Skessuhorn - 01.02.2006, Page 16
16
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006
akUSUHU^Jl
Forseti íslands heimsældr
Grundaskóla
Forseti fslands hr. Ólafur Ragn-
ar Grímsson og eiginkona hans frú
Dorrit Moussaieff komu í opin-
bera heimsókn í Grundaskóla á
Akranesi í gær. Með heimsókninni
vildu þau kynna sér starfsemi skól-
ans, sem á síðasta ári hlaut fyrstur
skóla íslensku menntaverðlaunin. í
fylgdarliði forsetahjónanna var
dómnefhd íslensku menntaverð-
launanna auk fulltrúa frá Spari-
sjóðunum sem er helsti styrktarað-
ili verðlaunanna.
Við komu gestanna til skólans
léku tónlistarnemar harmonikku-
tónlist. Stutt afhöfn var að því
loknu við verðlaunastein þann sem
skólinn fékk að gjöf er íslensku
menntaverðlaunin voru afhent.
Við athöfnina bauð Guðbjartur
Hannesson gesti velkomna. Að því
loknu gengu gestir um skólann og
heimsóttu bekkjadeildir. Þá
skemmtu nemendur á unglinga-
stigi gestum með söng og hljóð-
færaleik.
Þegar skoðunarferð um skólann
lauk hófst hátíðarsamkoma á sal
skólans sem Hrönn Ríkarðsdóttir
stýrði. Auk gesta voru yngri bekkir
skólans viðstaddir samkomuna.
Þar fluttu stutt ávörp Guðbjartur
Hannesson skólastjóri og formað-
ur nemendafélagsins Ragnar Þór
Gunnarsson ávarpaði gesti. Elísa-
bet Traustadóttir sem nýverið sigr-
aði í hæfileikakeppni grunnskól-
anna á Akranesi söng eitt lag og
Fiðlusveit Tónlistarskólans lék
nokkur lög.
Spurt um
svefhtíma og gæludýr
Þá flutti forsetinn ávarp. Hann
lýsti yfir mikilli ánægju sinni með
heimsóknina og sagði gesti hafa
kynnst því mikla og góða starfi sem
unnið væri frá degi til dags í
Grundaskóla. Hann ræddi áhyggjur
manna af framtíð æskunnar og þeir
sem efuðust um hana gætu farið í
Grundaskóla og komist að því
gagnstæða. Að ávarpinu loknu svar-
aði forsetinn spurningum nemenda.
Margir báru ffam spurningar sem
forsetinn svaraði samviskusamlega.
Bar þar margt á góma. Meðal ann-
ars var spurt um áhugamál hans,
hvenær forseti færi að sofa, hvernig
hefðbundinn dagur í hans lífi væri,
um latmakjör og fleira. Einn nem-
andi vildi vita hvort forsetahjónin
ættu gæludýr og svaraði forsetinn
að svo væri ekki. Gat hann þess að
umræða hefði verið á hans heimili
um slíkt en ekki væri víst hvort þau
hjón fengju sér hund eða hænur.
Bað hann nemendur um að greiða
atkvæði um hvora dýrategundina
ætti að velja og var yfirgnæfandi
hluti nemenda hlynntur því að for-
setinn fengi sér hund sem gæludýr.
Þá upplýsti forsetinn að hann
hefði frá því í æsku á ísafirði hald-
ið með liði IA í knattspyrnu og féll
það nemendum sérlega vel í geð.
Nemendur skólans fluttu því næst
brot úr söngleiknum Hunangsfl-
ugur og villikettir. Að því loknu
voru forsetahjónunum færðar gjaf-
ir ffá skólanum og einnig færði
Gísli Kjartansson sparisjóðsstjóri
SPM nemendafélaginu bókagjöf.
Um hádegisbil héldu gestirnir í
Iþróttamiðstöðina og kynntu sér
starfsemi hennar. Að því loknu var
hádegisverður í íþróttamiðstöðinni
í boði bæjarstjórnar Akraness.
HJ/Ljósm. HJ&MM