Skessuhorn - 01.02.2006, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006
SSESSlMÖERi
Fjölmennt námskeið ungra
firumkvöðla úr Borgarfirði
Um síðustu helgi var haldið
námskeið fyrir unga frumkvöðla
á Varmalandi, en þetta námskeið
er hluti af Evrópuverkefni sem
Island tekur þátt í auk Noregs,
Svíþjóðar, Skotlands, Grænlands
og Rússlands. Verkefnið er
styrkt af Norðurslóðaáætlun
Evrópusambandsins, en auk
þess kemur Byggðastolhun að
þessu verkefni. Impra - nýsköp-
unarmiðstöð leiðir verkefuið hér
á landi, en auk Impru tekur
SSV- atvinnuþróun og ráðgjöf á
Vesturlandi þátt í verkefhinu
auk annarra atvinnuþróunarfé-
Iaga á landinu. A síðasta ári voru
haldin tvö námskeið á Vestur-
Iandi fyrir unga frumkvöðla,
annars vegar í Laugagerðisskóla
og hins vegar í Dölunum.
Námskeiðið á Varmalandi var
kynnt fyrir nemendum í 9. og 10.
bekkjum í þremur skólum í Borg-
arfirði, þ.e. í Grunnskólanum í
Borgarnesi, Varmalandsskóla og
Kleppjárnsreykjaskóla. Alls mættu
28 nemendur úr þessum skólum og
er námskeiðið á Varmalandi lang
fjölmennasta námskeiðið fyrir
unga frumkvöðla sem haldið hefúr
verið hér á landi. G. Agúst Péturs-
son, stjórnarformaður Frum-
kvöðlafræðslunnar var leiðbein-
andi á þessu námskeiði sem byrjaði
um miðjan dag á föstudag og stóð
fram á miðjan dag á sunnudag og
gistu krakkarnir á Varmalandi og
voru þar í fullu fæði á meðan á
námskeiðinu stóð.
Styrkir einstaklinginn
Markmiðið með námskeiði sem
þessu er að efla frumkvöðlakraft-
inn hjá ungmennum, skerpa sýn
þeirra á tækifærin sem eru í um-
hverfi þeirra, laða fram hjá þeim
Hópurinn ásamt leiðbeinendum stnum á Varmalandi, þeim G. Agústi Péturssyni og Ingu Dóru Halldársdóttur.
frumkvæði og
hvetja þau til að
setja sér skýr
framtíðarmark-
mið. Það er því
fyrst og fremst
tilgangurinn að
styrkja einstak-
linginn og efla
með honum trú á
eigin mátt og
megin.
„Ohætt er að
segja að vel hafi
til tekist. Nám-
skeiðið hófst
með kynningu á
því hvað frum-
kvöðlar eru og
hvað þeir gera og
hvaða leiðir eru
færar til að koma
auga á viðskipta-
tækifæri í um-
hverfinu. I byrj-
un námskeiðs var
krökkunum skipt
niður í níu hópa
og vann hver hópur sína viðskipta-
hugmynd. Farið var í þætti eins og
markaðs- og sölumál, þar sem
hóparnir þurftu m.a. að vinna
heimasíðu og bæklinga og ekki síst
að vinna að kynningu á verkefninu.
Fjármálin voru einnig tekin fyrir
og farið m.a. í þætti eins og hvað er
stofnkostnaður, rekstraráætlun og
rekstrarreikningur," sagði Inga
Dóra Halldórsdóttir, sem tmdirbjó
námskeiðið og starfaði með Agústi
við stjórnun þess sl. helgi.
Námskeiðinu lauk síðan með því
að hver hópur kynnti sína við-
skiptahugmynd fyrir foreldra- og
dómnefnd sem skipuð var þeim
Þorvaldi T. Jónssyni, rekstrarfræð-
ingi ffá Landbúnaðarháskóla Is-
lands, Valdimari Sigurjónssyni frá
Viðskiptaháskólanum á Bifröst,
Hrefnu B. Jónsdóttur fulltrúa frá
SSV-þróun og ráðgjöf og Páli S.
Brynjarssyni bæjarstjóra í Borgar-
byggð. Veitt voru peningaverðlaun
fyrir þrjú efstu sætin.
Hundahótels-
hugmynd vann
Eggert Orn Sigurðsson, Rakel
Erna Skarphéðinsdóttir, Sigurður
Þórarinsson og Valdís Hrönn Sig-
marsdóttir skipuðu hópinn sem
hlaut fyrsta sætið. Þau voru með
hugmynd að fyrirtækinu Hvutta-
koti - hundahóteli í Borgarfirði.
Markhópurinn var hundaeigendur
um land allt sem að einhverjum
ástæðum geta ekki tekið hundinn
með sér og þurfa að koma honum í
gæslu á meðan að þeir eru fjarver-
andi. Hugmyndin var að hundur-
inn gæti fengið bað og snyrtingu á
meðan á dvöl stæði, leikið sér á
stóru leiksvæði og hundaeigendum
stæði einnig til boða að kaupa
hlýðninámskeið fyrir hundinn.
