Skessuhorn


Skessuhorn - 15.03.2006, Side 4

Skessuhorn - 15.03.2006, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 ..KA1HW.L1 Sumarlokun leikskóla styttíst GRUNDARFJÖRÐUR: Fræðslu- og menningarmála- ne&id Grandaríjarðar hefur sam- þykkt tíllögu leikskólastjóra að leikskólinn Sólvellir loki í fjórar vikur í sumar en ekki fimm eins og áður hefur tíðkast. Einnig að starfedagar verði ekki í beinu framhaldi af sumarleyfum. Jafn- ffamt kom fram vilji til þess á fundi nefndarinnar að stytta sumarlokun á næsta ári í þrjár vikur. A meðan á sumarlokun í sumar stendur verður tinnið að endurbótum á lóð leikskólans. -hj Ljóð unga fólksins VESTURLAND: Þöll, sam- starfshópur um barnamenningu á bókasöfnum, efnir þessa dagana tíl ljóðasamkeppni fyrir ung- menni á aldrinum 9-16 ára. Skilafrestur ljóða í samkeppnina er til 17. mars nk. þannig að þeir sem eiga efrir að semja verða að hafa hraðar hendur við það, vilji þeir taka þátt í samkeppninni. Hér á Vesturlandi er tekið við ljóðum í samkeppnina á 6 söfii- um víðsvegar um landshlutann, þ.e. á Amtsbókasafninu í Stykkis- hólmi, Bókasafni Akraness, Bókasafití Grundarljarðar, Bóka- safrii Snæfellsbæjar, Héraðsbóka- safrii Borgarfjarðar og í Snorra- stofu í Reykholti. Vinningsljóðin í samkeppninni ásamt völdum ljóðum verða gefin út í bók. -mm Kvótalaus mjólk á fullu verði LANDBÚNAÐUR: Stjórn Samtaka afurðastöðva í mjólkur- iðnaði ákvað á fundi sínum þann 2. mars sl. að greiða fullt afurða- stöðvaverð fyrir alla umfram- mjólk sem berst til afurðastöðva á yfirstandandi verðlagsári. Það hggur því fyrir að greitt verður bæði fyrir prótein- og fituhluta umframmjólkurinnar. Sala á mjólkurafúrðum gengur feikna- vel þessa mánuði og nemur sölu- aukningin fyrstu tvo mánuði árs- ins 2006 um hálfri milljón lítra mjólkur á próteingrunni, miðað við sama tímabil í fyrra. Einnig hefur verið aukning í sölu á fitu. -vvm Fyrirspum um lækkun raforkuverðs ALÞINGI: Guðjón A. Kristjáns- son alþingismaður hefur lagt ffarn á Alþingi fyrirspum til iðn- aðarráðherra um lækkun raf- orkuverðs. Vill þingmaðurinn svör við þeirri spumingu hvort ríkisstjóminni hafi tekist að fylgja efitír þeirri stefiiumörkun að raf- orkuverð skuli lækka um 3 % á ári firá 2000-2010 „eins og lagt var upp með þegar samþykkt var að byggja álver Norðuráls í Hval- firði,“ eins og segir orðrétt í fyr- irspuminni. -hj Ný Breiðaí) arðarferj a afhent í Hollandi í sl. viku Nýja skipið sem leysir Baldur af í vor. í fiðinni viku veittu fúlltrúar Sæ- ferða ehf. í Stykkishólmi viðtöku bílaferju, m.s. „Oost Vlieland“ í Hollandi, sem fyrirtækið hefúr keypt og kemur í staðinn fyrir ferj- una Baldur. Nýja skipið er mun stærra en Baldur, eða 62 metra langt í stað 40 metra sem Baldur er. Nýja ferjan mun taka á milli 45 - 50 fólksbfla eða 6 vöraflutningabfla með tengivagna og þá færri fólks- bfla, en Baldur tók að hámarki 19 - 20 fólksbfla.. Farþegafjöldin getur orðið allt að 350 manns. Sldpið sem er byggt 1974 og var allt endumýjað 1994 og á næstunni munu einnig fara ffarn á því nokkrar endurbætur. Þær felast meðal atmars í því að settur verður í það fullkomnasti ör- yggis- og björgunarbúnaður sem völ er á fyrir skip í þessum flokki. Skipið gengur 13,5 - 14,0 sjómfl- ur sem styttir beina ferð ffá Stykkis- hólmi til Brjánslækjar niður í um 130 mínútur í stað tæpra 180 mín- útna eins og nú er. Skipið hefur nú verið tekið í shpp í ferjubænum Harl- ingen í Hollandi þar sem megnið af endurbótunum verða unnar auk þess sem það verð- ur málað hátt og lágt. Svo heppi- lega vill til að þrátt fyrir stærðarmun skipanna þarf að gera mjög óvera- legar breytingar á ferjuaðstöðunni í Stykkishólmi og Brjánslæk áður en skiptin fara ffam, en ferjubrýr eru oftast sérhannaðar fyrir hverja ferju. Verið er að undirbúa endurbætur og styrkingu á bryggjunni í Flatey sem væntanlega verður