Skessuhorn


Skessuhorn - 12.01.2005, Side 15

Skessuhorn - 12.01.2005, Side 15
utttaaunu,.. MIÐVIKUDAGUR 12. JANUAR 2005 15 Kolbrún Ýr enn og aftur íþróttamaður Akraness Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, sundkona á Akranesi hlaut á þrettándanum sæmdarheitið Iþróttamaður Akraness árið 2004. Þetta er fjórða árið í röð sem Kolbrún Ýr er kjörin og í sjötta skiptið sem henni hlotn- ast þessi heiður frá (þrótta- bandalagi Akraness. Eftir glæsilega frammistöðu á síð- asta ári, m.a. meö þátttöku á Ólympíuleikunum í Aþenu, er hún vel að titlinum komin. Stór hópur bæjarbúa fylgdist með afhendingu viðurkenninga til fremsta íþróttafólks Akraness eftir að þrettándabrennu og flugeldasýningu lauk á Jað- arsbökkum. í öðru sæti í valinu varð Drífa Harðardóttir, badminton- kona og í þriðja sæti Stefán Þórðarson, knattspyrnumað- ur. MM Hópurinn sem tilnefndur var af félögum sínum. Kolbrún Ýr er lengst til vinstri á myndinni. Ljósm. Hilmar Sigvaldason. Góður sigur a Grindvíkingum Snæfellingar komu vel und- an jólunum ef svo má að orði komast því þeir byrjuðu árið af miklum krafti í fyrsta leik þegar þeir fengu sjálfa Grind- víkinga í heimsókn á þrett- ándanum. Grindvíkingar hafa að vísu ekki staðið undir væntingum í vetur og lengi hefur verið beðið eftir því að þeir sýndu sitt rétta andlit. Það gerðu þeir ekki gegn Snæfelli á fimmtudag, í það minnsta höfðu þeir ekki roð við sterkum Hólmurum. Tölurnar - Snæfell Nr Nafn Mín HF STOSTIG 4 Hlynur E Bæringsson 32 13 4 14 5 Ingvaldur M Hafstein 24 4 2 9 8 Pálmi F Sigurgeirsso 27 4 6 13 10 Michael Ames 36 2 4 23 11 Sigurður Á Þorvaldss 37 7 5 20 13 Helgi R Guðmundsson 16 2 1 5 14 Calvin Clemmons 28 6 4 10 Skalla- grímur úr leik Skallagrímsmenn féiiu úr leik í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar í körfuknattleik er þeir sóttu Fjölnismenn heim á sunnudag. Leikurinn var jafn og spenn- andi allt til loka en Fjölnismenn mörðu sigur 108 - 102 eftir að Skallarnir höfðu átt góða spretti en voru síðan mislagðar hend- ur á krítískum augnablikum. í liði Skallagríms var Clifton Cook lang stigahæstur, skoraði 41 stig, Jovan Scravevski skor- aði 29, Ragnar N Steinsson 9, George Byrd og Pálmi Þ Sæv- arsson 8 hvor, Hafþór Gunn- arsson 4 og Ari Gunnarsson 3. GE Jafnræði var með liðunum framan af en strax í öðrum leikhluta sigu heimamenn fram úr og höfðu góða forystu í leikhléi 48 - 35. Þeir héldu forskotinu og eftir þriðja leik- hluta var staðan 67-51 en lokatölur urðu 94 - 78 og var sigur heimamanna aldrei í hættu. Ljóst er að Snæfellingar hafa gert ágæt kaup þegar þeir fengu Calvin Clemmons og Michael Ames til liðsins í stað þeirra Desmond Peoples og Pierre Green. Þeir léku báðir vel á fimmudag- inn og eiga ef- laust töluvert meira inni. Það voru hinsvegar hinir staðföstu heimamenn þeir Sigurður Þor- valdsson og Hlynur Bæringsson sem voru bestu leikmenn vallarins eins og svo oft áður í vetur. GE Eftirtaldir íþróttamenn voru tilnefndir til kjörs iþróttamanns ársins af félögum sínum: Fimleikamaður ársins: Marianne Sigurðardóttir Hestaíþróttamaður ársins: Jakob Sigurðsson íþróttamaður Þjóts: Lindberg Már Scott Kylfingur ársins: Valdfs Þóra Jónsdóttir Karatemaður ársins: Guðrún Birna Ásgeirsdóttir Keilumaður ársins: Magnús Sigurjón Guðmundsson Knattspyrnukona ársins: Magnea Guðlaugsdóttir Knattspyrnumaður ársins: Stefán Þórðarson Körfuknattleiksmaður ársins: Böðvar Sigurvin Björnsson Skotmaður ársins: Kári Haraldsson Sundmaður ársins: Kolbrún Ýr Krístjánsdóttir Skallar í fínum málum Skallagrímur heldur áfram ágætri stöðu í Intersportdeild- inni