rósir í
leiknum í upphafi því eftir 35
mínútur var staðan 3-0 Sand-
gerðingum í vil. Þá fóru Skalla-
grímsmenn loks í gang og
tóku öll völd á vellinum. Sigur-
jón Jónsson skoraði tvö mörk
fyrir leikhlé og í byrjun þess
síðari jafnaði Sveinbjörn G
Hlöðversson jöfunarmarkið.
Um miðjan hálfleik gerðu
Reynismenn sjálfsmark og
það var síðan markahrókurinn
mikli, Valdimar Sigurðsson
sem gulltryggði sigurinn fyrir
Skallagrím.
Þriðja sætið dugar Skalla-
grím að vísu ekki til að komast
í 2. deild eins og markmiðið
var fyrir tímabilið nema eitt-
hvað lið úr 2. deildinni dragi sig
úr keppni sem hefur reyndar
komið fyrir. Þá má nefna að
sögusagnir hafa farið á kreik
um að Austfjarðaliðin tvö sem
fóru upp úr 3. deild, Fjarðar-
byggð og Huginn, verði mögu-
lega sameinuð og ef það ger-
ist losnar sæti í 2. deildinni.
Það skal hinsvegar undirstrik-
að að einungis er um sögu-
sagnir að ræða.
GE
Mikið fjör var í íþróttahúsinu
við Vesturgötu á Akranesi sl.
fimmtudag þegar íþrótta- og
tómstundafélög í bænum
kynntu starfsemi sína og
skráðu félaga til vetrarstarfs.
Léttar veitingar; grænmeti, á-
vextir, vatn og ávaxtasafi var í
boði Akraneskaupstaðar og í
íþróttasalnum gafst gestum og
gangandi kostur á spreyta sig í
hinum ýmsu íþróttum.
Þetta er í annað sinn sem
staðið er að skráningu með
þessum hætti og Aðalsteinn
Hjartarson, sviðsstjóri for-
varna- og tómstundasviðs
Akraneskaupstaðar, segir það
greinilega mælast vel fyrir því
aðsókn hafi verið mjög góð,
um það bil helmingi fleiri komu
nú en á síðasta ári og nokkuð
fjölgaði í þeim félögum sem
kynntu starfsemi sína. Verkefn-
ið er hugar-
fóstur Aðal-
steins, Jóns
Þórs Þórðars-
sonar, fram-
k v æ m d a -
stjóra ÍA og
Harðar Kára
Jóhannes-
sonar rekstr-
arstjóra ^ a
... Það var i noqu að
iþrottamann- hæs(
virkja. Aðal-
steinn bendir á að íþrótta- og
tómstundastarf í bænum sé í
miklum blóma en tækifæri fé-
laganna til markaðssetningar
og kynningar hafi fram til
þessa verið fá. „Það er mikil-
vægt að allir aðilar vinni saman
að upplýsinga- og kynningar-
málum svo fólk geti öðlast yfir-
sýn yfir það sem stendur til
boða. Allir þeir sem sinna
snúast þegar skráningin stóð sem
íþrótta-, æskulýðs- og tóm-
stundastarfi og vilja kynna
starfsemina ættu að eiga
möguleika á að koma sér á
framfæri þarna. Ég yrði ekki
hissa þó skráningardagurinn
ætti eftir að vaxa nokkuð á
næstu árum því við finnum að
fólki finnst þetta ekki bara þarft
framtak, heldur hreint út sagt
nauðsynlegt." ALS