Skessuhorn


Skessuhorn - 01.02.2006, Page 22

Skessuhorn - 01.02.2006, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006 ..rXinn... J % JF • • • Spuming vikunnar Hvernig líst þér á nýja fjölnota íþróttahúsið sem rís nú hratt á Jaðarsbökkum á Akranesi? Svava Ragnarsdóttir: Rosalega vel. Magnús Villi Vilhjálmsson Bara glasilegt. Brynja Hilmarsdóttir: Bara mjög vel. Adam Þór Þorgeirsson: Ekki vel ef það á bara að vera jýrir knattspymuna. Vel heppnaðir Mozarttónleikar Tónlistarskóli Borgar- fjarðar stóð fyrir Mozarttón- leikum síðastliðinn föstudag á 250 ára afmælisdegi Wolf- gang Amadeus Mozarts. A tónleikunum komu nemend- ur og kennarar fram og fluttu meðal annars atriði úr Töfraflautinni, tríó, þátt úr píanósónötu, þýsk ljóð og tónleikarnir enduðu á Laudate Dominum. Tón- leikarnir voru vel sóttir og var ekki annað að heyra en gestir væru mjög ánægðir, klöppuðu tónlistarfólkinu lof í lófa eftir að hafa hlýtt á ljófa tóna og gætt sér á kaffi og Mozartkúlum. MM Þátttakendur Mozarttónleikanna, nemendumir Ami KonráSsson, Asta Þorsteinsdóttir, Bima Kristín Asbjömsdóttir, Flosi Olafsson, Hallbjörg Erla Fjeldsted, Magnús Ami Magnússon, Olgeir Helgi Ragnarsson, Unnur Þorsteinsdóttir og kennaramir Bima Þorsteinsdóttir, Ewa Tosik-Warszawiak, Hafsteinn Þórisson, jónína Ema Amardóttir, Olafur Flosason, Theodóra Þorsteinsdóttir, Viðar Guðmundsson og Zsuzsanna Budai. Hátóns- og hæfileikakeppnin á Akranesi Elísabet Traustadóttir úr Grundaskóla vann keppnina. Hæfileikakeppni grunnskólanna á Akranesi fór ffam í liðinni viku og tókst keppnin vel. Nemendur skól- anna voru sér og skólum sínum til mikils sóma og voru atriðin stór- glæsileg. Oli Palli útvarpsmaður og dómari í keppninni lét þess getið eftir að allir höfðu flutt atriði sín að hann hefði aldrei farið á jafh glæsi- lega keppni og þessa, jafnvel þó miðað væri við framhaldsskóla og sagðist hann hafa fengið hroll nokkrum sinnum við fluming laganna, en það væri afar fátítt hjá sér. Sú sem sigraði Hátóns- barkakeppnina og er því Hátónsbarkinn í þetta sinn er Elísabet Traustadóttir úr Grundaskóla en hún söng lag- ið Rómeo og Júlía eftir Bubba Morthens. Fast á hælum hennar kom Margrét Rán úr Brekkubæjar- skóla með lagið Don't speak. Hljómsveit kvöldsins var Darwin Blue en þeir tóku lagið Space Queen á eftirminni- legan hátt. Frumlegasta atrið- ið var lag þeirra Brekkóstúlkna sem tóku lagið Sísí og fóru hreinlega á kost- um. Bandið kölluðu þær Magnús. Hljómsveit sú á framtíðina fyrir sér. Besta atriðið var atriði nemenda í Grundaskóla en þar voru á ferð hópur sem nefhdi sig Tryllti stóð- hesturinn og samanstóð af nem- endum í 10. bekk. Það var atriði var ekki við hæfi Bjarna eins og kynnar kvöldsins sögðu. MM/Ljósm: Af vef Neviendafélags Grundaskóla I öðru sœti varð Margrét Rán í Brekkubcejarskóla. Hér af- hendir Isólfiir Haraldsson, dómnefndarmaður henni verðlaun. Aukning í gestakomu AuRning var á gestakomum í íþróttamiðstöðina í Borgarnesi á síðasta ári sem nemur rúmlega 7.000 manns, að sögn Indriða Jósafatssonar íþrótta- og æsku- lýðsfulltrúa Borgarbyggðar. „Er þarna um að ræða verulega aukn- ingu gesta okkar í þreksal og svo auðvitað hafði sjö vikna verkfall kennara 2004 veruleg áhrif á iðk- endafjölda í sal það árið. En við erum ánægð með að fá rúmlega 