Skessuhorn


Skessuhorn - 15.03.2006, Qupperneq 19

Skessuhorn - 15.03.2006, Qupperneq 19
„BtááuHöBí MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 19 Fartölva er aðal fermingargjöfin í ár Þau Rakel Ýr Sigurðardóttir og Þorvaldur Jóhannesson eru bæði að fara að fermast þann 9. apríl nk. í Borgarneskirkju. Blaðamaður Skessuhorns tók þessa kátu krakka tali og spurði þau út í það hvernig þau upplifa fermingarundirbúning- inn og ferminguna sjálfa. Bæði segjast þau Rakel og Þorvaldur hlakka mikið til og séu orðin þónokkuð spennt. Aðspurð hvað sé skemmtilegast og hvað þau hlakki mest til segir Rakel að allt sem tengist fermingunni sé skemmtilegt og Þorvaldur segir að upplifunin sjálf á fermingardaginn verði lík- lega skemmtilegust. Rakel segir allan undirbúning vera í höfn hjá sér. Sjálf hafi hún valið þemalit í veisluna og allt ann- að var samvinna hennar og foreldr- anna. Þorvaldur aftur á móti segir móður sína sjá um allan undirbún- ing veislunnar og er hann mjög sáttur við það. Oska fermingargjöf Rakelar er myndavél og peningur upp í píanó þar sem hún stundar nám við Tón- listarskólann og hefur einnig áhuga á ljósmyndun. Þorvaldur segir að búið sé að ákveða hans gjafir, hann fái rúm frá pabba og fartölvu frá mömmu. Aðspurð um hvað sé vin- sælasta fermingargjöfin í ár meðal krakkanna segir Þorvaldtn það tví- mælalaust vera fartölvu. Þegar spurt er hvort einhverjir af þeirra kunningjum muni fermast, Rakel Ýr Sigurðardóttir. en ekki halda veislu, segist Rakel vita um eina stelpu sem fari til út- landa með fjölskyldu sinni í stað þess að halda veislu. „Hver og einn verður að ákveða það fyrir sig hvað hann eða hún vill, þannig á það líka að vera. Eins með að fermast borg- aralegri fermingu, hver og einn vel- ur það fyrir sig,“ segir Rakel. Bæði eru þau sammála því að mikilvægt sé að krakkarnir fái að ráða, þó það þurfi að vera í samráði við foreldra. Aðspurð um val á fermingarföt- um og hvort þau finni einhverja tískutengda pressu í sambandi við það segist Þorvaldur einfaldlega ætla að klæðast íslenska þjóðbún- ingnum. „Eg valdi það sem ég vildi vera í.“ Rakel segist hafa valið það sem henni langar að klæðast. „Eg var ekkert að eyða of miklum pen- ingum í sérstök fermingarföt. Eg valdi bara þau föt sem mér fannst flott og get svo notað þau áfram eftir ferminguna." Veturinn fyrir fermingu hitta fermingarbörnin prest sínn reglu- lega. Þorvaldur og Rakel segja sinn bekk hafa hitt prestinn einu sinni í viku í vetur. Þá hafi þau lesið í bók- inni Líf með Jesú og rætt svo um efni bókarinnar á eftir. Aðspurð um það hvers vegna krakkar í hennar árgangi velji að fermast, segir Rakel að ekkert eitt vegi mest. „Einhverj- ir krakkar fermast vegna gjafanna og hinir eru að fermast til að ferm- ast, fermingarinnar vegna.“ Að lok- um eru þessir kátu krakkar spurð hvort þau séu búin að læra trúar- játninguna. Þorvaldur svarar: „- Þetta er alveg að koma, næ þessu fyrir lokadaginn.“ Rakel: ,Já, alveg komið hjá mér.“ BG Fermingargreiðslur Blástur fyrir mömmur og cmmur, klippingar fyrir pabbana og afana. Eitthvað fyrir alla! £r einnig með gott úrval af flottu fermingarskrauti. Hársnyrtíng Dagnýjar Mávakletti 2 - s. 694 4950 cÁfmæli, fermin^, krúðkaiip, M^áfiátíð Spunaverk á íjölunum hjá Grímni Leikfélagið Grímnir frumsýndi leikritið „Brúðkaup Tony og Tinu,“ í byrjun mars. Er þetta spunaverk sem byggist mjög á frumkvæði og hugmyndaauðgi leik- aranna sjálfra. Leikararnir eru flestír ungt fólk, á aldrinum 16 til 20 ára, ásamt nokkrum eldri kjöl- festum. Er mikil tónlist f verkinu og settu nokkrir tmgir menn saman hljóm- sveit í tilefni sýningarinn- ar. Mjög skemmtílegt er að þrír úr hljómsveitinni eru úr Grundarfirði. Svo að þarna er að skila sér vera unga fólksins úr Hólminum í Framhalds- skóla Snæfellinga. Leikfé- Leikarar og aðstandendur sýningarinnar. lagið Grímnir er þarna að vinna gott starf að tómstundastarfi aðlaga sig þeirri breytingu að nú á Tony og Tinu eru 17., 18. og 24. þessa unga fólks, en það er það sem eru miklu fleiri unglingar heima mars kl. 20:30. Miðapantanir eru í helst skortir. Bæjarfélögin þurfa að við, allt til tvítugs. Næstu sýningar síma 438 1077 og 847 1077. DSH Þú hefur tilefnið, við sjáum um veisluna. Icelandair Hótel Hamar ... til í tuskið IH ICELANDAIRHOTELS H A M A R Síml 433 6600 • hamar@icehotels.is CLARINS ---------- P A R I S---------- Nýju Vorlitirnir frd CLARINS TÖFRANDI FL0TTIR T0UCH 0F MA6IC Túpugloss, sólarpúður, ‘ nýir augnblýantar, augnskuggar og varalitir Einnig nýr púðurfarði EXPRESS C0MPACT F0UNDATI0N igjggBgfc ' jg - - Framundan nýjung í Clarins stofumeðferðum. NýTT í SJÁLFBRÚNKU AIRBRUSH, NýlRLITIR. PANTIÐ TÍMANLEGA FyRIRPÁSKA SNYRTIST OFA JENNÝJAR LIND Borgarbraut 3 • 310 Borgarnes Sími 4371076

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.