Skessuhorn


Skessuhorn - 22.03.2005, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 22.03.2005, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2005 SBeSSMJiWöfiKI ✓ Fyrsta menningartengda hótelið á Islandi opnar eftir gagngerar endurbætur í Reykholti: Leggjum áherslu á norræna goðafræði, bókmenntir og klassíska tónlist segir Einar Valur Þorvarðarson hótelstjóri 1...; Þema bótelsins, kirkjunnar og Snorrastofit er nú samþœtt meira en veriö hefur með þeirri sérstöðu sem hótelinu er skapað eftir breytingamar. Aðspurður um bókanir á hótel- inu næstu mánuðina segir Einar Valur að útlitið sé mjög bjart. „Það er vel bókað fyrir næsta sumar og ég hef auk þess orðið var við mikla eftirspurn bæði í vor og ekki síður næsta haust, eða eftir að háönn hins hefðbundna ferðatímabils lýk- ur. Það eru margir hópar búnir að boða komu sína hingað, m.a. gaml- ir nemendahópar Héraðsskólans, ráðstefnuhópar, ferðaskrifstofur og ýmsir aðrir. Það verður reglulega spennandi að fylgjast með því hvernig þessir hópar taka í þær breytingar sem orðnar eru hér,“ sagði Einar Valur. * Menntaður í Astralíu Sjálfúr segist hann vera mennt- aður í hótelfræðum ffá Cesar Ritz hótelskólanum í Sidney í Ástralíu. Eftir að hann lauk námi hefur hann m.a. unnið við þjónsstörf en síðastliðið ár var hann hótelstjóri Fosshótelsins í Hallormsstaða- Einar Valur Þorvarðarson, hótelstjóri í Reykholti. Um þessar mundir er víða verið að vinna við uppbyggingu hótela á Vesturlandi, stækka sum, breyta öðr- um og jafhvel er verið að byggja ný. Þannig er víða unnið bæði að endur- bótum og stækkun til að landshlut- inn geti tekið á móti fleiri ferða- mönnum til gistingar. Svo dæmi séu tekin þá er unnið að gagngerum breytingum á hótelinu í Olafsvík og gistiheimilinu handan götunnar, verið er að stækka Hótel Stykkis- hólm og í byggingu er nýtt hótel í landi Hamars í Borgarbyggð, en þar verður fyrsta sérhæfða golfhótel landsins risið í júní í sumar. Nýverið lauk síðan umfangsmiklum breyt- ingum á Hótel Reykhold í Borgar- Úr veitingasal hótelsins eftir hreytingamar. firði þar sem hluti herbergja var tek- inn undir böð og aðra hreinlætisað- stöðu, herbergjum fækkað en þeim breytt til að uppfylla kröfur markað- arins um betri aðbúnað. Utlit og að- koma hótelsins hefur þarrnig breyst til hins betra. Gert verðiu hlé á end- urbótum hótelsins nú um páskana og það vígt síðar í apríl við hátíðlega athöfh. I tilefiú þessara breytinga ræddi blaðamaður við Einar Val Þorvarðarson, hótelstjóra Hótel Reykholts. Breytingar á öllu húsnæðinu Það er Fosshótelkeðjan sem rekur Hótel Reykholt í dag en eignar- haldsfélag í eigu aðila sem tengjast Fosshótelunum á húsnæðið sem starfsemin fer fram í. Heilsárshótel í eigu annarra aðila hefur verið rekið í Reykholti tmdanfarin 7 ár en Foss- hótel eignaðist mannvirkin sem til- heyrðu hótelhaldi í Reykholti á síð- asta ári en um er að ræða fyrrum heimavistarhúsnæði Héraðsskólans, eldhús, matsal og íbúðarhúsnæði á staðnum. Hótelinu var lokað í haust meðan endurbæturnar fóru ffam. „Við fækkuðum herbergjum en stækkuðum þau að sama skapi um helming og eru þau nú 24 fermetrar með baði og öllum nútíma búnaði og þægindum m.a. þráðlausu inter- neti og tölvutengingum. Þá breytt- um við fyrrum almenningssalemum og setustofum á heimavistum í ein- mermingsherbergi. Eftir breyting- amar era 58 herbergi á hótelinu með baði en þeim til viðbótar em 15 herbergi á elstu heimavistinni, Ut- görðum, með sameiginlegri baðað- stöðu. I matsal breyttum við einnig, lokuðum m.a. sviði sem þar var og breyttum í koníaksstofu. Þá skiptum við um teppi