í körfuknattleik en mark- mið nýliðanna var að halda sér í deildinni en þegar mótið er ríflega hálfnað er Ijóst að Borgnesingar eiga raunhæfan möguleika á sæti í úrslitakeppninni í vor. Liðið hefur sýnt feikna bar- áttuanda í vetur og leikir Skall- anna oftar en ekki verið jafnir og spennandi allt til enda. Leikurinn gegn ______________ ÍR á fimmtudag í Seljaskóla reyndi þó ekki eins mikið á taugar stuðnings- manna Skallagríms eins og oft áður í vetur. Skallagrímur vann sannfærandi sigur 89 - 69 eftir að heimamenn höfðu reyndar haft yfirhöndina megnið af fyrri hálfleiknum. Síðari hálfleikurinn var hins- vegar eign Borgnesinga og ekki síst hins nýja leikmanns George Byrd sem skoraði grimmt í sínum fyrsta leik. GE Tölurnar - Skallagrímur Nr Nafn Mín HF STOSTIG 5 Clifton Cook 36 11 3 19 6 Ari Gunnarsson 16 3 1 8 7 Pálmi Þ Sævarsson 24 6 0 2 9 Hafþór 1 Gunnarsson 31 3 1 3 10 George Byrd 28 11 2 26 11 Jón Þ Jónasson 4 0 0 0 12 Ragnar N Steinsson 26 1 5 16 14 Jovan Zdravevski 35 6 1 15 U T StigStig 9 3 1079:943 18 9 3 1128:935 18 9 3 1076:984 18 8 4 1109:1078 16 Lýður frá Ljóst er að hinn sterki leikmað- ur Snæfells í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, Lýður Vignis- son, mun ekki leika meira með á þessu tímabili. Þetta kemur fram á heimasíðu Snæfells. Lýður hefur verið að berjast við þrálát meiðsli í langan tíma og hafa læknar ráðlagt honum að gangast undir uppskurð. Ljóst er að þetta verður áfall fyrir Snæfellinga sem stefna að því að berjast um íslandsmeistara- titilinn í vor. GE Staöan í Intersport- deildinni í körfuknattleik Félag L 1. Keflavík 12 2. UMFN 12 3. Snæfell 12 4. Fjölnir 12 5. Skallagr. 12 8 4 1037:979 16 6. ÍR 12 6 6 1089:1076 12 7. UMFG 12 6 61082:1093 12 8. KR 12 5 71025:1034 10 9. Hamar 12 5 7 1086:1150 10 10. Haukar 12 4 8 1023:1029 8 11. Tindast. 12 3 9 997:1145 6 12. KFÍ 12 012 989:1274 0 Sigurður Ragnar á Skagann Sigurður R a g n a r Eyjólfsson, framherji úr KR, hefur skrifað und- ir eins árs samning við K n a t t - spyrnufélag ÍA og tók samning- urinn gildi um áramót. Sigurður Ragnar er ekki ókunnugur íher- búðum Skagamanna þar sem hann spilaði með liðinu sumrin 1998 og 1999 en hann kom þangað frá Vestfjörðum. Undanfarin tvö sumur hefur Sigurður Ragnar spilað með KR og í sumar lék hann 11 deildar- leiki og skoraði eitt mark. I fyrra- sumar spilaði hann 15 leiki og skorði í þeim 5 mörk. GE Hlynur, Siggi og Cook Stórleikur í Borganesi - mætum öll! - Intersportdeildin í körfuknattleik Næstkomandi laugardag fer fram hinn árlegi stjörnu- leikur Körfuknattleikssam- bands íslands og verður hann að þessu sinni í Valsheimilinu í Reykjavík og hefst kl. 16.00. í leiknum etja að vanda kappi íslenskir leikmenn gegn þeim erlendu sem leika hér á landi. Það eru íþróttafréttamenn sem velja byrjunarlið beggja liða og fimm varamenn en þeir Sigurður Ingimundarson, þjálfari íslenska liðsins og Ein- ar Árni Jóhannsson, þjálfari þess erlenda, velja síðan tvo til viðbótar í hvort lið. Vestlendingar eiga tvo full- trúa í íslenska liðinu, þá Hlyn Bæringsson og Sigurð Þor- valdsson úr Snæfelli og einn í erlenda liðinu, Clifton Cook úr Skallagrími. Þetta val kemur svosem ekki á óvart því þess- ir þrír hafa verið meðal þeirra allra sterkustu í úrvalsdeild- inni í körfuknattleik í vetur og fleiri leikmenn úr Vesturlands- liðunum ættu reyndar einnig heima í þessum hópi. GE Ska\W9'ín"jr Fimmtudaginn 13. janúar kl. 19:15 í í þróttamiðstööi nni Borgarnesi Komtm' og ftiftjuM' rfrófiam' tft ofroMfuz/dandf ffguryöngu'

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.