Skessuhorn - 08.12.2004, Qupperneq 26
26
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2004
^ntjaunui..
Gott gengi í keilunni
Steinunn, Tinna og Ástrós.
Magnús, Skúli og Páll Óli.
Unglingum hjá Keilufélagi
Akraness hefur gengið vel
það sem af er árinu. Um helg-
ina fór fram 3. umferð í Meist-
arakeppni ungmenna og
hafnaði ÍA í verðlaunasætum í
öllum flokkum sem þau tóku
þátt í. í 4. flokki stúlkna lenti
Tinna Rut Wiium í fyrsta sæti
og Steinunn Inga Guðmunds-
dóttir í 3. sæti. í 4. flokki pilta
lenti Skúli Freyr Sigurðsson í
fyrsta sæti og Magnús Magn-
ússon í 3. sæti. Magnús er
jafnframt yngsti þátttakandinn
í 1. deild karla í keilu. í 3. flokki
stúlkna var Birgitta Þura Birg-
isdóttir í 1. sæti. [ 2. fiokki
drengja var Magnús S. Guð-
mundsson í 2. sæti og Sigurð-
ur Þ. Guðmundsson í 3. sæti.
í 1. flokki drengja varð Jóhann
S. Guðmundsson í 1. sæti.
MM
Dimmiterað í FVA
Það er árviss viðburður í Fjölbrautaskóla Vesturlands að væntanlegir
nýstúdentar dimmiteri, svona rétt til að losa út stressið fyrir síðustu próf.
Það er sannartega föngulegur hópur sem brátt kveðjur skólann. MM
Akurnesingar á NMU
Þau Aþena Ragna Júlíus-
dóttir og Gunnar Smári Jón-
björnsson frá Sundfélagi ÍA
tóku þátt í Norðurlandamóti
unglinga um síðustu helgi og
náðu góðum árangri. Aþena
náði 4. sæti í 50 m skriðsundi
á tímanum 27:00 og bætti
tíma sinn um hálfa sekúndu. í
100 metra skriðsundi varð
hún síðan í 6. sæti.
Gunnar Smári bætti einnig
tíma sinn í 200 metra skrið-
sundi umtalsvert. GE
ÍA á botninum
Skagamönnum hefur ekki
gengið sem skildi það sem af
er í 1. deildinni í körfuknattleik
og er (A á botningum ásamt
Ármanni/Þrótti en bæði lið
hafa 2 stig.
ÍA tapaði gegn Stjörnunni
101 - 64 síðastliðinn laugar-
dag en í næsta leik þar á und-
an náðu Skagamenn í sín
fyrstu stig í vetur þegar þeir
unnu Ármann/Þrótt 93 - 80.
Iri til reynsiu
hjá ÍA
Tvítugur Iri, Alan Delahunty að
nafni, verður til reynslu hjá ÍA í
janúar og ef hann reynist álit-
legur má búast við að Skaga-
menn bjóði honum samning.
Samkvæmt upplýsingum af
heimasíðu KÍA er Alan vinstri
fótar miðjumaður og spilar sem
stendur með bandaríska há-
skólaliðinu Virginia Intermont
College. Hann hefur leikið með
yngri landsliðum Irlands og
írska atvinnumannaliðinu
Shamrock Rovers.
„Þessi leikmaður bauð krafta
sína fram sjálfur og kostar sig
sjálfur hingað þannig að það er
engin áhætta fyrir okkur að
kíkja á hann,“ sagði Ólafur
Þórðarson þjálfari ÍA í samtali
við Skessuhorn. Það skýrist
síðan væntanlega í janúar
hvort það verða írskir dagar hjá
ÍA á næsta keppnistímabili.
GE
Það er Ijóst að róðurinn hjá ÍA
verður þungur í vetur en þeir
eru hinsvegar með öflugt lið
sem er blanda af ungum og
efnilegum strákum og göml-
um jöxlum.
GE
Julian
hættur
Samkvæmt yfirlýsingu frá
stjórn Rekstrarfélags meistara -
og 2. flokks KÍA hefur félagið
og Julian Johnson, færeyski
miðvallarleikmaðurinn sem
hefur leikið með ÍA síðastliðin
tvö ár náð samkomulagi um að
hann hætti hjá félaginu þrátt
fyrir að ár sé eftir af samningn-
um. Samkvæmt yfirtýsingunni
var ástæðan sú að Julian
komst að í sjúkraflutningaskóla
í Danmörku en sökum aldurs
væri það síðasti möguleikinn
fyrir hann að fara í þetta nám.
Eftir að yfirlýsingin var gefin út
kom í Ijós að Julian hefur skrif-
að undir samning við færeyska
liðið B68 Toftir um að þjálfa og
leika með félaginu næstu tvö
árin. Því erljóstað hann erekki
á leiðinni í nám í Danmörku
eins og hann hafði lýst yfir.
