Skessuhorn - 15.03.2006, Qupperneq 26
26
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006
■■.tAVIM...
Vatn og ljós í listaverki
Undirbúningur að uppsetningu
útilistaverks á lóð SHA er í fullum
gangi. „Verkið hefúr reynst um-
fangsmeira og kostnaðarsamara í
hönnun en áætlun listamannsins,
Ingu S. Ragnarsdóttur gerði ráð
fyrir og því hefur hægar gengið en
vonir stóðu tdl. Enn vantar nokkuð
af peningum til þess að hægt verði
að koma verldnu á sinn stað en það
er komið til landsins og bíður upp-
setningar,“ sagði Guðjón S Brjáns-
son, ffamkvæmdastjóri SHA í sam-
tali við Skessuhorn.
Listaverkið sem um ræðir er stórt
í hugsun og gerð. „Hér er um lista-
verk að ræða þar sem saman fer
vatn, fossaföll og ljós sem spilar
stórt hlutverk. Ekkert útivatnslista-
verk er enn til á Akranesi og mun
það án efa setja myndarlegan svip á
bæjarumhverfið allt,“ segir Guðjón.
Nefnd sem vinnur að uppsetn-
ingu verksins leitar um þessar
mundir til nokkurra fyrirtækja og
stofnana á Akranesi með beiðni um
smðning við lokafrágang og fjár-
mögnun en að sjálfsögðu eru ffam-
lög ffá einstaklingum sem styðja
vilja þetta ágæta málefni ekki síður
afar vel þegin. Þeim er bent á að
snúa sér til formanns nefndarinnar,
Sigurðar Olafssonar, fyrrverandi
framkvæmdastjóra SHA. Ef allt
gengur efdr og nefndinni tekst að
verða sér úti um nægilegt fé, þá er
fyrirhugað að afhjúpa listaverkið
við hátíðlega athöfn síðla sumars.
MM
StSil
Verkið hannaði Inga S Ragnarsdóttir listamaður í kjölfar samkeppni sem efrt var til á sl. ári.
T^mtutui^s
Eigum aðflagga ájram
Fyrirtæki og stofhanir í Borgar-
nesi hafa tekið sig saman um að
hætta að flagga í hálfa stöng þegar
einhver fellur ffá. Þó var samþykkt
að kirkjan og Dvalarheimilið mættu
halda því áffam. En hver er vilji
íbúanna, gleymdist ekki að athuga
hann? Eða var aðallega verið að
hugsa um vilja íbúanna í Reykjavík?
Var gerð einhver könnun á því hvað
íbúunum finnst og eins hvað ferða-
fólki finnst, eða var þetta bara
ákveðið af tilfinningu einhvers
óskilgreinds? Minnka t.d. viðskipt-
in í Hymunni á föstudögum ef það
er flaggað í hálfa stöng? Koma færri
í sundlaugina á laugardögum ef það
er jarðarför? Keyra vörubílstjór-
amir kannski Hvítárbrúna til að
komast hjá þessum ósköpum héma
í bænum?
Ein af ástæðum þess að ég bý í
Borgarnesi en ekki í Reykjavík er að
þetta er lítill og notalegur bær, um-
kringdur fallegri sveit. Marmlífið
hérna er gott og ég þekki eða kann-
ast við flesta héraðsbúa. Mér finnst
það fallegur og góður siður að
minnast þeirra sem falla ffá með því
að flagga í hálfa stöng. Það sýnir að
við í Borgamesi erum ennþá á því
stigi að þekkja hvert annað og vera
umhugað hvert um annað. Þetta
mál finnst mér vera eitthvað sem
ætti að athuga þegar íbúatalan er
komin í ca. 10.000 manns en við
eigum nú talsvert langt í það ennþá.
Þeir sem þekkja mig vita að ég er
ffekar íhaldssöm en mér finnst það
sorgleg þróun að við skulum vera
svo hégómleg að hugsa meira um
þá sem keyra í gegn með pylsu og
kók en íbúana á staðnum. Minnir
þetta um margt á áráttu íslenskra
fyrirtækja að taka upp erlend nöfn
og „group“ í stað þess að vera stolt
af þeim fallegu íslensku nöfhum
sem við eigum. Er þetta ekki bara
einhvers konar minnimáttarkennd?
Jónína Ema Amardóttir.
Þýskir smiðir sem vinna að smíði verksins.
Laugardalshöllinn eftir stœkkun.
