Skessuhorn


Skessuhorn - 15.03.2006, Síða 14

Skessuhorn - 15.03.2006, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 SBiSSlíii©BRj Intrum og fleiri fyrirtæld opna starfs- stöðvar á Akranesi og Borgamesi Næstkomandi föstudag opnar Intrum á Islandi ásamt fleiri fyrir- tækjum nýja skrifstofu við Kirkju- braut á Akranesi. I vor eða fyrri hluta sumars opna sömu aðilar aðra starfsstöð við Borgarbraut 61 í Borgarnesi. Samanlagt er gert ráð fyrir að allt að 14 manns muni yinna á þessum stöðum þegar starfsemin verður fullmönnuð. Sigurður Arnar Jónsson er for- stjóri Intrum á íslandi: „Við ætlum að reka útibú á þessum stöðum líkt og við gerum nú þegar á öðrum stöðum á landinu, svo sem á Egils- stöðum, Akureyri og brátt á Sauð- árkróki og Reyðarfirði einnig. A Vesturlandi byrjum við með að opna á Akranesi og verðum með starfsstöðina þar í nýja húsinu að Kirkjubraut 12. Þarna munu vinna saman Intrum á Islandi ehf. Lög- Frá vinstri: Alexander Eiríksson, framkvcemdasljári TÞ, Eiríkur Þór Eiríksson, stjómarformaáur og Þorkell Logi Steinsson, útibússtjóri Sparisjótjsins á Akranesi. Tölvuþjónustan í útrás Nú á dögunum gerði Tölvu- þjónustan samning við Sparisjóð- inn á Akranesi þar sem bankinn mun fjármagna útrás fyrirtækisins, en Tölvuþjónustan opnaði í síð- ustu viku starfsstöð í Bretlandi þar sem affitunarþjónusta þeirra undir nafninu SecurStore verður nú í boði. SecurStore er lausn sem not- uð er tdl afritunar á gögnum yfir net inn á diskastæður í hýsingarsal Tölvuþjónustunnar. Gögnin eru pökkuð og dulkóðuð í flutningi og geymslu sem tryggir öryggi gagn- anna þar sem viðskiptavinurinn einn hefur dulkóðunarlykilinn. Með þessari affitunarlausn þurfa fyrirtæki ekld lengur að fjárfesta í dýrum afritunarbúnaði og öll hætta af völdum mannlegra mis- taka, veikinda eða þess háttar á að heyra sögunni til. Eiríkur Þór Eiríksson, stjómar- formaður TÞ, segir þessa þjónustu hafa gengið mjög vel hér heima og sífellt fleiri fyrirtæki sjái nú hag í notkun þessarar lausnar. ,JVIarkað- urinn er aftur á móti svo agnar- smár á Islandi samanborið við stór- markað Bretlands, sem er fullur af tækifæram og því geram við okkar miklar vonir um góðan árangur þar í landi,“ segir Eiríkur. Þorkell Logi Steinsson, útibús- stjóri Sparisjóðsins á Akranesi seg- ir sparisjóðinn styðja við bakið á Tölvuþjónustunni í þessu verkefni og kom því ekkert annað tdl greina en að hoppa á vagninn og fara í samstarf með þeim. „Við höfum fulla trú á því sem fyrirtækið er að gera og það er gagnkvæmur vilji og skilningur beggja aðila á því sem ff amundan er. Það er mikilvægt að menn séu samstíga í svona um- fangsmiklu, en spennandi verkefni, og við erum mjög ánægð með að geta fýlgst með því frá byrjun,“ segir Þorkell. Fyrirteekin opna starfsstöóvar sínar að Kirkjubraut 12 áföstudaginn kemur. heimtan, Domus fasteignasala, Pacta málflutningur og ráðgjöf og Leiguráðgjöf ehf. Einnig verðum við í góðu samstarfi við Jón Hauk Hauksson lögmann og hans fólk hjá Lögmannsþjónusta Vestur- lands. Alls verður þetta því starfs- stöð með 7 manns. Þessi fyrirtæki samnýta starfsmenn að hluta og ýmsa aðstöðu svo sem fundaher- bergi, móttöku, kaffistofu og fleira,“ segir Sigurður Arnar. Hann segir það mikilvægt fyrir svæðið að með flutningi þessara starfa út á land sé verið að færa at- vinnu frá höfuðborgarsvæðinu því verkefni þessara útibúa verða að hluta tengd fyrirtækjarekstri fyrir sunnan. Auk þess munu fyrirtækin hasla sér völl í verkefnum tengd hverjum stað fyrir sig, svo sem í fasteignasölu, leiguráðgjöf og fleiru. „Við erum mjög upplýs- ingavætt fýrirtæki. Öll okkar fyrir- tæki, hvar sem þau eru staðsett, eru þannig tölvuvædd að flest störf á að vera hægt að vinna hvar sem viðkomandi starfsmaður