Skessuhorn


Skessuhorn - 04.05.2005, Page 11

Skessuhorn - 04.05.2005, Page 11
§KiSS|íli©BK MIÐVIKUDAGUR 4. MAI 2005 11 Kaupstaður við Hvítá Frá lokum 12. aldar og fram um 1340 voru helstu kauphafnir á Is- landi Eyrar, Hvítá og Gásar. A Gás- um, þar sem nú fer ffam fomleifa- rannsókn, em miklar búðaleifar en fátt er að sjá á Eyrum enda hafa ver- ið þar umtalsverðar ffamkvæmdir frá miðöldum með tilheyrandi raski og tíð sjávarflóð og landbrot. Rarmsókn verslunarstaða á Islandi er skammt á veg komin. Ekki er t.d. vitað hvort nokkum tíman var bú- seta allt árið á þeim elstu eða hvort þar fór fram iðnaður, eins og í ljós hefur komið við rannsókmr annars- staðar á Norðurlöndum. Mikils þyk- ir um vert að kanna kaupstaði í von um að fá vísbendingar um inn- og útflutning. A sumum tímabilum á fyrri hluta 13. aldar virðast skip hafa komið árlega í Hvítá og þar var ósjaldan fjöldi fólks. Sumir sátu langtímum saman og biðu utanferð- ar. Um haustið 1182 fór t.d. Norð- lendingurinn Ingimundur prestur Þorgeirsson til skips í Hvítá að kaupa vaming til sölu og ávaxtar, svo að dæmi sé teldð. I Þórðar sögu hreðu, ffá 14. öld, segir ffá mönnum sem fóm að norðan og riðu „þar til er þeir koma á Hvítárvöllu; þá var kaupstefna sem mest. Þeir ... gengu um búðir. Þeir komu í búð þess manns er Þórir auðgi hét....“ Þessi frásögn er vafalaust skáldskapur en á sér væntanlega þá stoð í raunveru- leikanum að við Hvítá vom líflegar kaupstefnur. Snorri Sturluson var mestu höfð- ingi í Borgarfirði á bilinu ffá um 1206 til 1241. í Reykholtsverkefni svonefndu, sem er þverfaglegt verk- efhi, er mest áhersla lögð á að kanna Reykholt á tfmabili Snorra; búskap, húsakynni, lífshætti og breytingar á umhverfi auk miðstöðvarhlutverks Reykholts og bókmenntasköptmar þar á bæ. Snorri var voldugur og hóf sig yfir allan þorrann með glæsilegri lífsháttum en almennt tíðkuðust. Hann hélt t.d. jólaboð að norskum sið og ætla má að árleg sigling hafi verið honum mikilvæg. Er off getið skipa í Hvítá í tíð Snorra og er ætl- andi að þangað hafi skipakomur þá verið alltíðar. Löngum var tahð að kaupstaður- inn við Hvítá hefði verið að sunnan- verðu, þar sem stendur býlið Hvítár- vellir og var þar bent á búðaleifar sem nú em allóljósar. Arið 1887 var greint ffá fimm gamallegum búðum fyrir norðan bæinn Hvítárvelli og þar er ömefhið Búðarhöfði. Núna má greina tvær tóttir, 8x6m og 7,5x6m að utanmáli. Vísbendingar era um legu skipa og búðir fyrir handan á, að vestan. Norðlendingar dvöldust þar undir Þjóðólfsholti í búð og biðu skips árið 1219. Mætti ætla að búðin hefði staðið tmdir holtinu þar sem er Ferjukot ef ekki kæmi ffam í heimildum að skip hafi legið við Seleyri. Hún er fyrir ofan Þjóðólfsholt, teygir sig út í Norðurá þar sem áður nefhdist Flói þegar ámar runnu saman fitlu ofar, Hvítá að hluta og Norðurá. Má ímynda sér að verið hafi heppileg lega haf- skipum hjá eyrinni. Um Flóa segir í Fóstbræðrasögu, „Skip stóð uppi í Norðurá í Flóa, þar var þá skipa höfh tíð.