Verk og vit, stórsýning
bygginariðnaðarms
Stórsýningin Verk og vit 2006
verður haldin dagana 16. til 19.
mars í nýju íþrótta- og sýninga-
höllinni í Laugardal. Þar munu
um 120 fyrirtæki í byggingariðn-
aði og mannvirkjagerð, sveitarfé-
lög, hönnuðir og ráðgjafar kynna
starfsemi sína. Megináhersla verð-
ur lögð á fagmennsku, aukna
þekkingu og tækninýjungar í
byggingariðnaði og mannvirkja-
gerð en mjög örar framfarir hafa
orðið á þessu sviði undanfarin ár. I
tengslum við sýninguna, sem er
bæði fyrir fagaðila og almenning,
verða haldnar ráðstefnur, kynn-
ingarfundir og fleiri viðburðir.
Meðal sýnenda verða fyrirtækin
Borgarplast, Loftorka Borgarnesi
ehf., Smellinn ehf. og Trésmiðja
Þráins E. Gíslasonar. Sýningin er
opin almenningi laugardaginn 18.
og sunnudaginn 19. mars en fag-
aðilum fimmtudag og föstudag. Á
sýningunni verða áhugaverðar
nýjungar í íslenskri framleiðslu
kynntar auk tækja, hönnunar, ráð-
gjafar og þjónustu sem ýmis fyrir-
tæki bjóða. Skipulagsmál sveitar-
félaga skipa sérstakan sess þar sem
þróun, einstök verkefiti og ffam-
tíðarsýn verða kynnt.
MM
Látum hjólin snúast
Það er óhætt að fullyrða það að
sveitarfélagið Borgarbyggð hafi
blómstrað á undanförnum árum.
Ibúum hefur fjölgað, skólar, á öllum
skólastigum, hafa verið að stækka
og dafha og atvinnulífið er á yfir-
snúningi, um það vitnar hvernig er
að fá fólk til starfa í héraðinu. Það
er skemmtilegt að starfa að sveitar-
stjórnarmálum þegar svona árar, nú
er ekki karpað um fjármál og rekst-
ur sveitarfélagsins því árangurinn í
rekstri hefur verið þannig undan-
farin þrjú ár að það er ekki tilefhi til
þrætna hvað þann þátt varðar.
Eftir kyrrstöðu á síðasta áratug
hefur nú að tmdanförnu átt sér stað
mikil uppbygging og effirspurn eff-
ir íbúðarhúsnæði stóraukist. Nú er
svo komið að lóðir til úthlutunar
eru uppurnar, allavega um stundar-
sakir. Bæjarstjórn Borgarbyggðar
keypti fyrir skömmu um 20 ha
lands í Bjargslandi og er nú tmnið
að því hörðum höndum að skipu-
leggja þar nýtt íbúðasvæði svo að sú
þróun sem verið hefur geti haldið
áffam og unnt sé að svara eftirspurn
effir íbúðalóðum.
Við erum svo heppin hér í Borg-
arbyggð að íbúamir hafa skoðun á
því hvernig staðið skuli að upp-
byggingu sveitarfélagins. Sem bet-
ur fer láta margir sig það varða
hvemig Borgarnes muni þróast á
næstu ámm, hvar og hvernig skuli
byggt, á að þétta byggð og þá
hvernig? Ætlum við að byggja upp í
loftið eða langsum? Alitamálin em
mörg og þetta em allt skemmtileg
„vandamál," (eða verkefhi), sem við
er að etja, allavega emm við ekki að
fást við fólksflótta og/eða atvinnu-
leysi og að enginn vilji byggja hjá
okkur eins og raunin er sumsstaðar
á landsbyggðinni. Það er hinsvegar
eðlilegt að skoðanir séu skiptar um
þessi mál sérstaklega þegar miklar
breytingar eiga sér stað á skömm-
um tíma.
Það er skoðtm undirritaðs að við
megum ekki dvelja of lengi við
ákvörðunartöku, sú ákvörðtm sem
tekin er þarf að vera vönduð, fagleg
og vel ígrunduð þó svo að ekki
verði allir alltaf sáttir. Það að ætla
að gera svo að öllum líki er einfald-
lega ekki hægt, þá verður kyrrstað-
an algjör. Því þurfum við bæjarfull-
trúarnir að vera fólk til þess að taka
af skarið í umdeildum málum. Það
að sitja hjá og fría sig ábyrgð er ekki
í þágu uppbyggingar og ekki í þágu
þeirra sem treysta okkur til setu í
stjóm nýs sveitarfélags.
Bjöm Bjarki Þorsteinsson,
Bœjarfulltrúi í Borgarbyggð.
Skipar 1. sæti framboóslista Sjálf-
stæðisflokksins í nýju sameinuðu sveit-
arfélagi Kolbeinsstaðarhrepps, Hvítár-
síðu, Borgarfjarðarsveitar og
Borgarbyggðar.