Skessuhorn


Skessuhorn - 27.04.2005, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 27.04.2005, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 73?/////Ví//—». Lýst eftir bók Síðastliðið haust tók ég að mér að skrifa sögu Hrossaræktarsam- bands Vesturlands. Til þess að slík söguritun verði sönn og trúverðug er söfnun heimilda og gagna undir- stöðuatriði. I þessu tdlviki hefur söfhun gagna gengið mjög vel, að undanskildu einu atriði. En það er sjóðbók - dagbók ásamt rekstrar- og efnahagsreikningum sambands- ins ffá árunum 1964-1972, að báð- um árum meðtöldum. Þetta er ekki einungis bagalegt vegna ffásagnar um fjárhag sambandsins heldur líka og ekki síður vegna þess að þar er að finna upplýsingar um stóðhesta- eign sambandsins á þessum tíma, kaupverð þeirra og söluverð. Það er með ólíkindum að bók sem var síðast í notkun árið 1972 skuU glöt- uð. Hér er lýst efrir þessari reikn- ingabók og allir sem einhverjar upplýsingar geta gefið um hana hafi samband við mig. Ami Guðmundsson frá Beigalda Borgarbraut 65a, Borgamesi S. 437 2244 Tvær þjóðir Við útskrift sl. sunnudag á Mætti kvenna, rekstrarnámi fyr- ir konur í atvinnurekstri á lands- byggðinni, gagnrýndi Runólfur Agústsson rektor Viðskiptahá- skólans á Bifföst harðlega þær hugmyndir að safria helstu há- skólum og rannsóknarstofriun- um landsins á einn stað í mið- borg Reykjavíkur. Runólfur sagði slíkar hugmyndir í besta falli úreltar og í versta falli til þess fallnar að skipta þjóðinni í tvær þjóðir: Þróað þekkingar- samfélag á höfuðborgarsvæðinu og vanþróað frumframleiðslu- samfélag á landsbyggðinni. Runólfrir spurði hvort þetta væri vilji Islendinga. MM Verðlækkun a vatm AKRANES: Verð á heitu vatni lækkar um 1,5% þann 1. júní nk. Meðalheimili borgar nú um 35.000 krónur á ári fyrir heitt vatn. Tvær ástæður eru sagðar fyrir verðlækkuninni. Annars vegar hafi síðasta ár verið það besta í sögu OR og stjórnin hafi ákveðið að leyfa viðskiptavinum að njóta þess. Hins vegar hafi því verið lofað fyrir tveimur árum þegar verð á heitu vatni hækkaði vegna hlýinda að ef kólnaði aftur yrði brugðist við með sama hætti og heita vatnið lækkað í verði. Þá ákvað stjórn OR að verð á rafmagni yrði óbreytt í ljósi aukinnar sölu. -mm Hagyrðingar á vorvöku STYKKISHÓLMUR: Hin ár- lega vorvaka félagsins Emblu í Stykkishólmi verður haldin í fé- lagsheimlinu í Stykkishólmi mið- vikudagskvöldið 4. maí n.k. Að þessu sinni verða það hagyrðing- ar sem láta til sín taka á Vorvök- unni. Meðal þeirra eru heima- maðurinn Hreinn Þorkelsson, Unnur Halldórsdóttir úr Borgar- nesi og Helgi Björnsson á Snarta- stöðum. Se Leiguíbúoir í Búðardal DALIR: Fyrirtækið Esk ehf. sem rekur leiguíbúðir víða á lands- byggðinni hefur fengið úthlutað þremur lóðum undir parhús við Lækjarhvamm í Búðardal. Búið er að auglýsa deiliskipulag vegna þessara lóða. Samkvæmt upplýs- ingum frá fýrirtækinu munu framkvæmdir við byggingu þess- ara húsa hefjast í maí. Um er að ræða sex íbúðir í þremur parhús- um. Stefnt er að því að fram- kvæmdum við húsin verði lokið í sumar. Þannig munu koma sex nýjar leiguíbúðir á markaðinn í haust. -mm Miðbajarreitur Á fundi Bæjar- stjórnar Akraness þann 12. apríl sl. var samþykkt með fimm atkvæðum gegn fjórum at- kvæðum Sjálfstæðis- manna enn ein deiliskipulagsbreyt- ingin fyrir Miðbæj- arreitinn sem í dag- legu tali Akurnes- inga gengur tmdir nafninu Skagavers- túnið. Á framangreindum fundi lögðum við bæjarfulltrúar