„Það eru gríðarleg vonbrigði
fyrir okkur hvernig þátttaka
Julians í knattspyrnunni hér á
Akranesi endar. Hann hefur
leikið vel með liðinu en þetta er
vondur endir,“ segir Gunnar
Sigurðsson formaður Rekstrar-
félagsins. GE
Vesturlandsliðin töpuðu
Eftir gott gengi í upphafi
móts fengu bæði Vestur-
landsliðin í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik skelli í síðustu
viku. Skallagrímur tapaði 67 -
94 fyrir Keflavík á útivelli en
Snæfell tapaði 100-81 gegn
nýliðum Fjölnis. Staðan í
deildinni er hinsvegar lítið
breytt, Snæfell er áfram í 2.
sæti og Skallgrímur í því
fimmta.
Stigahæstur Skallagríms á
móti Keflavík var Clifton Cook
með 18 stig en þeir Hafþór
Gunnarsson og Jovan Zva-
drevski skoruðu 12 stig hvor.
Desmond Þeoples skoraði
22 stig fyrir Snæfell gegn
Fjölni, Magni Hafsteinsson 18
og Hlynur Bæringsson 16. GE
ÍA í samstarf við Reading á
Englandi um leikmannaskipti
Spennandi kostur segir Ólafur Þórðarson þjálfari
sem er nýkominn úr heimsókn til félagsins
Ólafur Þórðarson þjálfari
ÍA, Alexander Högnason
þjálfari 2. flokks og Hafliði
Guðjónsson, knattspyrnu-
þjálfari hjá ÍA eru nýlega
komnir heim frá Englandi þar
sem þeir heimsóttu 1. deild-
arliðið Reading, fylgdust með
æfingum og skoðuðu að-
stæður hjá félaginu.
„Þetta var mjög góð ferð í
alla staði,“ segir Ólafur Þórð-
arson. „Ferðin var fyrst og
fremst hugsuð til að koma á
samskiptum við klúbbinn og
tóku ráðamenn þar vel í þær
hugmyndir. Við vonum síðan
að það muni færa okkur eitt-
hvað þegar líður að vori en
það hefur ekkert verið sett
niður á blað. Það sem menn
hafa hinsvegar áhuga á er að
þeir láni okkur menn sem
væru kannski í millibilsá-
standi milli unglingaliðs og
aðalliðs og fengju tækifæri til
að ná sér í leikreynslu og
myndu styrkja okkar lið. Þá
er einnig áhugi fyrir því að
strákar frá okkur geti farið út
til reynslu. Eins og ég segi
hefur ekki verið gengið frá
neinu en við þurfum að vera
duglegir að byggja þetta upp
og ég er viss um að þetta
getur orðið mikið gæfuspor
fyrir okkur.“
Ólafur segir að fleiri íslensk
félög hafi farið þessa leið.
Víkingur fékk t.d. mikinn liðs-
styrk frá Stoke síðasta sumar
og þá hefur Valur verið í sam-
starfi við Bolton. Hann segir
því mikilvægt fyrir ÍA að nýta
þessa leið til að styrkja liðið á
ódýran hátt. Hann neitar því
ekki að það sé ókostur að
lánsleikmenn frá Englandi
geta yfirleitt ekki leikið allt
tímabilið hér en á móti komi
að það sé oft alltof dýr kost-
ur að kaupa leikmenn og því
ákjósanlegt að fá þá að láni
þó þeir geti ekki klárað mót-
ið.
Varðandi aðstæður hjá
Reading segir Ólafur að þær
séu til mikillar fyrirmyndar.
„Þetta er öflugt félag og hef-
ur lengi verið eitt af þeim öfl-
ugustu í unglingastarfinu.
Það sem hefur hinsvegar
breyst hjá þeim er að það
kom til þeirra maður með
Ólafur Þórðarson þjálfari ÍA
peninga sem kom aðalliðinu
af stað fyrir alvöru og núna er
klúbburinn á toppnum í fyrstu
deildinni. Fram til þessa hefur
félagið í raun verið að fram-
leiða leikmenn fyrir efrideildar
liðin en núna þegar þeir eru
sjálfir á uppleið með sitt aðal-
lið þurfa þeir á þessum strák-
um að halda. Þessvegna
þurfa þeir að geta komið
þeim í fóstur á meðan þeir
eru að vinna sig upp í aðallið-
ið og þar getum við vonandi
hjálpað þeim. Þetta er þess
vegna mjög spennandi fyrir
okkur ef þetta gengur allt eft-
ir,“ segir Ólafur. GE