Skessuhorn


Skessuhorn - 04.05.2005, Síða 6

Skessuhorn - 04.05.2005, Síða 6
6 MIÐVTKUDAGUR 4. MAI 2005 PISTILL GÍSLA Fyrsú, annar eða þriðji... Fyrrverandi kollegi minn í héraðsblaðasnápastétt reit eitt sinn í blað sitt að vorlagi: „Að þessu sinni bar sumar- daginn fyrsta upp á fimmtudag.“ Hentu menn gaman að þessu orðalagi enda fæstir vanir öðru en að sumardaginn fyrsta bæri upp á fimmtudag. Sjálfsagt hef ég tekið þátt í því á þeim tíma að hæðast að þessum skrifum, ekki af ill- um hug þó, heldur fyrst og ffemst vegna eigin einfeldni. Það var nefnilega ekki fyrr en fyrir fáum dögum sem ég gerði mér grein fyrir því að umrædd orð voru ekki skrif- uð í einhverri fljótfærni heldur var djúp hugsun á bak við þessa setningu sem rann úr penna hins spakvitra blaða- manns. Hafa ber í huga að það eru meira en fimmtán ár síðan fyrrnefndur blaðamaður skrifaði um sumardaginn fyrsta en það er hinsvegar ekki fyrr en nú sem það liggur ljóst fyrir að það er ekki sjálfgefið að sumardaginn fyrsta beri upp á fimmtudag. Það er ekki einu sinni hægt að treysta því fullkomlega að fimmtudag beri upp á fimmtudag ef út í það er farið. Alveg fram á þennan dag hafa menn talið sig geta treyst almanaki Þjóðvinafélagsins jafhvel þótt allt annað í heimin- um væri fallvalt. Nú bar svo við fyrir fáum dögum að í blaði einu birtust niðurstöðm- könnunar sem Gallup gerði sjálfur og sýndu ffam á að meirihluti landsmanna vill að fyrsti maí verði ekki endilega þann fyrsta maí heldur alveg eins annan, þriðja eða fjórða sama mánaðar. Með öðrum orðum vilja sjötíu og tvö prósent landsmanna að baráttudagur verkalýðsins verði hald- inn hátíðlegur fyrsta mánudag í maí til þess að lengja sitt helgarfrí. Svipuð umræða hefur verið um ýmsa aðra ágæta ffídaga á borð við sumardaginn fyrsta einmitt, og þjóðhátíð- ardaginn. Einnig hefur komið til greina að safna saman í kippu slatta af frídögum og búa til hátíðarviku einhvemtím- an á miðju ári sem yrði þá endanlega til þess að enginn vissi hverju væri verið að fagna í hvert sinn. Fram til þessa hefiir afmælisdaginn minn borið upp á þann 26. janúar ár hvert sem hefur svo sem ekki alltaf verið mjög hentugt, ég skal viðurkenna það því það er mjög misjafint á milli ára hvaða viku- dagur verður fyrir val- inu þann 26. janúar. Það hefur nefnilega tíðkast á mínu heimih á þessum merkisdegi að útbúa brauðtertu sem er einmitt eitt af því fáa sem veitir mér einhverja gleði í lífinu. Það er hinsvegar alls ekki viðeigandi að úða í sig brauðtertu á mánudegi ef út í það er farið. Eg hef hinsvegar látið mig hafa það og hugsa að ég geri það áffam ff ekar en að fara ffam á að afmælisdagurinn minn verði síðasta sunnudag í janúar ffam- vegis. Eg hugsa líka til þess með hálfgerðum hryllingi að þurfa að syngja Intematsjónalinn á öðrum stað í dagatalinu að ég tah nú ekld um „hæ, hó, jibbí-jei, jibbía jei, það er kominn sautj- ándi júní,“ tdl dæmis 28. ágúst! Gísli Einarsson, sem að þessu sinni ber upp á miðvikudag. Hagfræði hagsýnu húsmóðurinnar að leiðarljósi Arsreikningur Borg- arfjarðarsveitar fyrir árið 2004 var tekinn til síðari umræðu í sveitarstjóm í síðustu viku en sam- kvæmt honum var hagn- aður af rekstri sveitarfé- lagsins á síðasta ári upp á 30 milljónir króna. Hlýtur það að teljast býsna góð afkoma í ekki stærra sveitarfélagi en þess má geta að árið 2002 var tap af rekstrin- um upp á 3 milljónir króna en árið 2003 var reyndar hagnaður