lokið fyrir næsta haust. Það kemur samt ekki í veg fyrir að nýja ferjan mun geta notast við bryggjuna eins og nú er þangað til. Ferjan Baldur sem þjónað hefur ferjuleiðinni sl. 16 ár hefúr verið seld til Finnlands og munu nýir eig- endur sækja skipið í lok marsmánað- ar og mun það sigla úr höfn í Stykk- ishólmi undir ftnnskum fána 1. aprfl n.k. Stefrit er að því að nýja ferjan verði komin á sama tíma þó vera megi að örfáir dagar geti hugsanlega liðið á milli og ræður þar mestu að góð veður verði á siglingunni yfir hafið. HJ Akur óskar eftir lóðum við Garðalund Trésmiðjan Akur ehf. hefur sótt um allar lóðir sem til staðar era við Garðalund á Akranesi og hyggst koma þar upp smáhýsabyggð. Bæj- arráð Akraness hefur fafið bæjar- stjóra að ræða við fyrirtækið. I bréfi sem Halldór Stefánsson hjá Akri ritaði bæjarráði kemur ffam að hann hafi að undanfömu átt þrjá fúndi með markaðs- og atvinnu- málafulltrúum Akraneskaupstaðar og fidltrúum Golfklúbbsins Leynis vegna deihskipulags við Garðalund. Á þessum fundum lýsti Halldór áhuga Akurs á að byggja smáhýsi eða sumarhús á svæðinu og fulltrúar golfklúbbsins lýstu áhuga sínum á að byggja vélaskemmu á svæðinu og koma að rekstri húsanna. Eftir þessa fúndi telur Halldór rétt að koma málinu í annan farveg „og fa einhverja kölfestu til þess að þróast á markvissan hátt,“ eins og segir í bréfi hans. Því sækir hann formlega um allar lóðir á svæðinu undir byggingu smáhýsa eða sumar- húsa. Með því vilja þeir sem að fyr- irtækinu standa taka málið að nokkra leyti í sínar hendur og fylgja því effir með samstarfi við golf- klúbbinn og ffflltrúa bæjarins. Þá kemur ffam í bréfinu að bygg- ing húsanna, uppbygging tjaldsvæð- is og ffamkvæmdir golfklúbbs þurfi að fara ffam á sama tíma og því þurfi að gera skýra áætlun um málið. Ef af verður stefiii fyrirtækið að því að fyrstu húsin rísi árið 2007. Trésmiðjan Akur ehf. er rótgróið fyrirtælá á Akranesi, stofiiað árið 1959. Það hefúr ffá árinu 1980 framleitt sumarhús og einbýhshús úr timbureiningum og telst því án efa í dag með reynslumestu fyrir- tækjum í framleiðslu sumarhúsa á Islandi. Nokkur ár eru síðan stjóm- endur Akurs kynntu fyrst hugmynd- ir sínar um smáhýsabyggð við Garðalund fyrir forsvarsmönnum Akraneskaupstaðar. HJ Hraðakstur er vaxandi vandamál Framhald virðist vera á óvenju- lega miklum hraðakstri á og í ná- grenni Akraness. Að sögn Jóns S Olasonar, yfirlögregluþjóns á Akra- nesi eru lögreglumenn að sjá við mælingar sínar ökuhraða sem er vægast sagt stórhættulegur og með öllu óafeakanlegur. „I liðinni viku var m.a. einn ungur ökumaður stöðvaður effir að ökuhraði hafði verið mældur 130 km/klst á götu það sem leyfður hámarkshraði er 50 km/klst. Mátti sá hinn sami sjá á eftir nýfengnu ökuleyfi sínu og fær ekki að aka bifreið næstu mánuð- ina. Annar ökumaður var stöðvaður eftir að hafa mælst á 141 km/klst hraða þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Var hann mjög stutt frá því að missa einnig sitt ökuleyfi. Einungis í liðinni viku vora 17 ökumenn kærðir fyrir að aka of hratt. Þá vora 23 kærðir fyrir að nota ekki öryggisbelti og fær hver þeirra 5000 kr. sekt og era því alls 115.000 kr. sem renna úr veskjum vegfarenda í ríkissjóð vegna þessara brota.“ Jón segir að það veki alltaf furðu að nú árið 2006 skuli enn finnast fólk sem ekki hefur áttað sig á mikilvægi öryggisbelta. Því verði að minnsta kosti ekki um kennt að fólk hafi ekki verið upplýst um nauðsyn þessa öryggisbúnaðar. „Ungur ökumaður sem lenti í hörðum árekstri hér á Akranesi á liðnu ári þakkaði lögreglumönnum á vettvangi sérstaklega fyrir þeirra störf. Ekki störfin á árekstrarvett- vanginum, heldu fyrir það að viku áður en óhappið átti sér stað hafði hann verið kærður og sektaður fyr- ir að nota ekki belti. Eftir það hafði hann alltaf notað öryggisbelti og ekki hafi verið