Skessuhorn


Skessuhorn - 01.02.2006, Qupperneq 14

Skessuhorn - 01.02.2006, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006 SSISSIJHOSM Njótum hvers dags til hins ýtrasta Rætt við hjónin Asmund Olafsson og Jónínu Ingólfsdóttur á Akranesi Það má með sanni segja að þau Asmundur og Jónína hafi í gegn- um tíðina sinnt störfum sínum af öllu hjarta. Ævistarf þeirra beggja hefur verið að hlúa að og sinna einstaklingum sem annars vegar voru við upphaf lífsgöngu sinnar og hinsvegar við enda hennar. Jónína vann sem yfir- ljósmóðir á Sjúkrahúsi Akraness alla tíð og Asmundur veitti Dval- arheimilinu Höfða á Akranesi forstöðu í 24 ár en Iét af því starfi á Iiðnu ári. Þau hjón tóku hlý- lega á mótí blaðamanni Skessu- homs sem fann sig strax kær- kominn á notalegu heimili þeirra hjóna. Fyrstu störf Jónínu Jónína hefur ffá mörgu að segja að vestan, þar sem hún vann við frumstæðari aðstæður en tíðkast í dag. „Eg kom að vestan ffá Suður- eyri við Súgandafjörð til Akraness árið 1965 með drenginn minn Ingólf, sem þá var þriggja ára. Hér átti ég góða ættingja sem hjálpuðu mér við að gæta hans. Eg var eina ljósmóðirin hér í tæpt ár, og það var oft erfitt, sérstaklega fyrir lítinn dreng, sem sá mömmu sína off í flugumynd og spurði oft að kveldi: „Mamma, af hverju ertu ekki hjá mér þegar ég vakna,“ en börnin fæðast jú jafiit að nóttu sem degi. Eg var í 2 ár heima á Suðureyri sem ljósmóðir, en ekki var hægt að lifa af ljósmæðralaununum í þá daga svo að ég vann hlutastarf í verslun á staðnum. En ljósmóðurstarfið var fjölbreytt og lærdómsríkt. Eg get sagt þér söguna af því þegar ég var beðin að fara út að Galtarvita til að sauma saman spena á kú sem hafði rifið sig á gaddavír. Læknirinn á Flateyri bað mig að fara því hann komst ekki. Bóndinn á Stað í Súg- andafirði fór með mér. Fyrst fórum við yfir fjörðinn á lidum opnum báti að Gelti, sem er bæjarstæði ut- arlega í firðinum. Þaðan gengum við yfir fjallið til Keflavíkur. Þegar þangað kom og ég fór að skoða kúna sá ég að speninn hékk á einni taug. Mér tókst að sauma þetta en í raun vissi ég ekkert hvað ég var að gera, en eins og svo oft áður þá fann ég fyrir verndarenglunum mínum, allt fór vel og kýrin mjólkaði síðar úr þessum spena. Við Gústi, bónd- inn á Stað, fórum svo heim á leið, en tekið var að líða á daginn. Gengum við þá „fyrir Göltinn," þ.e. einstigi sem er eina gönguleið- in fyrir fjallið inn að Gelti. Við vor- um sæl og glöð, þegar við settumst í bátinn og sigldum heim á leið. Það er af mörgu er að taka, og hér er önnur saga: Vinkona mín og skólasystir hafði ráðið sig til starfa á Flateyri, við sjúkraskýlið þar. Eg var búin að lofa henni að taka á móti hjá henni, en hún átti von á sínu fyrsta barni. Þegar að því kom þá var ekki greið leið til Flateyrar. Allir vegir lokaðir vegna snjóa, en veðrið var fallegt. Eg man að það var búið að moka Suðureyrarmegin og gekk ég yfir Kinnina og fram undan lágu allar skógarbrekkurnar snævi þaktar, en bíll beið eftir mér þar fyrir neðan. Hjam var yfir öllu, svo ég settist bara á rassinn og lét mig renna niður allar skógarbrekk- urnar og horfði á leiðinni uppí stjörnubjartan himininn. Allt fór vel og bamið fæddist á réttum tíma. Eg var í eitt ár á Flateryri, tók við af þessari vinkonu minni. A þessum ámm þurftum við að vinna marg- þætt störf við þröngar aðstæður. Á sjúkraskýlinu á Flateryri bjó ég og auk ljósmæðrastarfans var ég elda- buska og þvottakona með meim,“ segir Jónína um tíma sinn á Flat- eyri. Rúbínbrúðkaup á árinu Þegar Jónína flutti til Akraness þá starfaði Ásmtmdur á skrifstofu Síld- ar- og fiskimjölsverksmiðjunnar en hafði þar áður unnið hjá Bæjarút- gerð Akraness síðasta árið sem hún starfaði. Hann hafði lokið námi ffá Verzlunarskóla