Skessuhorn


Skessuhorn - 01.02.2006, Síða 19

Skessuhorn - 01.02.2006, Síða 19
...mnn.- 1 MIÐYIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006 19 7 Siðferði á Netinu Ráðstefna á vegum SAFT á alþjóðlega netöryggisdaginn 7. febrmr Tími: Þriðjudagur 7. febrúar nk. kl. 13:00 - 16:15 Staður: Islensk erfðagreining, Sturlugötu 8, Reykjavík Ráðstefnan verður einnig send út beint á www.safit.is SAFT - Samfélag, fjölskylda og tækni er vakningarverkefni á veg- um Heimilis og skóla - landssam- taka foreldra, um jákvæða og ör- ugga notkun barna og unglinga á Netinu og tengdum miðlum. Siðferði og Netið eru æ oftar nefhd í sömu andrá enda Netið sí- breytilegur vettvangur sem við erum stöðugt að venjast og læra á eftir því sem möguleikum þess og tengingum við aðra miðla íjölgar. Mikið hefur verið rætt um að svo virðist sem þeir umgengnis- hættir sem við höfum komið okkur saman um í hinu áþreifanlega um- hverfi hafi ekki færst yfir á vett- vang Netsins. Einnig er rætt um að netnotkun einstaklinga í skóla eða vinnu sé önnur en sú sem fer fram heima og mikið vanti á að við séum meðvituð um eðli Netsins og neikvæða og jákvæða eiginleika þess. Þessi atriði verða meðal annars til umræðu á ráðstefnunni sem ætluð er öllum sem áhuga hafa á þessum málum. Sérstaklega höfð- ar hún til skólastjórnenda, kennara og kennaranema, foreldra, fjöl- miðlafólks, netþjónustuaðila og fulltrúa stjórnvalda og starfsfólks þeirra stofnana sem hafa með regl- ur um notkun upplýsingatækninn- ar að gera. A ráðstefiiunni verður rætt um siðferði á Netinu í víðu samhengi. Fyrirlesarar verða Isabella Santa frá Evrópustofnuninni um net- og upplýsingaöryggi (ENISA), Ketill Magnússon siðfræðingur og formaður Foreldrafélags Vest- urbæjarskóla, Þuríður Jóhanns- dóttir sérffæðingur hjá Rannsókn- arstofrnm Kennaraháskóla Islands, sem hefur skoðað þann mikla mim sem er á netnotkun barna og ung- linga í skólanum og utan hans, Lára Stefánsdóttir ráðgjafi um upplýsingatækni og menntun og Stefán Hrafn Hagalín markaðs- stjóri hjá Skýrr hf. sem mun líta inn í stafræna framtíð íslensks æskufólks. Þorbjörn Broddason prófessor mun stýra pallborðsum- ræðum í lok ráðstefnunnar þar sem þátt taka fulltrúar netþjón- ustuaðila, fjölmiðla, foreldra og Póst og fjarskiptastofnunar. Opnun bloggsíðu um netsiðferði á www.saft.is Við þetta tækifæri verður opnuð bloggsíða á vefsíðu SAFT www.saft.is þar sem allir geta tekið þátt í opinni umræðu um netsam- félagið og hvort þar sé almennt siðferði í hávegum haft eða hvort þar megi ýmislegt bæta. Einnig verður boðið upp á umræður þar sem netkynslóðinni gefst kostur á að gefa góð ráð um netnotkun. Aðstandendur SAFT hvetja alla, unga sem aldna, til þess að taka þátt í þeim umræðum. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og áhugasamir geta skráð sig með því að senda póst á saft@saft.is, eða hjá Heimili og skóla í síma 562 7475 Nánari upplýsingar: Anna Margrét Sigurðardóttir, verkefnisstjóri SAFT, annams@heimiliogskoli.is Guðberg K. Jónsson verkejhisstjóri SAFT, gudberg@heimiliogskoli.is Heimili og skóli Landssamtök foreldra Síminn eflir samstmfsitt við Pennann á Akranesi Viðskiptastjóri þjónar fyrirtækjum á svæðinu I kjölfar skipulagsbreytinga sem Síminn kynnti í síðustu viku áform- ar fyrirtækið að breyta verslunar- rekstri sínum til framtíðar. Síminn áformar