Skessuhorn - 05.07.2006, Blaðsíða 30
30
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2006
SSffiSSIÍHÖBKI
Vesturlandsliðin
með allar
útgáfur úrslita
Föstudaginn 30. júní hélt lið
Snæfells til Hofsóss og lék þar á
móti liði heimamanna í Neista á
Hofsósvelli. Tíu mörk voru skoruð
í leiknum en honum lauk með
jafntefli 5-5.
Sama dag tóku Skallagríms-
menn á móti liði Hvatar frá
Blönduósi á Skallagrímsvelli.
Hvöt hafði betur og staðan í
leikslok var 1 -2 fyrir Hvöt.
Laugardaginn 1. júlí fóru liðs-
menn Kára norður yfir heiðar,
nánar tiltekið til Sauðárskróks þar
sem þeir léku á móti heimamönn-
um í Tindastóli. Kári sigraði leik-
inn með tveimur mörkum gegn
einu marki heimamanna.
Eftir þessa leiki er Kári í fyrsta
sæti C riðils í þriðju deild karla
með 18 stig, Skallagrímur er í 4.
sæti með 12 stig og Snæfell er í
5. sæti með 2 stig.
SO
Baráttusigur í bikarnum
Skagamenn komumst áfram í
bikarkeppninni með því að leggja
Fram sl. sunnudagskvöld. (A
komst í 2-0 í fyrri hálfleik, en enn
og aftur komu leikmenn illa
stemmdir út úr búningsklefunum í
síðari háflleik. Fram náði að jafna
með tveimur mörkum úr víta-
spyrnu en það var Þórður Guð-
jónsson sem tryggði ÍA sigurinn
með marki í framlengingu.
Bræður komu nokkuð við sögu í
leiknum því þetta var í fyrsta sinn
sem bræðurnir Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir stýrðu liði ÍA og
bræðurnir Þórður og Bjarni Guð-
jónssynir skoruðu tvö af mörkum
liðsins. Bjarni skoraði úr víta-
spyrnu strax á 7. mínútu eftir að
markvörður
Fram braut á
Jóni Vilhelm.
Skagamenn
sóttu stíft eftir
þetta og var Ijóst
að þeir ætluðu
sér alls ekki að
láta forystuna af
hendi. Hafþór
Ægir skoraði
skömmu síðar
glæsilegt mark
með föstu skoti
utan vítateigs.
Framarar virtust
heillum horfnir
og áttu þeir varla skot að marki í
öllum háfleiknum.
Glæsilegt Landsmót hestamanna
Landsmót hestamanna lauk á
Vindheimamelum í Skagafirði sl.
sunnudag. Var þetta 17. Lands-
mótið sem haldið hefur verið og
var öll umgjörð þess vönduð og
glæsileg og Skagfirðingum til fyrir-
myndar. Hápunktar mótsins voru
um helgina þegar úrslit voru feng-
in, kynbótadómar lágu fyrir, rækt-
unarbússýningar fóru fram og
margt fleira sem gladdi augu
mótsgesta í skagfirsku veðurblíð-
unni. Gæði fákanna er mótið sóttu
voru mikil, heimsmet voru slegin
og nýjar stjörnur skutust á topp-
inn.
Talið er að um ellefu þúsund
manns hafi verið saman komin á
Vindheimamelum þegar flest var á
svæðinu. Mótshaldarar náðu
greinilega góðum samningum við
veðurguðina, veður var stillt, hiti í
lofti en nokkrir regndropar féllu af
og til af himni en gerðu engum
mein. [ kvöldsólinni á laugardags-
kvöldið horfðu mótsgestir á
spennandi úrslit í töltkeppninni og
var hitinn svo mikill í brautinni að lá
við að ryki úr henni, keppnin var
hörð og baráttan mikil. Það voru
Sigurbjörn Bárðarson og hestur
hans Grunur frá Oddhóli sem sigr-
uðu töltkeppnina eftir æsispenn-
andi keppni. Borgfirðingurinn Gísli
Einarsson mætti á kvöldvökuna
sem ræðumaður dagsins á laugar-
dag og gerði óspart grín að sjálf-
um sér og öðrum landsmönnum
við góðar undirtektir.
Á sunnudag voru m.a. úrslit í A-
flokki gæðinga og gerðust þau
sögulegu tíðindi að sami hestur og
sigraði á síðasta Landsmóti á
Hellu fyrir tveimur árum, sigraði
aftur og var hann vel að því kom-
inn. Geisli heitir fákurinn og er frá
Sælukoti og var knapi hans Stein-
grímur Sigurðsson. Það hefur ekki
gerst síðan árið 1970 að sami
hestur sigrar á tveimur Landsmót-
um í röð í þessum flokki.
