Skessuhorn


Skessuhorn - 08.12.2004, Síða 12

Skessuhorn - 08.12.2004, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2004 ^ivtaaunui.. Ljósleiðari í öll hús á Akranesi innan tveggja ára Bestu lausnir sem gerast í gagnaflutningsmáhmi -segir Gísli Gíslason bæjarstjóri Bæjarráð Akraneskaupstaðar staðfesti á fundi sínum í liðinni viku samning við Orkuveitu Reykjavíkur um lagningu ljós- leiðaranets á Akranesi og rekst- ur opins nets. Stefnt var að undirritun samningsins í dag (eftir að vinnslu blaðsins lauk), og munu framkvæmdir hefjast fljótlega. I samningnum felst að OR mun á næstu mánuðum leggja ljósleiðara inn í öll hús á Akra- nesi. OR mun eiga og reka ljósleiðaranetið, en það verður svokallað „opið net“ sem þýðir að inn á það geta allir þeir að- ilar sem gera sérstakt sam- komulag við OR sent efni eða gögn um leiðarann. Þetta efni getur m.a. verið þjónusta sjón- varpsstöðva, myndabandaleiga, öryggisfyrirtækja, símafyrir- tækja og fleiri þjónustuaðila. „Þá er þetta afar spennandi fyr- ir Akranes t.d. vegna rekstrar- skilyrða Sjúkrahússins og heilsugæslustöðvarinnar, Landmælinga og fleiri fyrir- tækja og stofnana sem hafa þörf fyrir mikla bandbreidd til að senda t.d. röntgenmyndir og loftmyndir. Nýta má netið til fræðslu, bæði þess sem skól- ar eða aðrir aðilar á Akranesi vilja senda út, og eins til að taka á móti fræðsluefni t.d. frá RUV, háskólum inn- anlands eða erlendis og áfram mætti telja,“ sagði Gísli Gíslason, bæjarstjóri aðspurður um notk- unarmöguleika hins nýja ljósleiðaranets. Hann bætir við: „Loks má nefha að fyrir Akraneskaup- stað opnar þetta nýj- ar leiðir til að efla í- búalýðræði, en stefnt verður að því að koma upp bæjarneti þar sem upplýsingum verður komið út með nýjum hætti. Akraneskaupstaður mun einni hafa aðgang að nokkrum rásum á netinu til að sjónvarpa frá einstökum stofnunum bæj- Gísli Gíslason, bæjarstjóri | sa WM | ■f 11 d i ^ k vf1 't1 arins og býður það upp á mikla möguleika,“ segir Gísli. Flestir tengdir eftir hálft annað ár Framkvæmd verksins verður með þeim hætti að OR mun leggja netið inn í sérhverja íbúð, en það er háð ákvörðun hvers og eins húsráðanda hvort hann vill kaupa þá þjónustu sem um netið er send. Ljós- leiðari verður þannig ekki lagður inn í hús þar sem eig- endur hafna aðgangi fyrir slíka tengingu. Gert er ráð fyrir að hver notandi muni greiða fast mánaðargjald, sem gert er ráð fyrir að verði um 1500 til 2000 krónur fyrir afhotin, en síðan mun viðkomandi aðili greiða hverjum seljanda efnis gjald samkvæmt þeirri gjaldskrá sem viðkomandi aðili setur. Þess er sérstaklega getið í samningn- um að þjónustan verður á sam- bærilegu verði á Akranesi og OR er að bjóða á höfuðborgar- svæðinu. I samningnum felst að lagn- ingu netsins verði lokið fýrir árslok 2006, en að um 80 - 90% íbúa verði tengdir þegar í júlí 2006. Þá verður stefnt að því að tengja sem allra fyrst stærstu fyrirtæki bæjarins. Gísli segir að Akraneskaupstaður muni ásamt OR kynni málið ít- arlega í byrjun næsta árs en gert sé ráð fyrir að byrjað verði að senda efni um netið þegar í byrjun febrúar á næsta ári. Lítið rask Aðspurður býst Gísli Gísla- son ekki við að lagning ljós- leiðarans fylgi mikið rask í bæj- arfélaginu. „Það verða tekin fyrir ákveðin hverfi og þeim lokið. Leiðarinn þarf aðeins að leggja fremur grunnt í jörðina og þar sem mögulegt er verður hann plægður niður en rásir settar í götur og gangstéttar þar sem þær eru.“ Markaðslega í fremstu röð Gísli segir að með tilkomu ljósleiðara í heilt bæjarfélag, eins og hér sé raunin, muni Akranes standa markaðslega afar sterkt. „Fyrir Akranes- kaupstað er þetta gríðarlega mikilvægur áfangi. Það er markmið bæjarstjórnar að Akranes verði með bestu lausn- ir í gagnaflutningum þannig að fyrirtæki sem á slíku þurfa að halda verði samkeppnisfær við hvaða fyrirtæki sem er á sama sviði, hvar sem þau eru stödd. Fyrir íbúana er þetta hluti af því að bæta búsetuskilyrði þeirra hvort heldur er varðandi aðgang að afþreyingarefhi eða hagnýt not,“ sagði Gísli að lok- Jólamerki UMSB Jólamerki UMSB eru komin! Að þessu sinni er það Gilsbakkakirkja sem prýðir merkið. Þetta er 18. merkið af 22 sem Guðmundur Sigurðsson hefur teiknað fyrir Ungmennasamband Borgarfjarðar. Tilvalið er að setja það með á jólapóstinn eða eiga sem safngrip. Jólamerkin fást á skrifstojn UMSB, Borgarbraut 61. Einnig er hœgt að panta þau í síma 437-1411 og með tölvupósti, umsbtpjnmedia.is Verslunin Hrund í nýtt húsnæði Jenný innan um allt blómahafið sem henni barst í tilefni opnunarinnar. Ljósmynd: PSJ Síðastliðinn fimmtudag opn- aði Jenný Guðmundsdóttir, kaupmaður í Olafsvík, verslun- ina Hrund í nýju húsnæði að Olafsbraut 5 5 þar sem verslun- in Kassinn var áður til húsa. Hrund var áður til húsa að Grundarbraut 6a í tiltölulega litlu húsnæði. Nýja húsnæðið við Olafsbraut er hinsvegar 270 fm og vel búið að öllu leyti. Jenný hefur rekið verslunina Hrund í átján ár og sagði hún í samtali við Skessuhorn að með nýju og rúmbetra húsnæði opn- uðust möguleikar á fjölbreytt- ara vöruúrvali og nýjum vöru- flokkum. Verslunin Hrund býður upp á alla almenna gjafa- vöru, bækur, rúmföt, heilsuvör- ur og margt fleira. GE

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.