Skessuhorn


Skessuhorn - 15.03.2006, Qupperneq 30

Skessuhorn - 15.03.2006, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 Snæfellsk ungmenni á reiðnámskeiði Verkalýðsfélag Akraness • Sunnubraut 13 • sími 430-9900 IDlS sm|öja Borgarbyggð styrkir kvennaknatt- spyrnu Bæjarstjórn Borgarbyggðar sam- þykkti í gær samhljóða tillögu um að styrkja knattspyrnudeild Skalla- gríms um 350 þúsund krónur sem verði varið til þess að efla kvennaknattspyrnu og yngri flokka starf deildarinnar. í tillögunni kem- ur fram að nú sé tímamótaár í sögu knattspyrnunnar í Borgar- nesi því nú séu 40 ár liðin frá því að Skallagrímur sendi fyrst lið til keppni á íslandsmóti. HJ Árni Thor f raðir ÍA Fyrstu deildarlið HK hefur sam- þykkt tilboð ÍA í varnarmanninn Árna Thor Guðmundsson. Viðræð- ur standa nú yfir við leikmanninn og því ekki endanlega Ijóst hvort af vistaskiptum leikmannsins verð- ur en það verður að telja afar lík- legt. Árni æfði með Skagamönnum fyr- ir nokkru og í framhaldinu var ákveðið að falast eftirkröftum hans í vörn liðsins sem þynntist nokkuð viö brotthvarf Gunniaugs Jónsson- ar og Reynis Leóssonar. Guðlaugur Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA segir að ef samningar nást við Árna Thor sé ekki ólíklegt að hans fyrsta prófraun verði leikur í deild- arbikarkeppninni á laugardaginn gegn KR. HJ Reiðskemman að Bergi í baksýn er fjallið Stöðin. Hundarnir kunna vel við sig á hundahótelinu. Orlofshús Verkalýðsfélags Akraness - Páskar 2006 - Tekið verður á móti umsóknum til og með 31. mars 2006 á skrifstofu félagsins, Sunnubraut 13, sími 430 9900. * Uthlutun verður lokið 3. apríl. Orlofshús til útleigu um páska 2006: Bláskógar 12, Svínadal Ásendi 10, Húsafelli Húsasund 15, Hraunborgum Hús nr. 11, Ölfusborgum Laufásvegur 31, Stykkishólmi ísólfur Líndal Þórisson frá Lækjamóti í Víðidal fluttist til Grundarfjarðar með fjölskyldu sína eftir að hafa lokið reiðkenn- ara- og tamningamannaprófi frá Hólaskóla sl. vor. Hestamannafé- lagið Snæfellingurfékk ísólf til liðs við sig að halda reiðnámskeið fyr- ir börn og unglinga innan félags- ins. Námskeiðið er helgarnám- skeið eina helgi í mánuði en þetta fyrirkomulag telur ísólfur henta mjög vel til þess að þátttakendur nýti sér til fulls það sem kennt er á námkeiðinu hverju sinni. „Þau mæta tvisvar yfir helgina og ég tek fyrir ákveðin atriði í hvert sinn, sem þau síðan æfa heima milli þess sem við hittumst,“segir ísólfur. Um 18 börn og unglingar hafa verið á þessu námskeiði sem hófst í febr- úar en því líkur í apríl. ísólfur telur aðstöðu eins og er að Bergi vera grundvallaratriði í þróun hesta- mennsku á íslandi. Þau hjónin og ábúendurnir á Bergi, Anna Dóra Markúsdóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson réðust í það stórvirki að reisa 14 x 42 metra reiðskemmu á síðasta ári en í henni rúmast góð inniaðstaða til tamninga og þjálfunar sem og ísólfur Líndal og einn hópurinn afþrem á námskeiðinu en þau eru öll úr Hesteigendafélagi Grundarfjarðar Að Bergi er fagurt útsýni út á Breiðafjörðinn. Hér er verið að æfa sveigjustopp. reiðkennslu. Að auki er í skemm- unni sérhannað rými til geymslu hunda sem fjölmargir hundaeig- endur hafa nýtt sér en að auki er í skemmunni vélageymsla en þar verður senn komin kaffistofulofti með útsýni yfir reiðskemmuhlut- ann. Að Bergi stunda þau hjón ræktun góðhrossa sem þau temja síðan og þjálfa sjálf. Meðal hrossa frá Bergi er stóðhesturinn Bliki sem seldur var til Danmerkur á síðasta ári. GK * * Námskeiðið "Frumkvöðlasmiðja" verður haldið á Hvanneyri dagana 17.-18. mars og 24.-25. mars (kl 14-18 á föstud. og 10-19 á laugard) ef næg þáttaka fæst. Námskeiðið er fyrir fólk með áhugaverðar hugmyndir, fólk sem er þegar í rekstri en vill auka við kunnáttu sína, eða fólk sem langar að leita að viðskiptatækifærum. I Nú er lag að læra að láta draumana rætast ] - skráning fer fram hjá Árna Jósteinssyni í síma 563-0367 eða gegnum netfangið aj@bondi.is. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu Sóknarfæris til sveita á www.bondi.is V________________________________________________) Vetrarleikar Dreyra Laugardaginn 4. mars var hald- inn annar hluti Vetrarleika Dreyra á Akranesi. Keppt var í tölti í opnum flokki, unglingaflokki og barna- flokki. Veitt voru verðlaun fyrir úr- slit dagsins en þau voru: BG Opinn flokkur. 1. Ingibergur Jónsson á Bónus: 7,3 2. Ólafur G.Sigurðsson á Roða: 7,0 3. Ólafur Guðmundsson á Hlýra: 6,7 Unglingaflokkur 1. Valdís Ólafsdóttirá Kolskegg: 6,3 2. Arna S. Birgisdóttir á Sprengju: 5,6 3. Bjartmar Már Björnsson á Vöku: 5,5 Barnafíokkur Svandís L. Stefánsd. á Demanti: 4.9 Ólafur Guðmundsson, Ólafur Guðni Sigurðsson og Ingibergur Jónsson sigruðu opinn flokk.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.