Skessuhorn - 04.05.2005, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2005
Nýr firam-
kvæmda-
stjóri UMSB
Bragi Rúnar Axelsson hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Ungmennasambands Borgar-
fjarðar. Bragi er viðskiptafræð-
ingur frá Bifföst og stundar nú
meistamám í viðskiptalögfræði
við Viðskiptaháskólann. Sam-
hliða námi hefur hann setið í
stjóm Umf. Bifrastar ásamt því
að þjálfa lið skólans í handbolta
og verið yfirþjálfari yngri
flokka. Hann hefur einnig
gegnt formennsku skólafélags
Viðskiptaháskólans og setið í
háskólaráði skólans.
Bragi hóf störf sl. mánudag.
Skrifstofa sambandsins verður
opin eftir hádegi mánudaga til
fimmtudaga í sumar; til kl.
17.00 mánudaga, þriðjudaga og
fimmtudaga en til kl. 19.00
miðvikudaga.
MM
Til minnis
Vi& minnum á tónleikaferö Sam-
kórs Mýramanna á Snæfellsnes
n.k. laugardag. Kórinn syngur kl.
14.00 í Ólafsvíkurkirkju og
brennir að því loknu beint í
Grundarfjörb þar sem sungib
verbur í Grundarfjar&arkirkju
klukkan 17. Samkór Mýramanna
er sannkalla&ur gleðigjafi og
endurspegla kórfélagar létta
lund íbúa á Mýrum fyrr og sibar.
Veðivrhorfyr
Það blása norlægir vindar um
Vesturland næstu daga. Því verð-
ur kalt en þurrt og líkur á ab sól-
in láti sjá sig. Hiti verður þetta á
bilinu 1 til 10 stig a& deginum,
hlýjast í skjóli!
SpMrnin^ viktmnar
í sfbustu viku spur&um við á
Skessuhornsvefnum samvisku-
spurníngar, sem hljóðaði svo:
„Létir þú lögreglu vita ef þig
grunaði að fíkníefni væru brúkuð
þér nærri?" Flestir af þeim 215
sem þátt tóku, eða 77,2% svör-
uðu því játandi og töldu víst að
þeir myndu gera viðvart. 12,1%
vissi það ekki en 10,7% töldu að
þeir myndur sleppa því. Skessu-
horn hvetur þessi 10,7% til a&
endurskoða afstöðu sína, því fátt
er mikilvægara en einmitt að
gera allt sem í valdi okkar stend-
ur til að eiga þátt í að uppræta
neyslu og sölu fíkniefna. Bend-
um sérstaklega á fíkniefnasíma
lögreglunnar í því sambandi.
í næstu viku spyrjum við:
„Á ríkib ab yfirtaka skuldir
Spalar vegna
Hvalfjarbarganganna?"
Svarabu skýrt og skorinort og án
allra undanbragba á fréttavefn-
um: www.skessuhorn.is
Vestlendincjtyr
vik^nnar
Eru að þessu sinni félagskonur í
Sambandi breiðfirskra kvenna
sem láta ekkert tækifæri ónotað
til að koma á framfæri ábending-
um til vegamálayfirvalda um að
ástand vegarins um Svínadal í
Dölum sé óviðundandi. Þeir sem
aka þennan veg fá sterklega á til-
finninguna að hann hafi hrein-
lega gleymst undanfarna ára-
tugi/aldir þegar vegafé hefur
verið útdeilt.
Hitaveitan og sláturhúsið sameinað
Sláturhúsií í Búðardal.
Á aðalfundum Sláturhússins ehf.
í Dalabyggð og Hitaveitu Dala-
byggðar var samþykkt að sameina
þessi tvö félög í eitt. Sameining
hitaveitunnar og sláturhússins felur
þó ekki í sér að Dalamenn ætli að
fara að markaðssetja soðið kjöt því
Hitaveita Dalabyggðar ehf. hefur
sem kunnugt er selt eignir sínar til
Rarik en eftír standa peningar og
útistandandi kröfúr. I raun er því
um að ræða að Hitaveita Dala-
byggðar ehf. er lögð niður en fjár-
mtmir félagsins lagðir í sláturhúsið.
Dalabyggð á 73,33% hlut í Hita-
veitu Dalabyggðar en Byggðastofn-
un 26,67%. Þessir aðilar eiga
einnig Sláturhúsið ehf. en auk
þeirra er Hitaveita Dalabyggðar
hluthafi. Eignarhlutur Hitaveit-
unnar í Sláturhúsinu skiptíst þá á
milli Dalabyggðar og Byggðastofn-
tmar eftir sameininguna.
