Skessuhorn - 08.12.2004, Qupperneq 27
ú&i.ssunu>..
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2004
27
KKÍ hefur staðfest fyrri úr-
skurð sinn þess efnis að Snæ-
fell hafi farið yfir launaþak úr-
valsdeildarinnar og hefur félag-
inu verið gert að greiða sekt og
fækka leikmönnum á launaskrá.
Hið síðarnefnda hefur reyndar
gerst af sjálfu sér þar sem hinn
geysisterki Bandarfkjamaður,
Pierre Green, hefur hætt af per-
sónulegum ástæðum.
„Þetta er endanleg afgreiðsla
og við getum ekkert við því gert
enda ekki meiningin að fara í
eitthvert stríð,“ segir Gissur
Tryggvason formaður
körfuknattleiksdeildar Snæfells.
„Þetta setur vissulega mikið
strik í reikninginn fyrir okkur og
nú þegar búið að hafa töluverð
áhrif á liðið. Við látum hinsvegar
ekki buga okkur og við ætlum
okkur sem fyrr að vera með í
toppbaráttunni. Við höfum
fengið Helga Reyni Guðmunds-
son til baka og hann verður orð-
inn löglegur 16. desember. Þar
er á ferðinni mjög sterkur leik-
maður og við megum heldur
ekki gleyma því aó Bárður þjálf-
ari hefur hæfileika til að ná mjög
miklu út úr sínum leikmönnum
og þessvegna erum við bæri-
lega bjartsýnir þrátt fyrir þetta
óvænta áfall.“
Aðspurður um hvort mögu-
legt sé að fá erlendan leikmann
í stað Pierre Green og þá ódýr-
ari, segir Gissur að þeirri spurn-
ingu hafi ekki verið svarað. „Það
er fyrirtæki hér á svæðinu sem
er að fá menn erlendis frá í
vinnu. Einn úr þeim hópi spurð-
ist fyrir um hvort hér væri körfu-
boltalið sem hann gæti hugsan-
lega æft og leikið með. Við gát-
um ekki svarað því og höfðum
samband við KSÍ. Núna bíðum
við eftir svörum þaðan en ég
óttast að maðurinn hafi hætt við
af því það stóð á svörum. Ég
tek það hinsvegar fram að við
vitum ekkert um þennan leik-
mann, hvort hann hefði verið
liðsstyrkur fyrir okkur eða ekki.
Það er ákveðin tortryggni í
gangi út af þessum málum og
vandinn er að við vitum ekki al-
mennilega hvar við stöndum."
Gissur segir það Ijóst að reglur
um launaþak þurfi að endur-
skoða fyrir næsta keppnistíma-
bil ef menn á annað borð ætli
sér að viðhalda útbreiðslu
körfuboltans hér á landi.
GE
Tgin
Ijónanna
Skallagrímur ætti að eiga nokk-
uð greiða leið í 8 liða úrsiit í bik-
arkeppninni í körfuknattleik en
Borgnesingarnir drógust gegn
Ljónunum úr Njarðvík en liðið
er skipað nokkrum gömlum
kempum. Þar ætti Valur Ingi-
mundarson þjálfari Skallagríms
þvf að mæta mörgum af sínum
gömlu félögum en hann lék
með Njarðvík og þjálfaði l/ðið
um langt skeið á síðustu öld.
Leikur Skallagríms og Ljón-
anna fer fram í Njarðvík næst-
komandi sunnudag. GE
Morgunakademía UKÍA
Frá lokahófi Morgunakademíu UKIA. Með á myndinni eru Ólafur Jós-
efsson yfirþjálfari og Hjálmur Dór Hjálmsson.
Síðustu 8 vikur hefur verið
starfandi svokölluð morgun-
akademía hjá Unglinganefnd
knattspyrnufélags ÍA. Hafa
hressir krakkar á aldrinum 10
til 16 ára vaknað eldsnemma á
morgnana tvisvar í viku til að
mæta á knattspyrnuæfingar
klukkan 06:30. Æfingunum
stjórnuðu þeir Hjálmur Dór
Hjálmsson, Alexander Högna-
son og Þorsteinn Gíslason af
mikilli röggsemi. Eftir æfing-
arnar fengu krakkarnir morg-
unmat frá Brauða- og köku-
gerðinni og drykki frá Vífilfelli.
Síðastliðinn mánudag var
haldið lokahóf með pylsupartíi
í boði SS og Coke og fengu
krakkarnir boli frá Akademí-
unni og Coke að gjöf. Að mati
þeirra sem þátt tóku í átakinu
höfðu allir bæði gagn og gam-
an af þessum æfingum. MM
Flottasta verðið!
frá kr. 299.900,-
Nokkrar staðreyndir um Panasonic plasmasjónvörp:
Endingartími allt að ca 60.000klst (ca. 20 ir miðað rið 8 tima d dag)
Pykktaðeins 9cm, þyngdca29kg. Hengistléttilegauppóvegg.
Tölvuþjónustci Vestur/ands ehf
Brúartorg 4 - 310 Borgames - Simi: 437-2260