Skessuhorn


Skessuhorn - 05.07.2006, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 05.07.2006, Blaðsíða 31
-.fXMIH.-i MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2006 31 Grámóska á lofti og í leik Leikurinn reyndist vera lokaleikur liðsins undir stjórn Ólafs Þórðarsonar. ÍA tapaði enn einum leiknum í Landsbankadeildinni í knatt- spyrnu sl. miðvikudag, nú fyrir Víkingum 1-4 og vermir enn botnsætið. Liðið hefur nú leikið níu leiki, unnið tvo og tapað sjö. Ljóst er að mikið þarf að breytast ef liðið ætlar sér ekki að falla nið- ur í fyrstu deild og mæðir því mik- ið bæði á leikmönnum og nýjum þjálfurum liðsins, bræðrunum Arnari og Bjarka. Breiðablik er í næstneðsta sæti með tíu stig og þrjú lið þar fyrir ofan með ellefu. Það var grámóskulegt yfir að líta þegar flautað var til leiks sl. miðvikudag. Einstaka regndropi féll af þungbúnum himni. Ekki var laust við að þessa gætti einnig í leiknum en hann einkenndist af miðjumoði. Skagamenn byrjuðu betur og strax á 5. mínútu átti Pesic þrumuskot úr aukaspyrnu langt úti á velli sem bjargað var í horn. Þremur mínútum síðar komst Hjörtur í gott færi en átti lé- legt skot. Það var eins og köld vatnsgusa framan í ÍA þegar Vík- ingur komst yfir á 11. mínútu. Lið- in skiptust á að sækja eftir mark- ið en ÍA átti mun betri færi. Það var síðan á 38. mínútu að Jón Vil- helm jafnaði metinn fyrir ÍA eftir laglega rispu Hjartar upp hægri kantinn. Skaginn var nálægt því að komast yfir nokkrum mínútum síðar þegar Guðjón Heiðar átti gott skot sem var varið í horn og upp úr því skaut Hjörtur rétt fram- hjá. í heildina litið var ÍA betra lið- ið í hálfeiknum og hefði átt skilið að vera yfir, en leikmenn nýttu færin sín illa og því stóð jafnt í hálfleik. Enn einu sinni gerðist það að Skagamenn komu daufir í seinni hálfleik. Leikurinn var lengi í gang og einkenndist af baráttu á miðj- unni. ÍA átti sína fyrstu alvöru sókn þegar tíu mínútur voru liðn- ar af hálfleiknum og enn var það Jón Vilhelm sem átti góðan sprett. Þá færðist líf í leik Skag- ans, Þórður átti gott skot eftir samspil við Jón Vilhelm og Bjarni fékk upplagt skotfæri en varnar- maður komst fyrir. Skömmu síðar átti Pesic gott skot eftir góðan sprett Þórðar. Á 68. mínútu komust Víkingar hins vegar yfir og þá var eins og allur vindur væri úr liði ÍA. Ólafur Þórðarsson skipti tveimur mönnum inn á, Hafþóri Ægi Vilhjálmssyni og Andra Júlí- ussyni fyrir þá Hjört Hjartarson og Guðjón Heiðar Sveinsson. Það breytti engu og fjórum mínútum síðar komst Víkingur í 1 -3 eftir al- gjöran sofandahátt hjá öftustu varnarlínunni. Bjarki Gunnlaugs- son kom inn á fyrir Bjarna Guð- jónsson sem var allt annað en sáttur við að vera skipt út af. Bjarki kom með örlítinn frískleika í leikinn en það breytti þó ekki miklu. Víkingur bætti síðan marki við þegar komið var tvær mínútur fram yfir venjulegan leiktíma, en þá var eins og leikmenn ÍA væru hættir í leiknum. Þrátt fyrir úrslitin sýndi liðið þó á köflum ágætis samspil og menn voru mjög hreyfanlegir, sérstak- lega Jón Vilhelm og Guðjón Heið- ar sem skiptu reglulega um stöð- ur. Hjörtur átti fína spretti og Pes- ic sýndi gott fordæmi með mikilli baráttu, nokkuð sem vantaði sár- lega meira af hjá mörgum leik- mönnum. Reyndist lokaleikur Óla Þrátt fyrir grámóskulegt yfir- bragð á Skaganum mátti víða sjá glytta í heiðskýran himinn og undir lok leiks mátti sjá bjart yfir í fjarska. Vonandi á það líka við um leik ÍA að