Skessuhorn


Skessuhorn - 04.05.2005, Síða 1

Skessuhorn - 04.05.2005, Síða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 17. tbl. 8. árg. 4. maí 2005 - Kr. 300 í lausasölu Tíundu bekk- ingar í Fjölbraut Nemendur tíundu bekkja í grunnskólunum í Snæfellsbæ, Grundarfjarðarbæ og Stykkishólmi eiga kost á að hefja nám í Fjölbrautaskóla Snæfell- inga á næsta ári samhliða grunnskólanámi. Tíundu bekkingunum stendur til boða valáfangar í kjarnaá- föngum 1. árs námsefhis framhaldsskóla. Nái þau tilskyldum árangri í annaprófum geta þau sparað sér sem nemur hálfs árs námi í umræddum námsgrein- um. Nemendurnir geta stundað námið með því að fara í FSN í Grundarfirði einu sinni í viku í 60 inín- útna kennslustundir fagkennara ásamt því að stunda heimanám og verkefnaskil. Skilyrði skólanna fyrir þessu er að nemandi í 9. bekk grunnskólanna vorið 2005 nái þeim námsár- angri í vorprófum þessara námsgreina sem nemur að lágmarki einkuninni 8,0 - 8,5 eða hærri og enn- fremur að núverandi fagkennarar sömu greina í grunnskólum mæh með nemanda til námsins. GE KBB skilaði 230 milljónum í hagnað Aðalfundur Kaupfélags Borgafirðinga var hald- inn í síðustu viku en þar kom ffam að 230 milljóna króna hagnaður var af rekstri félagsins á síðasta ári. KB er í dag fyrst og ffemst eignarhaldsfélag en heildareignir félagsins eru 658 milljónir en þar af á félagið 206 milljónir í fasteignum, svo sem Egils- holt 2 þar sem Húsasmiðjan er til húsa og Egilsholt 2a og verslunarhús á Akranesi. Aðrar eignir eru 15% hlutur í Samkaupum, eignarhlutur í Borgar- landi sem á Hymutorgshúsið og fleiri félögum. Eigið fé Kaupfélags Borgfirðinga er 340 milljón- ir og eiginfjárhlutfallið 51%. Guðsteinn Einarsson, kaupfélagsstjóri segir stöðu félagsins vera í öllum aðalatriðum góða og horfur ágætar. „Það eru mörg járn í eldinum á þessu ári og Kaupfélagið gegnir lykilhlutverki íuppbyggingu á ýmsum svíðum, kjöt- iðnaði, byggingaffamkvæmdum og fleiru,“ segir Guðsteiim. Á aðalfundinum var stjórn Kaupfélags Borgfirð- inga endurkjörin en stjórnarfomaður er sem fyrr Sveinn Hallgrímsson. GE Kálfur um knattspymu Með næsta tölublaði Skessuhorns fylgir sérblað sem tileinkað verður knattspyrnuliðum á Vesturlandi og mótum sumarsins. Auglýsenduin er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega í síma 433-5500 eða með tölvupósti á iris@skessuhorn.is Ætli mœtti ekki segja að þama hafi hann Carsten Kristinsson hara hafihom í síbu, eba hvab þab nú annars heitirþetta ágœta hljóbf<eri hans. Hér er Carsten í hópi fleiri hljóbfceraleikara í Lúbrasveit Akraness á spretti nibur Kirkjubrautina á hátíbisdegi verkafólks 1. maí. „Einn réttur - ekkert svindl, “ var slagorb dags- ins. Sjáfrétt um haráttumál verkafólks á bls. 4. Akranes í þjóðbraut með þverun Grunnafjarðar Á borgarafundi um sam- göngumál á vegum Markaðs- ráðs Akraness í síðustu viku, sagði Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra að eitt mikil- vægasta framtíðarverkefni í vegamálum á suðvesturhorn- inu væri þverun Grunnafjarðar og færsla þjóðvegar 1 vestur fyrir Akrafjall. Sagði Sturla að samhliða þverun Grunnafjarð- ar lægi ljóst fyrir að vegurinn undir Hafnarfjall yrði færður nær ströndinni en það myndi auka verulega umferðaröryggi á þessum slóðum. Sturla sagði að samkvæmt skýrslu Vegagerðarinnar frá árinu 2003 væri þverun Grunnafjarðar ekki fysilegur kostur út frá því sjónarmiði að stytta hringveginn þar sem hann myndi aðeins styttast um einn kílómetra. Hinsvegar hefði þessi framkvæmd mikil áhrif á samgöngur milli Akra- ness og Borgarness auk þess sem þessi breyting yrði til þess að Akraness fengi hring- veginn að bæjardyrunum. „I því sambandi er nauðsynlegt að minna á hversu mikilvægt það er fyrir þróun Akranes- kaupstaðar og þá sérstaklega þeirra er starfa að ferðaþjón- ustu á svæðinu, að Akranes komist í betri tengingu við hringveginn,“ sagði Sturla. Páll Brynjarsson bæjarstjóri Borgarbyggðar og Gísli Gíslason bæjarstjóri Akraness tóku í sama streng á fundinum og sögðu bættar samgöngur milli Akraness og Borgarness mikilvægar fyrir framþróun svæðisins. Samgönguráðherra tilkynnti á fundinum að færsla hring- vegarins að Akranesi og nýr vegur yrði tekið til skoðunar við endurskoðun 12 ára sam- gönguáætlunar sem færi af stað innan skamms. Það var hinsvegar frekari lækkun Hvalfjarðargangagjalds og bygging Sundabrautar sem voru fúndargestum efst í huga á samgöngufundinum á Akra- nesi. Samþykkti fúndurinn á- lyktun þar sem því var beint til samgönguráðherra og stjórnar Spalar að leita leiða til að lækka Hvalfjarðargangagjaldið enn frekar, eða fella það út. Samgönguráðherra dlkynnti hinsvegar að ríkisstjómin hefði ekki í hyggju að yfirtaka skuld- ir Spalar tíl að fella gjaldið nið- ur. Sjá frekari umfjöllun um fundinn á bls. 8 GE afsláttur á kassa Verð áður 1502 kr/kg Tilboö 4. - 8. mai afsláttur á kassa Verð áður 874 kr/kg Samkaup lityval Hafnarfjörður • Njarðvík • ísafjörður • Akureyri • Dalvik • Siglufjörður • Ólafsfjörður • Húsavík • Egilsstaðir • Selfoss • Borgarnes • Blönduós • Skagaströnd • Bolungarvík

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.