Skessuhorn


Skessuhorn - 15.03.2006, Qupperneq 2

Skessuhorn - 15.03.2006, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 jálSSUHuia: Taka þátt í byggingu mennta- skólans Bæjarstjórn Borgarbyggðar samþykkti samhljóða á fundi sínum sl. fimmtudag að taka þátt í byggingu framhaldsskóla þess sem í undirbúningi hefur verið að undanförnu í Borgar- nesi. Bókunin er svohljóðandi: „Bæjarstjórn Borgarbyggðar samþykkir að taka þátt í kostn- aði við byggingu framhalds- skóla í Borgarnesi í samræmi við þau lög og reglugerðir er varða þátttöku sveitarfélaga í slíkum framkvæmdum“. Aður hafði bæjarráð Borgar- byggðar samþykkt að úthluta lóð til byggingar skólans á nú- verandi tjaldsvæði í Borgarnesi. . Hjf Til mtnnis Vib minnum tönlistarunnendur á tónleika sem haldnir verba í Stykkishólmskirkju, sunnudag- inn 19. mars, til minningar um Sigrúnu Jónsdóttur, skólastjóra Tónlistarskóla Stykkishólms. Þar verbur lagbur grunnur ab söfnun fyrir nýju orgeli í kirkj- una. Tónleikarnir hefjast kl. 16:00 og er abgangur ókeypis. EloJ) Vectyrhorfw Á fimmtudag og föstudag er útlit fyrir sublægar áttir og súld eba rigningu og hitastig á bil- inu 4 til 6 grábur. Hægar norb- vestlægar áttir og úrkomulítib á laugardag og fram yfir helgi og kólnar lítillega. Spwning viKijnnar Af einhverjum sálrænum ástæbum hefur hækkandi sól gert þab ab verkum ab öku- menn keyra hrabar en ella og því lék Skessuhorni forvitni á ab spyrja lesendur sína inn á skessuhorn.is: „Ekur þú yfir leyfilegum hámarkshraba?" Niburstaban er sláandi. Um 16% sögbust aldrei aka yfir leyfilegum hámarkshraba en hvorki meira né minna en 64% þeirra sem svörubu sögbust stundum fara yfir hámarks- hrabann. Þá voru um 20% sem viburkenndu sekt sína og sögb- ust oft aka yfir leyfilegum há- markshraba. í næstu viku spyrjum vib: „Eiga íslendingar oð taka upp Evruna?" Svaraöu án undanbragöa á www.skessuhorn.is Vestlencjinjwr viK^nnctr Er Ármann Ármannsson á Mibfossum sem sannar- lega gladdi borgfirska hestamenn í vikunni sem leib. Deiliskipulag Borgarbrautar 59 í Borgamesi samþykkt Bæjarstjóm Borgarbyggðar hefur samþykkt tillögu að deiliskipulagi lóðar við Borgarbraut 59 í Borgar- nesi þrátt fyrir að umhverfis- og skipulagsnefnd hafi viljað að stærra svæði yrrði deiliskipulagt. Á lóðinni mun því rísa fjölbýlishús með 30 íbúðum. Eins og ffam hefur komið í ffétt- um hefur að undanförnu verið unn- ið að deiliskipulagi fyrir lóðina en þar hyggst Borgarland ehf. reisa hús. I upphafi var reiknað með að í húsinu yrði þjónustustarfsemi auk íbúða en á endanum var ákveðið að í húsinu yrðu eingöngu íbúðir. Húsið verður 18 metrar að hæð ffá götu og verður því talsvert áberandi í bæjarmyndinni. Einnig var í fyrstu tillögum reiknað með að Kveldúlfs- gata yrði þrengd úr níu metrum í allt að sex metra. Nokkur viðbrögð hafa orðið í Borgarnesi við þessum hugmyndum og sýnist sitt hverjum. Umhverfis- og skipulagsnefnd bár- Borgarlisti - breiðfylking félags- hyggjufólks er borinn ffam af Sam- fylkingunni, Vinstri hreyfingunni - grænu ffamboði og óháðum kjós- endum fyrir sveitastjórnarkosning- ar í sameinuðu sveitarfélagi Borg- arbyggðar, Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíðuhrepps og Kolbeins- staðahrepps árið 2006. Listinn var kynntur sl. föstudag. Oddvitasæti hans skipar Finnbogi Rögnvalds- son, bæjarfúlltrúi í Borgarnesi og kennari við FVA. I öðru sæti listans Að undanförnu hefur talsverð umræða farið ffam um möguleika Grundartangahafnar í ffamtíðar- uppbyggingu Faxaflóahafna sf. Telja margir að í ffamtíðinni muni hún taka að nokkru við hlutverki Sundahafnar sem helsta inn- og út- flutningshöfh svæðisins. Sú skoðtm hefur einkum komið ffam í máli sveitarstjórnarmanna á svæðinu eins og ffam kemur í ffétt af erindi Guðna