152.000 manns til okkar, sem er jú helmingur þjóðarinnar ef svo má segja, “ segir Indriði. MM 9. flokkur áfram í bikarnum Strákarnir í 9. flokki karla í körfunni gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Hauka í Bikarkeppni KKÍ á mánu- dagskvöldið í Borgarnesi 53-45. Fjölmenni var mætt í höllina til að styðja strákana. Eru þeir þá, að gera líkt og fyrirmyndir þeirra í úr- valdeildarliði Skallagríms, að koma sér í undanúrslitaleik í bik- arnum sem leikinn verður í febrúar. Frábært hjá strákunum sem eru á leið til Svíþjóðar í keppnisferð um páskana. Þeir munu ganga í hús í Borgarnesi á fimmtudag og safna dósum til styrktar þeirri ferð. IJ Urslit svæðamóts- ins í brids Svæðamót Vesturlands í brids var spilað í Borgarnesi um liðna helgi. Úrslit mótsins urðu þau að sveit skipuð þeim Hallgrími, Guðmundi, Árna og Hreini sigraði, en sveitin hafði reyndar skráð sig til leiks með þeim formerkjum að þurfa ekki að mæta á íslandsmótið. Sveitir sem skipuðu 2. til 6. sætið á mótinu munu því spila fyrir hönd Vestur- lands. Þær voru í réttri röð: Larpet ehf., VST, Dóra og drengirnir, Grundfirðingar og gestasveit Hall- dórs Svanbergssonar. MM Hafþór Ingi kjörinn íþróttamaður Borgarbyggðar Hafþór Ingi Gunnarsson, fyrirliði úrvalsdeildarliðs Skallagríms í körfuknattleik var á sunnudag út- nefndur íþróttamaður Borgar- byggðar árið 2005. Það var tóm- stundanefnd Borgarbyggðar sem stóð fyrir valinu. Aðrir sem til- nefndir voru frá deildum og félög- um voru: Frjálsar íþróttir: Bergþór Jóhannes- son, Umf, Stafholtstungna. Hestaíþróttir: Þórdís Fjeldsted Þor- steinsdóttir, Faxa og Rasmus Christ- ansen, Skugga. Tómstundanefnd valdi Rasmus Christansen sem hestaíþróttamann ársins. Knattspyrna: Ingólfur H. Valgeirsson Umf. Skallagrími Golf: Trausti Eiríksson, Golfklúbbi Borgarness. Badminton: Trausti Eiríksson Umf. Skallagrími. Sund: Sigurður Þórarinsson Umf. Skallagrími Heiðraðar fyrir störf að leiklist Einnig heiðraði tómstundanefnd þær Freyju Bjarnadóttir Umf. Skallagrími, Valgerði Björnsdóttur Umf. Stafholtstungna og Guðrúnu Sigurðardóttur Umf. Agli Skalla- grímssyni fyrir óeigingjörn störf við íþrótta- og æskulýðmál í sveitarfé- laginu (leiklistarstörf) við sama til- efni. Hvatningarverðlaun Umf. Skallgrimur viðurkenningar við sama tækifæri. Sunddeild Skallagríms fékk hvatningarviður- verðlaun fyrir gott starf og Ólafur Helgason formaður körfuknatt- leiksdeildar fékk viðurkenningu fyrir mikið og óeigingjarnt starf fyr- ir deildina á liðnum árum. Minningarsjóður Auðuns Veitt var viðurkenning úr Minn- ingarsjóði Auðuns H. Kristmars- sonar og voru það þeir félagar Trausti Eiríksson og Bjarki Þór Gunnarson sem fengu viðurkenn- inguna og styrk úr sjóðnum að þessu sinni. Bæjarstjórn styrkir körfuna Fjölmenni sótti athöfnina sem fram fór að loknum leik Skalla- gríms og Hauka í körfuboltanum á sunnudagskvöldið. Við þetta tæki- færi færði Helga Halldórsdóttir, forseti bæjarstjórnar Borgar- byggðar veglegan peningastyrk til körfuknattleiksdeildarinnar frá bæjarstjórn vegna góðs árangurs og starfs í körfunni í vetur, bæði í yngriflokkastarfi, meistaraflokki kvenna og karla. Það var Ólafur Helgason formaður sem veitti styrknum viðtöku. MM/IJ. Ljósm: Birna Karen.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.