Skessuhorn - 08.12.2004, Síða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 48. tbl. 7. árg. 8. desember 2004
OPIÐ:
Virka daga 10-19
Laugard. 10-18
Sunnud. 12-18
netté
alltaf gott - alltaf ódýrt
Kr. 300 í lausasölu
Krakkarnir í leikskólanum Hnoðrabóli f fíeykholtsdal hafa haft í nógu að snúast síðustu vikurnar en þau
tóku að sér að endurskapa sveitarfélagið sitt f heild sinni úr ýmsum þeim efnum sem til féllu. Niðurstaðan
varð stærðar líkan sem sýnir fjöll og dali, ár og vötn og vel valda bæi i sveitinni. Mynd: GE
Félagsmálaráðuneytið vill
sameina í Dölum í byrjun árs
Tvö blöð
til jóla
Skessuhorn kemur næst út
miðvikudaginn 15. desem-
ber skv. venju en jólablaðið,
og jafnframt síðasta blað árs-
ins, keniur út þriðjudaginn
21. des. Jólablaðið verður að
vanda stærsta blað ársins og
óvenju vel útilátið af fjöl-
breyttu efni, s.s. viðtöl,
jólakrossgáta, hugvekja og
ýmislegt tengt jólahaldi á
Vesturlandi.
Auglýsendum er bent á að
tryggja sér auglýsingapláss
tímanlega fýrir þessi tvö síð-
ustu blöð ársins. Skilafrestur
auglýsinga og efnis í jólablað
Skessuhorns er fimmtudag-
inn 16. desember klukkan
16. Auglýsingsíminn er 433-
5500.
Stórafinæli
Rauða kross hreyfingin
hér á landi fagnar 80 ára af-
mæli í þessari viku. I tilefni
af þessum tímamótum er í
blaðinu í dag rætt við tvo af
starfsmönnum Rauða kross-
ins á Vesturlandi um starf-
semi hreyfingarinnar á
svæðinu.
Sjd bls. 20 - 21.
Margir um
lausar lóðir
I liðinni viku var dregið
um byggingalóðir á Akra-
nesi sem auglýstar voru í
haust. Að jafhaði ellefu um-
sóknir bárust um hverja lóð.
Sjá bls. 21
Eins og fram hefur komið í
Skessuhorni hefur sameining-
arnefnd Sambands íslenskra
sveitarfélaga og félagsmála-
ráðuneytisins lagt það til að
kosið verði um sameiningu
sveitarfélaganna Dalabyggðar,
Saurbæjarhrepps og Reykhóla-
hrepps. Miðað er við að kosið
verði í apríl n.k. og sameining
taki formlega gildi vorið 2006.
Svo gæti farið að sameinað
yrði í Dölunum mun fyrr en
áður var áætlað. I síðustu viku
héldu fulltrúar félagsmálaráðu-
neytisins fundi með sveitar-
stjórnum Dalabyggðar og
Saurbæjarhrepps til að kanna
möguleika á að ganga til kosn-
inga um sameiningu þessara
tveggja sveitarfélaga jafnvel
strax eftir áramót. Ef það
gengur eftir verður farið út
fyrir þær tillögur sem ráðu-
neytið átti sjálft stærstan þátt í
að móta. Guðjón Bragason
lögfræðingur hjá félagsmála-
ráðuneytinu staðfesti í samtali
við Skessuhorn að þessir fund-
ir hefðu átt sér stað og að
frumkvæði ráðuneytisins.
Elann sagði ennfremur að
þessar hugmyndir tengdust
starfi eftirlitsnefndar með fjár-
málum sveitarfélaga en fjár-
hagsstaða Saurbæjarhrepps er
erfið enda fer yfir 90% af tekj-
um sveitarfélagsins til skóla-
mála. Guðjón sagði að nú væri
boltinn hjá sveitarstjórnum
þessara tveggja sveitarfélaga og
að væntanlega myndi skýrast á
allra næstu dögum hvert fram-
haldið yrði.
Sæmundur Kristjánsson
oddviti Saurbæjarhrepps sagði
í samtali við Skessuhorn að
ekki væri mikið hægt að segja
um málið að svo stöddu. „Við
eigum eftir að funda aftur og
skoða þessi mál betur.“ GE
Enn breytt?
Á fundi skipulags- og um-
hverfisnefndar Akraneskaup-
staðar sl. mánudag var tekið
til umfjöllunar erindi frá
Skagatorgi ehf þar sem fyrir-
tækið óskar eftir að breyting-
ar verði gerðar á núgildandi
deiliskipulagi Miðbæjarreits.
Ástæður breytinganna eru
hversu djúpt reyndist vera
niður á fast þar sem íbúða-
blokkin við Dalbraut átti að
rísa sem gerir það illfram-
kvæmanlegt að ráðast í fyrir-
hugaðar framkvæmdir skv.
núgildandi skipulagi. Ný til-
laga Skagatorgsmanna gerir
ráð fyrir að verslunarmiðstöð
verði færð nær Dalbraut og
að bæði 10 hæða fjölbýiishús-
in verði í vesturhorni bygg-
ingarsvæðisins, þ.e. nær
Kalmansbraut. Nefhdin sam-
þykkti að fela sviðsstjóra að
láta gera nýja athugun á um-
ferð m.t.t. þessa, athugun á
skuggavarpi og að óska eftir
því við Skagatorg að lagðar
verði fram þrívíddarmyndir
skv. nýju tillögunni. Akvað
nefndin að þessi gögn þyrftu
að berast áður en afstaða yrði
tekin til tiilögunnar. MM
Skákí
Óiafsvík
Um sjötíu keppendur á öll-
um aldri tóku þátt í skákmóti
sem haldið var nú í þriðja
sinn um helgina til minning-
ar um Ottó Árnason fram-
kvöðul í skákíþróttinni í Snæ-
fellsbæ. Mótið hefur vakið
mikla athygli enda þykir vel
að því staðið af hálfu heima-
manna.
Sjá bls. 10
llllllllllllllllllllllllll
rj
Borgarnes kjötvara í jólamatinn f
að sjálfsöqðu í Samkaup-Úrvali BorqarnesiM
Verið velkomin!
Svínahamborgarhryggur
Hangilæri úrb.
Hangiframpartur úrb.
Verð nú:
1.198
1.949
1.433
Léttreyktur lambahryggur
Jólagrísasteik
1.337
1.108
Tilboðsverð
779 kg.
1.559 kg.
1.146 kg.
Afsláttur
35%
20%
20%
Geisladiskari.
Bækur
30% afsláttur af
öllum bókum
30% afsláttur af
öllum geisladiskum
J
Opnunartími
Mánud.-Föstud.
09:00-19:00
Laugardaga
10:00-19:00
Sunnudaga
12:00-19:00
1.070 kg.
864 kg.
20%
22%
L
Nýtt kortatímabil er hafið
í Samkaup fucrval]
V _____ M Hyrnutorgi Borgarnesi M
J