Skessuhorn


Skessuhorn - 15.03.2006, Síða 18

Skessuhorn - 15.03.2006, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 ■■.f.ftnn. — Skemmtilegir sunnudagar firamundan Rætt við Séra Guðjón Skarphéðinsson á Staðarstað í Staðarsveit Viö hempuskáp svokallathm. Guöjón segir slíka skápa, þar sem hempan getur hangiö án þess aö snerta gólf, ekki svo algenga á prestssetrum þó nauösynlegur sé. Sérajón M Guö/ónsson meö fermingarbömum áriö 1954. Fermingar- kyrdamir vestlensk hefð Það er venjan nú til dags að fermingarbörn séu klædd í hvíta fermingarkyrtla og gangi þannig til alt- aris í fyrsta sinn. Þetta hefur þó ekki alltaf verið svo því lengi vel klæddust fermingarbörnin betri fömm sínum við athöfnina. Ljósm: Ljósmyndasafn Akraness Það var Séra Jón M. Guðjónsson, sóknarprestur á Akranesi, sem fékk hugmyndina að kyrtlunum og sendi dóttir Jóns, Margrét, honum því snið af kyrtli frá Noregi. Að baki fermingarkyrdtmtun er sú hugs- un að allir eiga að standa jöfnum fætí við vígsluna enda höfðu foreldrar barnanna mismikinn pening milli handanna til að eyða í fermingarföt. Sr. Jón sagði Sr. Pétri Sigurgeirssyni, sóknarpresti á Akureyri og síðar biskupi, frá þessari hugmynd og tóku þeir fyrir norðan svo vel í þetta að fyrsta ferming á Islandi í kyrtlum var á Akureyri árið 1954. Viku seinna fermdi Sr. Jón sín sóknarbörn á Akranesi í kyrtlum. Var það þann 9. maí árið 1954 og er myndin tekin við það til- efiii. GG Séra Guðjón Skarphéðinsson býr ásamt konu sinni Klöru Bragadótt- ur og dætrunum Kristínu Maríu, Rósu og Asdísi Brögu á prestssetr- inu Staðarstað í Staðarsveit. Þar hefur hann búið og sinnt prests- störfum síðastliðin 10 ár og líkað vel. Blaðamaður Skessuhoms leit við hjá þessum merka manni í lið- inni viku og var sem vænta mætti boðið fagnandi í bæinn. Með sínum einstaka framburði og frásagnalist svarar Guðjón spurningum blaða- manns um prestsstarfið og ferming- ar samviskusamlega þó alltaf fylgi góður skammtur af léttleika með eins og honum einum er lagið. Fékk falskar í fermingargjöf I ár mun Guðjón ferma 14 börn í sóknunum sem hann þjónar. „Hér er fermt frá skírdegi 13. apríl til 17. júní og þá yfirleitt eitt barn í einu, þá get ég farið í veislurnar á eftir, fínar veislur núorðið,“ segir Guð- jón og brosir. „Það era skemmtileg- ir sunnudagar ffamundan, þá sér- staklega þegar komið verður fram á vorið og allt orðið algrænt og fal- legt,“ bætir hann við. Guðjón segir lítið hafa breyst varðandi fermingar og fermingahald á þeim 10 árum sem hann hefur verið prestur á Snæfellsnesinu. „En ffá því ég sjálf- ur fermdist eru það gjafirnar sem aðallega hafa breyst. I þá daga fengu flestir úr, þar með talinn ég sjálfur, en í dag eru allir löngu bún- ir að fá úr þegar þeir eiga að ferm- ast. Nú fá bömin tölvu eða hljóm- flutningstæki. Skemmtileg finnst mér samt sagan af drengnum sem óskaði sér að fá gervitennur í ferm- ingargjöf, þetta var austur í Horna- firði áriðl957. Hann opnaði pakk- ann og stakk þeim beint upp í sig,“ segir Guðjón og hlær við. Þessi ffá- sögn Guðjóns ýtir óhjákvæmilega Guðján á skrifstofu sinni heima á Staöarstaö. styrkum stoðum undir sannleiks- gildi tilvitnunar nokkurrar sem margir foreldrar nota þegar böm eru hvött til að bursta tennur sínar; „burstaðu vel svo þú fáir ekki falsk- ar í fermingargjöf.“ Bömin hafa upplifað meira Aðspurður hvort honum finnist börnin hafi fjarlægst trúnna ffá því hann sjálfur var á þessum aldri, seg- ist hann halda ekki. „Maður er nú ekki að hugsa mikið um trú og þess háttar þegar maður er 14 ára. I dag hafa börnin kost á því að hafa séð meira og upplifað meira en áður þegar komið er á þennan aldur, fer allt effir því hversu margar rásir þau hafa, áður var bara Ríkisútvarpið.