“ Þetta bendir allt til að kaupstaðarins sé að leita vestan Hvítár, nálægt Seleyri og Þjóðólfs- holti, en þar er fátt að sjá á yfirborði sem bendir til kaupstaðar. Hjá Sel- eyri má þó sjá tvær lágir í bakka sem munu vera manngerðar og er helst ætlandi að þar hafi nokkuð stór skip, hafskip, verið dregin á land. Þetta þyrftí að kanna betur og hugsanlega em þessar lágir ótengdar skipum. Nauðsynlegt er að kanna svæðin bemr sunnan og vestan ár. Búðar- höfði bendir ekki lengur tíl neinna búða en forvitnilegt væri að kanna hann nánar, eins umræddar tóffir Leitin að kaupstaðnum við Hvítár er kostuð af Snorrastofu í Reykholti. Hér er Tim Horsley, fomleifafrceðingur frá háskólanum í Bradford á bökkum Hvítár með jarðsegul- mœli sem hann notar við að greina rústir mannvirkja. Einnig beitir hann jarðviðnáms- mælingum við leit sína. Umhveifi og útivist - 5. grein Af „vörgumu Á ýmsu gengur í sambúð manns og náttúm. Hún getur orðið brös- ótt þegar maðurinn reynir að gera sér náttúmna undirgefha og laga hana til eftír sínum geðþótta. Sumt í fari hennar er honum þóknanlegt, annað andstyggilegt. Þannig hatast hann við svokallaða varga, en þeir era margir og margvíslegir. Al- ræmdastir munu vera refur og minkur, svartbakur og hrafh, að ég nefni ekki árans örninn. Til em þeir sem fella sig ekki við þetta orð, vargur. Eg man t.d. ekki betur en Páll Hersteinsson líffræð- ingur væri ófus að nota það þegar hann var gerður að veiðistjóra um árið. Hann talaði fremur um vandamáladýr. Það em þá trúlega dýr sem skapa mönnum vandamál. Satt best að segja held ég að það séu ekki dýrin sjálf sem em orsök vandans, heldur athafnir mann- anna sjálfra í lífríkinu. Tökum t.d. svartbakinn, veiði- bjölluna, þennan stóra og fallega fugl. Hann er sagður vargur í æð- arvörpum. En þar hef ég komið í varplönd fugla sem maður hafði engin afskipti af þessum tegund- um; æður og svartbakur urpu þar~ hvað innan um annað, og ekki ann- að að sjá en þessar tegundir kæmust vel af. Það er ræktun mannsins sem veldur vandanum, því að æðarvarp er ekki annað en rækmn hans á einni tegund, en aðrar verða þá óvelkomnar og verða að víkja. Og vel að merkja: Æðarfugl getur líka undir sérstök- um ræktunarkringumstæðum orð- ið vandamáladýr (vargur)! Það munu þeir kannast við sem fengist hafa við kræklingarækt. Vera má að menn átti sig betur á viðfangsefninu ef dæminu er snúið upp á jurtaríkið og garðaræktina. Engum er líklega illa við arfa villt- an útí í náttúranni. En í matjurta- garðinum er hann orðinn vanda- málajurt; heitír reyndar ekki varg- ur, heldur illgresi. Gömul skil- greining á illgresi er jurt á skökk- um stað. Krossfífillinn í garðinum mínum er ágætt dæmi um slíka jurt. í villtri náttúm ber ekkert á honum, í harðri samkeppni við margar aðrar plönmr, en í garðin- um mínun er hann hreinasta plága. Ætli það sé mjög fjarri lagi að skilgreina vandamáladýr sem dýr á skökkum stað. Á þetta vil ég leggja áherslu: Eft- ir mínum skilningi era það ekki einstakar tegundir dýra eða