Skessuhorn


Skessuhorn - 05.07.2006, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 05.07.2006, Blaðsíða 19
^Biissumnj 3 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2006 19 Grenndargámar áAkranesi. Undanfarin ár hefur ottu sorpi verið ekiS til urSunar í Fíflholtum en í nálagri framtíS verður breytingþar á og virkri flokkun endurvinnanlegs sorps komið á. Breytingar í sorpmál- um í burðarliðmim Bæjarstjórn Akraness hefur stað- fest samning við Avalt umhverfis- ráðgjöf ehf. um innleiðingu heild- stæðs kerfis í sorpmálum bæjarfé- lagsins. Verkefifið er í meginatrið- um þríþætt. I fyrsta áfanga verður lögð áhersla á að yfirfara og endur- bæta flokkun og meðhöndlun úr- gangs frá stofnunum á vegum sveit- arfélagsins. I öðrum áfanga verður lögð áhersla á að að meta ástand og endurbæta meðhöndlun úrgangs hjá stærri fyrirtækjum innan sveit- arfélagsins og í þriðja áfanga verð- ur lögð áhersla á að virkja heimili og almenning til bættrar flokkunar og endurnýtingar. Samhliða ofan- greindum áföngum verða haldnir kynningarfundir og kynningarefni dreift til hlutaðeigandi aðila. Markmiðið með kerfinu verður að draga úr myndun sorps, bæta flokkun og auka endurnýtingu. Með breytingum sem urðu á Úr- vinnslusjóði árið 2003 sköpuðust forsendur til að auka endurnýtingu og flokkun sorps án þess að það yki á útgjöld sveitarfélaga. Sú breyting er grunnurinn að því kerfi sem ætl- unin er að koma upp á Akranesi. Meðal þess sem litið verður sér- staklega til er fjöldi, staðsetning og gerð grenndargáma. Verkeftfið verður unnið í fullu samstarfi við alla aðila sem koma að málaflokknum, en verkefnisstjóri þess er Magnús Freyr Olafsson. Ekki er vitað til þess að önnur sveitarfélög hafi gengið fram með þessum hætti hvað þennan mála- flokk varðar. Gangi væntingar samningsaðila eftir mun Akranes- kaupsstaður komast í ffamvarðar- sveit íslenskra sveitarfélaga í úr- gangs- og umhverfismálum. -KÓP Hvalfjarðarsveit auglýsir eftirfarandi störf laus til umsóknar: Aðalbókari/launafulltrúi Starfssvið: • Færsla, afstemmingar og önnur úrvinnsla fjárhagsbókhalds • Gerð rekstraryfírlita og önnur skýrslugerð • Aðstoð við fjárhagsáætlimargerð og gerð ársreiknings • Skráning launaupplýsinga, launavinnsla og önnur úrvinnsla launa • Upplýsingagjöf til starfsmanna vegna launamála Menntunar- og hœfniskröfur: • Menntun á sviði viðskipta- og/eða rekstrarfræða æskileg • Reynsla af bókhaldsstörfum skilyrði • Þekking og/eða reynsla af launavinnslu • Þekking á kjarasamningum og réttindamálum • Nákvæmni í starfi og góð tölvukunnátta • Skipulagshæfni og stjálfstæði í starfi Afgreiðslufulltrúi/ritari/skjalavörður - 50% starfshlutfall Starfssvið: • Almenn afgreiðsla á skrifstofu sveitarfélagsins • Símaþjónusta og miðlun upplýsinga • Bréfaskriftir, almenn ritarastörf og skjalavistun • Skráning gagna í upplýsingakerfi • Innheimta • Önnur almenn skrifstofustörf Menntunar- og hœfniskröfur: • Stúdentspróf eða sambærileg menntun • Góð íslenskukunnátta • Reynsla af skrifstofústörfum skilyrði • Þekking og/eða reynsla af notkun skrifstofúkerfa, s.s. Microsoft Office • Fæmi í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund • Nákvæmni í starfi og góð tölvukunnátta • Skipulagshæfni og stjálfstæði í starfi Umsóknareyðublöð má sœkja á www.hvalfordur.is og óskastsendar til oddvita sveitarfélagsins, Hallfreði Vilhjálmssyni, Innrimel 3, Hvalfjarðarsveit, 301 Akranes,fyrir 15. júlí 2006. Upplýsingar í síma oddvita 864 7628. (--------Z*7,---/IF- U Landsbankinn VINIR HALURINNAR EHF VÍKJNG Ueitingasala Inngongur 18. ára aldurstakmark Ueitinga sala SEMENTSSKEMMA INNISVÆÐI IRSKIR DAGÁR Alrooesí 7.-». juii, 3006 Kynnið ykkur nánar aðra dagskrárliði þessa helgi á www.irskirdagar.is UTISVÆÐI VEITINGATJÖ Ueitinga sala GAMLA AKRAB0RGAR BRYGGJAN Veitingasalo Inngangur Úiihátíð irskra daga á Akranesi írskir dagar á Akranesi Velkomin f Skútuna Samlokutilboð 589 kr. W / Samíoka m/ skinku, osti, grænmeti og sósu, franskar og 0.5 í. Pepsi . f pE*=>St Hamborqaratilboð 669 kr. Hamborgarí, franskar, kokteilsósa og 0.5 I. Pepsi. Fjölskyldutilboð 2.290 kr, Fjórír hamborgarar, franskar og 2 I. Pepsi Nætursala föstudaga og laugardaga G afsláttur af blandi í poka á laugardögum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.