Skessuhorn


Skessuhorn - 01.02.2006, Side 11

Skessuhorn - 01.02.2006, Side 11
„riMIW... MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006 11 VESTURLAND Á FLEYGIFERÐ - VESTURLAND Á FLEYGIFERÐ Fyrirtæld sitja ekld við sama borð við innflutning erlends vinnuafls Guðmundur Smári Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Guðmundar Runólfssonar hf. í Grundarfirði sagði í erindi sínu á ráðstefnu um framtíð Vesturlands að fyrirtæki sætu ekki við sama borð gagnvart eftirlitsstofnunum við innflutning erlends vinnuafls. I upphafi erindis síns ræddi hann um að fjölmargar ónýttar auðlindir væru f hafinu. I því sambandi nefndi hann að skera mætti hund- ruð þúsunda tonna af þangi og þara við Vesturland. I dag væri heimsafl- inn af þangi milli 8,5-10 milljónir tonna og af þeim afla væri yfir 90% ráðstafað til manneldis. Þá taldi hann að auka þyrfiri stórlega haf- rannsóknir og breyta einnig áhersl- um í rannsóknum. Sem dæmi nefridi hann að á síðasta ári hefði verðmæti landaðs flatfisks verið á sjötta milljarð króna eða meira en loðnuaflans og um 10% af verð- mæti sjávarafla landsmanna. Þrátt fyrir þessa staðreynd væru rann- sóknir á flatfiski ekki í neinu sam- ræmi við þau verðmæti sem hann skapar. Hann taldi nauðsynlegt að byggja upp rannsóknarsetur við sjávarsíðuna og að sjávarútvegurinn þyrfti að hafa afkomu til þess að greiða að einhverju leyti sjálfur fyr- ir uppbyggingu slíkra setra. Taka lán til að greiða skatta Guðmundur telur styrk íslensku krónunnar með ólíkindum en sjáv- arútvegurinn hefði aðlagað sig að henni sem sýndi best hver aðlögun- arhæfrii atvinnugreinarinnar væri. Það sæist best á því að tekjur grein- arinnar árið 2005 hefðu verið þær sömu og árið á undan. „Mikil og góð eftirspurn hefur verið á öllum helstu fisktegundum okkar og sala hefur haldist í sama takti og ffam- leiðsla, þannig að ekki hefur verið birðasöfnun og staðan í dag er þannig að ekki er hægt að anna eft- irspurn í fjölmörgum vöruflokk- um,“ sagði hann. „Megin þorri sjávarútvegsfyrir- tækjanna gerir árið 2005 upp með verulegum hagnaði. Hagnaði sem að stærstum hluta kemur ffá reikn- uðum tekjum af lækkun skulda í krónum. Dæmi hafa verið sett upp að skattgreiðslur geti verið hærri en fram- legð fyrirtækjanna af reglulegri starfsemi. Sem gæti þýtt að fyr- irtæki þurfi að taka lán til greiðslu tekju- skatts," sagði hann orðrétt. Of miklu ekið burt óunnu Guðmundur sagði sjávarútveg á Vestur- landi í vörn meðal annars vegna sam- dráttar í hörpudisk- og rækjuveiðum. Einnig hefði orð- ið samdráttur í lönduðum afla á svæðinu meðal annars vegna breytts eignarhalds á stærsta sjávar- útvegsfyrirtæki í landshlutanum. Þá sagði hann stóran hluta afla ekið burt frá Vesturlandi. Sem dæmi væri 70% landaðs þorksafla ekið burt til vinnslu, 75% af ýsuafla og 76% af ufsaafla en um 70% af karfaafla væri þó unninn á Vestur- landi. Hann sagði nálægð vinnslu- húsa á höfuðborgarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll off nefrida sem skýringu hvers vegna afla væri ekið þangað til vinnslu. Það væri ekki rétt skýring. Hennar væri að leyta í öðrum þáttum svo sem breytingum í vinnslunum sjálfum, fyrirtæki á Akranesi hefðu verið sameinuð, fólki hefði fækkað á Snæfellsnesi þar sem ýmsa grunninnviði hefði vantað í byggðina. Þá fullyrti Guð- mundur að fyrirtæki í fiskvinnslu á landsbyggðinni sætu ekki við sama borð hvað innflutningi erlends vinnuafls varðaði og fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu og á stóriðju- svæðunum. Þá nefndi hann að skortur væri á frumkvöðlum í greininni því unga fólkið kæmi ekki til baka að loknu námi. Einkafyrirtæki stöðugust Alls eru 17 fyrirtæki með leyfi til ferskfiskvinnslu, frystingar og sölt- unar á Vesturlandi en á landinu öllu eru fyrirtækin á þriðja hundrað talsins. A landinu öllu eru á þriðja himdrað sambærileg leyfi í gangi. Hefur fyrirtækjum nokkuð fækkað á Vesturlandi á undanförnum árum. Sagði Guðmundur að fyrirtæki með sameignarform og opin hluta- félög hefðu týnt tölunni en fyrir- tæki í einkaeign hefðu haldið sinni stöðu. Norðan