en hann nam þó ekki meira en 42 þúsundum króna. „Þetta er mjög ánægjuleg þróun sem búin er að vera hér síðustu ár og mjög gleðilegt að sjá þetta góða nið- urstöðu síðasta ár,“ segir Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri Borg- arfjarðarsveitar. Hún segir enga eina ástæðu fyrir þessari góðu útkomu, heldur sé það fr ekar þannig að margt smátt verði eitt stórt. „Við förum mjög varlega í að áæda tekjur en á- ædum gjöldin ffekar ríflega til að mæta óvæntum uppákomum og síð- an er þetta kannski hagfræði hag- sýnu húsmóðurinnar sem ræður ferðinni. Við reynum að eiga fyrir hlutunum áður en þeir eru keyptír. Við gerðum ráð fyrir um sjö milljón- um í hagnað í fjárhagsáædun síðasta árs en síðan reyndust skatttekjur um 8,5 mihjónum hærri en við gerðum ráð fyrir og svo hefur verið að tínast Linda Pálsdóttir sveitarstjóri Borgarfjarðarsveitar og Vilborg Pétursdóttir, fjármálastjóri við skrifstofu sveitarfélagsins í Reykholti. til miUjón hér og þar sem einstakar deildir hafa skilað í betri afkomu en við áæduðum.“ Aðspurð segir Linda að þrátt fyrir aðhald í rekstri sé það ekki markmið að safna peningum heldur að íbú- amir njótí þess sem þeir leggja sjálf- ir til. „Hugsunin er ekki sú að safha peningum, heldur að eiga peninginn áður en farið er að eyða honum. Núna getum við með góðri sam- visku farið að verja meiri fjármunum til góðra verka og meðal annars sam- þykktí sveitarstjóm á síðasta fundi að fara í viðhald á Kleppjámsreykja- skóla og leikskólanum HnoðrabóU. Það bætist við fjárfestingar upp á rúmlega 100 milljónir sem við áæd- uðum í fjárhagsáædtm þessa árs. Við gerðum ekki ráð fyrir neinum lán- tökum vegna þess og nú getum við bætt ennfrekar við verkefnum án þess að hækka skuldir,“ segir Linda. Það þarf heilt þorp til að ala upp eitt bam Helga Gunnarsdóttir, sviðsstjóri fræðslu-, tómstunda- og íþrótta- sviðs Akraneskaupstaðar í spjalli um framtíð forvamamála á Akranesi Um áramótin var staða sviðsstjóra tómstunda- og forvarnasviðs Akranes- kaupstaðar lögð niður og í kjölfarið fylgdu breytingar á skipuriti bæjarins sem samþykktar vom í bæjar- stjóm fyrir skömmu. Meðal þeirra breytinga sem áttu sér stað var að tómstunda- og forvamarmál heyra nú undir sama svið og skóla- og ffæðslumál. Fræðslu-, tómstunda- og íþróttasvið er heiti hins nýja sviðs og sviðsstjóri er Helga Gunn- arsdóttír. Áhersla á að virkja foreldra til samstarfs Undanfarin ár hefur náðst góður árangur í forvamarmálum á Akra- nesi og margir hafa af því áhyggjur að með skipulagsbreytingunum verði dregið úr því vægi sem for- vamir hafa haft. Helga segir að í sjálfu sér sé ekki um neina stefhu- breytingu að ræða af hálfú bæjar- stjómar og áffam verður haldið með þau verkefiú sem hafa verið að skila góðum árangri. „Forvamir em á hendi margra aðila. Skólastarf, æskulýðsstarf, íþróttastarf og annað tómstundastarf getur haft mikil áhrif en þáttur foreldra myndi ég segja að væri mikilvægastur, bæði heima og heiman. Til dæmis hefur for- Helga Gunnarsdóttir, sviðsstjóri m.a. forvamamála á Akranesi. eldraröltið skilað tmdraverðum ár- angri og ég á von á því að það verði eflt á ný, enda tökum við mið af þeirri stefirn sem Reykjavíkurborg vinnur eftír og er að verða þekkt í al- þjóðlegu samhengi, en sú stefha felst einmitt í því að virkja foreldra til samstarfs. Einnig em þættír í starfi fjölskyldusviðs sem tengjast for- vömum með beinum hætti og það helst