Skessuhorn


Skessuhorn - 27.04.2005, Síða 15

Skessuhorn - 27.04.2005, Síða 15
...MMim.; |. MIÐVIKUDAGUR 27. APRIL 2005 15 Valin í landsliðið íbridds Nýverið var ungur Borgfirðingur, Sigríður Hrefna Jónsdóttir í Björk í Reykholtsdal valin í landslið yngri spilara í bridds. Hún er jafnframt langyngsti spilarinn í liðinu, en hún verður 16 ára í maí. Meðal verk- efna Hrefnu og félaga hennar í landsliðinu er Norðurlandameist- aramót sem fram fer í júlí. Hrefna byrjaði að spila 11 ára gömul og sótti þá m.a. námskeið sem Briddsfélag Borgarfjarðar stóð fyr- ir þar sem Þorsteinn Pétursson kennari leiðbeindi hópi áhuga- samra spilara. Flestirþeir sem þátt tóku í námskeiðinu hafa haldið spilamennskunni áfram. MM Víkingar í þríðja Víkingur Ólafsvík hafnaði í þriðja sæti í sínum riðli í B keppni deild- arbikarsins í knattspyrnu eftir stórt tap gegn Leikni ísíðustu viku, 1- 5. Mark Víkinga skoraði þjálfarinn Ejub Purisevic. GE Skaga- menn í fyrsta Skagamenn náðu fyrsta sæti í sin- um riðli í deildarbikarkeppninni í knattspyrnu og mæta Keflvíking- um í átta liða úrslitum. ÍA vann Fylki í síðasta leiknum í riðla- keppninni á fimmtudag 2 -1. Mörk ÍA skoruðu Dean Martin og Kári Steinn Reynisson. GE Vestur- landsliðin byrja heima Nú styttist í að íslandsmótið í knattspyrnu hefjist en flautað verð- ur til leiks í Úrvalsdeild og 1. deild þann 16. maí nk. Vestlendingar eiga sem kunnugt er sinn hvorn fulltrúann í hvorri deild að þessu sinni, ÍA í þeirri efstu og Víking í Ólafsvík sem vann sér sæti meðal þeirra næstbestu á síðasta ári. Bæði þessi lið eiga heimaleik í fyrstu umferðinni, Skagamenn fá nýliða Þróttar í heimsókn og Vík- ingur fær HK úr Kópavogi vestur. Víkingar eiga líka heimaleik í 2. umferðinni, fá þá Siglfirðnga í heimsókn en í fyrsta útileiknum sem verður 28. maí mæta þeir nöfnum sínum úr Reykjavík. GE IgortilÍA? Undanfarna daga hafa þrír júgóslavneskir knattspyrnumenn verið til reynslu hjá ÍA en þeir komu hingað til lands á vegum Michaelo Bibersic sem lék með Skagamönnum fyrir fáum árum. Að sögn Ólafs Þórðarsonar þjálf- ara ÍA kemur til greina að samið verði við einn þessara leikmanna, Igor að nafni. „Við höfum áhuga á að skoða það en síðan á eftir að koma í Ijós hvort um semst um verð,“ segir Ólafur. Igor er23ja ára gamall miðjumað- ur og hefur leikið í efstu deild í Júgóslavíu. Þótt Igor semji við Skagamenn eru þeir enn á höttun- um eftir leikmönnum en ætlunin er að ná í sprækan sóknarmann áður en mótið hefst, að sögn Ólafs. GE Borgarfjarðarmótinu lokið Nýlega lauk hinu árlega Borg- arfjarðarmóti í bridds, þar sem spilarar af Akranesi, Borgarnesi og Borgarfirði öttu kappi í þriggja kvölda tvímenningi. Spilað var einu sinni á Akranesi og tvisvar í Logalandi með þátttöku 30 para. Mótið var hörku spennandi og réðust úrslit ekki fyrr en í loka- viðureign efstu para. Þeir Sigurð- ur Tómasson og Hallgrímur Rögnvaldsson leiddu mótið fyrstu 28 umferðirnar en töpuðu að lokum stórt fyrir Karli Alfreðs- syni og Bjarna Guðmundssyni af Akranesi og nægði árangurinn þeim síðartöldu til sigurs á mót- inu. í þriðja sæti voru þeir félagar Sveinbjörn og Lárus úr Borgar- firði, í fjórða sæti Þorvaldur og Guðjón af Akranesi og Borgnes- ingarnir Anna og Jón urðu í því fimmta. Þess má geta að mótið er meðal fjölmennustu bridds- móta sem haldin eru utan höfuð- borgarsvæðisins enda briddslíf með blómlegra móti á svæðinu. Sem fyrr var aldursmunur kepp- enda mikill, eða a.m.k 6 áratugir, en yngstu keppendumir voru 12 ára og stóðu sig með prýði. MM Hilmar og Sigurjón þjálfa Skallagrím Loks hefur verið gengið frá þjálf- aramálum meistaraflokks Knatt- spyrnudeildar Skallagríms fyrir komandi keppnistímabil. Gengið hefur verið frá samningum við tvo af leikmönnum liðsins um að taka starfið að sér, þá Hilmar Hákonar- son í Borgarnesi og Sigurjón Jónsson á Akranesi. Þeir koma einnig báðir til með