Skessuhorn - 15.03.2006, Qupperneq 21
■-KV'lin... J
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006
21
Var ekkert stressaður
Rætt við ungan mann sem fermdist síðasta vor
Kristinn Ágúst Þórsson er í 9.
bekk í Grundaskóla á Akranesi og
fermdist í fyrra. Skessuhorn tók
þennan unga herramann tali til að
komast að því hvað væri minnis-
stæðast ífá fermingardegimnn ffá
því fyrir ári síðan. „Eg man eftir því
að ég sat í kirkjunni og ég man eft-
ir því að presturinn gerði athöfnina
skemmtilega. I fermingarfræðsl-
unni kom Sr. Eðvarð alltaf með ein-
hverja brandara. Fræðslan er skipt
eftir bekkjum og var í okkar tilviki í
Grundaskóla. Þetta var bara gam-
an.“ En skyldi Kristinn ekki hafa
orðinn kvíðinn fyrir athöfnina?
„Eg var nú ekkert stressaður, ég
verð aldrei stressaður,“ segir hann
hress, „ég pældi lítið í þessu fyrr en
þetta var búið svona þegar ég var að
fara að sofa um kvöldið, þetta bara
gerðist eins og það gerðist." Það
fermdust langflestir í árgangi Krist-
ins en hann rekur þó minni til eins
sem lét ferma sig borgaralegri
fermingu. Kristinn segist ekki hafa
velt vöngum yfir þessari ákvörðun
um að fermast. „Nei, ég velti því
aldrei fyrir mér hvort ég ætti að
fermast eða ekki, ég var alltaf
ákveðinn í því að gera þetta.“
Stuttmyndir í veislunni
„Áður en mín veisla byrjaði kíkti
ég í veislu vinar míns. Þetta var
mjög fínn dagur. Veislan mín var
svo haldin í sal í Grundaskóla og
það voru svona hundrað manns í
henni.“ Fjölskyldan fór ekki hefð-
bundnar leiðir í skemmtiatriðum í
veislunni því sýndar voru kvik-
myndir eftir fermingarbarnið.
„Við sýndum stuttmyndir sem ég
hef verið að gera sjálfur í skólan-
um. Við lærum að taka upp og
klippa og gera hljóðið fyrir mynd-
irnar sjálf. Eg er kominn með
næstum 10 myndir núna. Svo var
líka myndasýning með gömlum
myndum af mér, teknar við alls
konar tækifæri í gegnum tíðina. Eg
hélt líka smá ræðu.“ Kristinn fékk,
eins og flest fermingarbörn, góðar
gjafir í veislunni og er þar af ein í
uppáhaldi. „Eg fékk mikið af gjöf-
um og einhvern pening. Uppá-
haldsgjöfin er tvímælalaust fartölv-
an mín.“
Trúarj átningin snúin
Hann segir ferminguna ekki hafa
breytt miklu í daglega lífinu. „Nei
FERMINGARTILBOÐH
Rúm rrtcð tvöföldu fjaðrakerfí
Kristinn Agúst Þórsson, fyrrumfermingarbam.
ég get nú ekki sagt það, það er eig-
inlega bara það að núna eru miklu
fleiri hlutir inni í herberginu
mínu!“
Hefur Kristinn einhver góð ráð
handa þeim sem eru að fara að
fermast í ár? ,Já, ég hef eitt ráð
handa þeim sem eru að fara að
fermast og það er að byrja að læra
trúarjátninguna nógu fljótt." Krist-
inn hefur mörg áhugamál fyrir utan
skólastarfið. „Eg nota fermingar-
tölvuna í allt, til að læra og margt
fleira." Hann stundar golf og rækt-
ina og er mikið í tölvunni. Hann lék
einnig eitt af stóru hlutverkunum í
sýningu Grundaskóla sl. haust,
Hunangsflugum og vilhköttum og
stóð sig þar með prýði. í sumar ætl-
ar Kristinn að vinna á golfvellinum
en er ekki búinn að ákveða alveg
hvað hann ætlar að vera þegar hann
er orðinn stór. „Nei, ég er ekki bú-
inn að ákveða það,“ segir Kristinn
og hlær, „kannsld tölvufræðingur
eða einkaþjálfari, eða bara bæði.“
GG
Lofum fermingarbarninu
að velja gjöfina
Fallegu gjafkortin frá Markaðsráði Akraness
eru til sölu í útibúum Landsbanka íslands
og íslandsbanka á Akranesi.
Landsbankinn
Banki allra landsmanna ÍSLAN DS BAN KI
Fáanleg í þremur upphæðum
kr 2.500, 5.000, og 10.000.
Handhafar gjafakortanna geta
notað kortin hjá um
30 verslunar- og
þjónustuaðilum á Akranesi
MARKAÐSI
Fermingargjafir
mikið
Bœkur
Myndavélar
Sjónaukar
Pennar
Skartgripaskrín
Skáktölvur
Tölvuorðabœkur
Fartölvutöskur í
Ferðatöskur
Geisladiskar
Geisladiskatöskur ,
Kirkjubraut 54
PSlttfl! 3
Akranesi - sími 431 1855
Opib virkú 11 - 18 aq 13 14