plantna sem em vandamál í lífríkinu. Það era inngrip mannsins í náttúruna sem skapa vandamálin, gera dýr að „vörgum“ eða jurtir að illgresi. En úr því að maðurinn er að fást við að rækta þá er eðlilegt er að hann reyni að verja ræktun sína, t.d. með því að halda vandamáladýram utan hennar með skikkanlegum ráðum, en hann á engan rétt á að eyða eða útrýma þeim tegundum sem hann hefur sjálfur gert að vandamáli. Ein þessara dýrategunda er minkur. Auðvitað væri mér ekkert vel við að fá mink í varpeyna litlu sem mér hefhr verið falið að hafa umsjón með, og ég mundi gera ráðstafanir til að aflífa þann einstakling sem þangað rataði. En ég get með engu móti skilið þann hatursáróður sem hafður hefur verið uppi gegn þessu fallega dýri, sem reyndar er komið í íslenska náttúra fyrir vanvisku og vangá manna. Minkur er fýrir löngu orðinn eðlilegur þátttakandi í lífríki landsins, og náttúran hefur aðlagast honum. Hann hefur sann- að hæfhi sína tíl að komast af við fjölbreytilegar aðstæður. Höfum við einhvem rétt til að hatast við hann? Maðurinn á ekki náttúruna. Loft, vatn, villt dýr og plöntur, ekkert af þessu eigum við. Við eig- um einungis aðgang að þessu, rétt eins og aðrar tegundir. En er ekki ábyrgð okkar meiri en þeirra? Og af því að ég hef leyft mér að tæpa á orðinu vargur: Hver skyldi hafa verið mestur vargurinn í lífríki landsins okkar í aldanna rás? Finnur Torft Hjörleifsson. tvær og fleiri staði stmnan ár. E.t.v. er h'til von að ætla sér að firma búða- leifar eða önnur ummerki gamals kaupstaðar við Ferjukot en mættí þó athuga nánar. Svæðið við Seleyri er afar forvitnilegt og þyrftí að kanna lágimar nánar, svo og allt svæðið við ofanvert Þjóðólfsholt. Fyrsta skrefið í þessum rannsókn- um er að fara með jarðsjármælitæki yfir þau svæði sem líklegast þykir að hafi að geyma leifar af versltmar- staðnum. Nokkur reynsla er komin á það að nota jarðeðlisfræðilegar mæl- ingar til þess að staðsetja og kort- leggja fomleifastaði hér á landi og er áformað að fá Tim Horsley, sem einna mesta reynslu hefur af því, til þess að taka að sér verkið . Næsta skref væri síðan að gera prafuskurði á þeim stöðum sem jarðsjármæling- arnar benda helst tíl að hafi að geyma byggðaleifar. Fomleifarannsóknir standa nú yfir á verslunarstaðnum Gásum í Eyja- firði, eins og fyrr segir, og einnig á Kolkuósi í Skagafirði. Staðseming og rannsókn hins mikilvæga verslun- arstaðar við Hvítá í Borgarfirði einmitt núna yrði veruleg viðbót við umræðu um verslunarsögu Islands á miðöldum. Byggt á gögnum Reykholtsverkefhisins. Nýr verkstjóri hjá Grundarfjarðarbæ Nýverið var ráðinn nýr verkstjóri hjá Grundarfjarðarbæ og heitir hann Jónas Pétur Bjamason, en fimm umsækjendur höfðu sóst eftir starfinu. Jónas er 44 ára, kvæntur, þriggja barna faðir og kemur frá Egilsstöð- um. Hann starfar nú við véla- og lagnavinnu hjá Bólholti ehf., Fella- bæ, en hefur áður unnið sambæri- leg störf hjá Áhaldahúsi Austur- Héraðs og Malarvinnslunni hf. Hann er vanur tækjastjórnandi