stóriðju Þrátt fyrir ýmislegt mótlæti var Guðmundur bjartsýnn á framtíð sjávarútvegs á Vesturlandi. I því sambandi nefndi hann að fjölmarg- ir innviðir samfélaganna hefðu batnað á Hðnum arum meðal ann- ars væri stórfelld uppbygging í skólakerfinu og fagnaði hann sér- staklega hinum nýja ffamhaldsskóla á Snæfellsnesi. Þá nefndi hann að vegakerfið hefði tekið stórstígum framförum og bankakerfið væri komið inn í nútímann eins og hann orðaði það. Þá hefði útgerð þróast mjög hratt á liðnum árum með breytingum í skipastól. Fiskvinnsl- an hefði einnig þróast og miklar væntingar væru um frekari ffamfar- ir í þróun tæknibúnaðar við vinnsl- una. Þá væri vaxandi krafa um sjálf- bærni auðlinda og verndun sér- stakrar náttúru og þeim kröfum hefði verið mætt á Snæfellsnesi og í Breiðafirði. „Útgerðarmenn og sjó- menn hafa í áratugi lagt sjálfviljug- ir á sig bann við flestum veiðum á Breiðafirði. Þeir voru ffumkvöðlar í vemdun hrygningarstöðva þorsks- ins fyrir nærri 40 árum,“ sagði hann og bætti við að Vesturland norðan stóriðju gæti og ætti að gera út á sína sérstöðu. HJ OR fjárfestir fýrir tæpa 6 milljarða á Vesturlandi ^orleifur Finnsson, sviðsstjóri OiKiiveitu Reykjavíkur kynnti starfsemi fyrirtækisins á Vestur- landi, en óhætt er að segja að það komi víða við á svæðinu í uppbygg- ingu hvað snertir vatn, raffnagn og nú síðast ljósleiðaravæðingu. Sagði hann að uppgangur fyrirtækisins á Vesturlandi væri mikill en Orku- veitan er í dag með starfsemi í 10 af 17 sveitafélögum Vesturlands og þjónustar um 80% íbúanna. Starf- semin á Vesturlandi er fólgin í jarð- hita, köldu vatni, raforku, ffáveitu og ljósleiðara. Þorleifur sagði áætlanir Orku- veitunnar um framkvæmdir á Vest- urlandi umtalsverðar og má þar einna helst nefna aðveitustöð á Akranesi, uppbyggingu fráveitu á Akranesi, Borgarfirði og í Borgar- nesi og tengingu ljósleiðara á Akra- nesi, Borgarnesi og Borgarfirði. Orkuveita Reykjavíkur reiknar með að ljósleiðara verði komið fyrir í öll hús á Akranesi á þessu ári og verður sveitarfélagið þá ásamt Seltjarnamesi í fararbroddi á því sviði. Hann reiknar með að áætlaður kostnaður vegna fjár- festinga Orkuveit- unnar nú og til næstu ára verði tæplega 6 milljarðar króna, eða um 650 þúsund á hvern íbúa á Vestur- landi, en sú upphæð er að frátöldum kostoaði við útvegun raforku til stóriðju á Grundartanga. Þoreifur greindi ffá hlutverki Orkuveitu Reykjavíkur á Vesturlandi sem hann telur marg- þætt. Má þar einna helst nefria að byggja upp og reka veitukerfi, skapa aðstæður og umhverfi á svæðinu og stuðla að nýsköpun og þróun. Síðast en ekki síst lagði hann mikla áherslu á að Orkuveitan yrði góður samfélagsþegn Vestur- lands og tæki tillit til umhverfisins í allri starfseminni og yrðu virkir þáttakendur í vísinda-, lista og menningarstarfsemi. KOO BORGARBYGGC UTHLUTUN STYRKJA ÚR MENNINGARSJOÐI BORGARBYGGÐAR ÁRIÐ 2006 Stjórn Menningarsjó&s Borgarbyggðar auglýsir hér me& eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja menningarmál í Borgarbyggð. Æskilegt er að með umsókninni fylgi bókhaldsuppgjör sföasta árs eða starfsárs, ef það á við, og áætlun um I nýtingu styrksins ásamt greinargerð. Að loknu starfsári f afhendist sjóðsstjórn greinargerð um nýtingu styrksins. z ir Umsóknir berist forstöðumanni fræðslu- og s menningarsviðs, Borgarbraut 11, 310 Borgarnesi, í síðasta lagi 27. febrúar 2006. Úthlutun fer fram á fundi menningarmálanefndar 1. mars 2006. Ath! Ekki verður tekið við umsóknum í tölvupósti. Borgarnesi, 1. febrúar 2006 Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar www.skessuhorn.is HÓTEI REYKIAVÍK {ffiófncmtísÁ/ Vió bjóðum upp á glæsilegt pakkatilboð á Hótel Reykjavíkog Rauðará steikhúsi frá janúar og út mars. Fyrir aðeins kr. 7.450 á mann fær parið gistingu í hugguLegu tveggja manna herbergi, morgunverð og rómantískan þriggja rétta kvöldverð á Rauðará steikhúsi. Bókið á www.reykjavikhotels.is eða bokun@hotelreykjavik.is eða i síma 514-7000 Hótel Reykjavík og Rauðará steikhús, Rauðarárstíg 37, Reykjavík

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.