að hætta beinum verslun- arrekstri í Reykjanesbæ, Akranesi, Sauðárkróki og Vestmannaeyjum, auk Laugavegs í Reykjavík. Þessi áform munu ekki hafa áhrif á þá þjónustu sem Síminn getur veitt viðskiptavinum sínum á Akranesi þar sem Síminn hyggur á samstarf við Pennann um þjónustu við við- skiptavini sína þar. Penninn er í góðu samstarfi við öfluga verslun á Akranesi og mun þjónustuframboð Símans falla vel að stefnu Pennans um breiðara vöru- og þjónustuúr- val, en þeir eru nú þegar með áform um sölu á tölvum, prenturum og tilheyrandi fylgihlutum. Við leggj- um ríka áherslu á að þjónusta á svæðinu skerðist ekki við yfirfærsl- una og mun Penninn að öllu óbreyttu taka við starfsemi Símans bráðlega. Viðskiptastjóri af fyrir- tækjasviði Símans mun hér eftir sem hingað til vera staðsettur á Akranesi og sjá um að þjóna vel fýr- irtækjum sem eru í viðskiptum við Símann. Síminn leitar stöðugt leiða til þess að bæta rekstur fýrirtækisins til hagsbóta fýrir viðskiptavini sína. Stefrta Símans er að færa hluta af verkefnum til endursöluaðila og verktaka, en það mun jafnvel styrkja irmviði viðkomandi byggð- arlags. Breytingar á skipulagi Sím- ans miða ávallt að því að fýrirtækið geti sinnt þjónustuhlutverki sínu sem best. Síminn mun áffarn þróa samstarf við endursöluaðila sína með aukinni ffæðslu, sýnileika og ávinningi fýrir báða aðila að þjón- usta sameiginlegum viðskiptavin- um. Þjónustuvefur Símans hefur verið sjálfvirknivæddur enn frekar á síðustu vikum og mánuðum og er um þessar mundir að fara í loftið í nýrri og endurbættri útgáfu. Þá hefur orðið umtalsverð aukning í notkun á Vefverslun Símans að undanförnu, en greinilegt er að viðskiptavinir Símans sjá sér hag í því að fá vörurnar sendar ffítt heim og off á lægra verði en gerist út úr búð. Töluverð vinna er lögð í það að finna mönnum önnur störf innan fýrirtækisins sem og hjá samstarfs- aðilum, og ríkir bjartsýni um að það takist í mörgum tilfellum. Eva Magnúsdóttir, upplýsingajulltrúi Símans. íwi—wwiwuiiwn ii'iiiii ini '.i i ~-> 'i m HÖTEL BOÐII^ LAUGARDAGINN 4. febrúar Tónleikar á HÓTEL BÚÐUM SÚKKAT ásamt góðum gesti MEGASI, þ.e.a.s. MEGASUKK. Tilboð: Gisting eina nótt, morgunverður, 3-5rétta veislukvöldverður eftir "Kenjum kokksins" krónur 11.900 pr/mann. Kvöídverðar tilboð: 3-5 rétta veislukvöldverður eftir "Kenjum kokksins" krónur 5.900 pr/mann Tónleikar hefjast kl:22:00 Enginn aðgangseyrir PANTANIR í síma 435-6700 budir@buclir.is www.budir.is MHMWMi www.skessuhorn.is BORGARBYGGO Laus störf viö leikskólann Hraunborg á Bifröst Leikskólakennarar Leikskólakennara vantar í 2 stöður, önnur er laus frá 1. mars og hin frá 15. maí. Einnig eru lausar 2 stöður vegna afleysinga, frá 20. mars til 1. september og frá 15. maí til 1. september. i Fáist ekki leikskólakennarar kemur til greina að ráða starfsmenn 1 með háskólapróf eða aðra uppeldismenntun og/eða reynslu. s Ræsting Starfsmann vantar í ræstingu við leikskólann frá og með 1. júní 2006. Til greina kemur að skipta stöðunni á miííi tveggja einstaklinga. í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru jafnt karlar sem konur hvött til að sækja um störfin. Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Ólöf Jónasdóttir, leikskólastjóri, í síma 435-0077 eba í tölvupósti; hraunborg@borgarbyggd.is

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.