er stadd- ur. Sem dæmi erum við nú með 17 stöðugildi á Akureyri og gengur sú starfsemi vel. Við erum að leita á staði sem eru í sókn, í boði er stöðugt vinnuafl og við leitumst við að koma upp skrifstofum úti á landi í hæfilegum rekstrareining- um. Sigurður Arnar segir að stefnt sé að því að opna sambærilega starfs- stöð í Borgarnesi snemma sumars og hefur húsnæðið að Borgarbraut 61, þar sem KB banki er nú með starfsstöðvar sínar, verið keypt í þeim tilgangi. „Við gerum ráð fyr- ir að þar verði um svipaðan fjölda starfsmanna að ræða og á Akranesi og lítum á að þessi útibú á Akra- nesi og í Borgarnesi sem eitt útibú sem muni vinna náið sín á milli og sjá um starfsemi okkar á Vestur- landi,“ sagði Sigurður Arnar að lokum. MM 'iWm Rás 2 rokkar hringinn Helga Viðarsdóttir, fi-amkvæmdastjóri Trico ehf. og Ingimar Eydal, aðstoSarslökkviliðssjóri Slökkviliðs Akureyrar. Slökkviliðsmenn á Akureyri í Trico öryggissokkum Slökkvilið Akureyrar hefúr gert samning við sokkaverksmiðjuna Trico á Akranesi um kaup á öryggis- sokkum fyrir liðsmenn slökkviliðs- ins. Um er að ræða sérhannaða sokka sem koma í veg fyrir bruna á húð af völdum hitaleiðni af einhverj- um toga og af völdum elds. Mikil ánægja er með þessi kaup meðal starfsmanna slökkviliðsins á Akur- eyri enda hefur öryggisgildi sokk- anna margsannað sig hjá viðskipta- vinum Trico. Að sögn Ingimars Eydals, aðstoðarslökkviliðsstjóra Slökkviliðs Akureyrar er mikil áhersla lögð á gæði þess fatnaðar sem keyptur er fýrir starfsmenn slökkviliðsins. Sú stefha hefur skilað sér í góðri endingu á fatnaði og þar með hagræðingu í innkaupum. Ör- yggissokkar Trico eru ffamleiddir úr sterkum tregbrennanlegum efhum sem hrinda frá sér raka og gera sokkana auk þess þægilega. MM Neytendasamtökin vilja fella niður tolla á kj amfóðurblöndum Rás 2 leiðir þessa dagana tón- leikaferðalag um landið. Heimsótt- ir eru 6 staðir á landsbyggðinni og endað í Reykjavík með beinni út- sendingu á Rás 2. Tónleikar Rásar 2 verða í Bíóhöllinni á Akranesi á morgun, fimmtudaginn 16. mars. Hljómsveitin AMPOP, sem hlaut bæði Islensku tónlistarverðlaunin og hlustendaverðlaun XFM á dög- unum fyrir besta lag ársins 2005, „My Delusions", mun fara fyrir hópnum. Hljómsveitin Dikta mun einnig stíga á stokk en plata sveitar- innar „Hunting for Happiness" frá því í fyrra hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og lagið „Breaking The Waves“ er eitt af vinsælustu lögunum á Islandi í dag. Þriðji flytjandinn í tónleikaferð Rásar 2 um landið er Hermigervill en hann hefur vakið mikla athygli fyrir magnaða tónleika undanfarna mánuði. Auk þess mun Rás 2 bjóða einni efnilegri hljómsveit frá hverju sveitarfélagi sem heimsótt verður að stíga á stokk og opna tónleikana í sínum heimabæ. A tónleikunum í Bíóhöllinni spilar hljómsveitin Planc. MM Neytendasamtökin hafa tekið undir sjónarmið Landsambands kúabænda og Svínaræktarfélags Is- lands um að felldur verði niður eða lækkaður tollur á hráefni í kjarn- fóðurblöndur. I ályktunum sem fé- lögin sendu frá sér benda þau á að fákeppni ríki hér á landi í sölu á kjarnfóðri því nú séu aðeins tvö fyrirtæki að flytja inn og framleiða kjarnfóðurblöndur. A hráefnið er lagður tollur sem nemur 80 aurum á hvert kíló en ef fluttar eru inn til- búnar kjarnfóðurblöndur er tollur- inn 7,80 krónur á hvert kíló. Telja félögin ljóst að með lækk- un eða niðurfellingu tolla geti bændur tekið sig saman og flutt sjálfir inn tilbúnar kjarnfóður- blöndur. Með því myndi þeim tveim fyrirtækjum sem nú fram- leiða kjarnfóðurblöndur vera veitt verulegt aðhald. Neytendasamtök- in telja að með því að lækka gjöld- in stuðli stjórnvöld að lækkun mat- vælaverðs í landinu. HJ

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.