Sjálfstæð- isflokks fram eftirfarandi bókun sem okkur langar til að biðja Skessuhorn að birta: Við undirritaðir bæjarfulltrúar, sjálfstæðisflokks, leggjum ffam eftir- farandi bókun: „Nú er ffam komin fram enn ein breytingartillagan af skipulaginu á Miðbæjarreitnum. Líkt og þegar síðasta breytingartil- laga á tmdan þessari var til af- greiðslu bæjarstjórnar, 11. maí 2004, þá erum við mótfallnir þessari tillögu. Vísum við til bókana frilltrúa flokksins í skipulags- og umhverfis- nefrid, en jafriffamt má benda á að hafa aðal umferðartengingu frá svæðinu út á Stillholt er óheppileg lausn, sem gengur ekki upp.“ Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins á fundi Skipulags- og umhverfis- nefridar 26. janúar 2005 fyrir aug- lýsingu skipulagsbreytinganna: „Fyrirhggjandi tillaga er breytmg á samþykktu skipulagi ffá maí 2004. Tillagan er að ýmsu leyti afturför ff á gildandi skipulagi, en staðsetning blokkanna nær hvor annarri er þó til bóta. Helsti gallinn á tillögunni er að fella niður torgið og láta bíla- stæðabreiðuna eina vera eftir. Þá er hætt við tengingu við núverandi byggingu og í stað þess troðið bfla- stæðahúsi milli fjölbýlishúsa og verslunarbygginga, sem þrengir illa að húsinu. Einnig er ástæða til að benda á klúðurslega aksturstenging- ar inn í bflastæðahúsið. Að öðru leyti vísum við í bókun okkar 15. desember 2003, þar sem megin- skoðunum okkar er lýst og þær eiga enn við“. Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins á fundi Skipulags- og umhverfis- nefridar 5. apnl 2005 eftir mótmæh hagsmunaaðila: „Undirrituð taka undir mótmæh við skipulaginu, sér- staklega því sem snýr að þrengslum að starfsemi sem fyrir er á svæðinu, hæð bygginga og að ekki sé gert ráð fyrir neinu torgi né útivistarsvæði á reitnum. Því ítrekum við fyrri af- stöðu og leggjumst gegn samþykkt skipulagsins.“ Akranesi 12. apríl 2003, Gunnar Sigurðsson Sœmundur Víglundsson Sœvar Haukdal Þórður Þ Þórðarson Það er töluverð tónlist í kettinum l/ímnhhmið Einn af þessum fögru vormorgnum sem hafa glatt okkur að undan- förnu kom Georg á Kjörseyri út á hlað og heyrði í lóunni. Varð það tilefrii eftirfarandi, enda verða jafrivel sauðfjárbændur bjart- sýnir í svona tíð: Vor er í nánd, ó vaknabu þjób, veittu nú yinum í gebib, hlustabu á öll þessi lyrisku Ijób sem lóan ein getur kvebib. Margt orti Stefán Jónsson fhéttamaður og þar á meðal þessa vorstemningu sem mun hugsuð í orðastað Jóns á Akri: Þab klibar lœkur hjá klettinum og kvakar lóa rétt hjá honum. Þab er töluverb tónlist í kettinum sé trobib á rófunni á honum. Á Jörvagleði fyrir fáum dögum var Georg á Kjörseyri beðinn að bera saman Jörvagleði fyrr og nú og bætti síðan við svarið hvatning- arorðum til viðstaddra Jörvagleðigesta: Ekki vantar sumblib og sukkib á sumum tollir engin spjör. Þab er minna barnab, meira drukkib. Mér finnst þetta afturför. Menn keppast ab framleiba kjöt eba mjólk og hvabeina sem er étib. En sveitirnar vantar sárlega fólk. Sýnib nú hvab þib getib. Ekki þarf að efa að Dalamenn og konur hafa brugðist við þessu ákalli vel og drengi- lega eins og þeirra er von og vísa og væntan- lega bæði kyn lagt sitt af mörkum. Einhvem- tíma þegar rætt var um jafnrétti varð eftirfar- andi vísa til en höfundurinn er mér ókunnur: jafnréttib mun sigra senn, samkvœmt dregnum línum. Áríbandi eru menn eiginkonum sínum. Fari nú svo að þessi hvatningarorð beri nokkum ávöxt verða væntanlega auknar ann- ir á Heilsugæslustöðinni í Búðardal við mæðraskoðun og fleira í þeim dúr. Þura í Garði sat á læknabiðstofu og hugleiddi hvem- ig sjúklingar skiptust milli lækna: Okkur sem ab erum skar Ólafur lœtur hjara. En þcer eru allar óléttar sem inn til Bjarna fara. Off verður það svo þegar verkefriahstinn lengist úr hófi að helsta ráðið verður að lengja vinnudaginn aðeins og margsönnuð er sú lífs- speki að ,JVIorgunstund gefrir gull í mund.