Skessuhorn - 04.05.2005, Qupperneq 14
14
MIÐVIKUDAGUR 4. MAI 2005
^atísunu^i
Ullarsel í óvissuferð
Aðstandendur Ullarselsins á
Hvanneyri héldu upp í óvissuferð
um Suðurland á sumardaginn fyrsta.
SkipuleggjendmTdr voru þær Krist-
ín Gunnarsdóttir og Ingibjörg Jón-
asdóttir. Lagt var snemma af stað frá
Hvanneyri og ekkert látið uppi
hvert skyldi haldið en ekið sem leið
lá að Hveragerði með uppprisu og
kaffistoppi í Hveradölum. Haldið
var að Reykjum í Olfusi á opinn dag
Garðyrkjuskólans. Þar var stoppað
og skoðuð sýning nemenda sem
byggð var upp með tilvísanir í kvík-
myndina „Fjögur brúðkaup og jarð-
arför.“ Áffam var haldið að Sól-
heimum í Grímsnesi og Htið við á
kaffihúsinu og verslunixmi Völu og
skoðuð vinna heimamanna. Þá var
ekið að Þingborg, vörurnar skoðað-
ar, þegið kaffi og verslað lítilræði.
Þegar búið var að kynna sér ffam-
leiðslu á Suðurlandi var haldið á
Stokkseyri í Fjöruborðið og snædd-
ur ljúffengur kvöldverður að hætti
hússins. ES
Meðfylgjandi mynd er tekin þegar Friðjón Guðmundsstm var að valta komakur í Kata-
nesi. Stóriðjusvieðið á Grundartanga er í baksýn.
Ræktunarsamband
kaupir flagvalta
Búnaðarfélag Hvalfjarðar á og
rekur félagið Ræktunarsamband
Hvalfjarðar. Ræktunarsambandið
hefur haft að meginverkefiú að eiga
og gera út ýmis tæki til jarðræktar.
Árið 1997 tók það þátt í stofhun
hlutafélags um tæki til komræktar
sem hlaut nafnið Búhöldur og á
Ræktunarsambandið 20% hlut í Bú-
höldi. Nýverið keypti Ræktunar-
sambandið nýjan flagvalti sem alls
hefur rúmlega 6 metra vinnslu-
breidd. Miðað við þá aukningu sem
er að verða í komrækt á svæðinu
þótti rétt að athuga með kaup á slíku
tæki. Almennur áhugi reyndist vera
til staðar og fór valtinn í sína fyrstu
útleigu á Bakka á Kjalamesi og lík-
aði að sögn vel. Utlit er fyrir að sáð
verði komi í um 200 ha. á félags-
svæði búnaðarfélagsins í vor.
MM
Sumarhátíð á Hvanneyri
Hvanneyringar kvöddu
vetur og fögnuðu sumri
síðasta vetrardag með
mikilli grillveislu í gömlu
fjárhúsunum á Hvanneyri.
Það vom Skólafélag og
starfsmannafélag Land-
búnaðarháskólans sem
stóðu fyrir hátíðarhöldun-
um og var öllum Hvann-
eyringum boðið til veisl-
unnar. Utivistarklúbbur
skólans sá um leiki fyrir
börnin og Ingimar gleði-
gjafi spilaði á harmonikk-
GJf Brugðið á leik á sumarhátíðinni á Hvanneyri. Ljósm: Guðrún Bjamadóttir.
Sveitarómantík og
kleinubakstur
„Sumarið verður sneisa-
fullt af viðburðum á Safina-
svæðinu að Görðum," segir
Jón Allansson, forstöðu-
maður Byggðasafnsins á
Görðum í stuttu spjalli við
Skesstihorn. Hann segir að í
ár muni kenna ýmissa grasa
og farið verði þriðja árið í
röð af stað með svokallaða
Viðburðaveislu. „Meðal þess
sem boðið verður uppá hjá
okkur er sjávardagur sem
haldinn er í tilefni sjó-
mannadagsins. Við endur-
tökum Kleinumeistaramót
Islands og skomm hér með á
hresst steikingarfólk að fara
að æfa sig fyrir keppnina.
Seinnipart sumars verður
m.a. markaðstorg, félagar í
Fombílaklúbbnum koma í
heimsókn og sveitaróman-
tíkin verður í algleymingi í
haust þegar störf til sveita
verða kynnt.“
PK
Jón Allansson, forstöðumaður Byggðasafns Akra-
ness og nœrsveita.
v \ ™
•i
'4P
Þetta verk ber titilinn Vinir og er
samstarfsverkefni bamanna á Völlum.
160 lista-
mcnn sýna í
Kirkjuhvoli
Á laugardaginn var opnaði all-
sérstæð Hstsýning í Listasetrinu
KirkjuhvoH þar sem 160 Hsta-
menn af leikskólanum VallarseH
sýna yfir 300 verk. Myndimar
sem almenningi gefst nú kostur á
að skoða era úrval úr starfi vetr-
arins, en á VaUarseH er starffækt
listsmiðja sem börn á öllum
deildum vinna í til skiptis. Sýn-
ingin stendur til 8. maí en þann
11. maí opnar ný sýning þar sem
verk Hstamanna af TeigaseH og
Garðaseli verða til sýnis. ALS
Fyrst var gengið í hús með bauka og síðan á nýjan leik og safnað flöskum. Allt til hjálpar
bamastarfi ABC.
Krakkamir í 6. bekk í Grunn-
skólanum í Búðardal gengu um
þorpið í sl. viku með söfnunar-
bauka til að safiia fyrir hjálparstarfi
ABC. Þegar þau höfðu safnað
fannst þeim ekki nóg komið og
fóra annan hring um þorpið og
söfnuðu flöskum sem þau seldu og
lögðu í sjóðinn. AHs söfnuðu þau
rúmlega 30.000 krónum. sem eiga
örugglega efdr að koma í góðar
þarfir. Til viðmiðunar benda
krakkarnir á að skólaganga f einka-
skóla, með mat og læknishjálp,
kostar 1.950 krónur á mánuði fyrir
bam í Uganda.
Sjök
Hugmyndaríkir krakkar
Fótaliprir nemendur
Áhorfendur fylltu sal Brekku-
bæjarskóla þegar haldnar vora ár-
legar danssýningar nemanda skól-
ans þann 28. apríl sl. Jóhanna
Árnadóttir, danskennari hefur
greinilega náð að kveikja áhuga
barnanna á dansinum því þau vora
einbeitt og lögðu sig öll fram.
Nemendur 1. til 6. bekkjadeilda
sýndu affakstur vetrarkennltmnar
með glæsibrag og er óhætt að segja
að fjölbreytnin hafi verið í fyrir-
rúmi, dansaðir vom barnadansar,
gömlu dansarnir, diskódansar,
línudans auk þess sem flutt vora
atriði úr söngleiknum Greese og í
lokin sýndu tvær stúlkur úr 9. bekk
Freestyledans.
j