Vestlensku hrossin og knapar
þeirra stóðu sig með prýði á
Landsmótinu. Kynbótahrossin
voru fjölmörg og áttu Vestlending-
ar fulltrúa í A- og B-flokki gæð-
inga, ungmennaflokki, unglinga-
flokki og barnaflokki sem mislangt
komust á mótinu en þó gerðu allir
sitt besta.
Aðall frá Nýjabæ endaði í 3. sæti
í flokki 7 vetra og eldri stóðhesta
með einkunnina 8,64, en í þessum
flokki var sett heimsmet er Stáli frá
Kjarri hlaut í aðaleinkunn 8,76.
Sólon, 6 vetra frá Skáney heltist úr
keppni og urðu það mikil vonbrigði
þar sem honum var spáð góðu
gengi í kynbótadómum. Þeyr frá
Akranesi endaði í 2. sæti í flokki 5
vetra stóðhesta með 8,55 í aðal-
einkunn og Glymur frá Innri-
Skeljabrekku endaði
með 8,34. Bjarmi frá
Lundum II fékk 8,21 í
aðaleinkunn, Storm-
ur frá Leirulæk fékk
8,16, Glúmur frá
Stóra-Ási fékk 8,07
og að lokum fékk
Magni frá Vestri-
Leirárgörðum 7,76 í
aðaleinkunn. Glotti
frá Sveinatungu stóð
efstur af vestlensku
stóðhestunum í fjög-
urra vetra flokki en
hann fékk aðalein-
kunn 8,18. Fránn frá
Vestri-Leirárgörðum
fékk 8,06, Auður frá
Lundum II fékk 7,93
og Heiðar frá Hvann-
eyri fékk 7,64.
Elka frá Efri-Hrepp hafnaði í 4.
sæti í flokki 7 vetra og eldri hryssa
með aðaleinkunnina 8,37 og
Flauta frá Stóra-Ási fékk 8,33. Líf
frá Syðstu-Fossum fékk 8,29 í
flokki 6 vetra hryssa, Eldborg frá
Eyri fékk 8,08, Harpa frá Borgar-
nesi fékk einnig 8,08 f aðaleinkunn
og Þruma frá Spágilsstöðum fékk
8,06. Ópera frá Nýjabæ fékk aðal-
einkunnina 8,07 í flokki 5 vetra
hryssa, Fjöður frá Hofsstöðum
fékk 7,86 og Dúkka frá Borgarnesi
7,82. í fjögurra vetra flokki hryssa
fékk Blæja frá Hesti aðaleinkunn-
.v-..;
■
Ræðumaður laugardagskvöldins var Borgfirðingurinn Gísli Einarsson sem fór á kostum. Inn-
koma hans á völlinn þótti einkar glæsileg á fremur lággengum mósóttum Skagfirðingi sem hann
reið „út og suður“ um völlinn áður en hann steig í ræðustót.
ina 8,08, Aradís frá Sigmundar-
stöðum fékk 8,02, Ósk frá Geirs-
hlíð fékk 7,77 og Marey frá Sig-
mundarstöðum 7,72.
Knapar og hross af
vestlenskum ættum
stóðu sig vel
Freyja Amble Gísladóttir og
Krummi frá Geldingalæk sigruðu í
ungmennaflokki og Jamila Berg
og Segull frá Akrakoti lentu í 7.
sæti en Jamila og Segull sigruðu í
B úrslitum ungmennaflokks og
tryggðu sér því rétt til að keppa í
úrslitunum. I unglingaflokki lentu
Sigurborg Hanna Sigurðardóttir og
Rökkvi frá Oddstöðum í 16. sæti í
milliriðlum, aðeins einu sæti frá því
að tryggja sér þátttöku í B úrslitum
í unglingaflokki. Valdís Ýr Ólafs-
dóttir og Kolskeggur frá Ósi lentu í
20. sæti og Flosi Ólafsson og
Garðsauki frá Efri-Gegnishólum
lentu í 22. sæti en þau kepptu
einnig í unglingaflokki. Daníella
Hafsteinsdóttir og Aska frá Geld-
ingaá lentu í 10. sæti eftir for-
keppni í barnaflokki og lentu þær í
28. sæti í milliriðlinum.
SO
Umdeilt atvik þegar dómarinn taldi að boltinn hefði lent í
hendi Bjarna Guðjónssonar. Myndir sýna hinsvegar að svo
var ekki en Framarar uþþskáru engu að síður víti og mark.
Ljósm: Gísli Baldur Gísiason á fotbolti.net
i síðari hálfleik snérist leikurinn
hinsvegar við. Framarar komu bar-
áttuglaðir í leikinn og ætluðu sér
ekki að láta úrvalsdeildarliðið slá
sig úr bikarnum. Strax á 48. mín-
útu var dæmt víti á lA þegar bolt-
inn virtist hafa farið í hönd Bjarna
Guðjónssonar. Skagamenn mót-
mæltu dómnum harðlega og við
nánari skoðun á myndum af atvik-
inu má sjá að boltinn fer í bak
Bjarna en snertir ekki hönd hans.
