Skessuhorn - 15.03.2006, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006
..mættufleiri
takasérykkur
til fyrirmyndar."
Ummæli fólks sem lent hefur í tjóni segja
mest um þjónustu tryggingafélaga. y
... , ' ■ V-:
, " ..... , . . v ■
„Eg átti nýlega vioskipti við ykkur vegnatjóns á . .
frystikistu. Það er skemmst frá því að segjaað
þjónustan sem ég fékk var hreint alveg frábær
og mættu fleiri taka sér ykkur til fyrirmyndar.
Kveðja, Kristín Helga Gísladóttir."
Ánægjuvog tryggíngafélaga 2005
2003 2004 2005
Samkvæmt íslensku ánægjuvoginni eru við-
skiptavinirTM þeir ánægðustu af viðskiptavin-
um tryggingafélaga.
TRYCCINCAMIÐSTÖÐIN / Símr515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is / www.tryggingamidstodin.is
Fundargestir í Fossatúni.
Ferðaþjónustuaðilar á Vestur-
landi bera saman bækur sínar
Marteinn Njálsson, formaður Ferðamálasamtaka
Vesturlands.
Aðalfundur Ferðamálasamtaka
Vesturlands og Upplýsinga- og
kynningarmiðstöðvar Vesturlands
var haldinn að Fossatúni í Borgar-
fjarðarsveit sl. fimmtudag. A fund-
inn voru mættir þeir Pétur Rafns-
son, formaður Ferðamálasamtaka
Islands og Einar Oddur Krist-
jánssson, formaður Ferðamála-
ráðs. Aðalmenn í stjórn Ferða-
málasamtaka Vesturlands voru
kjörnir; Marteinn Njálsson, Hjört-
ur Arnason, Ingunn J. Jónsdóttir,
Tómas Guðmundsson og Embla
Guðmundsdóttir.
Formaður samtakanna, Mart-
einn Njálsson sagði í ræðu sinni á
fundinum að í ferðaþjónustu á
Vesturlandi liggi mörg sóknarfæri
og því sé til mikils að vinna að búa
til góðar rekstraraðstæður fyrir
þessa ungu, en jafnframt ört vax-
andi atvinnugrein. Þá segir hann
að undirstaða velgengni í rekstri
fyrirtækja sé þekking og því sé
mikilvægt íyrir ferðaþjónustuaðila
að tileinka sér hana í gæðastarfi
sínu og markaðsvinnu. „Ef við
horfum til annarra atvinnugreina
þá má glöggt sjá að með með auk-
inni menntun og þekkingu hefur
arðsemi fyrirtækja aukist og störf
færst frá því að vera láglaunastörf í
það að vera hálaunastörf. Ferða-
þjónustan þarf þar af leiðandi að
fylgja þessari þróun svo atvinnu-
greinin geti blómstrað og dafnað í
framtíðinni og í því samhengi
hljóta háskólar og menntastofnan-
ir að gegna mikilvægu hlutverki,"
sagði Marteinn.
Verðmæti en
ekki væntingar
Marteinn talar um að ferðaþjón-
ustan sé atvinnugrein í útflutningi
og þurfi því að tileinka sér
viðeigandi viðskiptaþætti.
Þá hafi komið fram að
gjaldeyrissköpun ferða-
þjónustunnar sé nú um 40
milljarðar á. ári og þégar
margfeldisáhrif þeirra eru
reiknuð má finna út að
hagfræðilegt verðmæti
greinarinnar er um 120
milljarðar kr. Marteinn
benti á að inni í þeirra tölu
væru ekki tekjur vegna
flugfargjalda til og frá land-
inu eða neysla innlendra
ferðamanna. „Staðreyndin
er sú að ferðaþjónustan er
ein af undirstöðuatvinnugreinum
þjóðarbúsins og nægir að horfa til
umræðu síðustu missera um nauð-
syn þess að byggja upp atvinnu-
greinar sem búa til verðmæti en
ekki eintómar væntingar," sagði
hann orðrétt.
Þess má einnig geta að í ályktun
sem fram kom á aðalfundi UKV er
skorað á sveitarfélög og samtök
þeirra á Vesturlandi að efla og hlúa
enn ffekar að þeirri starfsemi sem
rekin er á vegum UKV. A undan-
förnum árum hefur mikilvægi
UKV sem landshlutaupplýsinga-
miðstöðvar komið glögglega í ljós
þegar komið hafi að aðstoð við
ferðamenn á leið um svæðið. Þar
sem enginn ferðamálafulltrúi er
við störf á vegum sveitarfélaganna
er enn mikilvægara að stofiiun eins
og UKV fái brautargengi og vinni
að sameiginlegum kynningar- og
markaðsmálum landshlutans.
Upplifðu allt
Ferðamálasamtök Islands og
UKV vinna nú saman, ásamt 17
ferðaþjónustuaðilum á Vestur-
landi, að sameiginlegri markaðs-
semingu svæðisins. Þetta athyglis-
verða verkefni, „All senses“ eða
„Upplifðu allt“ er unnið á faglegan
hátt þar sem rík áhersla er lögð á
skýra markmiðasetningu og sam-
vinnu. Markmiðið með verkefninu
er fyrst og fremst að kynna Island
sem spennandi áfangastað en jafn-
framt að draga athyglina að Vest-
urlandi og þeim aðilum sem standa
að þessu samstarfi. Vesmrland hef-
ur mikið aðdráttarafl fyrir ferða-
menn og nægir að nefna staði eins
og Þjóðgarðinn Snæfellsjökul, Ei-
ríksstaði í Dölum, Safnasvæðið
Akranesi, væntanlegt Landnáms-
semr í Borgarnesi og Minjagarð í
Reykholti til að sýna fram á það.
Þá kom fram í máli Marteins að
miklar vonir væru bundnar við
ferðaþjónusm á svæðinu og hægt
væri að ná meiri árangri með því
að efla atvinnugreinina enn frekar,
auka arðsemi hennar og þar af
leiðandi fjölga störfum. I þessu
sambandi er samvinna og sameig-
inleg markaðssókn ferðaþjónusm-
aðila innan Vesmrlands lykilatriði.
KÓÓ
Síðbúin uppskeruhátíð kombænda
Kornræktarfélag Kolbeinsstaða-
hrepps hélt uppskeruhátíð sína
fösmdaginn 10. mars sl. Hátíðin
var haldin í skemmunni á Snorra-
stöðum. Þetta var nú heldur síðbú-
in uppskeruhátíð því smtt er í að
byrjað verði að sá fyrir næsm upp-
skera. Félagsmenn rækmðu bygg á
70 hekturam lands á síðasta ári og
þreskm korn af rúmlega 80 hektur-
um fyrir aðra bændur sl. haust. I
vor ætlar félagið að sá byggi í rétt
tæplega 100 hektara.
Halldór Júlíusson frá Syðstu-
Görðum sá um matinn á uppskera-
hátíðinni sem að sjálfsögðu var
skolað niður með miði bragguðum
úr íslensku byggi. ÞSK