Islands og eftír það var hann við nám í Englandi í eitt ár. Síðar átti hann eftir að vinna hjá Sementsverksmiðjunni og á lög- fræðistofu Stefáns Sigurðssonar. Ásmundur og Jónína vora ein af fjölmörgu öðru ungu fólki sem kynntust í sjúkrahússbústaðnum hér á Akranesi á þessum áram. Þau felldu saman hugi og þá var ekki eftir neinu að bíða og gengu þau í hjónaband þann 16. júlí 1966 og munu því í ár halda upp á 40 ára brúðkaupsafmæli sitt. Saman eign- uðust þau tvo drengi, þá Þórð og Stefán Orra, auk þess sem Ásmund- ur gekk Ingólfi í föðurstað. Stefán missa þau af slysförum þegar hann er sex ára. Það má með sanni segja að þau hjónin hafi gengið saman í gegnum súrt og sætt. Ásmundur segir að gleðskapurinn hafi verið mikill á þessum ámm. „Mér þótti mjög gaman að vinna með því fólki sem tengdist sjónum og eignaðist ég þar marga góða vini og kunn- ingja. En glaumurinn keyrði oftar en ekki úr hófi fram. Þegar maður hugsar til baka, þá var það helst fúllorðna fólkið sem drakk óhóf- lega. Makarnir og börnin vom oft- ast þau sem höfðu áhyggjurnar, öf- ugt við það sem oft tíðkast í dag. Nú er það frekar tmga fólkið sem á í vanda með ofneyslu af ýmsu tagi og foreldrarnir hafa áhyggjur.“ Einn dag í einu „Árið 1980 var stór vendipunktur í lífi mínu og okkar. Þá fór ég í meðferð hjá SAÁ, sem hafði nýlega hafið starfsemi sína. Það er eins með áfengissýki, fíkniefnavanda, spilafikn, offituvandamál og önnur slík, að eftir að maður viðurkennir vanmátt sinn til að stjórna eigin lífi og leitar hjálpar, þá er hálfur sigur- inn unninn,“ segir Ásmundur um ákvörðun sína að skilja við Bakkus. Þó slík spor sé aldrei auðvelt að taka varð það honum eitt mesta gæfu- spor í lífi hans. „Síðan er það van- inn, það er svo margt sem við mannskepnumar venjum okkur á og yfirleitt er erfitt að breyta van- anrnn. Að venja sig af því að drekka um hverja helgi og á það að drekka ekki er erfitt,“ segir hann og gefur dæmi um vanann að hann hafi á þessum tíma byrjað að fara í sund á hverjum morgni og það hafi orðið vani, góður vani síðan, þ.e. í 25 ár. „Tilkoma SÁA var ekki bara vendi- punktur fyrir mig, heldur svo marga menn og konur, unglinga og fjölskyldur þeirra. Það sem mér líkaði best við meðferðina og hafði líklega mest áhrif á mig í þessu ferli mínu, fyrir utan styrk og hjálp góðs vinar míns, konu og móður, var að kynnast meðferðarleiðbeinandan- um sem var gamall óvirkur alki, vera öðmm til leiðsagnar í endur- hæfingarprógramminu. Þetta er það sem nú er kallað jafningja- fræðsla. Að sjá vininn þarna og heyra í honum, sjálfan búinn að fara í gegnum allt ferlið, það var mikil upplifun og erfitt að skýra þau áhrif öll. Eg tel semsagt að það sé afar mikilvægt að þeir sem hjálpa öðmm hafi sjálfir reynsluna og mikið er unnið með tilfinningum og góðu hjartalagi. Sú samkennd sem vinnst með því er mikilvægari en allt ann- að. Nú tek ég einn dag í einu, ákveð hvað ég geri þann daginn, en enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sínu,“ segir Ásmundur. „Síðan þetta var hef ég reynt að gjalda SÁÁ eitthvað til baka, hef setið í ýmsum stjórnum þeirra, auk þess að vera trúnaðarmaður sam- takanna á Akranesi." Líkar best að vinna með fólki Ári eftir að meðferðinni lauk sækir Ásmundur um stöðu fram- kvæmdastjóra Dvalarheimilisins Höfða sem þá var laus til umsóknar. ,dVIinn styrkur var orðinn það mik- ill að ég hafði mig í að sækja um þetta starf, áður hefði mér aldrei komið það til hugar einu sinni. Þetta starf varð mér mjög til góðs. Þarna var ég aftur farinn að vinna með fólki sem mér líkaði svo vel.“ Varðandi þau 24 ár sem Ásmundur stýrði rekstri Höfða, segir hann að það hafi verið tími mikilla breytinga og aukningar á þjónustu. „Þótt reksturinn hafi oft verið erfiður fjárhagslega, þá hafðist það alltaf. Sú aðstaða og þjónusta sem nú býðst heimilisfólkinu og öðrum öldruðum er ólíkt betri en áður var, þó alltaf megi gera betur.