Skessuhorn - 04.05.2005, Blaðsíða 7
^*JiS»uhÖi2F3
7
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2005
Heilbrigðisnefiid vítir Laugafisk
Fyrirtækinu gert að draga um helming
úr framleiðslu yfir sumarmánuðina
Á fundi í heilbrigðisnefod Vest-
urlands, sem fram fór í Grundar-
firði fyrir skömmu var eftirfarandi
tillaga samþykkt vegna starfsemi
fiskþurrkunar Laugafisks hf. á
Akranesi: „...Laugafiskur hf.
minnki ffamleiðslu sína um 50%
tímabilið 15. maí - 15. ágúst á árinu
2005 vegna lyktarmengunar, á
meðan fyrirtækið er með aðgerðir í
gangi til lausnar á því vandamáli
sem óumdeilt er að sé til staðar í
rekstri fyrirtækisins. Einnig sam-
þykkir heilbrigðisnefod að óbreyttu
verði starfsleyfi fyrirtækisins ekki
endurnýjað á árinu 2007.“
Var framkvæmdastjóra HeV falið
að koma ofangreindri samþykkt á
framfæri við stjórnendur Lauga-
fisks hf. og sjá til þess að haft verði
sérstakt vikulegt eftdrlit með fyrir-
tækinu á meðan ffamleiðsluskerð-
ingu stendur og grípa til nauðsyn-
legra aðgerða gerist þess þörf.
Heilbrigðisnefhd lýsir því jafaffamt
yfir að nefadin er reiðubúin til end-
urskoðunar á samþykkt þessari, gefi
breyttar aðstæður tilefai til þess.“
Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari á
Akranesi á sæti í nefadinni. Hann
sagði í samtali við Skessuhorn að
það væri merkilegt að fyrirtæki sem
hafi svo mikilla hagsmuna að gæta
með vinnslu sinni á Akranesi skuh
ekki sinna ítrekuðum tilmælum
Heilbrigðiseftirlitsins um að koma í
veg fyrir þá lyktarmengun sem ffá
verksmiðjunni komi. „Fyrirtækið
virðir nánast að vettugi kröfar heil-
brigðisnefadar um úrbætur sem því
er gert að koma í framkvæmd. Þar
með eru það að brjóta starfsleyfið
en í því kemur ffam að starfsemin
eigi að vera nánast án lyktarmeng-
unar. Forráðamönnum Laugafisks
hf. hafði verið boðið að senda fall-
trúa á fand heilbrigðisnefndar í
tvígang í vor, til að skýra mál fyrir-
tækisins. Fyrirtækið taldi sér ekki
fært að senda fulltrúa á fandinn
vegna ferðar forráðamanna þess til
Nígeríu eða koma nánari upplýs-
ingum fyrir nefadina með skrifleg-
um hætti,“ sagði Jón Pálmi.
Hann segir að Laugafiskur hf.
hafi samkvæmt gildandi starfsleyfi
heimild til vinnslu og þurrkunar á
allt að 170 tonnum af hráefai á
viku. Gildistími starfsleyfisins var
ffá 16. apríl 2003 til 16. apríl 2007.
„Við upphaf starfsemi fyrirtækisins
og í umsókn um starfsleyfi var m.a.
gert ráð fyrir að lyktarmengun ffá
fyrirtækinu yrði nánast engin og
fyrirtækið rekið í góðri sátt við sitt
nánasta umhverfi. Sú hefar hins-
vegar ekki verið raunin.“
I tillögu sem stjórn HeV sam-
þykkti segir einnig: „Allt frá upp-
hafi starfsemi Laugafisks hf. hefar
verið mikið kvartað yfir megnri
lyktarmengun ffá fyrirtækinu. Á ár-
inu 2003 voru skráðar af heilbrigð-
isfúlltrúa a.m.k. 24 formlegar
kvartanir, árið 2004 voru þær 68 og
á árinu 2005 eru komnar 8 kvartan-
ir, fyrir utan fjölda óformlegra
kvartana og undirskriffalista sem
bæjaryfirvöldum á Akranesi hefúr
borist. Kvartanir eru mestar yfir
sumarmánuðina og þegar vindur
stendur yfir nálæga byggð. Heil-
brigðisfalltrúar hafa haft samband
við stjórnendur fyrirtækisins ítrek-
að, bæði með formlegum og ó-
formlegum hætti yfir sama tímabil
varðandi kvartanir og lyktarmeng-
un ffá fyrirtækinu, ásamt formleg-
um afskiptum heilbrigðisnefadar-
innar, m.a. þar sem fyrirtækinu er
tilkynnt að fyrirhugað sé að minnka
framleiðslu yfir heitustu mánuði
ársins, þar sem ekki hefar tekist að
vinna að lausn lyktarmengunar frá
fyrirtækinu. Þrátt fyrir umkvartanir
nágranna, viðræður og ábendingar
heilbrigðisfalltrúa hefar fyrirtækið
ekki getað fundið nægilega og/eða
varanlega lausn á þeim vandamál-
um sem til staðar eru í rekstri fyrir-
tækisins og uppfylla þar með á-
kvæði í gildandi starfsleyfi sínu
hvað varðar lyktarmengun.“
Allir nefndarmenn utan einn
fulltrúi, Sigrún Pálsdóttir, sam-
þykktu að krefjast þess að fyrirtæk-
ið dragi úr ffamleiðslu yfir sumar-
mánuðina. Sigrún lét hinsvegar
bóka: „Hér er um mjög íþyngjandi
aðgerðir gagnvart fyrirtækinu og ég
tel að það hafi ekki fengið nægileg-
an ffest til að koma sjónarmiðum
sínum á ffamfæri varðandi þessa
ákvörðun.“ MM
DALABYOOÐ
Leikskólakennarar %
Leikskólinn Vinabær Dalabyggð
Við leikskólann Vinabæ í Dalabyggð eru
lausar stöður leikskólakennara og
deildarstjóra frá og með 8. ágúst n.k. Um
er að ræða 100% störf en ráðning í
hlutastörf gæti einnig komið til greina. Fáist
ekki leikskólakennarar kemur til greina að
ráða starfsmenn með háskólapróf eða aðra
uppeldismenntun og/eða reynslu.
