Skessuhorn - 04.05.2005, Page 16
Nútt og öflugt
verkfæri til íbúðakaupa
íbúðalán.is
www.ibudaian.is
PÓSTURINN
Borgnesingur fyrsti Evrópumeistarinn?
Borgnesingurinn Sigurbjörn
Ingi Guðmundsson er á leið til
Brasov í Rúmeníu í dag þar sem
hann mun keppa á Evrópumeist-
aramóti í fimess karla. Þetta er í
fyrsta skipti sem Sigurbjöm keppir
á erlendu móti en hann hefur
tvisvar sinnum hampað Islands-
meistaratitli í greininni og einu
sinni orðið bikarmeistari. „Þetta er
Evrópumeistaramót í bæði vaxtar-
rækt og fitness karla,“ segir Sigur-
björn. „Flokkurinn sem ég keppi í
heitir formfimess eða „body fit-
ness“. Þetta er nýr flokkur og því
verður þetta í fyrsta skipti sem ein-
hver hlýtur Evrópumeistaratitil í
formfimess karla. Munurinn liggur
í því að þar gildir eingöngu svo-
kallaður samanburður. Ekki er
keppt í hindranabraut, upptogi og
dýfum eins og þekkist hér. Erlend-
is þekkist það heldur ekki. Þar er
yfirleitt keppt í þolfimilotu auk
samanburðarins í stað þrautanna,“
segir Sigurbjörn.
Vigtaðir á föstudags-
kvöldi
Mótið fer ffam um helgina en
Sigurbjöms bíður langt ferðalag.
„Við Kristján Samúelsson, sem
einnig keppir á mótinu, leggjum af
stað til Kaupmannahafnar á
fimmtudagsmorgun. Þaðan liggur
leiðin í gegnum Amsterdam og svo
til Búkarest. Svo föram við til
Brasov með lest.“ Þeir félagar
þurfa að vera komnir til Brasov
fyrir fösmdagskvöldið því þá verða
þeir vigtaðir. „Núna era þyngdar-
takmarkanir á móti sem þessu í
fyrsta skipti,“ segir Sigurbjörn.
„Meginreglan er sú að þyngd
keppenda má vera því sem nemur
hæð þeirra í sentimetrum mínus
100 kg. Svo era skekkjumörk upp á
4-6 kg sem era misjöfn efrir hæð.
Eg má t.a.m. í mesta lagi vera 79
kg. Þetta er gert til þess að spoma
við því að vöðvamassi keppenda sé
of niikill."
Æfir 12-15
sinnum í viku
Sigurbjörn keppti á Islands-
meistaramótinu í fimess nú um
páskana og hefur því í raun æft
mjög stíft nánast frá áramótum.
„Eg tók mér um vikuhlé í matar-
æðinu strax efrir páska en byrjaði
svo aftur af krafri. Kröfurnar era
einfaldlega meiri þarna úti og þeir
leggja mikið upp úr því að kepp-
endur séu mikið skornir. Eg þurfri
því að halda áfram að skera effir ís-
landsmótið þótt ekki væri af miklu
að taka.“ Hann viðurkennir að
undirbúningurinn taki á. „Eg reyni
bara að hafa matinn sæmilega
bragðgóðan þannig að það sé ekki
algjört helvíti að standa í þessu.
hefur verið draumur hjá mér mjög
lengi og að ná því takmarki er nóg
fyrir mig í bih. Samkeppnin er
hörð á mótinu. Aðeins 15 fá að
halda áfram eftir fyrsm umferð og
seinni daginn verða bara fimm
keppendur eftir.“
Sigurbjörn segir þó að mikil
reynsla muni koma honum til
góða. „Þetta er mitt áttunda fit-
nessmót og af þeim sjö sem ég hef
keppt í hingað til hef ég komist á
pall fimm sinnum. Eg var bara ekki
alveg búinn að ná taktinum þarna í
fyrstu tvö skiptin,“ segir hann og
hlær. „Þetta er náttúralega bara
spuming um að halda þessu áffam
og ná verðlaunasæti þarna útd.“
MM
Þetta varð enn erfið-
ara eftir að maðnr fór
að finna grilllyktina
hérna í hverfinu,“ seg-
ir hann og hlær. „Svo
reynir maður bara að
gíra sig upp á hverri
einustu æfingu. Það
getur verið erfitt þeg-
ar þær era orðnar 12-
15 á viku.“
Borgarbyggð
sér um sína
Því fylgir mikill
kosmaður að taka þátt
á móti sem þessu en
Sigurbjörn á góða að. „Það er eng-
in fimessdeild innan ISI og þess
vegna hef ég þurft að treysta á að-
stoð annarra. Eg hef fengið góðan
smðrúng ffá Borgarbyggð og bæði
Límtré-Vímet og Sparisjóðnum.