og hefur mikla reynslu af verklegum framkvæmdum. Jónas stundaði m. a. nám við Iðnskólann í Nes- kaupstað og hefur nýlega lokið starfsnámi í jarðlagnatækni o.fl. Hann kemur til með að hefja störf hjá Grundarfjarðarbæ þann 15. júní n. k., en þar til mtm Eyþór Garðars- son gegna starfi í afleysingum, en hann hefur jafnffamt leyst af á hafnarvigtinni. Geirfinnur Þór- hallsson sem gegndi starfi verk- stjóra áhaldahússins síðastliðinn 5 ár lét af störfum nú um mánaða- mótin, hefur hafið störf hjá Vega- gerðinni í Olafsvík. FRF Ljóð og hljóð í Borgameskirkju Laugardaginn 7. maí nk. verða sungin ljóðalög og flutt raftónlist í Borgarneskirkju. Kallast tónleik- arnir Ljóð og hljóð. Þeir voru áður fluttir á Kirkjubæjarklaustri um páskahelgina. Höfundur tónlistar- innar er Guðmundur Oli Sigur- geirsson og hefur hann samið hana við ljóð eftír Finn Torfa Hjörleifs- son. Söngkonurnar Anna Þ. Hafberg og Oddný Sigurðardóttir, báðar messósópran, ásamt Gunnari P. Sigmarssyni baryton flytja laga- flokkinn Einferli, saminn við 25 ljóð í samnefndri ljóðabók. Flest lögin í flokknum era einsöngslög, en fáein fyrir dúett. Söngkonumar syngja einnig þrjá örstutta dúetta við önnur ljóð í sömu ljóðabók. Undirleikari á píanó og selló verð- ur Brian Haroldsson. Einnig verða flutt rafverk eftir Guðmund Ola sem hann hefur samið við nokkur ljóð í ljóðabókinni Dalvísum eftír Finn Torfa. Tónleikarnir hefjast kl. 16:00. ('fréttatilkynning) Þar sem ffamhaldsskólanemendur era nú að hefja vorpróf örkuðum við út í Fjölbrautaskóla á Akranesi og völdum þar eitt fórnarlamb til viðtals í Skráargatið. Fullt nafn: Eva Eiríksdóttir. Starf: Afgreiðslustúlka í Bíóhöllinni á Akranesi og netni í FVA. Fceðingardagur og ár: 9. febrúar 1988. Fjölskylduhagir: Ein. Hvemig bíl áttu? A ekki bíl. Uppáhalds matur? Nautalundir eins og Eva Eiríksdóttir. pabbi eldarþar. Uppáhalds drykkur? Vatn. Uppáhalds sjónvarpsefni? Sápur eins og Will og Grace og Malcom in the middle. Uppáhalds sjónvarpsmaður? Enginn sem ég man ejiir. Uppáhalds innlendur leikari? Ingvar E. Sigurðsson, algjör snilld. Uppáhalds erlendur leikari? E-wan McGregor. Besta híómyndin? A life less ordinary með Evian McGregor og Cameron Dias. Uppáhalds íþróttamaður? Amór Smára fótboltagaur sem er að slá í gegn er- lendis. Uppáhalds íþróttafélag? IA - auðvitað Uppáhalds stjámmálamaður? Enginn spes. Uppáhalds innlendur tónlistarmaður? Bara allir í Brain Police ogjagúar :o) Uppáhalds erlendur tónlistarmaður? Skin í Skunk Anansie. Uppáhalds rithöfundur? Hallgrímur Helgason og Douglas Adams. Ertu fylgjandi eða andvíg ríkisst/óminni? Andvtg. Hvað meturðu mest ífari annarra? Heiðarleika og góðmennsku. Hvaðfer mest í taugamar á þér ífari annarra? Oheiðarleiki og stœlar. Hver erþinn helsti kostur? Bara hress og sketnmtileg Hver erþinn helsti ókostur? Óákveðin. Hvemig leggjast prófin íþig? Bara mjóg vel, takkfyrír. Eitthvað að lokum? Bara takkfyrir mig og bið að heilsa.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.