I öðru sæti varð hugmynd að
fyrirtækinu Aski sem selur fjöl-
breyttan íslenskum mat inn í
Surtshelli í Hallmundarhrauni.
Matur er borinn fram í gamaldags
öskum og boðið er upp á þjóðlega
drykki, en auk þess er reynt að hafa
stemninguna eins forn íslenska og
hægt er. Það voru þær Asta Þor-
steinsdóttir, Elsa Þorbjarnardóttir,
Ingunn Grétarsdóttir og Þorgerð-
ur Olafsdóttir úr Varmalandsskóla
sem unnu þessa viðskiptahug-
mynd.
I þriðja sæti urðu þeir Eiríkur
Agúst Brynjarsson, Eiríkur Þór
Theodórsson og Guðmundur Þor-
valds Einarsson með hugmynd að
fyrirtækinu Off - Road ehf., stað-
sett að Borgum í Norðurárdal þar
sem fólki á öllum aldri gefst kostur
á að leigja sér farartæki og spreyta
sig í þremur miserfiðum torfæru-
brautum.
„Nemendur tóku hlutverk sitt
alvarlega á námskeiðinu og lögðu
sig allir fram og voru námsfúsir,“
sagði Inga Dóra.
MM
Vildum læra um markaðsmál
Blaðakonumar Asta og Elsa.
Á námskeiðinu voru m.a. tvær
ungar stúlkur sem fulltrúar
skólablaðsins á Varmalandi, en
ritstjóra Skessuhoms fannst til-
valið að gefa þeim tækifæri á að
spreyta sig og birta viðtal við
samnemendur sína í Skessu-
homi. Viðtal þeirra Astu Þor-
steinsdóttur og EIsu Þorbjam-
ardóttur, blaðamanna við Onnu
Maríu Aradóttur og Andra Þór-
hallsson birtist hér:
Við tókum tvo nemendur tali og
spurðum þá hvað þeim fyndist um
við unnum hugmynd
um að kynna umhverfi
Varmalands með því að
hafa skipulagðar
gönguferðir með leið-
sögn um svæðið,“ sagði
Maja. Henni finnst
þetta raunhæf við-
skiptahugmynd og seg-
ir þetta gott fyrir þá
túrista sem hafa lítið að
gera á Varmalandi.
Maja segist ekki hafa
áhuga á því
að vinna
sem leið-
sögumaður
en hvetur
alla til að
námskeiðið. Anna María Aradóttir,
betur þekkt sem Maja, er í 10. bekk
í Grunnskólanum í Borgarnesi.
Hún ákvað að koma á námskeiðið
til að læra um markaðssetningu og
viðskipti. Henni hefur fundist
gaman en bjóst samt við því að það
yrði minni vinna en raun bar vitni.
Það sem henni fannst standa upp
úr var hvað allir unnu vel saman.
Hún segist örugglega eiga eftir að
nýta sér þessa kunnáttu mikið í
framtíðinni og hvetur sem flesta til
að skella sér á námskeiðið. „Eg var
með Natalíu og Möggu í hópi og
nýta ser
þessa þjón-
ustu á
Varmalandi.
Andri Þórhallsson er
í 10. bekk í Varma-
landsskóla. Hann kom
á námskeiðið vegna
þess að hann langaði að
læra um markaðssem-
ingu. „Eg bjóst ekki við
að námskeiðið yrði
öðruvísi, en mér fannst
kostur hvað allir unnu
vel saman. Eg var með
ísak og Þórarni í hópi
og við unnum með
hugmynd um að stofna fyrirtæki
þar sem gerð eru upp gömul hús-
gögn. Við erum búnir að gera bæk-
ling, glærukynningu og heimasíðu
og erum að verða tilbúnir að kynna
hugmyndina okkar.“ Andri segist
vel geta hugsað mér að vinna við
húsgagnauppgerð í framtíðinni:
„Þetta er kjörið tækifæri fyrir ung-
linga sem vilja koma hugmyndum
sínum á framfæri. Aðstaðan á
Varmalandi er mjög góð og þetta
gæti ekki verið betra,“ segir Andri
og er ánægður með námskeiðið.
Hann segist hafa lært mikið á
þessu og mælir tvímælalaust með
því að sem flestir fari á frum-
kvöðlanámskeið.
Asta Þorsteinsdóttir og
Elsa Þorbjamardóttir
nemendur í 10. bekk í
Varmalandsskóla og
þátttakendur á námskeiðinu
Ungir frumkvóðlar.
WT
8 tD (t
WISHYOU
WEuE hERE
Maja ogAndri voru hæstánægð með frwnkvöílanámskeiðií.