Tryggvasonar í blaðinu í dag. Svipaðar skoðanir viðra Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna og Guðmundur Páll Jónsson bæjar- stjóri á Akranesi í umræddu blaði. Sjónarmið sldpafélaganna hafa hins vegar lítt verið í umræðunni. Á ráðstefnu sem haldin var í síð- ustu viku um ffamtíð Faxaflóahafha tóku forsvarsmenn stóru skipafé- laganna tveggja þátt í umræðum og einnig var viðtal við þá í blaði sem gefið var út í tengslum við ráðstefn- tma. ust átta athugasemdir við tillöguna og einnig var bæjaryfirvöldum af- hentur undirskriftarlisti þar sem 144 íbúar mótmæla deihskipulag- inu. Á fundi umhverfis- og skipulags- nefndar á þriðjudaginn í síðustu viku var málið rætt og farið yfir þær athugasemdir sem bárust. I ffam- haldi af því lagði nefndin til að svæðið Borgarbraut 55, 57 og 59 yrði deiliskipulagt í heild sinni áður en lengra yrði haldið. Á fundi bæjarstjórnar á fimmtú- daginn var málið síðan tekið fyrir og var eftirfarandi bókun sam- þykkt: „Bæjarstjórn Borgarbyggðar hefur kynnt sér framkomnar at- hugasemdir við tillögu að deiliskipulagi lóðar við Borgarbraut 59 í Borgarnesi. Bæjarstjórn sam- þykkir tillöguna óbreytta. Breidd Kveldúifsgötu verði a.m.k. 7,5 m eins og sýnt er á uppdrætti.“ Páll Brynjarsson bæjarstjóri segir er Sigríður Björk Jónsdóttir, sagn- ffæðingur, í þriðja sæti er Haukur Júlíusson, framkvæmdastjóri á Hvanneyri og Þór Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Nepal skipar fjórða sæti listans. Heiðurssæti list- ans skipa þaulreyndir sveitarstjórn- armenn, þeir Ásþór Ragnarsson, sálfræðingur og Guðbrandur Brynjólfsson, bóndi. Að sögn Hólmfríðar Sveinsdóttur talsmanns uppstillingarnefndar er gert ráð fyrir að listinn verði auðkenndur Ásbjöm Gíslason, forstjóri Sam- skipa segir í viðtali við blaðið: „Hvað Samskip varðar sé ég fyrir mér að inn- og útflutningur okkar fari áfram um Vogabakka nema sértækur flutningur í tengslum við uppbygg- ingu álvera eða svæðisbundinn flutningur því tengdirr, svipað og gerist á Austfjörðum. Eg sé það því ekki gerast að hluti af starfsemi okk- ar, innflutningur og fiskflutningar, flytjist til dæmis upp á Grundar- tanga. Vömmiðstöðin og ffysti- geymslan hér gegna mjög mikilvægu hlutverki í söfhunarferli Samskipa og það gengur ekki upp að slíta reksturinn þannig í sundur.“ I erindi á ráðstefhunni sagði Guð- mundur Nikulásson, ffamkvæmda- stjóri hjá Eimskip að unnið væri að 25 ára þróunaráætlun á Sundahafrt- arsvæðinu og félagið vildi nýta sér aðstöðuna þar „á arðsaman hátt eins lengi og við getum. Stefna Eimskips er að viðhalda Sundahöfh sem lykil- bæjarstjórn hafa tekið af skarið og afgreitt málið. Hann segir að kom- ið hafi verið til móts við athuga- semdir með því að ákveða að breidd Kveldúlfsgötu verði ekki minni en 7,5 metrar. Páll segir ýmsar hug- myndir hafa verið ræddar á tmdan- förnum mánuðum vegna lóðarinn- ar meðal annars með byggingu lægri húsa með sama íbúðafjölda. Að vandlega íhuguðu máli hafi bæj- arstjórn samhljóða komist að áður- nefndri niðurstöðu. Hann segir að á undanförnum árum hafi verið unnið að þéttingu byggðar í Borg- arnesi. Það sé viðkvæmt mál jafnt í Borgarnesi sem öðrum byggðar- lögum. Málið hafi verið kynnt eins og kostur er meðal annars með tveimur fjölsóttum kynningarfund- um sem sýni best áhuga fólks á skipulagsmálum. Á endanum sé það hlutverk kjörinna fulltrúa að axla ábyrgð og það hafi þeir gert með þessari einróma niðurstöðu. HJ með listabókstafnum L. Listann skipa effirtaldir einstak- lingar: 1. Finnbogi Rögnvaldsson, frh.sk. kennari / bæjarfulltrúi 2. Sigríður Björk Jónsdóttir, sagn- fræöingur / MBA 3. Haukur Júlíusson, jarðýtustjóri 4. Þór Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri 5. Ingibjörg Daníelsdóttir, kennari 6. Sigurður Helgason, bóndi 7. Björk Harðardóttir, nemi við LBHÍ 8. Hólmfríður Sveinsdóttir, stjóm- málafræðingur 9. Jóhannes Stefánsson, húsasmiður 10. Jóhanna Bjömsdóttir, kaupmað- ur 11. Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, nemi við FVA 12. Ragnheiður Einarsdóttir, bóndi / húsfreyja 13. Ragnar Finnur Sigurðsson, nemi við LBHÍ 14. Anna Einarsdóttir, skrifstofustjóri 15. KristmarJ. Olafsson, bruggari 16. Sóley Sigurþórsdóttir, kennari 17. Asþór Ragnarsson, sálfræðingur höfh í áædunarsiglingum félagsins um ókomna ffamtíð.“ Vísa forystu- merrn skipafélaganna til þess að á Sundahafharsvæðinu hafi á undan- fömum áratugum verið fjárfest fyrir milljarðatugi og því ekki sjáfgefið að sú fjárfesting verði yfirgefin. Þróunin er hinsvegar hröð og kannski hraðari en bæði forsvars- menn sveitarfélaganna og skipafé- laganna sjá fyrir um. Á endanum snýst málið að sjálfsögðu um hag- kvæmni og fjármuni. Baldur Guðnason forstjóri Eimskips segir nefnilega orðrétt í viðtali við blað- ið: „Til langs tíma má skoða það að starfsemin færist upp á Grandar- tanga að gefnum ákveðnum skil- yrðum sem varða kostnað á tiltekna þjónustuþætti okkar, nýtingu þeirra fjárfestinga sem lagt hefur verið í Sundahöfn og síðan auðvitað það að samgöngumál verði komin í ákveðinn farveg, m.a. með lagningu Sundabrautar.“ HJ Söfnun vegna brunansí Sælingsdal DALIR: Vegna brunans í Sæl- ingsdal þar sem íbúðarhúsið á bænum eyðilagðist í eldi í síð- ustu viku, hefur stjórn Búðar- dalsdeildar Rauða kross Islands ákveðið að standa fyrir söfhtm fyrir fjölskylduna í Sælingsdal. Stofnaður hefur verið söfntm- arreikningur í KB banka. Núm- er reikningsins er 312-13-1000 kt. 620780-2359. Þeim sem vilja leggja söfnunni lið er bent á að leggja inn á þann reikning. -mm Fegurðarsam- keppnin að skella á VESTURLAND: Fegurðar- samsamkepprú Vesturlands 2006 verður haldin í 15. skiptd þann 25. mars nk. Að þessu sinni keppa 11 stúlkur um titilinn og koma þær víðsvegar að af Vesmr- landi. Keppnin mun fara ffam í Bíóhöllinni líkt og í fyrra og mun að sögn Silju Allansdóttir, fram- kvæmdastóra keppninnar verða með svipuðum hætti og undan- farin ár. -bg Bærínn styrkir ritun íbúasögu STYKKISHÓLMUR: Bæjar- ráð Stykkishólmsbæjar hefur samþykkt að styrkja ritun íbúa- sögu Stykkishólms sem Bragi Jósefsson vinnur að um þessar mundir. Styrkurinn verður með þeim hætti að bærinn kaupir eintök af sögunni fyrir 200 þús- und krónur. -hj Samstarf björgunaraðila AKRANES: Björgunarfélag Akraness og Akraneskaupstaður hafa samþykkt viljayfirlýsingu tun að efla samstarf félagsins og Slökkviliðs Akraness. Eins og kunnugt er hafa þessir aðilar verið til húsa að Kalmansvöll- um 2 en það hús stórbætti að- stöðu beggja aðila á sínum tíma og er hluti húsnæðisins samnýttur og hefur sú sam- vinna gengið mjög vel að því er segir í viljayfirlýsingunni. Því er vilji beggja aðila að efla sam- starfið enn frekar. Mun slökkvi- liðið því gera ráð fyrir aðstoð frá Björgunarfélaginu í sínum rýmingaráætlunum gerist þess þörf. Þá mun einnig unnið að samkomulagi um sameiginlega nýtingu á ýmsum tækjum og búnaði og gagnkvæmri aðstoð við slökkviliðs- og björgunar- störf. -hj UMSB þing BORGARFJÖRÐUR: Sam- bandsþing UMSB verður hald- ið á Bifröst miðvikudaginn 22. mars næstkomandi. Torfi Jó- hannesson, sambandsstjóri, Guðmundur Sigurðsson, gjald- keri og Júlíus Jónsson, vara- sambandsstjóri láta af störfum innan stjórnar, en þegar hafa Jóhanna Erla Jónsdóttir og Bragi Axelsson boðið sig fram til kjörs. -mm Borgarlisti í Borgarfirði býður firam Þijú efstu sæti listans skipa þau Finnbogi Rögnvaldsson, Sigríður Björk Jónsdóttir og Haukur Júlíusson. Forsvarsmenn skipafélagaima tregir til flutnings úr Sundahöfii

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.