nokkur vafi í huga hans að beltið kom í veg fyrir alvar- legt líkamstjón," sagði Jón S Ola- son í samtali við Skessuhom. MM Þrjú þúsund fermetra stækkun framleiðslurvmis Síðastliðinn föstudag var fáni dreginn að hún í Lofforku í Borgar- nesi og komu starfemenn saman og gerðu sér glaðan dag af því tilefúi að búið er að setja upp allar sperrur og þak hefur verið klætt á nýrri við- byggingu við verksmiðjuhús fyrir- tækisins. Búið er að setja upp fjóra hlaupaketti í húsinu sem ganga á tveimur aðsldldum sporam og er nú Inni í nýja húsinu er verii að kamafýrir undirstöðum undir steypuborð ogframleiðslutœki. verið að vinna við undirstöður inn- andyra undir steypuborð og fram- leiðslutæki. Þegar framleiðsla hefet í húsinu margfaldast ffamleiðslugeta einingaverksmiðju Loftorku. Að undanskildum mannvirkjum á Grundartanga er þetta nýjasta hús Loftorku með stærstu iðnaðarhús- um í landshlutanum. MM Opið hús í heilsugæslunni BORGARNES: í tilefni 30 ára afmælis Heilsugæslustöðvar- innar í Borgamesi verður opið hús á stöðinni miðvikudaginn 22. mars klukkan 13-16 að Borgarbraut 65. Allir era vel- komnir meðan húsrúm leyfir. -mm Staða sér- kennslustjóra stofiiuð STYKKISHÓLMUR: Bæjar- ráð Stykkishólms hefur sam- þykkt að tillögu Sigrúnar Þór- steinsdóttur leikskólastjóra stofnun stöðu sérkennslustjóra við leikskólann í Stykkishólmi ffá 1. mars 2006 að telja. -hj Er samráð í verðlagningu veiðiheimilda? LANDIÐ: Valdimar L. Friðriks- son alþingismaður hefúr lagt fram á Alþingi fyrirspum til sjáv- arútvegsráðherra um leiguverð fiskveiðiheimilda. Hann spyr hvort ráðherra telji að samráð eigi sér stað um verðlagningu fiskveiðiheimilda á markaði „en þar virðist leiguverð víðast það sama,“ segir orðrétt í fyrirspum- inni. Þá kallar þingmaðurinn eff- ir því hvort ráðherrann hafi stað- ið fyrir skoðun á því hvemig verðmyndun á leiguverði fisk- veiðiheimilda eigi sér stað. -hj Hvetur bændur tíl þátttöku í pólitík BÚNAÐARÞING. Haraldur Benediktsson, formaður Bænda- samtaka felands, hvatti bændur til þess á Búnaðarþingi að þeir sæktust eftir sætum í sveitar- stjómum sem víðast í komandi sveitarstjómarkosningum. Har- aldur sagði að mjög víða hefði sameining sveitarfélaga gengið ffam og væri það vel. Fráhvarf ffá gömlum fámennum hreppssveit- arfélögum með bændur sem helstu stjórnendur, til stærri sveitarfélaga hafi skapað ný við- fangsefni. Eðfilega væra hags- munir landeigenda og landnot- enda ekki jafn ofarlega í huga þeirra sem kæmu úr annarri átt. Því væri æskilegt að bændur sæktust í auknum mæli eftir áhrifum í sveitarstjómum á nýjan leik. -mm Nýr leikskóla- stjóri í Hólabæ REYKHÓLAR: Mennta- og menningarmálanefnd Reykhóla- hrepps hefúr samþykkt að ganga til samninga við Svanhildi Dóra Björgvinsdóttur um starf leik- skólastjóra í Hólabæ. Svanhildur Dóra var eini umsækjandinn um stöðuna. -hj SKESSUHO WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501 Skessuhom kemur út alla mibvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þri&judögum. Auglýsendum er bent á ab panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þri&judögum. Blabib er gefiö út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverb er 1000 krónur meb vsk. á mánubi en krónur 900 sé greitt meb greibslukorti. Verb í lausasölu er 300 kr. SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 alla virka daca Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhom.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Bla&amenn: Halldór jónsson 892 2132 hj@skessuhom.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Fréttaritari: Bryndís Gylfadóttir 866 5809 bryndis@skessuhorn.is Augl. og dreifing: íris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is Umbrot: Gu&rún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhom.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.