Skessuhorn


Skessuhorn - 15.03.2006, Síða 27

Skessuhorn - 15.03.2006, Síða 27
 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 27 Oldungadeild í húsasmíði við FVA HÖKG AKISÍt Sl notagildi og fari því ekki beina leið í geymsluna. Það er góður mögu- leiki fyrir áhugasama grunnskóla- nemendur að koma hingað og kynna sér námið og aðstæður en um leið fá þau að njóta sín í verk- legu fagi,“ segir hann. Um 43 nemendur FVA eru nú við nám í deildinni og hafa þeir aldrei verið fleiri. „Nemendurnir eru fimm annir í skólanum í bæði bóklegum og verklegum fögum og fara svo á samning í eitt og hálft ár og við vitum ekki betur en að þeim hafi gengið vel að fá inni hjá bygg- ingaraðilum þar sem mikil þörf er á iðnaðarmönnum almennt á svæðinu,“ segir Sigurgeir. Atli Harðarson, aðstoðarskóla- meistari FVA, segist sjá fjölgun í deild húsasmíða en bendir jafh- framt á að fækkun hefur átt sér stað í öðrum iðngreinum síðustu tvö árin eins og rafiðnum og málmiðnum. „Við leggjum mikla áherslu á að hafa námið sveigjan- legt og sniðið að þörfum einstak- linga og nú höfum við gengið í samstarf með Fjölbrautaskóla Snæfellinga þar sem nemendur geta tekið fyrsta árið þar og komið síðan til okkar og klárað hérna á Akranesi," segir Atli. „Með auknu samstarfi við aðra skóla og með til- komu „öldungadeildarinnar“ styrkist deildin enn frekar og ætti því námið að vera spennandi kost- ur fyrir fólk á öllum aldri á Vestur- landi sem og utan þess,“ segir hann að lokum. KÓÓ Nemendur í öldungadeild húsasmíða ásamt Steini M. Helgasyni kennara. A myndina vantar einn nemandann. Sumarhúsið sem nemamir byggðu verður selt og rennur afraksturinn til uppbyggingar deildarinnar. aði einnig að gefa vinnunni gildi og fór því í Fjölbrautaskóla Snæ- fellinga á Grundarfirði síðastliðið haust. Þar er ég meira í þessum bóklegu fögum eins og grunn- teikningu og verkfærafræðslu en kem svo á Skagann til að vinna þetta verklega. Við höfum verið að smíða ýmis konar hluti eins og tröppur, verkfærakistur og taflborð en þessir hlutir eiga það allir sam- eiginlegt að hafa eitthvert nota- gildi,“ segir Arni og bætir við: „Hópurinn er mjög fínn, þetta eru góðir strákar og þeir hafa ekkert verið að stríða mér þó ég sé elsti nemandinn." Arni, sem verður 50 ára í ár kann vel við þetta fyrir- komulag og segir þetta henta sér afskaplega vel. „Kennararnir eru líka svo hjálplegir og vilja allt fyrir mann gera og ég fæ að gista í skól- anum þegar ég er á Akranesi mér að kosnaðarlausu. Eg ætla svo sannarlega að klára þetta nám og taka sveinsprófið og að öllu óbreyttu ætti ég að hafa það eftir næsta vetur,“ segir Arni að lokum. Vaxandi samstarf grunn- og framhaldsskóla Eins og fram kom í síðasta tölu- blaði Skessuhorns hafa nemendur á þriðju og fjórðu önn í húsasmíði staðið að byggingu sumarhúss sem reist var nú á dögunum fyrir utan verknámshús tréiðnadeildarinnar við Vesturgötu. Nemendurnir byggja bústaðinn alveg sjálfir ásamt öllum gluggum en smíðin hefur staðið yfir frá því um miðjan janúar. Sigurgeir Sveinsson, deild- arstjóri tréiðna segir þetta fyrir- komulag ekki alveg nýtt af nálinni þar sem smærri timburhús hafa verið byggð áður. „Það er skylda samkvæmt námsskrá að nemendur byggi timburhús en við stefnum að því að bústaðir af þessari stærð- argráðu verði byggðir á hverju ári og mun söluandvirði þeirra renna til deildarinnar,“ segir Sigurgeir. Með vaxandi samstarfi við grunnskólana á Akranesi geta nú 10. bekkingar tekið valfag í tré- smíði eða málmsmíði og að sögn Sigurgeirs er mikill áhugi á því. „Við höfum látið þau smíða ýmis konar hluti eins og hátalarabox en við leggjum mikið upp úr því að það sem þau geri hafi eitthvað í fyrsta skipti í ár býður tréiðna- deild Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi upp á nokkurs konar fjarnám fyrir nemendur sem hafa náð 20 ára aldri og geta því gengið beint inn á fyrstu önn sérnáms í húsasmíði. Þar sem mikil aðsókn hefur verið að undanförnu í deild- ina er þetta nú gert til að mæta kröfum og þörfum þeirra sem eiga erfiðara með að stunda skóla vegna búsetu eða vinnu. Nemendur í þessari „öldungadeild,“ sem eru níu karlmenn á öllum aldri, þurfa þó að mæta einu sinni í mánuði á 35 kennslustunda námskeið. Þar fer ffam öll sú verklega vinna sem ætlast er til af þeim en þess á milli fá þeir heimavinnu sem þeir þurfa að inna af hendi. Skólinn er í nánu samstarfi við Fjölbrautaskóla Snæ- fellinga þar sem nemendum býðst að hefja nám sitt þar í meira bók- legu formi en ljúka því svo í Fjöl- brautaskóla Vesturlands. Arni Valgeirsson er einn af þeim níu nemendum sem hafa nýtt sér þetta fyrirkomulag en hann er bú- settur í Stykkishólmi og er samn- ingsbundinn húsasmíðanemi hjá Skipavík. „Eg var búinn að vinna við fiskvinnslu í 20 ár þegar eig- endaskipti í fyrirtækinu urðu til þess að ég nýtti mér tækifærið til að breyta til og ég sé ekkert eftir því. Eg fékk reyndar smjörþefinn af starfinu þegar ég keypti gamalt hús hérna í Hólminum og gerði það sjálfur upp. Þá fékk ég mikinn áhuga á að læra húsasmíði og lang- Ami Valgeirsson er búsettur í Stykkis- hólmi en stundar nám á húsasmíðabraut í öldungadeild FVA. BÚREKSTRARDEILD Eqilsholt 1 -310 Borgarnesi Afgreiðsla sími 430 5505 - Fax 430 5501 Opið frá kl. 8-12 og 13-18 alla virka daga

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.