Sláturhúsið ehf. er eignarhaldsfé-
lag sláturhússins í Búðardal en und-
anfarin ár hefur Dalalamb ehf. sem
alfarið er í eigu Dalabyggðar séð
um rekstur hússins. Ekki liggur
hinsvegar fyrir hvort Dalalamb eða
einhvar annar aðili mun sjá um
reksturinn þegar slátrun hefst á ný í
húsinu næsta haust. GE
Byggt við niðursuðuverksmiðju Jóns
Fyrirtækið Jón Þorsteinsson ehf.
hefur fengið úthlutað iðnaðarlóð
nr. 8 við Kalmansvelli á Akranesi.
Fyrirtækið er 12 ára gamalt og hef-
ur alla tíð sérhæft sig í niðursuðu á
fisklifúr til útflutnings. Nú vinna
þar 20 manns þegar mest lætur en
fer niður í 15 starfsmenn á sumrin.
Aðspurður segir Jón Þorsteinsson,
ffamkvæmdastjóri að til standi að
stækka framleiðslurými fyrirtækis-
ins á næstu mánuðum. „Við ætlum
að byggja við núverandi fram-
leiðsluhús á Kalmansvöllum 6 en
fáum viðbótarlóð úthlutað fýrst og
ffemst til að tryggja okkur nægjan-
legt athafnarými fyrir móttöku,
gáma, kör og þ.h. sem fylgir ffam-
leiðslunni.“
Helstu kaupendur framleiðsl-
unnar eru Frakkar og Þjóðverjar og
er fer lifrin þar beint til manneldis
þar sem hún þykir herramannsmat-
ur, t.d. sem viðbit með fiski. Jón
segir nokkra ffamleiðsluaukningu
hafa verið að tmdanfömu hjá fýrir-
tækinu og brætt sé úr allri lifur sem
hægt er að afla. „Helsta vandamálið
í rekstrinum er í raun að fá nægjan-
lega mikið hráefni tíl vinnslunnar.
Þar horfi ég á að víða er verið að
henda lifur á sama tíma og við
greiðum allt að 50 krónur fýrir
kílóið af góðri vöm. Talsvert vantar
því upp á að menn nýti svona aug-
ljós verðmæti og em jafúvel á sama
tíma að kvarta yfir afkomunni,"
segir Jón Þorsteinsson að lokum.
MM
Guðlaugur ráðinn
Sveitarstjóm Borgarfjarðarsveit-
ar hefur ákveðið að ráða Guðlaug
Oskarsson skólastjóra Kleppjárns-
reykjaskóla í stöðu skólastjóra nýs
grunnskóla í Borgarfjarðarsveit
sem verður til við sameiningu
Kleppjárnsreykjaskóla og Andakíls-
skóla. Ráðningarsamningurinn er
til eins árs, en að sögn Sveinbjörns
Eyjólfssonar oddvita Borgarfjarðar-
sveitar er ástæðan sú að um mikla
breytingu er að ræða á skólamálum
og því vilji menn fá sannfæringu
fýrir því að þeir séu að breyta rétt
áður en lengra sé haldið. Aðrir um-
sækjendur um stöðuna vom Arni
Þorsteinsson, kennari við Höfða-
skóla á Skagaströnd, Hilmar Þór
Hafsteinsson, kennari við Engja-
skóla í Hveragerði og Jón Hilmars-
son, skólastjóri grunnskólans á
Bakkafirði.
Þá hefúr skólanefnd Borgarfjarð-
arsveitar ákveðið að ráða Þómnni
Reykdal aðstoðarskólastjóra við
Kleppjárnsreykjaskóla í sömu stöðu
í hinum nýja skóla og Elísabetu
Haraldsdótmr skólastjóra Anda-
kílsskóla í starf deildarstjóra. Þá var
Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir
ráðin í afleysingar tíl eins árs sem
aðstoðarskólastjóri fýrir Þómnni
sem fer í ársleyfi.
Aðrir umsækjendur um stöðu að-
stoðarskólastjóra vom Ásgeir
Hannes Aðalsteinsson, kennari á
Isafirði og Ingibjörg Inga Guð-
mundsdóttir, kennari á Tálknafirði.
QuMaugur Óskarsson.
Þá sótti Steinunn Fjóla Benedikts-
dóttír kennari á Kleppjámsreykjum
einnig um stöðu deildarstjóra.
GE
Breiðprskar konur álykta
um ástand Svínadals
Sambandið breiðfirskra kvenna
hélt aðalfund sinn á Reykhólum þ.
27. apríl s.l. Sambandið er samtök
fjögurra kvenfélaga í Dalasýslu og
Austur - Barðastrandarsýslu. Það er
jafnframt tengiliður kvenfélaganna
við Kvenfélagasamband Islands.