Engu að síður var vítið staðreynd
og Helgi Sigurðsson skoraði úr
því. Leikurinn jafnaðist nokkuð eft-
ir þetta og áttu bæði lið nokkur
færi. Helgi jafnaði hins vegar met-
in fyrir Fram á 81. mínútu þegar
annað víti var dæmt á ÍA, að þessu
sinni á Bjarka markvörð. Því þurfti
að framlengja leikinn. Leikmenn
voru nokkuð lúnir í framlenging-
unni og gerðist fátt markvert og
allt útlit fyrir að leikurinn færi í víta-
spyrnukeppni. Þórður Guðjónsson
var hins vegar á öðru máli og skor-
aði hann laglegt mark skömmu
fyrir leikslok og tryggði Skaga-
mönnum sigurinn.
Það er allt of snemmt að segja til
um hvaða áhrif þjálfaraskiptin hafa
á lið ÍA. Arnars og Bjarka bíður
uppbyggingarstarf en sigur í fyrsta
leik hlýtur að hleypa þeim kappi í
kinn. Það er áhyggjumál hve liðið
byrjaði illa í seinni hálfleik, nokkuð
sem hefur loðað við það í allt sum-
ar. Verði breyting á því og framhald
á þeirri baráttu sem liðið sýndi í
fyrri hálfleik gætu hlutirnir hins
vegar breyst til hins betra. -KÓP
IA fær
heimaleik
í hádeginu í gær var dregið í átta
liða úrslit bikarkeþþni KSÍ í knatt-
sþyrnu. Skagamenn sem lögðu
Fram að velli á sunnudagskvöidið
fá heimaleik og mæta sigurvegara
í leik Leiknis og Keflavíkur sem
leika á fimmtudagskvöldið. Leikur-
inn fer fram sunnudaginn 23. júlí
og hefst klukkan 19:15. HJ
Landsmót hestamanna var sett í sautjánda sinn síðasta fimmtudag og riðu fulltrúar frá öllum félögunum sem þátt tóku á
mótinu saman inn á keþþnisvöllinn.
Barna- og unglingamót HSH í frjálsum
Dagana 27. og 28. júní sl. var
barna- og unglingamót HSH í
frjálsum íþróttum haldið í Stykkis-
hólmi og í Staðarsveit.
Það var ungmennafélagið
Snæfell sem hélt yngra mótið sl.
þriðjudag á Stykkishólmsvelli.
Þátttakendur voru rúmlega þrjátíu
10 ára og yngri og lögðu hart að
sér í keppninni sem var hin
drengilegasta. Að lokinni keppni
fengu keppendur þátttökupening.
Mótsstjóri var Steinunn Ingibjörg
Magnúsdóttir Snæfelli.
Mótshaldari eldra mótsins þ.e.
11 ára og eldri var ungmennafé-
lagið Staðarsveit og fór keppnin
fram á Lýsuhólsvelli sl. miðviku-
dag. Á mótinu kepptu tæplega
fjörutíu unglingar sem létu ekki á
sér standa enda miklir sóma
keppendur þar á ferð sem halda
uppi merkjum HSH. Ekki hefur
verið haldið mót á Lýsuhóli í all-
mörg ár og var því kærkomið að
færa mótið suður fyrir fjall. Móts-
stjóri var Kristján Þórðarson Umf.
Staðarsveit.
Eldra mótið er stigakeppni milli
aðildarfélaganna og sigurvegari
mótsins var Snæfell með 364
stigum, UMFG í öðru sæti með
174, Víkingur/Reynir í þriðja sæti
með 129 stig og Umf. Staðarsveit
í fjórða sæti með 118 stig.
AP
Knattspyrnu-
skóli Víkings
Knattspyrnuskóli Víkings fór fram
dagana 6.-16. júni á Ólafsvíkurvelli.
Leiðbeinendur í knattsþyrnuskólan-
um voru Ejub Purisevic sem varyf-
irleiðbeinandi og með honum voru
Steinunn Lárusdóttir, Dalibor Nedic,
Jón Steinar Ólafsson, Matej Gro-
bovesk og Kevin Fotheringham.
Krakkarnir sem skólann sóttu voru
um 75 talsins og lærðu þau mikið
um knattsþyrnu og skemmtu þau
sér mjög vel á þessum tveimur vik-
um sem skólinn stóð stóð yfir. Ár-
mann Smári Björnsson leikmaður
FH kom í heimsókn á lokadegi
skólans og sýndi hann krökkunum
ýmislegt er að knattleik snýr. Knatt-
spyrnuskóli Víkings er haldinn í
samtarfi við Snæfellsbæ, Fiskmark-
að íslands og Prinsinn. Næsti knatt-
spyrnuskóli Víkings er ráðgerður í
ágúst. SO