að leika áfram með liðinu. Hilmar sagði í samtali við Skessuhorn að tíminn sé vissu- lega naumur en flestir leikmenn hafi haldið sér ágætlega í þjálfun í vetur. Hann segir að menn stefni að eins góðum árangri og hægt er miðað við stuttan undirbúnings- tíma. Ekki sé þó gerð krafa um að fara upp um deild í ár en sem kunnugt er leikur Skallagrímur í 3. deildinni. „Við lítum á þetta tímabil sem á- kveðið uppbyggingartímabil. Meiningin er að reyna að koma heimamönnum almennilega af stað aftur með því að virkja ungu strákana. Kjarninn verður heima- menn en við fáum aðstoð frá Skaganum eins og undanfarin ár.“ Ríflega tuttugu manna hópur æfir nú með meistaraflokki og í þeim hópi er m.a. Hafþór Gunn- arsson sem er betur þekktur sem körfuknattleiksmaður en hann var fastamaður í liði Skallagríms á þeim vettvangi í vetur. Pétur Sig- urðsson sem lék körfuknattleik með ísfirðingum í vetur verður í markinu og Guðmundur Ebeneser Guðjónsson sem lék með Sköllun- um um nokkurt skeið er kominn aftur. GE Sigurður Þorvaldsson ieikmaður ársins Á lokahófi Körfuknattleikssam- bands íslands um síðustu helgi var Sigurður Þorvaldsson leik- maður Snæfells valinn besti leik- maður Intersport deildarinnar á nýafstöðnu keppnistímabili. Sigurður hefur leikið geysivel með Snæfelli á keppnistímabilinu og á mikinn þátt í velgengi liðsins síðustu tvo vetur. Það er því ekki að efa að hann er vel að titlinum kominn. Sigurður var einnig í liði ársins ásamt félaga sínum úr Snæfelli, Hlyni Bæringssyni. Þá fékk Geor- ge Byrd úr Skallagrími verðlaun á lokahófinu fyrir flest fráköst í leik eða 16,2 að meðaltali. GE Vortilboð Hótel Vík er lítið og notalegt hótel miðsvæðis í Reykjavík. Tveggja m. herbergi: 6.900 Þriggja m. herbergi: 8.900 Fjögurra m. herbergi: 11.900 Stúdíóíbúðir: 8.000 Morgunverður er inn\falinn. Flugrútafyrir hvert áætlunarflug. Hótel Vík Síðumúla 19 Sími: 588 5588 - Fax: 588 5582 www.hotelvik.is - lobby@hotelvik.is Starfsmenn óskast Óskum eftir að ráða meiraprófsbílstjóra, vélamenn og verkamenn. Upplýsingar gefa Sigvaldi Arason sími 892-1525 og Viktor Sigurbjörnsson sími 898-0703 Borgarverk ehf. Borgarnesi ÞÚ EKUR Á OKKAR VEGUM BorgarVerk Sími 437 1134 & 892 1525 Hallveig fékk skeifuna Hallveig Guðmundsdóttir nem- andi á búfræðibraut Landbúnað- arháskólans á Hvanneyri hlaut Morgunblaðsskeifuna fyrir hæstu lokaeinkunn í hrossarækt á árleg- um Skeifudegi Hvanneyringa síð- astliðinn laugardag. Skeifudag- urinn fór fram á Mið-Fossum en þar var við það tilefni vígður nýr og glæsilegur hringvöllur. Hallveg hlaut einnig ásetuverð- laun FT fyrir bestu ásetu og stjórnun meðal keppenda í Skeifukeppninni og Bændasam- takabikarinn sem veitt eru af Bændasamtökum íslands og Hestamannafélaginu Grana á Hvanneyri. Kristín María Birgisdóttir hlaut Eiðfaxabikarinn fyrir hirðingu og snyrtimennsku. í sjálfri Skeifu- keppninni sigraði Hallveig Guð- mundsdóttir. í öðru sæti varð Sig- tryggur Veigar Herbertsson frá Dalvík en Eyþór Dalmann Sig- urðsson frá Sólheimum varð í þriðja sæti. Á Skeifudaginn stóð Grani fyrir opnu töltmóti. Úrslit þar urðu sem hér segir í Skeifutölti: 1. Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Faxa á Mósart frá Leysingjastöð- um. 2. Jakob Sigurðsson, Dreyra á Von frá Eyri. 3. Helga Una Björnsdóttir, Þyt á Orðu frá Gauksmýri. 4. Helgi Gissurarson, Faxa á Hermanni frá Kúskerpi. 5. Haukur Bjarnason, Faxa á Blika frá Skáney. Eyþór Dalmann Sigurðsson hlaut töltbikar Grana fyrir hæstu einkunn í forkeppni í Skeifutölti af félögum í Grana Vorhátíð Samkórs Mýramanna verður í félagsheimilinu Lyngbrekku föstudagskvöldið 29. apríl og hefst kl. 21:00. Hefðbundið form með söng, veitingum og hollri hreyfingu. Gestakór að þessu sinni er Álafosskórinn úr Mosfellsbæ. Komum og skemmtum okkur saman. Aðgangseyrir 2.000 kr. Allir velkomnir!

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.