óbreytt. Máltæki sem segir að það þurfi heilt þorp til að ala upp eitt bam lýsir kannski best þeirri hug- myndaffæði sem Akraneskaupstaður vinnur efdr í forvamamálum og hér em að mörgu leyti kjöraðstæður til að vinna í þessum anda því allir aðil- ar sem málið varða em fusir til sam- starfs. Nægir þar að nefha Fjöl- brautaskólann, lögregluna og þá starfsmenn bæjarins sem koma að málefhum bama og unglinga." Kveðj umessa S 1 Guðsþjónusta verður í Staðar- hólskirkju í Saurbæ í Dölum nk. sunnudag klukkan tvö. Þar mun séra Ingiberg J. Hannesson kveðja söfiiuð sinn, en þann 1. júlí árið 1960, eða fyrir um 45 árum síðan tók hann við brauðinu. Þá þjónaði Sr Ingiberg Skarðs-, Staðarhóls- og Dagverðamessóknum, en árið 1966 tók hann einnig við Staðarfells- og Hvammssóknum. Sóknanefndir prestakallsins bjóða til veislu í Tjamarlundi að messu lokinni og em þar allir vel- komnir. GB Sr. Ingiberg með síiasta fermingabami sínu henni Hrefnu Frigg Guðmundsdéttur jrá Ym-Fagradal. Hún varfermd í Skarðsskirkju jyrir skömmu. Unglingalýðræði Annan mikilvægan þátt í forvöm- um segir Helga vera svokallað ung- fingalýðræði sem verið er að þróa. Liður í því er stofhun unglingaráðs sem í eiga sæti fulltrúar Fjölbrauta- skólans, Grundaskóla, Brekkubæjar- skóla, Amardals og Hvíta hússins. Hlutverk unglingaráðs er að vera tómstunda- og forvarnanefnd til ráðtmeytis og einnig getur það haft ffumkvæði að verkefhum og uppá- komum. „Unglingamenning hvers tíma mótast að verulegu leyti af þeim fyrirmyndum sem unglinga- hópurinn velur sér. Undanfarið hafa þessar fyrirmyndir verið jákvæðar og ég tel það mikilvægt verkefiú í for- varnamálum að aðstoða og styrkja þessa jákvæðu foringja svo þeir geti orðið enn skýrari fyrirmyndir. Ég vonast til dæmis til þess að þeir sem veljast í unglingaráð hverju sinni komi til með að fá tilsögn og aðstoð við að efla þá hæfileika sem þarf til að vera góður málsvari unglinga. Með þessu viljum við virkja ungling- ana til að taka ábyrgð og hafa áhrif á þau mál sem snerta þá sjálfa." Samstarfssanmingar við íþrótta- og æskulýðsfélög Þrátt fyrir að engin stefiiubreyt- ing hafi orðið í forvamamálum af bæjarins hálfu segir Helga að vísast verði öðruvísi að málum staðið nú þegar verkefnin deilast á fleiri hend- ur og nýir aðilar taka við þeim. Þó hún eigi ekki von á því að það sem allir voru sammála um að væri nauð- synlegt og vel gert breytist að nokkru marki. „Nú Hggur fyrir nýr samstarfssamningur Akraneskaup- staðar við IA sem kveður á um að í- þróttahreyfingin taki að sér sum af þeim verkefnum sem áður heyrðu undir tómstunda- og forvamasvið. Sem dæmi má nefna verkefnið Göngum til heilbrigðis. Samningur- inn kveður einnig á um verulega aukningu fjárffamlaga til bama- og unglingastarfs innan IA og annarra æskulýðsfélaga næsm fjögur árin, en auk samstarfssamningsins við IA hefur bærinn gert samning við Skátafélagið og Skagaleikflokkinn á undanfömum árum.“ Samlegðaráhrif í forvamarstarfi „I viðskiptalífmu er vinsælt að tala um samlegðaráhrif. Ég held að í for- vamastarfi getum við einnig talað um samlegðaráhrif af viðleitni for- eldra, skóla og tómstundastarfs þar sem alfir leggjast á eitt við að hlúa að jákvæðri sjálfsmynd bama og ung- linga. Það er líka stórt verkefiú að efla jákvæða unglingamenningu þar sem ungmennin sjálf hafa áhrif á umhverfi sitt,“ segir Helga að lok- um. ALS

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.