á öllu húsinu og breytt- um móttökunni,“ svaraði Einar Val- ur aðspurður um hvað einkum fólst í breytingunum. Reyklaust hótel Samhliða því að hótelið opnar á ný verður það jafnframt með fyrstu hótelum landsins sem verða algjör- lega reyklaust. „Það heyrir nánast til undantekninga að hótel séu reyklaus hér á landi en við ákváð- um að verða á undan væntanlegri lagasemingu þar um, en gert er ráð fyrir að reykingar verði alfarið bannaðar á gistihúsum og á hótel- um í nýjum reykingavarnarlögum. Við viljum bæði venja fólk við þessa breytingu og ekki síður vilj- um við framkvæma breytinguna núna til að forðast það að fá reyk- ingalykt í húsið en það hefur bók- staflega allt verið málað og hús- gögn endurnýjuð." Einar Valur segir að í haust séu fyrirhugaðar frekari breytingar m.a. í kjallara hússins þar sem ætl- unin er að koma upp svokallaðri Spa-aðstöðu og einnig er ætlunin að byggja sólhús í portinu milli húsa þar sem fólk getur slappað af, komið í sloppimum, lesið góðar bækur, lagt sig og haft það huggu- legt. „Við ætlum að nýta á nýjan leik gufuna frá Skrifluhver og byggja gufubað í kjallaranum og komið verður upp úrvalsaðstöðu þar sem fólk getur notið lífsins og byggt sig upp í huggulegu um- hverfi.“ Afgerandi sérstaða Samhliða því að hótelið opnar nú eftir nefndar lagfæringar er stefnan sú að mynda því afgerandi sérstöðu meðal hótela. „Fosshótel- ið í Reykholti verður að mínu viti fyrsta menningartengda hótelið hér á landi. Við munum keyra með þríþætt þema og leggjum áherslu á íslenskar bókmenntir, norræna goðafræði og klassíska tónlist. T.d. munum við ekki spila aðra tónlist en klassíska á göngum og í sölum hótelsins. Gangar, herbergi og umhverfið allt mun verða mynd- skreytt í þessa vem og segja sögu sem tengist m.a. norrænni goða- fræði. Við munum þannig sam- þætta þema okkar við þema kirkj- unnar sem tónlistarhúss og Snorrastofú sem ætlað er að sinna og stuðla að rannsóknum og kynn- ingu á miðaldafræðum og sögu Reykholts og Borgarfjarðar sér- staklega. Við teljum mikilvægt að hafa náið samstarf við þessa góðu nágranna okkar og tengja þannig þema Reykholtsstaðar einni heild. Slíkt verður staðnum og starfsem- inni allri ömgglega til framdrátt- ar,“ segir Einar Valur. Gott útlit með bókanir Á hótelinu munu starfa 20 manns yfir sumartímann þegar mest verður um að vera. „Á öðmm tímum verður færra starfsfólk og leggjum við áherslu á að heimafólk sitji fyrir um vinnu, en hótelið er hlutfallslega stór vinnuveitandi hér á svæðinu. Við ætlum að verða með opið fyrir hópa allt árið en mánuðina apríl - október fyrir ein- staklinga einnig. Við höfum ákveð- ið að taka að okkur veisluhöld við ýmis tækifæri, bæði tengt starfsemi Snorrastofu og kirkjunnar, fyrir aðila hér í héraðinu og hópa sem koma lengra að.“ skógi. „Ég stefhi á að búa hér á staðnum en unnusta mín, Jónína Sigurðardóttir frá Gullberastöð- um, vinnur hér einnig í hlutastarfi en hún er að læra blikksmíði og stefhir reyndar á gullsmíðanám að því loknu. Hún hefur starfað við hótelið áður og mun verða með annan fótinn við þetta ásamt mér og mörgu öðm góðu fólki.“ Einar Valur segist hafa verið svo heppinn að fá úrvalskokk til starfa á hótel- inu. En það er Þráinn Júlíusson, fyrmm yfirkokkur á Apótekinu. „Þráinn mun vafalítið styrkja okk- ur mjög en við munum leggja á- herslu á úrvals matsteðil fyrir alla gesti okkar. Ég er því virkilega spermtur að finna viðbrögð gesta þegar við fömm á fullt skrið í nýju og endurbættu hóteli eftir pásk- ana,“ sagði Einar Valur Þorvarðar- son að lokum. MM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.