Auk þess fer það með orlof hús-
mæðra á svæðinu og hefur staðið
fýrir margvíslegum ferðum undan-
farin ár. Aðalfundurinn á Reykhól-
um var vel sóttur bæði af kvenfé-
lagskonum og gestum. Auk aðal-
fundarstarfa sagði Áslaug Gutt-
ormsdóttir, skólastjóri Reykhóla-
skóla frá þjóðsögum úr Reykhóla-
hreppi sem hún hefur tekið saman í
fróðlegu riti. Vora konur samm-
mála um að nauðsynlegt væri að
fleiri fengju að njóta þess og hvöttu
hana til að gefa þetta út. Samband-
ið hefur einnig á hverju vori gefið
10. bekkjar nemendum á starfs-
svæðinu leiðbeiningaspjöld í heim-
ilisfræðum, sem Leiðbeiningastöð
heimilanna gefur út. Á fúndinum
var samþykkt ályktun um vegamál á
Svínadal, þar sem stjórnvöld em
hvött til að nýr vegur með bundnu
slidagi um Svínadal verði unninn í
einum áfanga. Það er nú eini vegar-
spottinn frá Reykhólum til Reykja-
víkur sem ekki hefur enn fengið
bundið slidag.
I stjórn Sambands breiðfirskra
kvenna em Jóna Valgerður Krist-
jánsdóttír, formaður, Þrúður Krist-
jánsdóttir, ritari og Guðrún Björns-
dóttir, gjaldkeri. Stjórnin er jafin-
framt orlofsnefnd húsmæðra á
svæðinu.
MM
Eldur
í Þorvarði SH
GRUNDARFJ ÖRÐUR: Sl.
miðvikudag kom upp eldur í
vélarrúmi á Þorvarði Lárassyni
SH 129, sem er 230 lesta tog-
skip gert út frá Grundarfirði.
Slökkvilið Grundarfjarðar var
kallað út og var komið niður að
höfn nokkmm mínútum eftir
útkaU. Þá hafði áhöfn skipsins
náð að kæfa eldinn og því fór
betur en á horfðist í fýrstu. Þar
skiptu skjót og rétt viðbrögð
skipverja miklu máli. Skemmd-
ir urðu óverulegar og réri Þor-
varður til fiskjar strax daginn
eftir. -frf
Skrifað undir
við ísólf
AKRANES: Skrifað hefúr ver-
ið undir leigusamning á Bíó-
höllinni á Akranesi til næstu
fjögurra ára ffá 1. september að
telja. Leigutakinn er ísólfur
Haraldsson en hann hefur séð
um rekstur hallarinnar fýrir
hönd Akraneskaupstaðar und-
anfarin ár. Á fjárhagsáætlun
bæjarfélagsins fýrir næsta ár er
gert ráð fýrir 15 milljóna króna
framlagi til endurbóta á lóð
Bíóhallarinnar. Þá verður m.a.
lagfærð stétt og tröppur og
bílastæði malbikuð. -mm
Fagna niður-
stöðunni
BORGARBYGGÐ. Á síðasta
fundi bæjarráðs Borgarbyggðar
var fjallað um nýafstaðnar
kosningar um sameiningu
sveitarfélaganna Borgarbyggð-
ar, Borgarfjarðarsveitar, Kol-
beinsstaðahrepps, Hvítársíðu-
hrepps og Skorradalshrepps en
sem kunnugt er var sameining
samþykkt allsstaðar nema í
Skorradal.
Eftirfarandi bókun var sam-
þykkt á fundinum: „Bæjarráð
Borgarbyggðar fagnar niður-
stöðu sameingarkosninga þann
23. apríl sl. þar sem íbúar í 4 af
5 sveitarfélögum samþykktu
sameiningu. Ljóst er að niður-
stöður úr endurtekinni at-
kvæðagreiðsla í Skorradals-
hreppi ráða úrslitum um hvort
tillaga sameiningarnefndar
verður samþykkt. Hver sem
niðurstaða þeirra atkvæða-
greiðslu verður, er óskandi að
breið samstaða náist í samein-
uðu sveitarfélagi og að íbúar
þess taki höndum saman um
uppbyggingu á sem flesmm
sviðum.“ -ge
Fuglafyrirlestur
vel sóttur
STYKKISHÓLMUR: Sl. mið-
vikudag hélt Guðmundur A.
Guðmundsson fýrirlestur á
ráðhúsloftinu í Stykkishólmi á
vegum NSV um farfugla. Þar
fjallaði hann m.a. um hæfileika
þeirra til rötunar. Margt at-
hyglisvert kom fram í máli
Guðmundar en meðal þess var
að fuglar nota sólaráttavita,
segulsvið jarðar, stjömur, lykt,
hljóð o.fl. til að rata á milli
vetrar- og sumardvalarstaða
sinna. Sumir þeirra ferðast þús-
undir kílómetra á tiltölulega
skömmum tíma tvisvar á ári.
Fyrirlesturinn var vel sóttur og
sköpuðust áhugaverðar umræð-
ur í kjölfarið.