Skessuhorn


Skessuhorn - 15.03.2006, Page 1

Skessuhorn - 15.03.2006, Page 1
Virka daga 10-19 Laugard. 10-18 Sunnud. 12-18 nettö alltaf gott - alltaf ódýrt VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 11. tbl. 9. árg. 15. mars 2006 - Kr. 300 í lausasölu Slys við Móa Fólksbifireið sem ekið var norð- ur Innnesveg og inn á Akrafjalls- veg á móts við Móa í Innri Akra- neshreppi lenti í hörðum árekstri við vörubifreið sem ekið var aust- ur Akrafjallsveg um kl. 16 sl. mánudag. Við áreksturinn lentu báðar bifreiðarnar utan vegar. Þrennt var í fólksbifreiðinni og voru ökumaður hennar og annar farþeginn fluttir með sjúkrabifreið á slysadeild Landsspítala - há- skólasjúkrahúss í Reykjavík. Hinn farþeginn hlaut minniháttar meiðsli og var fluttur á Sjúkrahús Akraness til aðhlynningar. Slökkvilið Akraness kom á vett- vang og þurffi að beita vökva- klippum til að losa ökumanninn úr fólksbifreiðinni. Okumann vörubifreiðarinnar sakaði ekki. Lokað var fyrir umferð um Akra- fjallsveg í rúma klukkustund og var umferð beint um Innnesveg meðan á vettvangsvinnu stóð. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akranesi voru meiðsl þeirra er fluttir voru til Reykjavíkur minni en óttast var í fyrstu og hafa þeir báðir fengið að fara til síns heima. Fólksbíllinn er ónýtur. HJ Nýr ferja afhent Síðastliðinn þriðjudag veittu fulltrúar Sæferða ehf. í Stykkis- hólmi viðtöku bílaferju, m.s. „Oost Vlieland“ í Hollandi, sem fyrirtækið hefúr keypt og kemur í staðinn fyrir ferjuna Baldur. Nýja skipið er mun stærra en Baldur, eða 62 metra langt í stað 40 metra sem Baldur er. Sjáfréttá bk 4 ATLANTSOLIA Dísel *Faxabraut 9. Um nœstu belgi fara fram jýrstu fermingamar á Vesturlandi. Afþví tilefni er Skessubom að hluta belgaS þessum tímamótum í lífi unga fólksins sem œtlar að staðfesta skímarheit sitt. Myndin hér að ofan er frá fermingarathöfn á Akranesi á lithiu ári. Sjá bls. 16 og aftar. Stálsmiðjan tíl Grundartanga? Viðræður standa nú yfir milli Faxaflóahafna og Stálsmiðjunnar ehf. um flutning á starfsemi Stál- smiðjunnar frá Reykjavík til Grundartanga. Með breytingum á skipulagi og landnotkun í miðbæ Reykjavíkur er starfsemi slippanna við Mýrargötu orðin fyrir. Að frumkvæði stjórnar Faxaflóahafna voru hafnar viðræður við Stálsmiðj- una um flutning á starfsemi fyrir- tækisins. Hefur hafnarsvæðið á Grundartanga verið nefnt í því sambandi. Stálsmiðjan er rótgróið og þekkt fyrirtæki sem rekur í dag slippinn í Reykjavík þar sem eru tvær dráttar- brautir auk mjög öflugrar smiðju og sérhæfðs trésmíðaverkstæðis. Auk þjónustu við skipaflotann hef- ur fyrirtækið tekið þátt í flestum stærri stóriðju- og virkjanafram- kvæmdum á Islandi í gegnum árin. Að undanförnu hafa starfsmenn fyrirtækisins unnið á Kárahnjúkum og við stækkun álversins á Grund- artanga. I gegnum tíðina hafa starfsmennirnir verið um 60 en í dag eru þeir á annað hundrað. Bjarni Thoroddsen, fram- kvæmdastjóri Stálsmiðjunnar segist líta hugsanlegan fluming starfsem- innar til Grundartanga björtum augum. Miklar breytingar hafi orð- ið á umhverfi fyrirtækisins á núver- andi stað sem kalli á breytingar. Hann segir viðræður standa yfir en þorir ekki að spá fyrir um hvenær þeim ljúki. Nokkuð ljóst sé þó í sín- um huga að starfsemin muni flytja en effir sé að ákveða endanlega tímasemingu. „Helst hefði ég viljað vera áffam á núverandi stað í 2-3 ár til viðbótar en viðsemjendur okkar vilja að við förum fyrr eða eftir 1-2 ár. Eg trúi að það verði vandalaust að mætast í þeirri umræðu,“ segir Bjarni. Aðspurður hvort öll starf- semi fyrirtækisins muni flytja eða einungis skipaþjónustan leggur Bjarni áherslu á að öll starfsemin verði flutt og verði á einum stað. Fari svo sem horfir mun því vinnustaður með á annað hundrað starfsmenn bætast í vaxandi flóru iðnfyrirtækja á Grundartanga. HJ Vóg 52 kfló viðburð Síðastliðinn fösmdag kom í heiminn á bænum Mið-Görðum í Kolbeinsstaðahreppi þessi myndarlegi bolakálfur. Hann vóg 52 kg við burð, en meðal- vigt nýfæddra kálfa er um 35 kíló, Kýrin þurfti litla hjálp og heilsast bæði henni og kálfinum vel. Á Mið-Görðum búa þau hjón Þórunn Björg Bjarnadóttir og Vignir Þór Antonsson . Segja þau að þetta sé stærsti kálfur sem hafi komið í heiminn í þeirra búskapartíð. Á myndinni er bolinn fjögurra daga gamall og til samanburðar þriggja vikna gömul kvíga (nær á myndinni) sem var í „hefðbundinni stærð“ þegar hún kom í heiminn. ÞSK Skrúfað firá brunahönum Á sunnudagskvöldið síðastlið- ið gerðu einhverjir pörapiltar sér að leik að skrúfa frá þremur brunahönum á Akranesi. Um slíka brunahana geta rannið allt að 5000 lítrar á mínutu þegar þeir standa fúllopnir. Mikið vamsmagn rann því út af vatns- kerfinu og hafði um helmingur vams, eða um 500 tonn, runnið út af vatnstank sem m.a. hefur það hlutverk að halda uppi vamsþrýstingi við slökkvistarf. Alvarlegt ástand hefði getað skapast ef bruni hefði komið upp á sama tíma og er málið því litið alvarlegur augum að sögn lögreglu. Hafi einhver upplýs- ingar um málið er sá hinn sami beðinn um að hafa samband við lögregluna á Akranesi. MM I : >, Blómkál Grísabógur reyktur og úrb. Samkaup lúrvai Rauðvíns grísa- kótilettur | Vínber græn Akureyri • Blönduós • Bolungarvík • Borgarnes • Dalvík • Egilsstaöir • Hafnarfjöröur • Húsavík • ísafjöröur • Neskaupsstaður • Njarövík • Ólafsfjörður • Selfoss • Siglufjöröur • Skagaströnd Verð birt með fyrirvara um prentvillur • Tilboðin gilda 16. - 19 . mars

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.