“ Ás- mundur segir að eins og staðan sé í dag sé það einna brýnast að auka við og bæta heimaþjónustuna, þ.e. heimahjúkrun og heimilshjálp; einnig að hjálpa eldra fólki við að breyta heimilum sínum við breyttar aðstæður. „Það vilja jú allir vera heima hjá sér sem lengst og það er það sem koma skal, þar sem öldmð- um fjölgar stöðugt meira en þeim sem yngri era. Foreldrar mínir gátu verið á heimili sínu lengur, vegna þess að breytingar vom gerð- ar á húsnæði þeirra og heimaþjón- usta stóð fyrir sínu. Það er ekki eingöngu hjúkrun, þrif og umhirða, heldur einnig sá félagsskapur sem starfsmaður þjónustunnar veitir hinum aldraða á heimili hans.“ Að- spurður um hvað standi uppúr ffá tíma sínum við vinnuna á Höfða segir Ásmundur að tvímælalaust séu það samskipti sín við íbúana og starfsmenn, en í upphafi voru þeir aðeins 19 að tölu en em nú um 90. Ellefu bama helgi Jónína segir breytinguna á starfi og starfsaðsöðu ljósmæðra og þeirra sem á Sjúkrahúsinu vinna vera mikla ffá því hún hóf störf. „Fyrir vestan, á Suðureyri, var ég eina ljósmóðirin og oft var þar ekki læknir. Þessi tími gaf mér mikið sjálfstæði sem nýttist mér afar vel, þá og síðar á æfinni. Eg þurfti að bjarga mér við oft erfiðar aðstæður og búnað. Aðstæðumar vora ffek- ar ffumlegar miðað við hvað við höfúm í dag. Fyrsta árið mitt hér á Akranesi var ég eina ljósmóðirin. Eg var á vakt alla daga, tók á móti og sinnti öllu öðm aðkallandi. Það var síðar sem önnur ljósmóðir kom og tókum við þá vaktirnar til skipt- is, viku í senn. Eg man eftir einni helgi þegar ég fór í vinnu á föstu- dagsmorgni og kom ekki heim fyrr en klukkan 18 á mánudeginum eft- ir. Þá höfðu fæðst 11 börn yfir helgina og ég rétt náði öðm hvom að halla mér á bekk og blunda með bömin hjá mér, því konan átti að fá að hvíla sig. Eg var svo þreytt þeg- ar ég kom heim það mánudags- kvöld að ég gat ekki sofhað og var kölluð út aftur kl. 11 um kvöldið. Það er hreint út sagt ótrúlegt að þetta hafi viðgengist því það þarf lítið útaf að bregða og þá þarf mað- ur að vera fljótur að hugsa,“ segir hún. Sjúkrahúsið í fremstu röð Jónína hefur upplifað miklar breytingar innan veggja Sjúkrahúss Akraness frá því að hún kom þang- að fyrst. „Eg hugsa um fæðinga- deildina eins og barnið mitt, þar hef ég upplifað svo mikið í gegnum árin. Það er ýmislegt sem hefur komið uppá í starfi mínu, en sem betur fer hefur alltaf farið vel að lokum. Ef litið er til aðstöðunnar á deildinni, þá er nýja fæðingadeildin alveg stórkostleg. Konur hafa alla tíð sótt mikið til Akraness til að fæða börn sín. Þar hefúr stefhan ætíð verið sú að leyfa kontmni að njóta sín og leyfa ferlinu að eiga sér stað á sem náttúrulegastan hátt,“ og nefnir sem dæmi að á sínum tíma sóttu ljósmæður fast eftir því að fá kar inná fæðingadeildina, þar sem konan gæti legið í og látið vatnið lina verkina. Karið fengu þær hjá HB og segir Jónína að það hafi skil- að sínu og meira en það. „Þær breytingar sem ég hef upplifað í gegntun tíðina varðandi fæðingar- ferlið hafa allar verið til góðs,“ seg- ir hún. „Aður áttu konur að liggja fjóra daga í rúminu eða lengur eftir fæðingu, meira að segja vora þær þvegnar í rúminu. Nú fá þær að hafa börnin hjá sér að vild og mega fara á fætur og heim um leið og þær geta. Fékk heilsuna aftur „Það er mikil Guðsgjöf að fá að vinna við það sem maður hefur svo óbilandi áhuga á. Það er ekki einn Viðfieðingu fyrsta bamabamsins; Jónínu Ingólfsdóttur. Jónína segir fieðingu bama- barvanna eina mögnuðustu reynslu sem hún hafi upplifað.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.