framundan sé bjartviðri. Á því þurfa Akurnesingar sárlega að halda. Þegar úrslit leiksins lágu fyrir gerði fáir og e.t.v. engir sér grein fyrir því hvernig atburð- arrásin yrði næstu daga. Strax á föstudeginum kom í Ijós að þessi leikur liðsins gegn Víkingi reyndist vera síðasti leikurinn undir stjórn Ólafs Þórðarsonar þjálfara. Ástæða er til að óska Óla velfarn- aðar í framtíðinni í hverju sem hann tekur sér fyrir hendur. í höndum hans hefur ÍA liðið margoft unnið glæsta sigra og þeir mega ekki gleymast þrátt fyr- ir að illa hafa gengið í sumar. KÓP LATTU OKKUR FÁÞAÐ ÓÞVEGIÐ ,1:T "vT.n.U'ui; Efnalaugin Múlakot ehf. Borgarbraut 55 310 Borgarnesi Sími 4371930 www.kjoiur.is Sími 525 8383 GLITNIR/ - mótaröðin Lokamótið á Glitnis mótaröðinni fer fram miðvikudaginn 5. júlí á Garðavelli Verðlaunaafhending fer fram fimmtudaginn 6. júlí í golfskálanum kl. 21:00 Glitnir á Akranesi - aðalstyrktaraðili Golfklúbburinn Leynir - www.golf.is/gl W Opna GUINNES V golfmótið Garðavelli Akranesi 8. og 9. júlí Þú mátt ekki missa af þessu glæsilega móti. Greensome leikfyrirkomulag, tveir í liði. Hægt að velja hvorn daginn erspilað. Einn 18 holu hringur gildir til verðlauna Nánari upplýsingar á www.golf.is/gl Golfklúbburinn Leynir Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf Dagskrá Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls 27. júní - 20. ágúst 2006 1 Þjóðgarðinum bjóða landverðir upp á fjölbreytta dagskrá. Dagskráin er öllum opin og ergestum að kostnaðarlausu. Göngur eru jafnan auðveldar. Nánari upplýsingar í símum 436 6888 og 436 6860 eða hjá snaefellsjokull@ust.is Gestastofan á Hellnum er opin alla daga frá kl. 10 -18 fram til 10. sept. Föst dagskrá Sunnudagar kl. 14. Búðir- Frambúðir. Þriðjudagar kl. 14. Djúpalónssandur og nágrenni. Fimmtudagar kl. 14. Óvissuferð frá vegamótum á Öndverðarnes. Laugardagar kl. 14. Svalþúfa - Lóndrangar. Barna- og fjölskyldustund kl. 11 - 12 laugardaga á gestastofunni. Aðrar ferðir Refaskoðun verður í júlí. Blómaskoðunarferðir: 5. júlí kl. 20, 23. júlí kl. 14 og 20. ágúst kl. 14. Menningarminjar: fimmtud. 27. júli kl. 20. og laugard. 12. ágúst kl. 13. Geymið auglýsinguna og takið þátt í ferðum Þjóðgarðsins! af öllum glösum á írskum dögum I, Ath: THboðfð gildir maðan birgðir STILLH0LT116-18 • AKRANESI SfMI 431 3333 • model.ak@simnet.is KNATTSPYRNUSKOH IÍSLANDs' 200 verður tialdinn • SAUÐARKROKI 3.-7. A6ÚST Spennandi 09 vímulaus valkostur fyrir unglinga Hnr: Á Sauiárkróki (6 árið f röð) Hn««r: 3.-7. ijðrt 2006 Fyrir knrj*: AIU knaftsþyrnuiðkendur, stráka oj steþur, sem eru 11-17 In, (,.«. fasdd 1989-1995. Skilu«til«|: Fimmtudaginn 3. ágúst kl. 15:00 í Fjðibrautatkðlanum. Maeting 12:00-14:00 jrann uma dag. Skflulit: Mánudaginn 7. ágúst kl. 14:00 Ktiurtr: Reyndir jrjálfarar 09 íjrróttakennarar Sóntikir |«>t«R Ólafur Kristjánsson, knattspyrnuÞjSlfari Skilutjiri: Bjarni StefSn Koaráðsioa, íjrróttafræðingur 09 jjálfari Skriaii) t) 179I.: I síma 554-0620 tia 695-4504 09 á bjarnist@mr.is Vari: Kr. 15.900. Syitkinafsláttur: kr. 3.300. Iiiifilil: Sjö æfingar 09 knattspyrnumót * Fullt fæöi ug hósnæót* ölafer Krlsljínsjoii 8jaril Slefá* Kðsráíssðfl fótbolti, frítt f sunó, hæfileikakeppni o.fl. ■ Örugg gæsla allan sólarhringinn. bakpoki, jrátttökupeningur, Fræósla fagmanna um koattsyyrnuleg málefnl 1 LandsMmlfth ssuðijárbwnde INDSSAM BAND ÚABÆNDA GíVMIfi AU6trSiNGUNA!

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.