Auk þess fékk ég styrk úr minning-
arsjóði Auðtrns Kristmarssonar. Eg
vil nýta tækifærið og þakka þessum
aðilum kærlega fyrir aðstoðina."
Aðspurður um væntingar um ár-
angur á mótinu segist Sigurbjöm
renna nokkuð blint í sjóinn. „Það
má reikna með því að í mínum
flokki verði 20-40 keppendur en ég
hef engar staðfestar tölur fengið.
Sjálfur hef ég aldrei verið í betra
formi en hef ekki sett mér neitt
takmark. Það að komast á stórmót
A/\A/\AJ
v VV Vv
Atvinnuvega-
sýning
í Borgarfirði
I samvinnu við sveitarfélögin í Borg-
arfirði hafa Heimamenn sf., fyrirtæki
Gísla Einarssonar og Bjarka Þorsteins-
sonar, tekið að sér undirbúning at-
vinnuvegasýningar sem fram fer í hér-
aðinu laugardaginn 21. maí nk. Ætlun-
in er að sýningin verði tvískipt: Annars-
vegar í fyrirtækjunum sjálfum, fyrir þau
fyrirtækis sem það vilja og hinsvegar í
og við Iþróttamiðstöðina í Borgarnesi
fyrir þá sem ekki hafa aðstöðu til að
taka á móti gestum í sínum húsakynn-
um. Einnig kann það að vera góður
kostur fyrir fyrirtæki upp um hérað að
nýta sér aðstöðuna í íþróttamiðstöð-
inni. I íþróttahúsinu verður ennfremur
boðið upp á dagskrá hluta af deginum,
s.s. tónlistaratriði, tískusýningar ofl.
„Markmiðið með sýningunni er að
kynna fjölbreytni í borgfirsku atvinnu-
lífi og yfirhöfuð allt sem borgfirsk fyr-
irtæki hafa upp á að bjóða. Ætlunin er
að brjótast aðeins út úr því hefðbundna
sýningarformi sem almennt er notað,
þ.e. fullt af litlum og stöðluðum básum.
Við teljum að með því að bjóða gestum
að hluta til inn í fyrirtækin sjálf til að sjá
hvernig hlutirnir verða til getum við
náð enn frekari athygli en með hinu
hefðbundna formi,“ sögðu þeir félagar
Gísli og Bjarki í samtali við Skessu-
horn. MM
Akraneskaupstaður
ÚTBOÐ
Akraneskaupstaður óskar efltir tilboðum í verkið „Leiksvæði við
Steinsstaðaflöt og Smáraflöt"
Verkið felst í að setja upp girðingar, leiktæki, helluleggja, leggja fallundirlag
við leiktæki og fylla svæði með jarðvegi en yfirborðið verður gras.
Helstu magntölur eru:
Gröftur...................34 m3
Moldarfylling.............90 m3
Hellulögn.................32 m2
Grassvæði................230 m2
Gúmmímottur...............53 m2
Grúsarfylling.............21 m3
Stálgirðing...............167 m
Uppsetning leiktækja........2 stk.
Malarsvæði......................70 m2
Stórgrýti ..................3 stk.
Útboðsgögn verða til sölu frá og með 6. maí n.k. á skrifstofu tækni- og
I umhverfissviðs að Dalbraut 8 á Akranesi. Verð 1000 kr.
| Tilboð verða opnuð á sama stað 17. maí n.k. kl. 11.00 að viðstöddum þeim
i bjóðendum sem þess óska.
Sviðsstjóri tœkni- og umhverfissviðs
á
Akraneskaupstaður
VEGAGERÐIN
Reykjavíkur
ÚTBOÐ
Akraneskaupstaður í samstarfi við Vegagerðina og Orkuveitu Reykjavíkur
óskar eftir tilboðum í verkið "Innnesvegur — hringtorg".
Verkið felst m.a. í uppbroti á eldra slitlagi steyptra gama, jarðvegsskiptum,
malbikim hringtorgs, götutenginga og gangstíga, gerð gangstétta og kantsteins,
tilfærslu strengja og ljósastaura, endurgerð frárennslislagna og niðurfalla og
frágangi opinna svæða.
Helstu magntölur eru:
Uppgröftur .........9.340 m3
Malbik.................5.500 m2
Vatnslagnir 0225......120m
Þökulagnir .........1.250 m2
Fylling...............10.600 m3
Frárennslislagnir..............380 m
Kantsteinn.....................500 m
ídráttarrör.....................60 m
Útboðsgögn verða til sölu frá og með 9. maí n.k. á skrifstofu tækni- og
umhverfissviðs að Dalbraut 8 á Akranesi.Verð kr. 5.000,- .
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 24. maí n.k. kl. 11:00 að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Sviðsstjóri tœkni- og umhverfissviðs