Umsóknarfrestur er til 31. mai.
Nánari upplýsingar veitir Berglind
Vésteinsdóttir, leikskólastjóri í síma
4341311 & 434 1660
eða í tölvupósti: vinabaer@dalir.is
Varmalandsskóli í Borgarfirði
(^) Varmalandsskóli (^)
- 50 ara -
Laugardaginn 21. maí n.k. verða 50 ár liðin frá
því að Varmalandsskóli í Borgarfirði var vígður.
Af því tilefni er öllum núverandi og fyrrverandi
nemendum, kennurum, skólastjórum og öðru
starfsfólki sem hefur haft viðdvöl í skólanum
boðið að koma og taka þátt í dagskrá og þiggja
veitingar í tilefni dagsins.
Dagskráin hefst kl 14 í félagsheimilinu Þinghamri.
Vorsýning skðlans verður jafhframt þennan dag.
Undirbúningsnefnd
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Lögfræðingur
Við embætti sýslumannsins í Borgamesi er laus til umsóknar
staða löglærðs fúlltrúa.
Umsóknarfrestur er til 20. maí 2005.
Laun greiðast skv. kjarasamningi ríkisins og Stéttarfélags
lögfræðinga. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst
og æskilegt er að hann hafi búsetu í Borgamesi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Embættispróf í lögfræði eða sambærilegt próf er skilyrði.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og sjálfstæði í
vinnubrögðum er skilyrði.
• Góð tölvukunnátta.
Starfssvið:
Starfíð felur í sér lögfræðileg viðfangsefni
sýslumannsembætta og er þekking og reynsla á því sviði
| æskileg.
f Skriflegar umsóknir, ásamt ferilskrá og Ijósriti einkunna,
s óskast sendur til sýslumannsins í Borgarnesi, Bjarnabraut
2, 310 BorgarnesL
Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefán Skarphéðinsson,
sýslumaður, í síma 437 1209.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir.
Auglýsingþessi getur gilt allt að 6 mánuðL
Auglýsing
Breyting á abalskipulagi Borgarbyggöar \ Borgarnesi
og deiliskipulag viö Granastaöi 1 Borgarnesi
Borgarbyggðar
nr. 73/1997.
meö tillögu að breytingum á aöalskipulagi
mgr. 21. gr skipulags og byggingarlaga
Breytingarnar taka til svæöis vestan megin við Sandvík að Snæfellsvegi. Breytingar
eru eftirfarandi:
1. Svæði sem merkt er útivistarsvæði, opin svæði til sérstakra nota er að hluta
til breytt í íbúðabyggð.
2. Svæði sem merkt er almennt útvistarsvæði (óbyggt svæði) er breytt í opið
svæði til sérstakra nota þ.e Votlendisgarð og verslunar og þjónustusvæði.
3. Svæði fyrir iðnað verslun og þjónustu er að hluta tekið unair verslunar og
þjónustusvæði og útivistarsvæði til sérstakra nota.
4. Svæði sem sýnt er á skipulagi frestað er skilgreint sem útivistarsvæði til sérstakra
nota þ.e Votlendisgaröur og svæði fyrir fristundabyggð.
mi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. auglýsist
tillaga að cíeiliskipulagi við ofangreint skipulag. Um er að ræða 5 parhús
B: Tillaga að deiliskipulagi við Granastaði í Borgarnesi.
í samræmi við 25.
hér með
með 10 íbúðum.
Ofangreindar tillögur verða til sýnis á bæjarskrifstofu Borgarbyggðar frá
10.05.2005 til 8.06.2005. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út
22.06.2005 Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast á Bæjarskrifstofu
Borgarbyggðar Borgarbraut 11, 310 Borgarnesi.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillögurnar fyrir tiltekinn frest til
athugasemda telst samþykkur henni.
Borgarnesi 29. 04. 2005