“ Hvort Guð sé tdl? Guðjón segist alltaf hitta ferm- ingarbörnin reglulega yfir veturinn í fermingarfræðslu. „Við hittumst og spjölltun, fáum okkur kaffi og nammi og kynnumst svolítið. Við lesum uppúr ffæðibók sem heitir Líf með Jesú. Hún þykir orðin ffek- ar „púkó“ meðal barnanna en mér finnst hún ágæt. Við lesum úr þeirri bók, ræðum þau málefni sem þar er fjallað um og gerum nokkur verk- efhi. Lærum sitthvað utanað, gott að læra t.d. Faðir vorið og trúar- játninguna og stöku bænir til við- bótar, jú mikil ósköp, erum samt hætt að læra sálma. Þetta er eins og gengur. Sumir eru feimnir og geng- ur því misvel að fá börnin til að ræða málin en það er nú eins og gengur í skólanum almennt. Nem- endum í skólum er ekki boðið uppá að tjá sig mjög mikið yfirleitt, um eitt né neitt. Þau eiga að þegja og sitja stillt og vera kjurr. Svo þegar allt í einu kemur prestur blað- skellandi inn í hópinn og vill fara að tala um Guð almáttugan og hvort hann sé til og ekki tíl, hvernig sé að deyja og hvort það sé líf eftír dauð- ann og svo ffamvegis, þá myndi ég nú persónulega hugsa hvort þessi maður væri eitthvað galinn og ekki segja eitt einasta orð. Því förum við nokkuð hægt af stað í þessu öllu saman enda náttúrulega viðkvæm mál og ekkert hægt að ræða þau í sjálfu sér, þetta verður bara að koma í ljós t.d. með Guð, hvort hann sé til, ógjörningur að vita það fyrir víst núna,“ útskýrir Guðjón. Að gera sem mest úr slíkum tíniamótum Guðjón segir tilstand í kringum veislur ekki svo frábrugðið því sem áður var. „Ég er ekki svo viss um að veislumar séu svo mikið breyttar þegar allt er tekið með í reikning- inn. Allir fá fin föt og skó og eitt- hvað annað huggulegt. Við hjónin höfum haldið allar okkar veislur hér heima eins og tíðkaðist þegar ég var að fermast, með veislumat og kaffi. Auðvitað er hægt að gera helling úr fermingum og auðvitað á fólk að gera sem mest úr svona tímamót- um, þau eru ekki svo mörg á lífs- leiðinni. Fólk skírist og fermist og jafnvel giftíst. Skírir svo og fermir börnin sín, giftír þau jafnvel líka. Þá er bara ein veisla effir sem þú kannski tekur sem minnst þátt í þó hún snúist um þig. Að ffátöldum af- mælum þá er þetta jú upptalið. Vissulega er það undir hverjum og einum komið hvað hann gerir og algjör óþarfi að móralisera yfir því fólki sem gerir almennilega fyrir börnin sín og gefur þeim myndar- lega, ef það hefur ráð á. Af hverju ekki? Svo eru jú alltaf einhverjir sem ekki hafa ráð á því, bara að hver og einn taki mið af því hvað hann getur fjárhagslega.“ Sex sóknir og átta kirkjur „Ég sinni prestverkunum eins og þau koma upp, alls konar, mest á stórhátíðum. Það er skírt og fermt og jarðað eins og gengur. Nóg er um sóknarnefndarfundi, það eru 6 sóknarnefndir og það þarf að halda þeim við efnið. Kirkjumar í sókn- inni teljast átta. Svo er að ýmsu og öðru að ditta hér á staðnum. I eigin búskap hef ég svo nokkrar kindur og örfáa hesta til skemmtunar og reiðar ef þannig stendur á spori. Hér hefur mér alla tíð liðið vel. Sveitungarnir tóku mér afskaplega vel, ekkert annað nema gott um þá að segja. Þeir eru afskaplega góðir við mig og kurteisir, hjálpsamir og tillitssamir, líkt og þeir eru hver við annan. Ég þekki orðið alla í sveit- inni og hef reynt að vera duglegur að sækja fólkið heim. En það er oft langt að fara á svona stóru svæði,“ segir Guðjón og útskýrir að sóknir hans nái ffá Raftaási í austri að Ondverðarnesi í vestri. „Kirkjusókn er góð, get ekki kvartað yfir því enda kórinn á svæðinu góður og organistinn hreint ágætur.“ BG

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.