“ Eitt skáldið orti þennan hvatningaróð til að skerpa aðeins betur á þeim sannleika: Öll þig flýja örlög grimm og þér fylgir lukkan, ef ab þú á fœtur fimm ferb þegar er klukkan Rósberg Snædal hefur án efa þekkt langan vinnudag meira en af afspum einni: Dofnar skinn og daprast trú, dvín ab sinni bragur, lœknir minn og líkn ert þú langi vinnudagur. Emil Petersen mun vera höfundur næstu vísu og er frillvíst að hann vissi um hvað hann var að tala: Safnab hef ég aldrei aub, unnib þreyttum mundum. Drottinn hefur daglegt braub dregib vib mig stundum. Því miður man ég ekki með vissu hver er höfundur næstu vísu en ég veit að ég á að vita það og yrði feginn ef einhver gæti hresst upp á minnið: Vib erfibleika eg hef þreytt oft meb skitnar hendur. En skulda ekki neinum neitt núna eins og stendur. Það var hinsvegar sá margfrægi og ágæti maður Þorgrímur Starri, í Garði í Mývatns- sveit, sem gerði þessar hógværa kröfur til Kfs- ins: Bib ég gub um abeins eitt eftir sólarlagib. Ab útförina geti ég greitt gegnum kaupfélagib. Halldór Snæhólm kvað einhverntíman þegar árin fóra að færast yfir og honum fannst minnið ekki eins og í gamla daga og alla vega get ég sjálfur tekið fylhlega undir þessi orð: Þótt ég lœri þetta og hitt þrátt hjá góbum vinum. Þá er orbib minnib mitt mest í blýantinum. Einhvemtíma hittust þeir á fömum vegi Bjöm S. Blöndal sem lengi var vinnumaður í Grímstungu og Ath á Syðra Hóli og eins og nærri má geta varð umræðuefriið fljótlega vís- ur. Ath fór þá með vísu og Bjöm segir „Hún er góð þessi, eftir hvern er hún?“. Atli svaraði: „Hún er eftir þig“. Björn segir þá: Vísa þessi var mérgleymd, - visku er þrotinn kraftur- af þvíhún var hjá góbum geymd gat hún hitt mig aftur. Þannig getur nú ellin farið með menn og þarf kannske ekki alltaf elli til en þeir sem famir era að reskjast njóta þess gjaman að láta í það skína að þeir hafi nú einhvemtíman ver- ið heldur skárri en dagsformið gefur í skyn. Einhver ágætur og ónefridur maður kvað um sitt heilsufarslega ástand: Alltaf verb ég afar feginn eftir hverja hrybju, ýmist slœmur öbrum megin, eba þá í mibju. Var það ekki hinn vísi Sírak sem sagði „Þrasgjöm kona er eins og sífehdur þakleki?" Einhvertíman kom til orða að nota þetta slag- orð í auglýsingu firá Vímeti og orti þá Páll Guðbjartsson: Þab er langt síban þetta var skráb og þessi reynsla var fengin. Vib þakleka kunnum vib þúsund ráb en þrasgjarnri konu engin. í síðasta þætti birti ég vísuna „Það er svalt, ég býst við byl“ og var að halda að hún væri eftir Jón póst í Galtarholti. Vísnafróður kunningi minn sem ég átti tal við fyrir stuttu taldi Kklegra að hún væri eftir Finnboga Kristófersson en við vorum sammála um það að heimild um þetta væri til á prenti, við mundum bara ekki hvar og væri vel þegið ef einhver gæti hresst upp á okkur með það. Með þ ökkfyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Refsstöðum 320 Reykholt S 433 1367 og 849 2713 dd@hvippinn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.